Morgunblaðið - 21.09.1993, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21; SEPTEMBER 1993
19
GERIÐ VERÐSAMANBURÐ
Jan Henry Olsen sjávarútvegsráðherra Noregs í opinberri heimsókn
Yona að litið verði á
Smuguna sem neðan-
málsgrein í framtíðinni
aðhafst í málinu. „Við höfum auð-
vitað ekki fagnað komu íslenska
eftirlitsmannsins í þeirri von að
hann muni koma og sjá hvað er
að gerast, fara heim og síðan ger-
ist ekki neitt. Að sjálfsögðu viljum
við að eitthvað gerist. Það er ís-
lenskra yfirvalda að ákveða hvað
eigi að gera en þau þekkja okkar
afstöðu.“
Olsen bætti því við að hann teldi
það vera hagsmunamál strandríkis
að setja lög sem leyfa stjórnvöld-
um að hafa afskipti af eigin veið-
um, einnig utan landhelgi.
Sjávarútvegsráðherrar á sjávarútvegssýningii
JAN Henry T. Olsen sjávarútvegsráðherra Noregs mun fyrir hádegi
í dag eiga fund með sjávarútvegsnefnd Alþingis. Olsen heldur heim
til Noregs en hann hefur verið í opinberri heimsókn hér frá því á laug-
ardag. A laugardag fór Olsen ásamt Þorsteini Pálssyni sjávarútvegsráð-
herra á sjávarútvegssýninguna í Laugardalshöli og var þá þessi mynd
tekin. Á sunnudag ferðuðust ráðherrarnir um Suðausturland og að
loknum formlegum fundi þeirra í gær var farið til Vestmannaeyja.
ÞORSTEINN Pálsson sjávarútvegsráðherra átti í gær fund
með hinum norska starfsbróður sínum Jan Henry Olsen, sem
kom hingað til lands í opinbera heimsókn á laugardag. A
blaðamannafundi sem ráðherrarnir héldu í sjávarútvegs-
ráðuneytinu í gær lögðu þeir báðir áherslu á að um samn-
ingafund hefði ekki verið að ræða og því engar formlegar
kröfur settar fram. Veiðar íslenskra fiskiskipa í Smuguni í
Barentshafi hefðu þó að sjálfsögðu verið til umræðu og
sagði norski sjávarútvegsráðherrann nauðsynlegt að íslensk
og norsk sljórnvöld væru í stöðugu sambandi vegna margra
sameiginlegra hagsmunamála á sviði sjávarútvegs. Sagðist
hann vona að í framtíðinni yrði litið á Smugu-deiluna sem
neðanmálsgrein í samskiptasögu þjóðanna.
Þorsteinn Pálsson sagði að hann
og Olsen hefðu rætt ýmis mál sem
væru sameiginleg á fiskveiðisvið-
inu milli íslands og Noregs. „Það
er hins vegar rétt að taka það
skýrt fram að þetta var ekki samn-
ingafundur heldur vorum við fyrst
og fremst að fara yfir þau mál
þar sem við eigum sameiginlegra
hagsmuna að gæta.“ Hann sagði
að auk Smugunnar hefði verið
rætt um norsk-íslenska síldar-
stofninn og mikilvægi þess að
hefja viðræður milli þjóðanna, sem
þar ættu hagsmuna að gæta, því
líklegt væri að á næstu árum
myndi stofninn ganga út á hafið
milli íslands og Noregs. Þá hefðu
úthafskarfaveiðar suður af land-
inu verið ræddar og sagði Þor-
steinn að það hlyti að koma að
því innan skamms að þær þjóðir
sem þar stunduðu veiðar, myndu
koma sér saman um fiskveiði-
stjórnun. Einnig ræddu ráðherr-
arnir um loðnusamningin sem
rennur út næsta vetur og undir-
búning að því að hefja endurnýjun
hans. Loks fóru þeir yfir stöðu
hvalveiðimála og gerði Olsen þar
að auki grein fyrir stöðu mála í
aðildarviðræðum Norðmanna við
Evrópubandalagið.
Mikilvægi samvinnu
„Við væntum þess að geta hald-
ið áfram viðræðum við Norðmenn
um þessi málefni og embættis-
menn landanna munu væntanlega
fjalla um þau á næstunni þannig
að við getum fundið farveg til að
halda áfram því góða og mikil-
væga samstarfi sem við höfum átt
á fiskveiðisviðinu. Ég lít svo á að
það sé til marks um mjög gott
samstarf þjóðanna að samkomu-
lag tókst á milli norsku strand-
gæslunnar og landhelgisgæslunn-
ar að íslenskur eftirlitsmaður er
nú um borð á strandgæsluskipi til
að fylgjast með veiðum íslensku
skipanna þar,“ sagði Þorsteinn
Pálsson. Vegna slæms veðurs í
Smuguni tókst ekki að fram-
kvæma mælingar þar á sunnudag
en Þorsteinn sagðist vonast eftir
að fá niðurstöður úr mælingum í
hendurnar síðar í vikunni.
„Hvað sem því líður þá lít ég
svo á að einmitt þetta samstarf
staðfesti að þjóðirnar geti haldið
áfram þeirri góðu samvinnu sem
verið hefur á milli þeirra,“ sagði
sj ávarútvegsráðherra.
Afstaða Norðmanna skýr
Jan Henry Olsen sagðist vera
því feginn að þeir hefðu verið svo
forsjálir að ákveða fund í Reykja-
vík töluvert áður en deilurnar um
Smuguna hófust. Hann sagði að
engin niðurstaða hefði fengist
varðandi veiðarnar í Smgunni en
að mikilvægt væri að viðhalda
góðri samvinnu og stöðugum sam-
skiptum þrátt fyrir þá deilu. Hann
sagði afstöðu Norðmanna vera
skýra. Þeir teldu að þessar veiðar
ættu ekki að eiga sér stað en að
málið yrði að leysa á diplómatísk-
um vettvangi. Það væri jákvætt
að íslendingar sýndu áhuga á að
kanna hlutfall smáfisks í afla af
eigin raun og sagðist Olsen vona
að það myndi stuðla að því að
lausn fyndist. „Smugan hefur
aldrei verið veiðisvæði bæði vegna
þess hve sjórinn er kaldur á þessu
svæði og vegna mikils smáfisks,“
sagði norski sjávarútvegsráðherr-
ann.
Ráðherrarnir voru spurðir hvort
formlegar viðræður myndu eiga
sér stað um Smuguna og sagði
þá Þorsteinn Pálsson að áfram
yrði rætt um öll sameiginleg mál
þjóðanna og þar á meðal sameigin-
lega hagsmuni varðandi úthafs-
veiðar. Embættismenn myndu
halda áfram að ræða saman og
sagði Þorsteinn ástæðu til að
leggja sérstaka áherslu á að hags-
munir íslendinga og Norðmanna
færu saman á ráðstefnu Samein-
uðu þjóðanna um úthafsveiðar.
Ekki mestar áhyggjur af
Smuguni
Þegar Þorsteinn var spurður
hvort íslensk stjórnvöld myndu
stöðva veiðarnar sagði hann að
engar aðgerðir af því tagi hefðu
verið ræddar. „Allt frá því að tog-
ararnir hófu veiðar þarna höfum
við sagt að við ætluðumst til þess
að þeir virtu sömu reglur varðandi
smáfiskaveiðar og gilda innan ís-
lenskrar landhelgi. Þess vegna
höfum við lagt á það áherslu á
að fá fyllstu upplýsingar frá Norð-
mönnum og að geta sent eigin
eftirlitsmenn til að geta fylgst með
veiðunum út frá þessu sjónar-
miði.“ Þorsteinn sagði að heimild
væri í lögum til að setja sambæri-
legar reglur um veiðar utan land-
helgi og innan en gæti ekki sagt
á þessu stigi hvort þeirri lagaheim-
ild yrði beitt. Fyrst eftir að niður-
stöður eftirlitsmannsins lægju fyr-
ir gæti slíkt komið til álita.
Norski sjávarútvegsráðherrann
sagðist aðspurður telja að engin
hætta væri á þorskastríði milli
Islendinga og Norðmanna vegna
veiðanna í Smuguni. Þessi deila
gæti jafnvel orðið til að Norðmenn
og íslendingar næðu saman um
tillögur að reglum um úthafsveiðar
til að leggja fram á vettvangi SÞ.
„Ég hef í sjálfu sér ekki miklar
áhyggjur af veiðunum í Smuguni
heldur miklu frekar hafsvæðinu á
milli Noregs og íslands og sameig-
inlegum fiskistofnum okkar þar.
Mikilvægast er að við höldum
áfram að vera í góðu sambandi
því það er margt annað sem við
þurfum að ræða. Ég vona að í
framtíðinni verði þessi deila að
neðanmálsgrein í samskiptasögu
okkar,“ sagði Jan Henry Olsen.
Olsen sagðist aðspurður vona
að ef íslenski eftirlitsmaðurinn
kæmist að sömu niðurstöðu og
norska strandgæslan yrði eitthvað
Myndin sýtiir
100 cm skáp,
tvfskiptan
m/battahillu,
fatabengi og
3 hillunu
Verö
15.455 kr.
stgr.
BÆJARHRAUNI 8, HAFNARFIRÐI, SÍMI 651499
TIL AFGREIÐSLU STRAX!
GÓÐ GREIÐSLUKJÖR
Einingastæröir:
40, 50, 60, 80 og lOOcm,