Morgunblaðið - 13.08.1993, Page 26

Morgunblaðið - 13.08.1993, Page 26
26 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST 1993 samstöðu í SUS Kjósum eftir Ingu Dóru Sigfúsdóttur Um helgina mun ungt sjálfstæð- isfólk ganga að kjörborði á þingi Sambands ungra sjálfstæðismanna í Hveragerði og á Selfossi til að velja mann sem þar mun gegna formennsku næstu árin. Mörg verk- efni eru framundan í starfi ungs sjálfstæðisfólks. Landsfundur verð- ur haldinn í oktgber, sveitarstjóm- arkosningar næsta vor og alþingis- kosningar eftir eitt og hálft ár. Fáir hafa farið varhluta af þeim erfiðleikum sem hijáð hafa íslenskt efnahagslíf undanfarin misseri. Á slíkum tímum er mikilvægt að efla Sjálfstæðisflokkinn eftir mætti en það verður eitt af meginhlutverkum formanns Sambands ungra sjálf- stæðismanna. Öflugt innra starf . Undanfarið hafa skoðanakann- anir sýnt að Sjálfstæðisflokkurinn stendur sterkast að vígi meðal yngstu aldurshópanna. Aðildarfélög SUS og félagar sambandsins hafa aldrei verið fleiri enda verður þing- ið nú um helgina það fjölmennasta sem haldið hefur verið í sögu þess, með 463 þingfulltrúum. Þetta er ekki síst að þakka miklum drif- krafti Sambands ungra sjálfstæðis- ■ KEPPNI kraftakarla verður í Tívolí í Hveragerði sunnudaginn 15. ágúst. Aðalkeppendur verða Hjalti Ursus Árnason, Guðni Sig- urjónsson og Unnar Garðarsson, en allir geta tekið þátt í keppninni. Hún hefst kl. 14 framan við veit- ingastaðinn Kam-bar. H íslandsmeistarakeppni í fjallahjólreiðum verður á sunnudag- inn 15. ágúst i Heiðmörk. Keppt verður í ýmsum flokkum og er skráning á staðnum. Skráning verð- ur kl. 12.30-13.30 en keppnin hefst kl. 14. „Guðlaugur Þór er lík- legri til að sameina and- stæða hópa innan Sam- bands ungra sjálfstæð- ismanna eftir kosning- ar.“ manna í kosningabaráttu fýrir sveitarstjórnar- og alþingiskosning- ar sem fram fóru 1990 og 1991. Lykillinn að þessum drifkrafti er án efa öflugt innra starf sambands- ins en á því bar Guðlaugur Þór Þórðarson ábyrgð sem varaformað- ur SUS. Guðlaugur Þór hefur undanfarið gegnt formennsku í sambandinu eftir að Davíð Stefánsson, fráfar- andi formaður, sagði af sér vegna eftir Alfreð Þorsteinsson Á borgarráðsfundi 3. ágúst sl. felldu borgarráðsmenn Sjálf- stæðisflokksins tillögu undirritaðs þess efnis, að aðstaða fyrir bensín- stöð í svokölluðum Kjarna í Graf- arvogi yrði boðin út. Þess í stað samþykktu þeir, að Hagkaups- menn fengju þessa aðstöðu án útboðs. Þegar litið er til þess, að góð reynsla fékkst af útboði síðast þegar aðstöðu undir bensínstöð var úthlutað í Reykjavík og það skilaði borgarsjóði hærri tekjum en áður hefur tíðkast hljóta borg- arráðsmenn Sjálfstæðisflokksins anna og hyggst Guðlaugur gefa kost á sér til formennsku áfram. Auk hans hefur Jónas Fr. Jónsson lýst yfir framboði sínu. Greinir aðalatriðin frá aukaatriðunum Nokkrum kostum, öðrum fremur, er nauðsynlegt að væntanlegur for- maður Sambands ungra sjálfstæð- ismanna búi yfir. Hann þarf að vera duglegur, þarf að ná til fólks og geta starfað með því. Hann þarf að vera opinn fyrir nýjum hugmynd- um og ekki síst þarf hann að vera heiðarlegur. Þessi kostir prýða Guð- laug Þór Þórðarson. Guðlaugur Þór á auðvelt með að sameina og sætta ólík sjónarmið. Honum tekst jafnan með skemmti- legri framkomu að gera mönnum aðalatriðin ljós og ná fólki saman „Af framansögðu má sjá, að það er hagur Reykjavíkurborgar að bjóða út eftirsóknar- verða aðstöðu eins og bensínstöðvar eru. “ að skulda Reykvíkingum skýring- ar á afstöðu sinni. Til upprifjunar skal þess getið, að aðstaða fyrir bensínstöð í Húsa- hverfi var boðin út í ársbyijun 1990 og sendu tvö olíufélög tilboð. Olíufélagið hf. (Esso) átti hærra tilboðið, sem reyndist vera 7 millj- ónir króna fyrir utan gatnagerðar- gjöld, en tilboð hins aðilans, Olís Inga Dóra Sigfúsdóttir um skynsamlegar tillögur. Oft hef- ur þetta orðið til þess að menn hafa sameinast um atriði, þar sem smáatriði hafa verið að vefjast fyr- Alfreð Þorsteinsson hf., var einungis 1 milljón króna. Eðli málsins samkvæmt fékk Olíufélagið hf. lóðinni úthlutað og er ekki deilt um það, að tilboð félagsins skilaði borgarsjóði auka- ir. Skýrt dæmi um þetta eru sjávar- útvegsmálin en óhætt er að fullyrða að sem formaður sjávarútvegs- nefndar hafi Guðlaugi Þór tekist að ná fram breiðari samstöðu ungra sjálfstæðismanna um þann mála- flokk en öðrum hefði tekist. Mannasættir Guðlaugur Þór er líklegri til að sameina andstæða hópa innan Sam- bands ungra sjálfstæðismanna eftir kosningar. Allstaðar þar sem hann hefur komið að störfum fyrir SUS og önnur félagasamtök hafa aðilar gengið sáttir frá borði. Guðlaugur Þór er mannasættir. Af þessum sökum er ég ekki í vafa um hvorn aðilann beri að styðja í kosningun- um um helgina. Eg mun styðja Guðlaug Þór og hvet allt ungt sjálf- stæðisfólk til að gera slíkt hið sama. Höfundur er fyrrverandi stjórnarmaður í Sambandi ungra sjálfstæðismanna tekjum, sem meta má hæst 7 millj- ónir króna á núverandi verðlagi, en minnst 2,5 milljónir króna. Af framansögðu má sjá, að það er hagur Reykjavíkurborgar að bjóða út eftirsóknarverða aðstöðu eins og bensínstöðvar eru. Hvað er það þá, sem veldur því, að sjálf- stæðismenn neita að samþykkja tillögu, sem bæði er líkleg til að skapa borgarsjóði meiri tekjur og er tvímælalaust í anda heilbrigðrar skynsemi. Hér er um hreina gjafastarfsemi að ræða til stórs og öflugs fyrir- tækis. í því sambandi er umhugs- unarefni, að skammt er til kosn- inga — og máltækið segir, að æ sér gjöf til gjalda. Hvað er ein bensínstöð milli vina þegar þannig stendur á og ljóst að kosningavélin verður óvenju bensínfrek næsta vor? Höfundur er varaborgarfulltrúi í Reykjavík fyrir Framsóknarflokkinn. Hvað er ein ben- sínstöð milli vina? RAÐAUGi YSINGAR A TVINNUAUGL ÝSINGAR Laus staða Staða forstöðumanns Skólaskrifstofu Reykjavíkurborgar er laus til umsóknar. Ráðið verður í stöðuna frá 1. október nk. Umsóknir berist til skrifstofu borgarstjóra, Ráðhúsi Reykjavíkur, fyrir 9. september nk. Borgarstjórinn í Reykjavík, Markús Örn Antonsson. Frá Fræðsluskrif- stofu Norðurlands- umdæmis eystra Eftirtaldar kennarastöður eru lausar til um- sóknar: Barnaskóli Akureyrar 1/2-1/1 staða heimilisfræði. Hrafnagilsskóli 1/2 staða. Umsóknarfrestur um ofangreindar stöður er til 23. ágúst. Upplýsingar veita skólastjórar viðkomandi skóla. Verktakar - sveitafélög Tilboð óskast í loftpressu Atlas Copco XAS 125, árg. ’90, 263 CFM, 7.500 lítrar/mín. Keyrð 640 klst. Upplýsingar í síma 45977 eða 641132. Húsnæði óskast Mæðgur óska eftir 2ja-3ja herb. íbúð, ekki í kjallara, helst miðsvæðis í borginni. Upplýsingar í síma 97-11347 eftir kl. 17. Ása. Útboð Póstur og sími, Umdæmi III, óskar eftir til- boðum í landpóstaþjónustu frá Blönduósi. Landpóstaþjónustan er á tveimur leiðum: 1. Frá Blönduósi um Ása, Vatnsdal og hluta Svínavatnshrepps til Blönduóss. 2. Frá Blönduósi til Kjalarlands og um Langadal, Svartárdal, Blöndudal og hluta Svínavatnshrepps til Blönduóss. Tilboðum skal skilað fyrir hvora leið fyrir sig. Þjónustan skal framkvæmd þrisvar í viku frá póst- og símstöðinni Blönduósi. Afhending útboðsgagna ferfram hjá stöðvar- stjóra á póst- og símstöðinni BJönduósi, frá og með (Driðjudeginum 17. ágúst 1993, gegn 2.000 kr. skilagjaldi. Tilboðum skal skilað á sama stað eigi síðar en 16. september 1993, kl. 14.00. Tilboð verða opnuð sama dag kl. 14.00 á póst- og símstöðinni Blönduósi, að viðstöddum þeim bjóðendum, sem þess óska. Réttur er áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Póstur og sími, Umdæmi III, 600 Akureyri. Uppboð á lausafjármunum Að kröfu Ásgeirs Magnússonar hdl. fer fram uppboð á eftirtöldum lausafjármunum í Fákaborg 8, hesthúsi, Stykkishólmi, laugardaginn 21. ágúst 1993 kl. 14.00: Uppboðsandlag: Þristur 1002, 12 vetra rauðstjörnóttur og 4ra vetra bleikálóttur stóðhestur undan Rún 84.2.88-830 og Kolskeggi, og kynbótahryssurnar, Rún 84.2.88-830, Gjöf 86.2.87-023, Spyrna 87.2.37- 011, Fluga 87.2.37-013, Nös 88.2.37-014, Krafla 88.2.37- 020, Blíö 88.2.37-016, Gjöf 87.2.37-010, Blökk 87.2.37-014 og Vaka 88.2.37- 017. Greiðsla viö hamarshögg. Sýslumaðurinn í Stykkishólmi, 12. ágúst 1993. StMMauglýsingar FERÐAFÉLAG @ ÍSLANDS MÖRKINNI 6 - SÍMI 682533 Laugardagur 14. ágúst kl. 8.00: Gönguferð á Heklu. Gengið verður frá Skjólkvíum. Gangan fram og tll baka á fjall- Ið tekur um 8 klst. Verð kr. 2.100. Brottför frá Umferöarmiðstöð- inni, austanmegln, (komið vlð I Mörkinni 6). Helgarferðir 13.-15. ágúst: 1) Fimmvörðuháls (8 klst. ganga). Gist í Þórsmörk. 2) Þórsmörk - gönguferðir - notaleg gistiaöstaöa f Skag- fjörðsskála og tjöldum. 3) Landmannalaugar - Eldgjá. Gist í sæluhúsi F.L f Laugum. Sunnudag 15. ágúst dagsferð til Þórsmerkur kl. 8.00. Ath. hagstætt verð á dvöl f Þórs- mörk mllli ferða. Kl. 10.30 Innstldalur-Svfnahlfð - Klambragil. Kl. 13.00 Grændalur - Reykja- dalur. 18.-22. ágúst (5 dagar): Litla Hálendisferðln. Brottför kl. 9.00. Ekið um Tungu- felldal inn á Hrunamannaafrétt og þaðan tll Hveravalla, þaðan norður fyrir Hofsjökul um Lauga- fell til Nýjadals og gist þar í tvær nætur. Gengið um Vonarskarö. Upplýsingar og farmiðasala á skrifstofunni. Ferðafélag fslands.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.