Morgunblaðið - 21.09.1993, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐÍÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1993
Morgunblaðið/Golli
SLOKKVILIÐSMENN hafa staðið í flutningum síðustu daga rétt eins og starfsmenn Strætisvagna
Akureyrar, en á laugardag var tekið í notkun húsnæði við Arstíg þar sem strætó og siökkvilið verða
til húsa í framtíðinni. Slökkviliðsmennirnir Skúli, Gunnlaugur Búi, Ingimar og Guðmundur voru að
koma fyrir handknúinni mótorsprautu sem prýða'á hin nýju húsakynni slökkviliðsins, en sprautan var
fyrst notuð árið 1907 í miklum bruna á Akureyri, þegar húsalengja frá Brekkugötu niður í Strand-
götu varð eldi að bráð.
Húsnæði fyrir slökkvilið og strætisvagna tekið í notkun
Breytingar á um 2.000 fm
húsnæði fyrir 50 milljónir
NYTT húsnæði Slökkvistöðvar Akureyrar og Strætisvagna Ak-
ureyrar var tekið í notkun á laugardag. Húsið er við Árstíg 2 og er
að heildarflatamáli rúmir 2.000 fermetrar, slökkviliðið hefur til
umráða 1.350 fermetra og strætisvagnarnir rúmlega 650 fermetra.
Miklar breytingar hafa verið gerðar á húsinu.
Langþraður draumur
Þeir Sigurður J. Sigurðsson for-
maður bæjarráðs og Haildór Jóns-
son bæjarstjóri komu akandi á
slökkvilbíl og strætó að húsinu og
á eftir fylgdi sjúkrabíll, en þannig
fluttu þessar bæjarstofnanir á
táknrænan hátt.
Við athöfnina á laugardag flutti
Sigurður J. Sigurðsson ávarp þar
sem hann rakti tildrög málsins og
þeirri ákvörðun að velja umrætt
húsnæði til þessara nota. Þá gerði
Ágúst Berg grein fyrir þeim breyt-
ingum sem gerðar voru á hús-
næðinu, en húsið var keypt í febr-
úar árið 1991. Verkið var boðið út
í ágúst í fyrra og átti Vör lægsta
tilboðið, 41,6 milljónir króna. Unn-
ið var að breytingum síðasta vetur
og áætlað ljúka framkvæmdum í
byrjun júní síðastliðinn, en vegna
galla í gólflögnum og aukaverka
var verklokum frestað.
Framkvæmdir við breytingar á
húsnæðinu hafa kostað rúmar 50
milljónir króna auk þess sem fram-
kvæmdir við lóðina hafa numið um
4,4 milljónum króna.
Tómas Búi Böðvarsson slökkvi'-
liðsstjóri segir nýja húsnæðið henta
vel og það sé vel staðsett, liggi vel
við helstu umferðaræðum, en liðið
verði væntanlega heldur lengur í
útköll í miðbæinn en var. Á móti
kæmi að rýmra er um og ekki
hætta á að það lokist inni eins og
verða vildi þegar fóltboltaleikir
voru eða eitthvað um að vera í
Sjallanum, en þá var bílum lagt
umhverfís slökkvistöðina. „Það má
segja að langþráður draumur hafi
ræst, það eru einmitt 20 ár frá því
fyrrverandi slökkviliðsstjóri hreyfði
því fyrst að farið yrði að huga að
flutningi slökkviliðsins úr ráðhús-
inu,“ sagði Tómas Búi.
Til sölu
Hótel Ólafsfjörður, sem er til húsa í nýju vönduðu stein-
húsi. Matsalir og bar á neðri hæð, ellefu tveggja manna
fullbúin gistiherbergi og setustofa á efri hæð.
Bjartur og fallegur matsalur rúmar allt að 50 manns, en
mögulegt er að taka á móti allt að 100 manns samtímis.
Vegalengdir: Þjóðv. 1 - Ólafsfjörður 50 km. 35 mín.
Akureyri — Ólafsfjörður 60 km. 45 mín.
Dalvík - Ólafsfjörður 15 km. 10 mín.
Siglufj. - Ólafsfjörður 60 km. 60 mín.
Áfast hótelinu er nýtískuleg bensínstöð og grillskáli. Ge.f-
inn verður kostur á því að kaupa eignina eða hótelið og
grillskálann sér og leigja þá bensínstöðina.
Allar upplýsingar veitir:
Fasteignasalan Brekkugötu 4,
Akureyri, í síma 96-21744,
fax 96-27746, og Jón Kr. Sólnes
hrl. í síma 96-11200.
^^Fasteigna
Dalvík
Rúmlega
sjötugnr
maður lést
í árekstri
SJÖTÍU og eins árs gamall
maður, Páll Guðmundsson,
lést í umferðarslysi skammt
sunnan við Dalvík síðastliðinn
föstudag. Hann var til heimilis
að Brimnesbraut 19 á Dalvík.
Tilkynnt var um slysið til lög-
reglunnar á Dalvík laust fyrir kl.
16 á föstudag, en það varð við
vegamót Svarfaðardalsvegar og
Ólafsfjarðarvegar sunnan Dalvík-
ur.
Það varð með þeim hætti að
jeppabifreið sem ekið var norður
Svarfaðardalsveg var beygt í veg
fyrir vörubifreið sem ekið var suð-
ur eftir Ólafsfjarðarvegi.
Áreksturinn var mjög harður
að sögn lögreglufulltrúa rann-
sóknarlögreglunnar á Akureyri og
lést ökumaður jeppans nær sam-
stundis að talið er.
Iþrótta- og tómstundaráð lét undan full-
trúaráði foreldrafélaga grunnskólanna
Félagsmiðstöðvar
loka hálftíma fyrr
ÍTÞRÓTTA- og tómstundaráð Akureyrar hefur samþykkt að stytta
opnunartíma félagsmiðstöðva í bænum um hálftíma og er tekið fram
í bókun ráðsins að svo verði fyrst um sinn. Félagsmiðstöðvarnar verða
því lokaðar kl. 22 í stað 22.30.
Fulltrúaráð foreldrafélaga grunn-
skólanna í bænum hafði beint þeim
tilmælum til íþrótta- og tómstunda-
ráðs, ÍTA, að félagsmiðstöðvunum
yrði lokað kl. 22, en ráðið ekki fall-
ist á þau tilmæli. Nokkrar umræður
urðu um málið á fundi bæjarstjórnar
fyrir skömmu og því vísað til frekari
umfjöllunar ráðsins.
Þetta mál var tekið fyrir að nýju
hjá Iþrótta- og tómstundaráði í síð-
ustu viku þar sem samþykkt var að
frá og með 1. septembér yrðu félags-
miðstöðvarnar opnar til k. 22 fyrst
um sinn.
Látið undan
„Með þessari ákvörðun er ráðið
að láta undan miklum þrýstingi frá
fulltrúaráði foreldrafélaga í grunn-
skólum bæjarins, sem ráðið vill
ógjarnan eiga í útistöðum við. Þrátt
fyrir breytta afstöðu er ÍTA ekki
sannfært um að þessi breyting á
opnunartíma félagsmiðstöðvanna sé
unglingunum sjálfum fyrir bestu og
ijóst að hún er gerð þvert gegn vilja
meirihluta þeirra sem sækja félags-
miðstöðvarnar," segir í bókun ráðsins
vegna þessa máls.
Þá ítrekar ráðið að kannað verði
hvernig unglingar verji frí- og hvíld-
artíma sínum auk þess sem það ósk-
ar eftir áliti félagsmálaráðs og
barnaverndarnefndar á opnunartíma
félagsmiðstöðva á Akureyri.
MorgunDiaoio/uom
Aftur á stall eftir sjö ára fjarveru
STYTTAN af Helga magra og Þórunni hyrnu var sett á stall sinn
að nýju á Hamarkotsklöppum, en sjö ár eru liðin frá þvi hún var
tekin niður vegna skemmda.
Helgi og Þórunn
steypt í brons
STYTTAN af frumbyggjum Eyjafjarðar, Helga magra og Þórunni
hyrnu, var sett á stall sinn á Hamarkotsklöppum í gærmorgun, en sjö
ár eru Iiðin frá því styttan var tekin niður vegna mikilla skemmda.
Landnemamir vom teknir niður
af stalli sinum árið 1986, þijátíu
áram eftir að styttan var sett upp.
Jónas S. Jakobsson myndhöggvari
gerði styttuna árið 1956, en hann
vann að gerð hennar i sundlaugar-
byggingunni á Akureyri sem þá var
i smíðum. Styttan var mótuð i leir,
tekið af henni gifsmót og hún síðan
steypt í steinsteypu. Styttan var við
það að verða ónýt, steypan farin að
molna úr henni þegar hún var tekin
niður og henni komið fyrir í kyndi-
stöð Hitaveitu Akureyrar þar sem
hún var geymd um árabil.
Stafkarl til baka
Fyrir einu og hálfu ári var styttan
send utan til Bretlands þar sem hún
var steypt í brons. Heldur brá mönn-
um í brún er hún kom til baka úr
þeirri meðferð; í stað spjóts sem
Helgi bar höfðu Bretarnir sett staf.
Ekki vildu Akureyringar una því að
fá stafkarlinn til baka og því tafðist
verkið nokkuð þar sem gera þurfti
viðunandi lagfæringar.
Ingólfur Ármannsson, menning-
arfulltrúi Akureyrarbæjar, sagði að
eftir ætti að ganga betur frá undir-
stöðum styttunnar, en sérstakar
málmplötur hefðu verið pantaðar til
að setja styttuna á. Það færi eftir
veðri á næstu vikum hvort hægt yrði
að ljúka verkinu endanlega nú í
haust, eða hvort það biði vorsins.