Morgunblaðið - 21.09.1993, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1993
21
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson.
Lækkandi orkuverð
NOKKRIR af starfsmönnum Selfossveitna ásamt veitustjóra framan við varaaflstöðina sem hýst er í
gámi á athafnasvæðinu við Austurveg.
Raforkuverð lækkað á Eyrar-
bakka, Stokkseyri og Selfossi
Taxti á raforku nálgast taxta á höfuðborgarsvæðinu
Selfossi
SELFOSSVEITUR bs hafa lækkað raforkuverð til heimila á Selfossi,
Eyrarbakka og Stokkseyri um 4%. Nýleg hækkun á heildsöluverði á
raforku um 5,3% hefur engin áhrif á raforkuverðið á veitusvæðinu.
Sú hækkun hefði að öllu óbreyttu þýtt 4% hækkun á öllum raforkutöxt-
um og 2% á hitaveitu vegna dælukostnaðar. Þannig er raunlækkun á
raforkuverðinu því um 8%.
Að sögn Ásbjörns Blöndal veitu-
stjóra má rekja orsakir lækkunarinn-
ar til hagræðingar sem varð við sam-
einingu rafveitnanna á Eyrarbakka
og Stokkseyri og Hitaveitu Eyra og
Selfossveitna í Selfossveitur bs.
Hann sagði einnig að með því að
beita útboðum á skilgreindum ný-
framkvæmdum og við kaup á efni
og búnaði hefðu náðst hagstæðir
samningar og síðan hefði hagræðing-
in leitt af sér betri nýtingu starfs-
fólks við það að þjónustusvæðið
stækkaði. Þá hefði á undanförnum
árum stöðugt verið unnið að því að
ná niður kostnaði í fyrirtækinu og
áhersla lögð á tæknivæðingu sem
aftur sparaði mannafla. „Ég tel að
við höfum náð hámarksnýtinu út úr
fyrirtækinu sem gefur okkur færi á
því að lækka verðið,“ sagði Ásbjörn.
Selfossveitur hafa náð hagstæðum
samningum um raforkukaup með því
að hafa tilbúna varaaflstöð og geta
keyrt niður álagstoppa. Ekki hefur
þó þurft að koma til þess að nota
þurfi vélina en hún er tilbúin til notk-
unar í slíkum tilfellum og eins ef
óhöpp verða og rafmagn fer af svæð-
inu.
Eftir lækkun á orkuverðinu er
heimilistaxtinn á þjónustusvæði Sel-
fossveitna bs. kr. 8,55 á kílóvatt-
stund og er þar rneð orðinn sá fimmti
lægsti á landinu. I Reykjavík er taxt-
inn kr. 7,55 á kwst.
Verð til orkufrekra fyrirtækja sem
nota 300 þúsund kilóvattstundir með
4.000 stunda nýtingartíma á ári er
kr. 5,37 á kwst. Til samanburðar þá
er verð í Reykjavík kr. 5,71 á kwst.
Verðmunur á heimilistaxta hjá
Selfossveitum og í Reykjavík hefur
minnkað verulega frá árinu 1989.
Þá var hann kr. 1,75 á kwst en er
núna 68 aurar. í afltaxta var verð
hjá Selfossveitum kr. 1,23 hærra en
í Reykjavík árið 1989 en nú, 1993,
er taxtinn 34 aurum lægri hjá Selfos-
sveitum bs.
Dælukostnaður lækkar
Með kaupum á dreifikerfi raforku
við Laugardæli í byijun árs 1992, á
borholusvæði hitaveitunnar hjá Sel-
fossveitum, hefur hlutfalf dælukostn-
aðar í kostnaði hitaveitunnar lækkað
frá því að vera 40% af rekstrarkostn-
aði í um 20% sem þýðir að hækkun
á raforkuverði hefur ekki eins mikil
áhrif á verðskrá hitaveitu og var
áður.
Viljum eitt heildsölustig
Selfossveitur kaupa raforku í
heildsölu af Rafmagnsveitum ríkisins
sem selja hana með 15-17% álagn-
ingu. „Þess vegna er enn ánægju-
legra að geta lækkað verðið og gera
Selfossveitur bs. um leið samkeppnis-
færar eða samanburðarhæfar við
höfuðborgarsvæðið, Hafnarfjörð og
Reykjavík. í raun er allur saman-
burður samt óréttmætur vegna þess-
arar 15-17% álagningar RARIK á
heildsöluverðið. Það er okkar bar-
áttumál að fá eitt heildsöluverð til
allra smásöludreifenda á landinu,"
sagði Ásbjörn Blöndal veitustjóri hjá
Selfossveitum bs.
Sig. Jóns.
Þroskahjálp og Öryrkjabandalagið
Húsaleignbætur
verði samþykktar
STJORN Landssamtakanna Þroskahjálpar hefur samþykkt ályktun
þar sem skorað er á ríkisstjórnina að leggja fram frumvarp til laga
um húsnæðisbætur til leigjenda á næsta þingi í samræmi við hugmynd-
ir sem félagsmálaráðherra hefur kynnt. Sljórn Oryrkjabandalags Is-
lands skorar á stjórnvöld að beita sér fyrir því að hið fyrsta verði
teknar upp húsnæðisbætur til leigjenda og lög þar um samþykkt á
haustþingi 1993.
Stjórn Öryrkjabandalagsins beinir
því jafnframt til ríkisstjórnarinnar
að fjármagn til húsnæðisbóta skerði
í engu það fé sem varið verður til
uppbyggingar félagslegra íbúða.
I ályktun frá Þroskahjálp segir
m.a.: „Áframhaldandi uppbygging
félagslega húsnæðiskerfisins er afar
brýn sem lausn á búsetumálum fatl-
aðra þar sem þeir eru í hópi þeirra
tekjulægstu í þjóðfélaginu. Því er
nauðsynlegt að leita allra Ieiða til
að tryggja fötluðum félagslegar
íbúðir, bæði til kaups og leigu.“
KJARAN
GÓLFBÚNAÐUR
SÍÐUMÚLI 14, 108 REYKJAVlK, SlMI 813022
I.III J1IIKAII
gölfdnkalínan
nova
viva
bella
Nýir litir,
ný mynstur.
2m, 3m og 4m breidd.
Má leggja laust.
Verð sem gerir
útsölu óþarfa.
Tryggingaráð um ráðningu forstjóra TR
Umsækjendiu* ekki
lýstir vanhæfir
Tryggingaráð segist ekki hafa lýst ákveðna umsækjendur um starf
forstjóra Tryggingastofnunar vanhæfa til að gegna starfinu. Einn
umsækjandi um starfið ætlar að kæra meðferð ráðsins á umsóknun-
um til umboðsmanns Alþingis.
í fréttatilkynningu frá Trygg-
ingaráði segir, að sá misskilningur
hafi komið upp að ráðið hafi lýst
ákveðna umsækjendur vanhæfa.
Þetta sé rangt. í bréfum meirihluta
og minnihluta ráðsins hafi komið
fram tillögur til ráðherra um að
hann veldi forstjóra úr hópi ákveð-
inna einstaklinga. Með því hafi ráð-
ið uppfyllt lagaskyldu sína sam-
kvæmt 3. grein laga um almanna-
tryggingar. Hvergi hafi þar komið
fram að aðrir umsækjendur séu
vanhæfir.
Að öðru leyti vísar ráðið til frétta-
tilkynningar sem send var til fjöl-
miðla miðvikudaginn 15. september
þar sem skýrt hafi komið fram með
hvaða hætti tryggingaráð afgreiddi
málið. Harmað er að í umfjöllun
málsins hafi ekki verið stuðst við
frumgögn heldur villandi frétta-
flutning fjölmiðla.
Útvarpsfréttir og Morgunblaðið um Andoxunarefni
í hádegisfréttum útvarps 15. sept '93 var skýrt frá rannsóknum vísindamanna um að hæfilegt magn af Beta Karotíni,
Seleni og E-vítamíni drægi úr hættu á krabbameini og öðrum alvarlegum sjúkdómum. Morgunblaðið birti svipaðar
upplýsingar í grein 11. júni '93 og tímaritið Newsweek var með
ítarlega umfjöllunum málið 7. júní '93.
Umrædd bætiefni eru nefndANDOXUNAREFNI og virka sem
nokkurs konar þráavarnarefiii í líkamanum. C-vítamín og
fáein önnur bætiefni teljast einnig í þeirra hópi. Þau hemja
skaðleg sindurefni (stakeindir) og draga þannig úr
hættu á ýmsum algengum og alvarlegum sjúkdómum.
Haft er eftir einum helsta sérfræðingi Dana á þessu sviði
að margir visindamenn telji framför á sviði
andoxunarefiia einhverja mestu framför
læknavísindanna í seinni tíð.
ANDOX inniheldur andoxunarefnin í hæfilegum styrkleika.
<il ' -1fe
Fœst í apótekum og heilsubiUum
matvöruverslana.
Gilsuhúsið
Kringlunni sími 689266 Skólavörðustíg sírni 22966