Morgunblaðið - 21.09.1993, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1993
h
^ Morgunblaðið/Sverrir
I vörslu tollstjóra
TVEIR starfsmenn rikistollstjóraembættisins með hluta af kalkúnalærunum, sem embættið gerði upp-
tækt í gærmorgun.
Kalkúnalærin afgreidd í Keflavík en gerð upptæk í Reykjavík
Bónus ætlar að
leita réttar síns
Utanríkisráðherra rengir heimild ríkistollsljóra
EMBÆTTI ríkistollstjóra lagði I gærmorgun hald á 132 kg af
kalkúnalærum sem Bónus flutti til landsins og sýslumaðurinn á
Keflavíkurflugvelli tollafgreiddi á sunnudag skv. fyrirmælum
Jóns Baldvins Hannibalssonar utanríkisráðherra. Jón Baldvin
sagðist í samtali við Morgunblaðið í gær persónulega rengja heim-
ild tollstjóra tU þess að leggja hald á kjötið. „Mér þykir miður að
til þessara aðgerða skuli hafa verið gripið og tel það misráðið.
Þetta er enn eitt tilefnið sem borgurunum er gefið til málshöfðun-
ar á hendur ríkinu,“ sagði Jón Baldvin. Jóhannes Jónsson, einn
eigenda Bónus, segir að þeir muni fara fram á að fá bættan
þann skaða sem Bónus hlyti af þvi að geta ekki selt vöruna í
verslunum sínum og höfða mál fyrir dómstólum gerist þess þörf.
Utanríkisráðherra ákvað að toll-
afgreiðslan á Keflavíkurflugvelli
skuli ekki hafa fordæmisgildi og
lagði fyrir sýslumann að haga toll-
meðferð soðins kjöts framvegis í
samræmi við úrskurð forsætisráð-
herra um forræði á innflutningi
búvara.
Ágreiningur um forræði
utanríkisráðherra
Friðrik Sophusson fjármálaráð-
herra og Sigurgeir A. Jónsson ríkis-
tollstjóri segja að við tollafgreiðslu
á kalkúnakjötinu á Keflavíkurflug-
velli hafi ekki verið gætt fyrirmæla
reglugerðar landbúnaðarráðherra
um takmörkun á innflutningi bú-
vara. Friðrik sagðist einnig telja að
forræði utanríkisráðherra yfir mál-
um á vamarsvæðinu sneru fyrst og
fremst að atriðum sem sneru að
vamarmálum. Jón Baldvin sagði
aftur á móti í samtali við Morgun-
blaðið að það væri hafíð yfir allan
vafa að utanríkisráðherra væri
æðsti yfirmaður tollamála á Kefla-
víkurflugvelli.
Að sögn Halldórs Blöndals land-
búnaðarráðherra em fyrirmæli bú-
vörulaganna alveg skýr um að þessi
innflutningur sé óheimill og nóg sé
að kalkúnakjöti í landinu.
Jóhannes í Bónus sagði í samtali
við Morgunblaðið að um væri að
ræða vöm sem skv. skilgreiningu
GATT félli undir iðnaðarvarning en
ekki landbúnaðarafurð. „Við sætt-
um okkur ekki við að lagt skyldi
hald á þessa vöm og munum leita
réttar okkar,“ sagði hann.
Þingflokkur Alþýðubandalagsins
sendi frá sér ályktun í gær þar sem
þess er krafíst að forsætisráðherra
biðjist lausnar fyrir utanríkisráð-
herra eða ríkisstjómina í heild. Þá
krefst þingflokkur framsóknar-
manna þess að Alþingi verði kallað
saman nú þegar vegna málsins.
Sjá nánar á miðopnu.
Samníngiir Samvinnuferða og Air Lingns
230 sætí bókuð
á fyrsta degi
STARFSMENN Samvinnuferða-Landsýnar bókuðu 230 sæti til
Dyflinnar á írlandi og til hinna ýmsu áfangastaða írska flugfélags- |
ins Air Lingus með millilendingu í Dyflinni í gær. Helgi Jóhanns-
son, forstjóri ferðaskrifstofunnar, segir að allar línur hafa verið
rauðglóandi og þónokkur tími hefði farið I að sannfæra fólk um
að ekki væri um aprílgabb að ræða. Boðið er upp á fargjöld,
virka daga sem og um helgar, sem eru á bilinu 40-70 þús. kr.
lægri en venjuleg fargjöld.
Aðspurður sagði Helgi að hægt
væri að bjóða fargjöld á þessu verði
vegna hagstæðra samninga við
írska flugfélagið. „Ég held að þeir
hafi einfaldlega gert sér grein fyrir
að þetta væri það sem koma skyldi
í því fijálsræði sem er að hellast
yfir í flugi eftir áramót. Þá verður
öllum fijálst að fljúga á alla þá
áfangastaði sem þeir vilja og verðið
lækkar í kjölfarið," sagði hann.
Mikill verðmunur
Ferðimar sem boðið er upp á
byggjast á flugi með flugfélaginu
Atlanta til Dyflinnar 4-5 sinnum í
viku. Þaðan er síðan hægt að fara
til fjölmargra áfangastaða Air
Lingus, ýmist samdægurs, daginn
eftir eða eftir tvo daga, á verði sem
er svipað helgarpakkaverði. Má sem
dæmi nefna að fargjald til London
(samdægurs frá Dyflinni) kostar
tæpar 30.000 kr en venjulegt verð
er 87.240 kr, að sögn Helga. Ferð
til Glasgow kostar rúmar 30.000
kr í stað 75.540 kr og ferð til
Amsterdam kostar 34.840 kr. í stað
87.100 kr og er flogið samdægurs
frá Dyflinn í báðum tilfellum.
Einnig er boðið upp á ferðir vest-
Seldi Smuguþorsk [
fyrir 30 milljónir ,
tekin ákvörðun um á hvaða veiðar
skipið fer þegar það kemur úr
slipp.
19árapilt-
ur slasaðist
alvarlega
19 ÁRA piltur slasaðist alvarlega
í gær þegar öryggisfesting gaf sig
og hann féll 8 metra til jarðar þar
sem hann var að vinna í þaksperr- |
um nýs íþróttahúss Fram við Safa-
mýri.
Pilturinn var að herða bolta í lang- k
bita á grind hússins þegar öryggis-
festing sem hann var í gaf sig þann-
ig að hann féll 8 metra til jarðar og k
á stétt. Hann var fluttur á sjúkrahús "
og var. að sögn lögreglu með mikla
áverka á höfði auk annarra meiðsla.
HÓPSNESIÐ GK landaði í gær
105 tonnum af þorskflökum í
Hull. Fyrir fiskinn, sem veiddur
var i Smugunni og samsvarar
um 240 tonnum upp úr sjó,
fengust 30,6 miiyónir.
Hópsnesið fór frá Grindavík 14.
ágúst sl. og veiddist aflinn allur í
Smugunni og er því utan kvóta.
Fiskurinn var frystur og unninn
um borð og seldur fyrirfram. Að
sögn Guðlaugs Óskarssonar, út-
gerðarstjóra Hópsnessins, sam-
svarar aflinn 240 tonnum af kvóta-
físki. Slíkur kvóti kostar um níu
milljónir sé hann keyptur hér
heima. Hópsnesið, sem er 230
tonna skip, hefur 674 tonna kvóta
í þorskígildum og þar af er þorsk-
ur 304 tonn.
Hópsnesið fer í slipp í Hull í
u.þ.b. viku og flýgur áhöfnin hing-
að heim á meðan. Ekki hefur verið
ur um haf og kostar þá 46.750 að
fara til New York eða Boston í stað
105.420 kr. í báðum tilfellum þarf
að gista tvær nætur í Dyflinni.
Ekki eru önnur skilyrði en að há-
marksdvöl sé ekki lengri en 30
dagar.
----».♦ ♦--
Fegnrðar- ,
dísir til t
Helsinki >
Fegurðardísimar Svala Björk
Amardóttir og Bryiya Vífilsdóttir
era á föram til Helsinki í Finn-
landi til þátttöku í fegurðarsam-
keppni Norðurlanda nk. laugar-
dagskvöld.
Svala Björk er núverandi fegurð-
ardrottning íslands og Brynja varð
í 3. sæti í Fegurðarsamkeppni ís-
lands sl. vor. Með þeim í för verður
Þórunn Lárusdóttir, sem kjörin var
Fegurðadrottning Norðurlanda
1992. Hún mun krýna arftaka sinn
nk. laugardagskvöld.
í dag
Gagnrýni______________________
Súsanna Svavarsdóttir gagnrýnir
leikritið Ferðalok eftir Steinunni
Jóhannesdóttur 2
Emmy-verðlaunin
Lítil kapalstöð fékk flestar viður-
kenningarnar þegar Emmy-verð-
launin voru afhent á sunnudag 22
Rall__________________________
Núverandi íslandsmeistarar í rall-
akstri unnu alþjóðarall Pizza 67
og Bifreiðaklúbbs Reykjavíkur um
helgina 31
Leiðari
Mál að linni 24
Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra
Harma orð forsætisráðherra
JÓN Baldvin Hannibalsson utanrikisráðherra segist harma þau
orð sem Davíð Oddsson forsætisráðherra lét falla í viðtali í
sunnudagsblaði Morgunblaðsins að Alþýðuflokkurinn hafi verið
óheiðarlegur í deilunum um innflutning á skinku, og segir Jón
Baldvin að það séu þyngstu orð sem fallið hafi í þessari deilu.
íþróttir
► Skagamaðurinn Þórður
Guðjónsson með tilboð frá Boc-
hum í Þýskalandi. Valdimar
Grímsson og Jón Kristjánsson
íhuga félagaskipti úr Val í KA.
í viðtalinu vék Davíð að deilun-
um um innflutning Hagkaups á
skinku og sagði m.a.: „Alþýðu-
flokkurinn hefur því miður verið
óheiðarlegur í því máli, og það er
í fyrsta sinn í þessu stjórnarsam-
starfi'sem hann er virkilega óheið-
arlegur, að mínu viti.“
„Eg hef sagt að þetta stjómar-
samstarf standi og falli með
trúnaðartrausti milli formanna
flokkanna, mín og Davíðs Odds-
sonar. Á meðan trúnaðartraust
haldist okkar í milli gætum við
leyst ágreiningsmál sem upp
kunna að koma með hreinskilnum
umræðum og drengilegum vinnu-
brögðum. Mér er ekkert að van-
búnaði að halda því samstarfi
áfram. Ég skal að vísu viðurkenna
að ummæli Davíðs Oddssonar í
viðtali við Morgunblaðið um helg-
ina, þar sem hann sakar flokk
minn um óheiðarleika og hagar
orðum sínum á þann veg að hann v
hafi verið „virkilega óheiðarlegur,"
sem felur í sér að hann hafi
verið svolítið óheiðarlegur að jafn- k
aði, eru þyngstu orð sem hafa
fallið í þessari deilu. Ég tek þau
ekki til mín, en þau eru særandi k
og lítilsvirðandi við alla mína »
flokksmenn. Eg harma það að
þessi orð hafa verið söeð en ætla
ekki að svara þeim,“ sagði Jón
Baldvin. j