Morgunblaðið - 21.09.1993, Blaðsíða 1
56 SIÐURB
213. tbl. 81.árg.
ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER1993
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Múslim-
ar vilja
aðgang
að hafi
Sar^jevo. Reuter.
FULLTRÚAR þjóðarbrotanna í
Bosníu og alþjóðlegir sáttasemj-
arar hittust í gær um borð í
bresku herskipi undan Adría-
hafsströnd. Átti upphaflega að
reyna að leysa úr ágreiningnum
um skiptingu Bosníu en hætt var
við að undirrita samninga um
hana á Sarajevo-flugvelli í dag.
John Mills, fulltrúi sáttasemjar-
anna Owens lávarðar og Thorvalds
Stoltenbergs, sagði deiluaðila ekki
hafa sýnt nógu mikinn sveigjanleika
í gær og þess vegna hefði fundinum
í dag verið aflýst. „En það náðist
umtalsverður árangur varðandi að-
gang múslima að hafi. Þrátt fyrir
vonbrigðin hefur náðst árangur ...
samkomulag er mögulegt". Múslim-
ar krefjast einnig meira landsvæðis
en hin þjóðarbrotin vilja leyfa þeim
að halda.
Gagnsókn múslima
Reuter
Eiginmaður syrgður
DRAZENA, nítján ára gömul eiginkona Dalibors Percovic, liðsforingja úr liði Bosníu-Króata, grætur
yfir kistu eiginmanns síns. Percovic féll í bardögum við múslima í borginni Mostar í suðurhluta landsins
en þar hafa um 50.000 óbreyttir borgarar úr röðum múslima verið í herkví Króata um margra vikna
skeið. Hermenn múslima á staðnum hófu gagnsókn í gær.
Vilja leyfa
fíkniefni
SJÓNVARPSÞÁTTUR um 25 ára
baráttu yfirvalda gegn fíkniefna-
notkun, Leiðin til vltis, hefur
valdið umróti í Danmörku. í
þættinum var m.a. skýrt frá því
að glæpum og dauðsföllum vegna
efnanna hefði fækkað I þeim
Evrópulöndum sem hafa slakað
til og leyft takmarkaða sölu á
fíkniefnum, að sögn Berlingske
Tidende.
Rætt er um að yfirvöld ættu að
útvega forföllnum fíklum efnin;
þannig mætti draga úr glæpum sem
oft eru framdir til að ná í fé til fíkni-
efnakaupa. Einn af áhrifamestu
talsmönnum jafnaðarmanna á
þingi, Dorte Bennedsen, sagði að
taka þyrfti stefnuna í fíkniefnamál-
um til endurskoðunar og sagðist
reiðubúin að ræða hvort leyfa ætti
heróínnotkun. Fulltrúi flokks Mið-
demókrata var sama sinnis og sagði
þá stefnu sem nú væri reynt að
framfylgja vera komna í þrot og
leyfa ætti sum fíkniefni.
Erling Olsen dómsmálaráðherra
viðurkenndi að stefnan hefði brugð-
ist en var þó andvígur því að fíkni-
efnanotkun yrði leyfð. Leggja bæri
meiri áherslu á fyrirbyggjandi að-
gerðir og baráttu gegn þeim sem
stæðu að baki sölunni.
Flestir voru fyrir fram vantrúað-
ir á nokkurn árangur af fundinum
á Adríahafi og ákafir bardagar
milli Króata og múslima bæta ekki
friðarhorfurnar. í gær hófu múslim-
ar, sem verið hafa innikróaðir í sín-
um hluta Mostar-borgar, gagnsókn
gegn Króötum og voru fréttir um
mjög harða bardaga.
Karpov enn
með forystu
Amsterdam. Reuter.
HOLLENDINGURINN Jan
Timman og Anatólíj Karpov,
fyrrum heimsmeistari, gerðu
jafntefli í níundu einvígis-
skákinni í gær.
Karpov hefur nú fimm vinn-
inga gegn fjórum í einvígi þeirra
sem er á vegum Alþjóða skák-
sambandsins, FIDE. Næst verð-
ur teflt á morgun; Karpov hefur
þá hvítt.
Sjá skákskýringu á bls. 50.
Pólverjar kusu fyrrverandi kommúnista og höfnuðu Samstöðuleiðtogum
Vinstriöfl heita markaðs-
búskap og einkavæðingn
Varsjá. The Daily Telegraph og Reuter.
SIGURVEGARAR þingkosninganna í Póllandi á sunnudag, Lýðræðis-
bandalag vinstrimanna, SLD, sem er fylking fyrrverandi kommúnista,
byrjuðu i gær að leita hófanna við aðra flokka um myndun samsteypu-
stjórnar. Líklegast er talið að niðurstaðan verði meirihlutasamstarf
við annan flokk sem einnig vann mjög á, Smábændaflokkinn, PSL,
og einn eða fleiri flokka að auki til að treysta stjórnina. Leiðtogi SLD
fullyrðir að bandalagið muni stuðla áfram að markaðsbúskap, einka-
væðingu og erlendri fjárfestingu. Það vilji einnig að Pólland gangi í
Atlantshafsbandalagið, NATO.
Kjörsókn var sögð vera um 51,5%
eða mun betri en í síðustu kosning-
um. Endanleg niðurstaða verður ljós
á næstu dögum en samkvæmt bráða-
birgðatölum fær SLD 20,6% at-
kvæða og 173 þingsæti af 460 í
neðri deild þingsins. Smábænda-
flokknum, sem var undirlægja
Georgíuhermenn hvattir
til uppgjafar í Sukhumi
Sukhumi, Tbilisi. Reuter.
UPPREISNARMENN í Abkhasíu-héraði í Georgíu hvöttu stjórnarher
Georgíumanna í héraðshöfuðborginni Sukhumi til að gefast upp í
gær en herinn hefur varið borgina frá því á fimmtudag. Hafa upp-
reisnarmenn umkringt borgina og segja frekari andstöðu stjórnar-
hersins gagnslausa. Andrúmsloft uppgjafar var sagt ríkja í Sukhumi
vegna stöðugra árása uppreisnarmanna. Forseti Georgíuþings í
Tbilisi lagði í gær til að landið gengi í Samveldi sjálfstæðra rílya.
Pavel Gratsjov, landvarnarráð-
herra Rússa, sem gagnrýndi upp-
reisnarmenn harðlega í síðustu
viku, beindi spjótum sínum í gær
að Edúard Shevardnadze, leiðtoga
Georgíu. Sagði Gratsjov að Shev-
ardnadze kæmi í veg fyrir viðræður
á milli deiluaðila. Dró Gratsjev til-
boð sitt um að senda 5.000 her-
menn til Sukhumi til baka en marg-
ir Georgíumenn telja að rússneski
herinn hafi stutt abkhasíska upp-
reisnarmenn á laun undanfarna
mánuði. Shevardnadze hvatti um
helgina ríki heims til að bjarga
Georgíu frá glötun og sagði að átök-
in þar gætu breiðst út til nágranna-
landanna.
Bill Clinton, Bandaríkjaforseti,
hvatti Shevardnadze í gær til að
ganga til friðarviðræðna við Abk-
hasa. Þá hvatti Clinton Borís Jelts-
ín, forseta Rússlands, til að beita
áhrifum sínum til að stöðva blóð-
baðið.
kommúnista meðan þeir réðu ríkjum
í landinu, er spáð rúmlega 15% fylgi
og 128 þingsætum.
Þriðji í röðinni, með aðeins 10,5%
og 69 sæti, er Lýðræðisfylkingin,
flokkur Hönnu Suchocka forsætis-
ráðherra og margra menntamanna
sem voru í fremstu röð verkalýðs-
samtakanna Samstöðu. Þrír flokkar
að auki komast á þing. BBWR,
miðjubandalagi undir handaijaðri
Lech Walesa forseta, er spáð 20
sætum. Nýleg lög um lágmarksfylgi
takmarka möguleika smáflokka á
að vinna þingsæti.
Talið er að vaxandi atvinnuleysi
hafi einkum valdið því að fyrrver-
andi kommúnistar fengu svo mikið
fylgi. þeir heita því að draga úr
mesta sársaukanum sem umskiptin
til markaðsbúskapar og missjöfn
skipting lífsgæða valda. Andstaða
við ný lög sem banna fóstureyðingar
er einnig öflug, um 65% kjósenda
eru þeim andvíg. Þrátt fyrir fortíð
sigurvegaranna eru ýmsir stjórn-
málaskýrendur á því að ekki verði
mikil breyting á stjórnháttum; mark-
aðsvæðing sé komin svo langt að
ekki verði aftur snúið. Ef til vill
verði hægt eitthvað á umbótum.
Ólík sjónarmið í SLD
Óljóst er hve mikil samstaða verð-
ur meðal hópanna sem mynda SLD.
Leiðtogi bandalagsins, Áleksander
Kwasniewski, ítrekaði markaðs-
hyggju sína í gær og sagði kommún-
ismann hruninn. „Við styðjum lýð-
Reuter
Eftirvænting
ALEKSANDER Kwasniewski
(lengst t.v.) fylgist með kosninga-
sjónvarpi. Við hlið hans er vara-
formaður SLD, Izabela Sier-
akowska.
ræði, fijálsan markaðsbúskap og
erlendar fjárfestingar," sagði hann.
Kwasniewski, sem er 38 ára, var
ráðherra í síðustu stjórn kommún-
ista. Formaður SLD, Wlodzimierz
Cimoszewicz, sagði á hinn bóginn
að kosningaúrslitin sýndu ósk um
breytta efnahagsstefnu og dró í efa
að rétt væri að ganga í NATO.
Hann taldi einkavæðingu ekkert
annað en stjórnlausa gróðahyggju,
hvatti menn til að sætta sig við
meiri fjárlagahalla og ræddi með
söknuði um „jafnréttisþjóðfélag"
kommúnismans.