Morgunblaðið - 21.09.1993, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1993
Oskar Magnússon
forstjóri Hagkaups
ÓSKAR Magnússon, hæstaréttarlögmaður og lögmaður Hagkaups
undanfarin ár, hefur verið ráðinn forstjóri fyrirtækisins frá og
með 1. nóvember nk. Þorsteinn Pálsson, sem að undanförnu hefur
gegnt starfi framkvæmdastjóra Hagkaups, verður áfram fram-
kvæmdastjóri hjá félaginu. Óskar tekur við forstjóratarfinu af
Jóni Ásbergssyni sem lét af störfum í 1. júní.
Tilhlökkunarefni
„Starfið leggst mjög vel í mig.
Ég held að það sé skemmtilegt.
Fyrirtækið er frískt og lifandi og
tilbúið til að brydda upp á nýjung-
um. Svo vinnur þarna mikið af
ungu og skemmtilegu fólki. Mér
er ekki síst tilhlökkunarefni að
vinna með því,“ sagði Óskar þegar
rætt var við hann í gærkvöldi.
Hann sagði að þó vænta mætti
einhverra breytinga yrði megin-
stefnan áfram sú sama. „Stefnan
verður áfram sú að bjóða góða
vöru á góðu verði. Það er svona
lína sem er nokkuð fastmótuð og
greinilegt að hún fær góðar mótt-
tökur þess vegna sé ég ekki að
það þurfí að gera grundvallar-
breytingar,“ sagði hann.
Menntun og starfsferill
Óskar er 39 ára, sonur Ragn-
heiðar Jónsdóttur og Magnúsar
Óskarssonar. Hann er stúdent frá
Menntaskólanum við Tjörnina og
lögfræðingur frá Háskóla íslands
1983. Eftir það stundaði hann
framhaldsnám við George Wash-
ington University í Bandaríkjunum
1986 og lauk þaðan mastersprófí
í alþjóðlegri viðskiptalögfræði.
Hann var blaðamaður á Vísi og
síðan DV. samhliða námi og frétta-
stjóri DV frá 1982 til 1987. Frá
þeim tíma hefur henn rekið lög-
mannastofu í Reykjavík ásamt
Ásgeiri Þór Árnasyni. Óskar var
stjómarformaður Olíuverslunar ís-
lands frá 1991 til 1993 og varafor-
maður Lögmannafélagsins 1991
til 1992.
Eiginkona Óskars er Hrafnhild-
ur Sigurðardóttir auglýsingateikn-
ari.
VEÐUR
VEÐURHORFURIDAG, 21. SEPTEMBER
YFIRLIT: Um 800 km suður af landinu er 990 mb lægð, sem hreyfist
austnorðaustur. Yfir norðaustur-Grænlandi er 1030 mb hæð en skammt
suður af Nýfundnalandi er vaxandi 1003 mb lægð sem hreyfist hratt
norðnorðaustur.
SPÁ: Norðaustlæg átt, gola eða kaidi víðast hvar. Skúrir norðvestan
til, dálítil súld eða rigning norðaustanlands en um landið sunnan og
vestanvert verður skýjað með köflum eða jafnvel léttskýjað. Veður fer
hægt kólnandi og hiti verður á bilinu 3-10 stig, hlýjast ( Innsveitum
suðvestan til en kaldast á annesjum norðvestanlands.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á MIÐVIKUDAG: Norðaustan gola eða kaldi og léttskýjað um
sunnan- og vestanvert landið en annars skýjað og smáskúrir norðaustan-
lands. Hiti 2-12 stig, hlýjast sunnanlands.
HORFUR Á FIMMTUDAG OG FÖSTUDAG: Hæg breytileg átt og léttskýj-
að viða um land, fremur svalt og víða hætt við næturf rosti (innsveitum.
Nýir veðurfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.46, 12.46, 16.30, 19.30,
22. 30. Svarsími Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600.
Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað
/ / / * / *
/ / * /
/ / / / * /
Rigning Slydda
* * *
* *
* * *
Snjókoma
Alskýjað
V ^ V
Skúrír Slydduél Él
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörin sýnir vindstefnu
og fjaðrimar vindstyrk,
heil fjöður er 2 vindstig.^
10° Hitastig
V Súld
= Þoka
rtig..
FÆRÐA VEGUM: (Kl. 17.30 ígær)
Þjóðvegir landsins eru flestir i góðu ásigkomulagi og greiðfærir. Víða
er þó unniö að vegagerð og þurfa vegfarendur að haga akstri sam-
kvæmt merkingum þar. Hálendisvegir eru færir fjallabílum, Gæsavatna-
leið fær til austur frá Sprengisandi.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og
ígrænniifnu 99-6315. Vegagerðln.
VEÐUR VIÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
hítl veður
Akureyri 8 okýjað
Reykjavík 11 skýjað
Bergen 14 skýjað
Heieinki n iéttskýjað
Kaupmannahöfn 13 skýjaö
Narssarssuaq 4 skýjað
Nuuk 4 skýjað
Oaló 10 alskýjað
Stokkhólmur 13 skýjað
Þórahöfn 10 þoka
Algarve 26 léttskýjað
Amsterdam 21 þokumóða
Barceiona 26 mistur
Berlín 17 hálfskýjað
Chicago 14 skúr
Feneyjar 23 heiðskírt
Frankfurt 22 léttskýjað
Glasgow 17 skýjað
Hamborg 17 skýjað
London 16 rigning
LosAngeles 18 alskýjað
Lúxemborg 21 léttskýjað
Madríd vantar
Malaga vantar
Mallorca vantar
Montreal 5 léttskýjað
NewYork 10 léttskýjað
Orlando 24 léttskýjað
París 25 skýjað
Madelra 24 léttskýjað
Róm 28 skýjað
Vín 19 léttskýjað
Washington vantar
Winnipeg 7 skýjað
íDAG kl. 12.00
Hoimild: Veðurstofa íatands
(ByBflt 8 veðurspá kl. 16.16 (gær)
Stefán Hilmarsson
gefur sjálfur út
STEFÁN Hilmarsson, sem ver-
ið hefur einn vinsælasti tónlist-
armaður landsins síðustu ár,
hefur ákveðið að gefa sjálfur
út næstu breiðskífu sina, en
áður hefur hann gefið út á
vegum Steina hf., og Spors
hf., arftaka Steina hf. Stefán
leggur nú síðustu hönd á plöt-
una, sem koma á út fyrir jól.
Stefán Hilmarsson hefur verið
með vinsælustu tónlistarmönnum
þjóðarinnar sem söngvári Sálar-
innar hans Jóns míns og í sumar
Pláhnetunnar, en hann hefur
einnig sungið inn á fjölmargar
plötur fyrir aðra og einnig tekið
þátt í söngvakepnni evrópskra
sjónvarpsstöðva fyrir íslands
hönd. Plötur Sálarinnar hans Jóns
míns hafa verið með söluhæstu
breiðskífum um hver jól og plata
Pláhnetunnar sem kom út í vor
seldist einnig vei. Steinar hf. gáfu
piötur Sálarinnar út, en Pláhnetu-
plötuna gaf Spor hf. út, en Spor
hf. tók við -rekstri Steina hf. í
vor. Stefán segist hafa tekið
þessa ákvörðun að vel íhuguðu
máli, en samning við Japís um
dreifíngu á plötunni segir hann
vera á lokastigi.
„Reynsla mín af plötútgáfu síð-
ustu ár hefur sannfært mig um
að útgáfan sé best komin í mínum
Morgunblaðið/Kristinn
Einn á ferð
STEFÁN Hilmarsson leggur
nú síðustu hönd á breiðskífu
sem hann hyggst gefa út sjálf-
ur.
höndum,“ segir Stefán, en vildi
ekki segja meira um samskipti
sín og Steina/Spors hf.
b
»
I
p
I
Hálfnað að veiða
upp í loðnukvóta
LOÐNUVEIÐAR hafa gengið illa að undanförnu vegna hvassviðris L
á miðunum og hefur sú loðna sem skipin hafa fundið verið dreifð. *
Rúmlega 352 þúsund tonn af loðnu eru komin á land og er loðnuk-
vótinn þar með hálfnaður. Eftir er að veiða tæplega 350 þúsund j
tonn. Litlar birgðir eru til hjá loðnuverksmiðjunum. Hjá SR nyöli á *
Seyðisfirði hefur verið tekið á móti 100 þúsund tonnum frá áramótum
Guðmundur Ólafur ÓF landaði
um 600^ tonnum af loðnu hjá
Krossanésverksmiðjunni á Akureyri
á sunnudag. Maron Bjömsson skip-
stjóri sagði veiðar hefðu gengið illa
að undanförnu vegna hvassviðris á
miðunum.
Loðnan dreifð
Loðnan gengur dreifð á stóru
svæði og er á suðurleið. Maron
sagði þþrf væri á skipi til að leita
loðnu. Óhagkvæmt væri að bátarn-
Komst upp um
smygl til landsins
Límdi á
sig* 2 kg
af hassi
TOLLVERÐIR á Keflavíkur-
flugvelli lögðu á sunnudag
hald á 2 kíló af hassi sem 35
ára gömul kona reyndi að
smygla inn til landsins við
komu frá Amsterdam. Konan
hafði límt fíkniefnin á sig
innanklæða, að sögn Þor-
geirs Þorsteinssonar sýslu-
manns á Keflavíkurflugve|Ii.
Eftir að konan var handtekin
við úrtaksleit tollvarða á flpg-
vellinum var málið afhent fíkni-
efnalögreglunni í Reykjavík til
rannsóknar og að kröfu henpar
var konan í gær úrskurðuð í
10 daga gæsluvarðhald vegna
rannsóknar málsins. Sapi- '
kvæmt upplýsingum lögreglu
hefur konan, sem hefur lítillega
komið við sögu í fíkniefnamál-
um, játað á sig að eiga efnið.
ir væru allir við leit en væri leitar-
skip á miðunum gætu bátarnir ein-
beitt sér að veiðunum. Hann sagði
að óvíst hvort gangan þétti sig aft-
ur en hugsanlegt væri að hún gengi
dreifð þar til hún kemur upp að
landinu í nóvember eða desember.
Hjá SR mjöli á Seyðisfírði hefur
verið tekið við 100 þúsund tonnum
á árinu. Gunnar Sverrisson verk-
smiðjustjóri sagði að litlar birgðir
væru til hjá verksmiðjunum enda
veiðin treg að undanfömu.
Árni Traustason
Lést í um-
ferðarslysi 1
MAÐURINN sem lést í um- Í
ferðarslysi á Garðsvegi síðast-
liðinn föstudag hét Árni ,
Traustason, 22 ára gamall. P
Hann var fæddur 10. júní 1971,
var námsmaður og bjó hjá foreldr-
um í Garðhúsum í Garði. Ámi var
ókvæntur og bamlaus.