Morgunblaðið - 21.09.1993, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1993
Reuter
Málefni landbúnaðar í brennidepli
FRANSKIR bændur efna þessa dagana til mótmæla gegn samkomulagi Bandaríkjanna og Evrópubanda,-
lagsins (EB) um landbúnaðarmál í þeirri von að EB samþykki að semja upp á nýtt við Bandaríkin. Var
myndin tekin á aðaltorgi bæjarins Arras í norðurhluta Frakklands í gær þar sem bændur kveiktu í
bálkesti úr gömlum hjólbörðum.
%
EB-ráðherrar ræða landbúnaðarmálin og GATT í Brussel
Leitað að málamiðl-
un fyrir Frakkana
Brussel. Reuter.
UTANRÍKIS- og landbúnaðarráðherrar Evrópubandalagsins, EB,
komu saman til fundar í Brussel í gær til að ræða ágreininginn
um landbúnaðarkafla GATT-viðræðnanna, andstöðu Frakka við
samning EB og Bandaríkjanna um minni útflutningsuppbætur.
Hefur franska stjórnin í hótunum um að beita neitunarvaldi innan
EB verði hann ekki endurskoðaður en ráðherrar á fundinum í gær
voru þó fremur bjartsýnir á einhvers konar málamiðlun, sem Frakk-
ar gætu sæst á.
„Við munum finna einhverja
lausn, trúðu mér,“ sagði Willy Cla-
es, utanríkisráðherra Belgíu, í gær
og aðrir ráðherrar kváðust vongóð-
ir um, að einhvers konar málamiðl-
un fyndist fyrir frönsku stjórnina.
Bandaríkjastjórn hefur hins vegar
marglýst yfir, að hún taki ekki í
mál neina endurskoðun á Blair
House-samkomulaginu svokallaða
og því er talið líklegt, að hugsanleg
málamiðlun felist fremur í tækni-
legum en efnislegum breytingum.
Ekki var búist við niðurstöðu á
fundinum í gær, heldur að unnið
yrði að málinu fram til 15. desem-
ber þegar ljúka á Úrúgvæ-lotu
GATT-viðræðnanna.
Frakkar einir á báti?
Frakkar hafa lagt mikla áherslu
á, að þeir stæðu ekki einir innan
EB í andstöðunni við minni útflutn-
ingsuppbætur og vitað er, að Spán-
veijar og írar hafa áhyggjur af
samkeppnisstöðu sinna bænda.
Spánveijar lýstu því hins vegar yfir
í gær, að takmörk væru fyrir stuðn-
ingi þeirra við afstöðu Frakka. Þótt
þeir hefðu skilning á henni vildu
þeir ljúka við GATT-samningana.
Franeois Mitterrand, forseti
Frakklands, og Helmut Kohl, kansl-
ari Þýskalands, ætluðu að hittast í
gær í París og var talið, að fundur
þeirra gæti orðið jafn mikilvægur
fundinum í Brussel í að finna lausn
á vanda Frakka.
Bændur efndu til mótmæla víða
um Frakkland í gær og kröfðust
þess, að komið yrði í veg fyrir sam-
komulagið um minni útflutnings-
uppbætur en aukinn innflutning.
Segjast þeir óttast, að samkeppnin
muni hrekja þá af jörðum sínum
en frönskum bændum hefur fækkað
mikið á síðustu áratugum, úr fimm
milljónum 1950 í 1,25 millj. nú.
Hafna nýj-
um réttar-
höldum yfír
Demjanjuk
Tel Aviv. Daily Telegraph.
JOHN Demjanjuk er frjáls ferða
sinna eftir að hæstiréttur ísraels
úrskurðaði fimmta sinni á sunnu-
dag að engar forsendur væru fyr-
ir því að efna til nýrra stríðs-
glæparéttarhalda yfir honum.
Jafnframt aflétti dómstólinn
dauðarefsingu sem Demjanjuk var
dæmdur til í apríl 1988.
Hæstiréttur Israels komst að þeirri
niðurstöðu 29. júlí að Demjanjúk
væri ekki ívan grimmi, hinn illræmdi
gasklefastjóri í Treblinka-búðunum.
Nokkur samtök freistuðu þess að
knýja fram ný réttarhöld á grund-
velli upplýsinga um að Demjanjúk
hefði hugsanlega verið fangavörður
í öðrum búðum.
Efraim Zuroff; forstöðumaður
Simon Wiesenthal-stofnunarinnar,
sagði að dagurinn væri svartur blett-
ur í sögu ísraelsks réttarfars, í sögu
lands og þjóðar. „Með þessu er Isra-
el í raun hætt að eltast við stríðs-
glæpamenn nasista," sagði Zuroff.
Yoram Sheftel, lögmaður Demj-
anjúks, sagði í gær að skjólstæðing-
ur sinn ráðgerði að snúa heim til fjöl-
skyldu sinnar í Bandarílq'unum.
Krókur á
móti bragði
Búkarest. Reuter.
ANETA Comanescu var ákaf-
lega andvíg reykingum og í 40
ára hjúskap bannaði hún
manni sínum að reylqa í sinni
návist. Hann safnaðist til feðra
sinna í síðustu viku en þó ekki
án þess að reyna að leita
hefnda.
Marin Comanescu, sem var 76
ára þegar hann lést, setti það inn
í erfðaskrána, að Aneta, kona
hans, yrði að reykja fimm sígar-
ettur á dag til að fá eignir hans
í hendur en þær eru rúmlega tvær
milljónir kr. í reiðufé og íbúðar-
húsið í bænum Timisoara.
Aneta segir í viðtali við blaðið
Romania Libera, að hún ætli að
höfða mál til ógildingar skilmál-
unum: „Ég tapa því kannski en
ég vil heldur missa allt en reykja
eina einustu sígarettu.“
í erfðaskrá Marins segir meðal
annars: „í 40 ár var tilveran ein
samfelld martröð vegna Anetu,
sem þoldi ekki sjá mig reykja,
og loksins átti ég hvergi griðland
nema á saleminu."
Emmy-verðlaunin afhent í 45. sinn
Veldi stórra sjón-
varpsstöðva ógnað
Pasadena. Reuter.
STÓRU stöðvarnar fengu á baukinn er Emmy-verðlaunin fyrir
besta sjónvarpsefni voru afhent í Kaliforníu á sunnudagskvöld.
Kapalstöðin Home Box Office, í eigu Time-Warner samsteypunn-
ar, bar sigurorð af stóru stöðvunum, hlaut verðlaun í 17 flokk-
um. Stóru stöðvarnar urðu að láta í minni pokann, þættir frá
NBC hlutu 16 verðlaun, CBS 14 verðlaun og ABC 12.
Emmy-verðlaunin hafa verið
veitt í 45 ár og er þetta í fyrsta
skipti sem kapalstöð hlýtur flest
verðlaun. Sögðu þeir sem að
verðlaununum standa þetta vera
skýr skilaboð til stóru stöðvanna
um það að veldi þeirra væri ógn-
að af minni stöðvum, þrátt fyrir
að sjónvarpsstöðvamar hefðu
enn vinninginn með 76 verðlaun
á móti 38 verðlaunum kapal- og
gervihnattastöðva.
Meðal þeirra sem hlutu Emmy-
verðlaun í ár, voru Rosanne Am-
old, sem besta leikkona í gaman-
þáttunum Roseanne, Ted Danson
fyrir hlutverk sitt í Staupasteini
og Laurie Metcalfe, fyrir auka-
hlutverk, en hún leikur systur
Roseanne. Kvikmyndaieikaramir
Holly Hunter og Beau Bridges
fengu verðlaun fyrir hlutverk í
framhaldsmynd um móður klapp-
stým í Texas, sem leggur á ráð-
in um að myrða móður keppi-
nautar dóttur sinnar. Þá var hin
breska Djöfull í mannsmynd 2
valin besta sjónvarpsmyndin.
Reuter
Glaðbeittur verðlaunahafi
BEAU Bridges kemur til afhendingar Emmy-verðlaunanna ásamt
konu sinn Wendy. Bridges hlaut verðlaun fyrir aukahlutverk.
Urslit kosn-
inganna
ógild?
YFIRKJÖRSTJÓRN í Ósló úr-
skurðaði í gærmorgun að hún
gæti ekki lýst úrslit þingkosn-
inganna í borginni gild en
kosningar fóru fram í Noregi
fyrir viku. Stórþingið tekur
hins vegar endanlega ákvörðun
um hvort Óslóarbúar, sem eru
um 10% kjósenda ganga til
kosninga á ný. Stórþingið kem-
ur saman í byijun október.
Verði kosið aftur, getur það
haft áhrif á 15 þingsæti Ósló-
arbúa auk 8 uppbótarþing-
sæta.
Kommúnistar
í hneyksli
TVEIR háttsettir meðlimir í
Lýðræðisflokki vinstrimanna á
Ítalíu, fyrrum Kommúnista-
flokkinum, voru teknir til yfir-
heyrslu á mánudag en hneyksl-
ismál vegna spillingar í ítölsk-
um stjórnmálum hafa nú náð
inn í raðir flokksins. Hingað
til hefur verið talið að hann
væri að mestu laus við spill-
ingu.
Veldur megr-
un offitu?
SÉRFRÆÐINGAR í barátt-
unni við offítu segja líkur
benda til þess að megrun sé
ein aðalorsök offítu. „Á síðustu
25 árum hefur ekki verið nein
þróun í meðferð við offitu og
árangur til lengri tíma er ömur-
legur," sagði prófessor í nær-
ingarfræði á ráðstefnu sem
haldin var í Brussel. Sagði
hann að þrátt fyrir að árangur
megrunar væri góður fyrst í
stað, væri raunin ekki sú til
lengdar, heldur leiddi megrun
of til enn meiri þyngdaraukn-
ingar.
Azerar vilja í
Samveldið
AZERSKA þingið ákvað í gær
að ganga á ný í Samveldi sjálf-
stæðra ríkja. Hafði Haydar
Aliyev, leiðtogi landsins, hvatt
þingfulltrúa til að samþykkja
það vegna bágs efnahags Az-
erbadjzhan og til að binda enda
á bardaga Azera og Armena.
Klámkóngur
ríkastur
RÍKASTI maður Bretlands er
Paul Raymond en hann á fjölda
klámblaða, klúbba og um 65%
staða í Soho-hverfinu. Það
samsvarar um 150 milljörðum
króna. Bretadrottning komst
ekki á lista BusinessAge yfir
fimmtíu auðugustu menn
landsins, er númer 57. Margrét
Thatcher komst í 184. sæti list-
ans, á 6,3 milljarða kr. og Bít-
illinn Paul McCartney er rík-
asti skemmtikrafturinn, á 42
milljarða.
Guðlast að
hitta páfa
ÍSRAELSKUR rabbíi lýsti því
yfir í gær að þeir gyðingar sem
heilsuðu Jóhannesi Páli páfa,
fremdu með því guðlast, þar
sem yfirmaður kaþólsku kirkj-
unnar hefði ekki viðurkennt
ísraelsríki. Páfí hitti tvo æðstu
rabbía ísraels að máli um helg-
ina og herma heimildir á Ítalíu
að Vatíkanið og ísrael hafi
komist að samkomulagi sem
geti Ieitt til þess að ríkin taki
upp stjórnmálasamband.