Morgunblaðið - 09.09.1993, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1993
11
Roni Hom með sýn-
ingn á Annarri hæð
OPNUÐ hefur verið sýning með
bandarísku listakonunni Roni
Horn í sýningarsalnum Annarri
hæð, Laugavegi 37.
Verkið sem til sýnis er nefnist
Paris Object frá 1987. Það saman-
stendur af massívum renndum og
glersallablásnum einingum úr
ryðfríu stáli og kopar.
Roni Horn hefur margoft dvalið
hér á landi síðustu tvo áratugi og
er m.a. að vinna að bókaflokk um
íslenska staðhætti.
Árið 1992 hélt hún sýningu í
Nýlistasafninu og kenndi við fjöl-
tæknideild MHÍ. Mikill áhugi er á
verkum hennar í listheiminum um
þessar mundir. Stór farandsýning
á teikningum hennar hefur farið
milli viðurkenndra sýningarsaia
Evrópu síðustu mánuði og á næst-
unni verður opnuð sýning á verk-
um hennar í Mary Boone gallery
í New York.
Sýningin er opin á miðvikudög-
um frá kl. 2-6 út októbermánuð.
Frá æfingu á Orfeo. Ljósmynd/Jim Smart
Hin upprunalega ópera
Orfeo eftir Monteverdi í Langholtskirkju í kvöld
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bandaríska listakonan Roni Horn sýnir verkið Paris Object á Ann-
arri hæð.
Barnakór Grens-
áskirkju til Italíu
ALLSÉRSTÆÐUR tónlistarflutningur verður í Langholts-
kirkju í kvöld og laugardagskvöld, þegar fjórir hópar tónlistar-
manna, auk einsöngvara, sameinast undir sljórn Gunnsteins
Olafssonar og flytja óperuna „Orfeo“ eftir Monteverdi. Tónleik-
ajrnir hefjast klukkan 20.30 bæði kvöldin. Orfeo er barokk-
ópera, samin 1607 og er þetta í fyrsta sinn sem þessi tónlist
er flutt hér á landi, að sögn Gunnsteins. Hóparnir sem samein-
ast um flutninginn eru Bachsveitin í Skálholti, svissneska blás-
arasveitin Cornetti con crema, sönghóparnir Hljómeyki og
Voces Thules, auk þess sem tólf einsöngvarar koma fram.
Barnakór Grensáskirkju hefur
sitt fjórða starfsár laugardaginn
11. september kl. 10.30. Kórinn
skipa liðlega fjörutíu börn á aldrin-
um 10-14 ára. í júní í sumar tók
Nýjar bækur
■ Aldrei aftur meðvirkni, bók
um heiðarleg samskipti við sjálfan
sig og aðra eftir Melody Beattie
er komin út.
í kynningu útgefanda segir
m.a.: „Kenningar um meðvirkni
hafa verið all fyrirferðarmiklar á
undanförnum árum í meðferð að-
standenda fíkla og annars ofvirks
fólks. Höfundur Aldrei aftur með-
virkni, Melody Beattie hefur verið
leiðandi í þeirri umræðu vestan-
hafs að undanförnu og hafa kenn-
ingár hennar og hugmyndir valdið
straumhvörfum í lífi fjölda að-
standenda t.d. áfengissjúklinga.
Aldrei aftur meðvirkni, tekur á
hispurslausan hátt á flestum
þeirra þátta sem skaða sambönd
okkar við ástvini og aðra sem eru
okkur kærir. í bókinni er að finna
ýmis einföld „próf“ sem gera les-
andanum kleift að átta sig á eigin
meðvirkni og bregðast við henni á
raunsæjan máta. Þá er einnig bent
á sjálfshjálparhópa sem starfa á
fjölmörgum sviðum og grein gerð
fyrir starfsemi þeirra.
Aldrei aftur meðvirkni er skrif-
uð í ljósi reynslu og menntunar á
því sviði sem hún fjallar um, en
höfundurinn er menntaður félags-
ráðgjafi með mikla persónulega
og starfslega reynslu af meðvirkni
í öljum myndum.
Útgefandi er Bókaforlagið
Birtingur. Bókin er 208 bls.
Verð 2.850 krónur með vsk.
T-Iöfóar til
Xlfólks í öllum
starfsgreinum!
kórinn á móti bandarískum
drengjakór frá Chattanooga í
Tennessee og héldu kórarnir sam-
eiginlega tónleika sem tókust afar
vel. Nú hefur kórnum boðist að
fara til Ítalíu í júní næsta sumar,
þar sem hann mun syngja með „Le
voci bianche del Coro Farnesiano“
í borginni Piacenza, sem er
skammt sunnan við Mílanó.
Kórinn æfir tvisvar í viku, á
þriðjudögum og laugardögum, og
syngur við messur fyrsta sunnu-
dag hvers mánaðar.
Stjórnandi kórsins er Margrét
Jóhanna Pálmadóttir og formaður
foreldrafélagsins er Lilja Árna-
dóttir.
„Ástæðan fyrir því að við ákváð-
um að flytja óperuna er í fyrsta
lagi sú að hún hefur ekki heyrst
hér áður,“ segir Gunnsteinn. „Áuk
þess er þetta fyrsta óperan sem
talin er fullmótuð í óperusögunni.
Um aldamótin 1600 gerðu menn
tilraunir til að setja leikrit á svið
og sungu þá þau leikrit. Ætlunin
var að endurvekja grísku harm-
leikina og efniviðurinn var sóttur
í þá, en þetta voru ekkert sérstak-
ir hæfileikamenn sem voru að
semja tónlistina.
Svo kom Monteverdi og er haf-
inn yfir alla sína samtíð. Hann
semur Orfeo árið 1607 og semur
þarna mjög fjölbreytilegt tónverk,
sem er auk þess heildstæð ópera.
Og til gamans má geta þess að
Monteverdi hefur verið kallaður
Beethoven sinnar aldar.“
„En hvers vegna hefur verkið
ekki verið fiutt áður hér?“
„Það sem hefur háð flutningi á
henni, er að í verkinu er leikið á
fjórar lútur en hér hefur aðeins
verið til eitt slíkt hljóðfæri. Vegna
flutningsins núna koma þrír lútu-
leikarar frá Þýskalandi. Annað
sem ég held að spili inn í, er að
það hefur þurft töluverða áræðni
að fara út í þetta verkefni. Það
er frumskilyrði að stjórnandinn
tali ítölsku. Ég hef lengi gengið
með þennan draum og dvaldi á
Ítalíu í eitt ár til að læra ítölsku
og stúdera þessa tónlist.
Til landsins koma líka sjö hljóð-
færaleikarar frá Sviss sem leika á
blásturshljóðfæri sem ekki hefur
verið leikið á hér áður. Það heitir
cornetto — eða Zink og er sam-
bland af málm- og tréblásturs-
hljóðfæri. Hópurinn heitir Cornetti
con crema og hefur sérhæft sig í
flutningi tónlistar frá 16. og 17.
öld. Síðan þarf að nota hljóðfæri
sem heitir „regal“ og er lítið org-
el. Svo sérkennilega vildi til að við
fundum eitt slíkt hljóðfæri hér á
landi — í Grindavík. Þetta er lítið
orgel búið tunguröddum. Það var
notað á 16. og 17. öld en síðar
leysti orgelpósitífið það af hólmi.
Á neðra sviðinu er hljómur þess
hrjúfur og því þótti það ómissandi
í óperum 17. aldar þegar leikurinn
barst til undirheima. En það er
margt fleira sérstakt við hljóð-
færaskipanina í verkinu. Til dæm-
is er blokkflautan aðalhljóðfærið;
það er að segja hún er í öndvegi.
Hún var algengt blásturshljóðfæri
á 17. og 18. öld. Allt fram til árs-
ins 1750 var hún nær eina flautan
sem notuð var eða þar til þver-
flautan ruddi sér til rúms. Þá hvarf
blokkflautan af sjónarsviðinu en
gekk í endurnýjun lífdaga á 20.
öld.“
Á tónleikunum koma fram tólf
einsöngvarar. Aðalhlutverkið,
sjálfan Orfeus, syngur Hans Jörg
Mammel, frá Þýskalandi en hann
kom nýlega fram á Monteverdi-
hátíðinni í Utrecht í Hollandi.
Aðrir söngvarar verða meðal ann-
ars, Rannveig Sif Sigurðardóttir,
Þórunn Guðmundsdóttir, Tómas
Tómasson, Ragnar Davíðsson,
Erna Guðmundsdóttir og Guðlaug-
ur Viktorsson.
ssv
W". ’^uli%iiiuinriniinnDiiDiiini™ir / ^ 0 0
LYKILL AP fíQTFI ORK1
Hvað œtlar þú |
að gera um helgina |
2 nætur M r
Kr. 10.900*
á mann
INNIFAUÐ:
Gisting í tvíbýli, morgunverbur
af hlaðborði og þríréttaður kvöldverður hússins.
* Aukagjald fyrir einbýli kr. 1.500 á nótt.
Á Hótel Örk eru öll herbergi með baöi, síma, útvarpi, 7 rása sjónvarpi og smábar.
Veitingasalir og barir eru skreyttir með verkum íslenskra listamanna og blómskrúöi
úr gróðurhúsum Hverageröis.
Á Hótel Örk er upphituð útisundlaug með heitum pottum, vatnsrennibraut
og barnabusllaug, gufubað meö jarögufu og góð sólbaðsaöstaða.
^Við hótelið er 9 holu golfvöllur, tennisvellir, 18 holu
púttvöllur og sparkvöllur.
Á Hótel Örk er hárgreiðslustofa, nudd-
og snyrtistofa með ljósalömpum,
, _ líkamsræktarsalur og borðtennis.
í miðn viku [ j
Kr. 14.900
á mann
1 nótt
Kr.
á mann
I
I
I
I
úh
HÓTEL ÖDK
HVERAGERÐI SÍMI 98-34700.FAX 98-34775
2 nætur
í miðri viku
fír. 8.900* á