Morgunblaðið - 21.09.1993, Qupperneq 23
I
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1993
23
Major hvetur til sam-
stöðu í Ilialdsflokknum
Segir fámennan hóp ótrúrra þingmanna reyna grafa undan sér
London, Tókíó, Edínborg. Daily Telegraph. Reuter.
JOHN Major forsætisráðherra Bretlands hvatti til þess um helgina
að liðsmenn íhaldsflokksins hættu „heimskulegu eyðileggingarr-
öfli,“ eins og hann komst að orði, og krafðist þess að ótrúir þing-
menn flokksins hættu að grafa undan honum sem leiðtoga þar sem
það skaðaði starf ríkisstjórnarinnar. Sagðist Major ekki á þeim
buxum að draga sig í hlé og vísaði á bug fullyrðingum, sem birst
hefðu í fjölmiðlum, um að hann væri einangraður í embætti. í gær
sagði Sir Norman Fowler formaður íhaldsflokksins að yfirgnæf-
andi fjöldi flokksmanna, innan þings sem utan, stæðu með Major.
Major sendi flokksmönnum sín-
um tóninn frá Tókýó en hann er
nú í opinberri heimsókn í Japan.
Hann sagði að andstaða við hann
sem flokksleiðtoga og forsætisráð-
herra væri takmörkuð við örfáa
flokkssvikara. Sagðist hann búinn
að fá sig fullsaddann af framferði
þeirra og áframhaldandi óhollustu.
Kenneth Clarke fjármálaráð-
herra staðfesti að leitað hefði ver-
ið til sín og tveggja annarra ráð-
herra, Michaels Howards innan-
ríkisráðherra og Michaels Portillos
fj árvgitingaráðherra, með það fyr-
ir augum að fá þá í framboð gegn
Major. Clarke sagði að ekki mætti
skilja það sem svo að mótframboðs
væri að vænta og bætti við að
ERLENT
ráðherrarnir þrír legðu áherslu á
nákvæmlega sömu gildi og for-
sætisráðherrann, áherslumunur
væri enginn. Hugmyndin um
framboð gegn Major væri bæði
óraunhæf og hlægileg. „Ég held
að enginn með sæmilega pólitíska
dómgreind myndi fara út í leið-
togaslag,“ sagði Clarke.
Ákall Majors um samstöðu í
flokknum mætti ekki skilningi hjá
nokkrum þingmanna sem ósáttir
er við hann. Einn þeirra, Tony
Marlow, sagði í gær að ekki væri
spurning um hvort leiðtogaskipti
færu fram, heldur aðeins hvenær,
slík væri þörfin fyrir breytingar.
Marlow var á sínum tíma einna
fyrstur til að krefjast þess opinber-
lega að Margaret Thatcher, for-
veri Majors, viki sem leiðtogi
íhaldsflokksins.
Skotar snúa baki við Major
Skotar hafa snúið baki við
stjóm Johns Majors, samkvæmt
niðurstöðum skoðanakönnunar
sem gerð var þar í landi í síðustu
viku fyrir blaðið Scotsman. Aðeins
13% kjósenda sögðust styðja
íhaldsflokkinn en hann hlaut 26%
í kosningunum í fyrra.
Samkvæmt könnuninni styðja
53% skoskra kjósenda Verka-
mannaflokkinn en hann hlaut 39%
atkvæða í Skotlandi í kosningun-
um 1992. Næstur kom Skoski
þjóðarflokkurinn með 23%, eða 2%
meira en í kosningunum, og Frjáls-
lyndi lýðræðisflokkurinn 10% eða
3% minna fylgi en í fyrra. Aðeins
15% sögðust ánægð með Major
en á sínum tíma mældist lakasti
stuðningur við Thatcher í Skot-
landi 19%.
Reuter
Major í Japan
JOHN Major forsætisráðherra Bretlands er í opinberri heimsókn í
Japan og er hér með Morihiro Hosokawa, japönskum starfsbróður
sínum. Major sendi í gær Bandaríkjamönnum tóninn er hann gagn-
rýndi stefnu þeirra í viðskiptadeilum þeirra við Japani.
Kosningaúrslit í Hamborg
áfall fyrir gömlu flokkana
Hamborg. Reuter.
GÖMLU flokkarnir töpuðu fylgi í kosningunum í Hamborg um helg-
ina, skiptu á milli sín 70% atkvæða, en hin 30% fóru til ýmissa mót-
mælaflokka, græningja og hægriöfgaflokka. Eru úrslitin túlkuð sem
áfall fyrir stóru flokkana og fréttaskýrendur segja, að ýmiss konar
mótmæli séu að verða fastur liður í kosningum í Þýskalandi, að ástand-
ið sé farið að minna á Weimar-lýðveldið fyrir stríð.
Niðurstöður kosninganna voru
þær, að jafnaðarmenn fengu 40,4%
atkvæða, 48% í síðustu kosningum;
kristilegir demókratar fengu 25,1%
og töpuðu 10% og frjálsir demó-
kratar, samstarfsflokkur kristilegra
í ríkisstjórn, fengu aðeins 4,1% og
töpuðu sínum mönnum í borgarstjóm
Hamborgar. Kosningaþátttakan var
aðeins um 70%, sem er lítið í Þýska-
landi. Almennt er búist við, að jafn-
aðarmenn og græningjar myndi sam-
an stjórn í Hamborg.
Gott gengi „Hins kostsins"
Tveir hægriöfgaflokkar fengu
samtals um átta prósent atkvæða en
hvorugur nógu mikið til að koma
manni að og græningjar, sem bættu
mest við sig, fengu rúm 16%. Mesta
athygli vakti þó árangur „Hins kosts-
ins“, flokks hófsamra manna, sem
segjast óánægðir með gömlu flokk-
ana. Var hann stofnaður fyrir tveim-
ur mánuðum og fékk 5,6% atkvæða.
í viðtölum við leiðtoga jafnaðar-
manna og kristilegra demókrata um
úrslitin hafa þeir kennt hvorir öðrum
um þreytuna meðal kjósenda en lítið
sagt um aðaláhyggjuefni flestra, at-
vinnuleysið. Það er nú 7,5% í vestur-
hlutanum og 15,4% í austurhlutan-
um.
Vantar ykkur notaðan bíl
á góðu verði fyrir haustið?
Þá ættuö þið aö kíkja til okkar og skoöa úrvalið!
Engin útborgun -Visa og Euro raðgreiðslur
Mazda 323 GLX
1992, sjálfsk., ek. 32 þús.
Kr. 1.120.000.
Renault Nevada 4 x
1991, ek. 80þús.
Aðeinskr. 1.290.000.
BMW316
1988, ek. aðeins31 þús.
Kr. 920.000.
Pessir bílar eru á tilboösveröi!
BMW518Í
1990, ek. aðeins 37.þús., sól-
lúga, samlæs, rafmrúður. Kr.
1.850.000. Tilboð kr. 1.650.000.
Toyota Hilux
Double Cap turbo, diesel,
1990, ek. 70 þús. Alvöru fjalla-
bíll m/öllu.Kr. 2.190.000.
BMW 520i
1988, ek. 79 þús., álfelgur o.fl.
Kr. 1.490.000.
Bílaumboðið hf./Bflasalan, Krókhálsi.
Renault Clio RN
1992, ek. aðeins 12 þús.
Kr. 790.000.
BMW318IA
1988, ek. 58 þús., álfelgur o.fl.
Toppeintak. Kr. 1.100.000.
BMW318IA
1993, ek. aðeins 8 þús., rafm.
rúður, samlæst o.fl., demants-
svartur. Kr. 2.400.000.
Þessir bílar eru á tilboðsverði!
Tilboðslisti
Renault 11
MMC Lancer st
BMW 323i Cabrio
Peugeot 205 XL
FordSierra 1600L
BMW 316
VW Golf GT
Suzuki Swift 4x4
Árg. Stgr. Tilboðs-
verð verð
1989 520.000,- 480.000,-
1986 420.000,- 370.000,-
1984 890.000,- 690.000,-
1987 320.000,- 280.000,-
1987 650.000,- 450.000,-
1986 580.000,- 490.000,-
1987 550.000,- 490.000,-
1991 700.000,- 630.000,-
Krókhálsi 1, sími 686633 / Krókhálsi 3, sími 676833.
Opið: Virka daga kl. 10-19 og laugardaga kl. 12-16.
Skuldabréf til allt að 36 mánaða