Morgunblaðið - 21.09.1993, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1993
17
skipti milli heyrnarlausra og heyr-
andi barna, sem veita báðum aðil-
um mikla gleði, þó þau séu sínum
takmörkum háð. Ein leið til að
skapa innra öryggi heyrnarlausra
barna er að hlúa að þessum eðlis-
læga hæfileika þeirra. Að geta
bjargað sér sjálfur, tjáð sig við
nágranna, leikið við börnin í um-
hverfinu, það mótar einstaklinginn
jákvætt.
Fullorðnir heymarlausir á ís-
landi hafa áhyggjur af skólamálum
heyrnarlausra. Það hafa þeir sýnt
opinberlega með greinaskrifum í
tímariti sínu og annars staðar svo
og í nefnd menntamálaráðuneytis-
ins. Þeir standa vörð um táknmál-
ið, og þeir heyrnarlausir, sem ég
hef rætt þessi mál við sjá það
vandamál sem fámennið skapar
börnum, félagslega og ekki síður
námslega. Þeir hafa einnig áhyggj-
ur af möguleikum heyrnarskertra
til framhaldsnáms.
Tvíburaskólahugmyndin hefur
einmitt þann kost að geta verið
aðalaðandi skólakostur fyrir
heyrnarskerta. í tvíburaskóla hafa
þeir möguleika á að nýta sér
kennslu þess skóla sem hentar
þeim betur. Leikni í táknmáli gæti
orðið þeim eðlileg. Möguleikar til
tjáskipta og samveru við heyrandi
jafnaldra og heyrnarlausra eru til
staðar í skólaumhverfinu.
Rauðhæf lausn
Tvíburaskóli þarf hvorki að vera
mörg hundruð barna skóli eða ógn-
un við táknmálið og heymarlaus
börn eins og haldið hefur verið
fram. „Hreppaflutningar“ eru
heldur ekki skilyrði. Við getum
alveg eins séð fyrir okkur lítinn
skóla á lóð Heyrnleysingjaskólans,
þar sem heyrnarlausu börnin verða
áfram í sínu umhverfí og lítill al-
mennur grunnskóli kæmi til sam-
starfs við þann skóla sem fyrir er.
A meðan hugmyndin hefur engan
hljómgrunn meðal stjórnenda skól-
ans og hún fær ekki eðlilega um-
fjöllun og hlutlæga kynningu fæst
ekki farsæl lausn. Eg er ekkert
hrædd um að táknmálið þoli ekki
návist við annað málumhverfi. Ég
tel öllu líklegra að tvíburaskóli
yrði lyftistöng fyrir táknmálið. Þar
gæfist tækifæri til að skapa því
sess og virðingu hjá hópi heyrandi
barna, kennurum þeirra og foreldr-
um. Félagslega gæfi það heyrnar-
lausu börnunum ótal möguleika og
þau gætu nýtt sér kennslu almenna
grunnskólans, þegar það væri við
hæfí, að sjálfsögðu með táknmáls-
þjónustu.
Mín reynsla af tvíburaskólanum
á Oppsal gefur mér ekki mynd af
heyrnarlausum/skertum börnum
sem lifa í ótta og niðurlægingu,
án sjálfsvirðingar og öryggis. Ég
hef reynslu af skólasamfélagi þar
sem margir sterkir og jákvæðir
einstaklingar mæta til starfs og
leiks. Ég veit að þannig kemur
skólinn fólki almennt fyrir sjónir.
Að lokum vil ég vitna í Döves tids-
skrift nr. 2, 1993, en þar skrifar
Torbjörn J. Sander, sem er heyrn-
arlaus, langa grein um Vetland-
skólann. Hann segir í greinarlok:
„Þegar ég geng enn á ný á milli
hinna ýmsu deilda í skólanum upp-
lifi ég vinnusemi og mjög góð
vinnuskilyrði. Það er augljóst að
bæði nemendum og kennurum líð-
ur vel.“
Höfundur erforeldri tveggja
heyrnarlausra barna, kennari með
framhaldsnám ísérkennslu m.a.
heyrnleysingjakennslu ogstarfaði
við Heyrnleysingjaskólann í
áratug.
Lmzdson
SANNSÖGULEG MYND
TILNEFND TIL TVENNRA ÓSKARSVERÐLA UNA
ÁriÖ 1984 greindi lœknir
þeim Augusto og
Michaelu Odone (NICK
NOL TE ogSUSAN
SARANDON) frá því að
Lorenzo, fimm ára sonur
þeirra þjáðist af
sjaldgœfum
blóðsjúkdómi,
adrenoleukodystrophy,
(ALD). Engin lœkningvar
til og lífslíkur Lorenzos
voru taldar tvö ár. Þrátt
fyrir að þau Michaelu og
Agusto skorti alla
lœknisfrœöilega þekkingu,
neita þau að leggja trúnað
á orð lœknanna og ákveöa
aÖ kynna sér hvaðeina
sem þau komast yfir um
þennan sjaldgœfa
sjúkdóm. Þetta er
sannsöguleg mynd um trú
og hugrekki hjónanna og
árangursríka baráttu
þeirra við tímann og
heilbrigöisyfirvöld um aö
bjarga lífi sonarsíns.
rm
i
Somepeople
maketheirown
miracles.
ÞU FÆRÐ ALLAR NYJUSTU MYNDIRNAR HJA OKKUR!
VIDEO MIÐJAN
HLÍÐARSMÁRA 8, KÓPAVOGI, S. 643930
VÁKORT
Eftirlýst kort nr.:
4507 4100 0004 0072
4543 3718 0006 3233
ÖLL ERLEND KORT
SEM BYRJA Á:
4506 43** 4507 46**
4543 17** 4560 08**
4560 09** 4920 07**
4938 06** 4988 31**
4506 21**
Afgreiðslufólk vinsamlegast takið ofangreind
kort úr umfefð og sendið VISA islandi
sundurklippt.
VERÐLAUN kr. 5000,-
visa ir/LI
Höfðabakka 9 • 112 Reykjavík
Slmi 91-671700
Bílamarkadurinn
Smiðjuvegi 46E
v/Reykjanesbraut.
Kópavogi, sími
B71800
ATH! ERUM BEINTENGDIR VIÐ
BIFR.SK.ÍSL. V/VEÐBANDA 0.FL.
Suzuki Swift GL '91, steingrár, 5 g., ek.
29 þ. V. 650 þús.
MMC Lancer GLXi hlaðb., 4 x 4 '91, rauð-
ur, 5 g., ek. 31 þ., rafm. í öllu o.fl. Toppein-
tak. V. 1190 þús.
Toyota Corolla XL '91, 5 dyra, rauður, 5
g., ek. 44 þ. V. 830 þús., sk. á ód.
MMC Lancer GLX '89, sjálfsk., ek. 47 þ.,
spoiler o.fl. V. 780 þús.
Chrysler Voyager V-6 '90, brúnsans,
sjálfsk., ek. 101 þ., 7 manna, einn eig-
andi. V. 1390 þús.
Suzuki Swift GL Sedan '90, hvítur, 5 g.,
ek. 44 þ. V. 690 þús., sk. á ód.
MMC Galant GLXi 4x4 ’91, Ijósbrúnn, 5
g., ek. 23 þ., rafm. í rúðum o.fl. Fallegur
bíll. V. 1390 þús.
MMC L-300 4x4 turbo diesel ’88, 8
manna, hvítur, 5 g., ek. 130 þ., vél og
gírkassi yfirfarinn, ný túrbína. V. 1200 þús.
MMC Colt GLXi '90, 5 g., ek. 79 þ. V.
760 þús.
Toyota Corolla XL Liftback ’88, grásans,
5 g., ek. 114 þ., ný tímareim, kúpling o.fl.
V. 580 þús.
Chevrolet Camaro RS '91, blár, sjálfsk.,
(6 cyl), ek. 39 þ. V. 1490 þús., sk. á ód.
Höfum kaupanda að góðum
Nissan Patrol árg. '90-'93.