Morgunblaðið - 21.09.1993, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1993
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Árvakur h.f., Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Björn Vignir Sigurpálsson.
Kringlan 1, 103 Reykjavík. Símar: Skiptiborð 691100. Auglýsingar:
691111. Áskriftir 691122. Áskriftargjald 1400 kr. með vsk. á mánuði
innanlands. I lausasölu 125 kr. með vsk. eintakið.
Mál að linni
Deilurnar innan ríkisstjórn-
arinnar og stjórnarflokk-
anna um innflutning á búvörum
eru orðnar farsakenndar. Það
er tímabært að ráðherrarnir
komi sér annað hvort saman
um hvaða lög og reglur gildi á
þessu sviði eða beiti sér fyrir
úískurði dómstóla um það.
Þessar deilur hafa skaðað ríkis-
stjórnina, skaðað stjórnarsam-
starfið og skaðað þá ráðherra
sem hlut hafa átt að máli.
Síðustu vikurnar hefur sam-
skiptamáti ráðherra í núverandi
ríkisstjórn einkennst af starfs-
háttum ráðherra í vinstri stjórn-
um og ekki verið í samræmi
við þær kröfur sem fólk gerir
til viðreisnarsamstarfs. Yfirlýs-
ingar og ummæli ráðherra
hvers í annars garð geta ekki
annað en dregið úr trausti
þeirra í milli og valdið erfiðleik-
um í samstarfi þeirra við ríkis-
stjórnarborðið. Það er tími til
kominn að þessum kapítula í
samstarfi núverandi stjómar-
flokka ljúki.
Eins og vikið var að í forystu-
grein Morgunblaðsins fyrir
skömmu krefjast þjóðarhags-
munir þess að núverandi stjóm-
arflokkar haldi samstarfí sínu
áfram. Þeír hafa mikið verk að
vinna við að leiða þjóðina út
úr einhverri erfíðustu kreppu,
sem yfír okkur hefur gengið á
þéssari öld. Ný vinstri stjórn
er vondur kostur. Slík stjórn
njundi freistast til þess að auka
erlenda skuldasöfnun, ýta til
h iðar allri viðleitni til að fram-
kvæma róttækan uppskurð í
Menzku atvinnulífí og hverfa
f?á tilraunum til þess að takast
á við fjárlagahallann. Þótt ekki
vferði sagt að núverandi ríkis-
stjórn hafí náð miklum árangri
í þessum efnum hefur hún þó
spyrnt við fótum og heldur
áfram að reyna.
Breytingar á landbúnaðar-
stefnunni eru tímabærar. Það
hafa bændur sjálfír staðfest
nieð þeim búvörusamningi sem
nú er í gildi og sparar skatt-
greiðendum nokkra milljarða
miðað við það sem hefði orðið
ef óbreytt ástand hefði ríkt.
Vandamálið í landbúnaðarkerf-
inu er ekki fyrst og fremst
bændur sjálfír eða afstaða
þéirra, heldur hið mikla bákn
sem byggt hefur verið upp í
kringum landbúnaðinn og
milliliðakerfíð, sem kostar neyt-
endur og skattgreiðendur mikla
fjármuni. Það getur varla verið
sérstakt hugsjónamál tals-
manna bænda og dreifbýlis á
Álþingi að þetta mikla bákn og
milliliðakerfi standi óbreytt um
aldur og ævi. Enda væri slík
afstaða augljóslega andsnúin
hagsmunum bænda sjálfra.
Breytt viðhorf og breyttur
tíðarandi kallar á breytta af-
stöðu til innflutnings á búvörum
frá öðrum löndum. Engum dett-
ur í hug að leggja íslenzkan
landbúnað niður. Engum dettur
i hug að opna fyrir óheftan inn-
flutning á búvörum frá öðrum
löndum. En það er ekkert óeðli-
legt að tilraun verði gerð með
einhvern innflutning á búvörum
m.a. til þess að veita innlendum
framleiðendum en þó kannski
fyrst og fremst milliliðunum í
landbúnaðarkerfinu aukið að-
hald. Hins vegar er nauðsynlegt
og sjálfsagt að slík breyting
verði gerð með skipulegum
hætti.
Ef það kæmi t.d. í ljós, að
smásöluaðilar reyndu að bæta
samkeppnisstöðu innfluttrar
búvöru með því að selja þær
vörur með lægri álagningu en
innlendar búvörur er alveg aug-
ljóst, að spjótin mundu beinast
að þeim smásöluaðilum með svo
afgerandi hætti, að þeir mundu
ekki mismuna erlendri og inn-
lendri búvöru lengi á þann veg.
Skinka, hamborgarhryggur
og kalkúnalæri frá Danmörku
mega ekki ráða stefnu ríkis-
stjórnarinnar í þessu máli en
sá titringur sem tilraunir til
innflutnings á þessum vörum
hefur valdið er til marks um
að breyting á því skilyrðislausa
banni við innflutningi á búvöru
sem ríkt hefur áratugum saman
er orðin tímabær.
í stað þess að standa í há-
vaða rifrildi í fjölmiðlum dag
eftir dag og viku^ftir viku, eiga
forystumenn Sjálfstæðisflokks
og Alþýðuflokks að taka hönd-
um saman um að marka skyn-
samlega stefnu og hrinda henni
í framkvæmd á hagkvæman
hátt fyrir bæði bændur og neyt-
endur. Það er alveg augljóst að
þessi ríkisstjóm er sú eina sem
getur komið slíkri stefnubreyt-
ingu fram. Það verður ekki
gert í ríkisstjóm sem Fram-
sóknarflokkur og Alþýðubanda-
lag eiga aðild að.
íslenzkur landbúnaður fram-
leiðir mjög góða matvöru sem
stendur fyllilega jafnfætis mat-
vöraframleiðslu annarra þjóða.
Það mun koma í ljós, þegar ein-
hver innflutningur verður leyfð-
ur á erlendri búvöra, að íslenzk-
ir neytendur halda tryggð við
íslenzku framleiðsluna. Fólk
þekkir erlendu vörana af eigin
raun frá ferðalögum erlendis
og veit fullvel að hún er ekki
betri en sú íslenzka. Þess vegna
verður innflutningur á búvöru
ekki eins hættulegur fyrir ís-
lenzkan landbúnað og margir
talsmenn hans virðast halda.
Auk þess hafa skoðanakannan-
ir sýnt að íslenzk búvörufram-
leiðsla nýtur öflugs stuðnings
neytenda.
Fjármálaráðherra og ríkistollstjóri um innflutning
Tollafgreiðsla kalkún
ins var brot á reglugi
FRIÐRIK Sophusson fjármálaráðherra og Sigurgeir A. Jónsson ríkis-
tollstjóri segja að tollafgreiðsla á kalkúnakjötinu á Keflavíkurflugvelli
á sunnudag hafi ekki verið í samræmi við reglugerð landbúnaðarráð-
herra um takmörkun á innflutningi landbúnaðarvara og reglugerð um
bráðabirgðatollafgreiðslur. Fjármálaráðherra boðaði til fréttamanna-
fundar í gær ásamt ríkistollsljóra og embættismönnum ráðuneytisins
til að skýra þá ákvörðun er starfsmenn tollstjóraembættisins lögðu
hald á 132 kg. af kalkúnakjöti í gærmorgun. „Það er okkar álit, og
þess vegna var gripið til þessara aðgerða í dag, að það hafi ekki ver-
ið farið eftir reglugerðinni," sagði Friðrik.
„Það hafa allir viðkomandi ráð-
herrar, utanríkisráðherra, landbún-
aðarráðherra og fjármálaráðherra,
sagt að þeir virði úrskurð forsætis-
ráðherra, þannig að það verður ekki
um frekari innflutning á þessum
varningi að ræða, nema leyfi fáist
og ég bendi á að aðalefni bréfs utan-
ríkisráðherra til sýslumannsins á
Keflavíkurflugvelli er það að virða
reglugerðina og úrskurð forsætis-
ráðaherra. Þetta var undantekning,"
sagði Friðrik um ákvarðanir utanrík-
isráðherra.
Friðrik sagðist einnig telja að
tollamál þyrftu að heyra undir einn
aðila og nauðsynlegt væri að fram-
kvæmd tollamálanna væri eins um
allt land. Sagði hann að utanríkisráð-
herra færi þó með ákveðið vald á
varnarsvæðinu, sem byggðist á laga-
heimild skv. varnarsamningnum við
Bandaríkin en sagðist telja að þar
væri fyrst og fremst átt við þau at-
riði sem snéru að varnarmálunum.
Samræmi í tollafgreiðslum
Ríkistollstjóri sendi fjármálaráð-
herra greinargerð um aðgerðirnar í
gær en þar segir m.a. að í framhaldi
af upplýsingum síðdegis á sunnudag
um innflutning Bónus á kjötvöru til
landsins og að höfðu samráði við
fjármálaráðherra hafi ríkistollstjóri
gefið tollgæslustjóra fyrirmæli um
að gera viðeigendi ráðstafanir til að
kjötið færi ekki í dreifíngu innan-
lands á meðan aflað væri frekari
gagna varðandi málið. Bendir ríkis-
tollstjóri á að í reglugerð landbúnað-
arráðherra um takmörkun á inn-
fiutningi búvara-, sé innflutningur á
niðursoðnum kjötvörum óheimill án
þess að fyrir liggi umsögn Fram-
leiðsluráðs landbúnaðarins og ekki
sé þar að finna neins konar undan-
þágur frá þessum innflutningstak-
mörkunum. Einnig er vísað til úr-
skurðar forsætisráðherra frá 8. sept.
um að forræði mála er varði innflutn-
ing á landbúnaðarvörum sé hjá land-
búnaðarráðuneytinu.
Þá segir að það sé skylda ríkistoll-
stjóra að hafa eftirlit með störfum
tollstjóra og gæta þess að samræmi
sé í störfum þeirra og ákvörðunum
og þessi skylda nái til allra tollum-
dæma Iandsins, þ. á m. tollumdæmis
Keflavíkurflugvallar. Tekið er fram
að umrædd vörusending hafi verið
afgreidd samkvæmt reglugerð nr.
64/1991, um bráðabirðgatollaf-
greiðslu, þrátt fyrir að þau skilyrði
hennar um samþykki stjórnvalda
fyrir innflutningi hafi ekki verið upp-
fyllt. „Af gögnum þeim sem afíað
hefur verið verður ekkí séð að tilskil-
inna leyfa hafi verið aflað. Ákvörðun
undirritaðs um haldlagningu nefndr-
ar vörusendingar er á því reist og
eingöngu gerð til þess að tryggja
að samræmi sé í tollafgreiðslu vöru-
sendinga við innflutning í öllum toll-
umdæmum landsins," segir m.a. í
greinargerð ríkistollstjóra.
í bréfi ríkistollstjóra sem sent var
Jóhannesi Jónssyni í Bónus í gær
segir m.a. að ástæða þess að emb-
ættið ákvað að leggja hald á vöruna
sé sú, að þrátt fyrir að utanríkisráð-
herra hafi heimilað tollafgreiðslu,
liggi fyrir að ekki hafi verið gætt
fyrirmæla reglugerðar landbúnaðar-
ráðherra um takmörkun á innflutn-
ingi landbúnaðarvara. I bréfinu kem-
ur einnig fram að ríkistollstjóraemb-
ættið hafi ákveðið að heimila endan-
lega tollafgreiðslu kalkúnakjötsins
ef umsagnar og staðfestingar Fram-
leiðsluráðs verði aflað og leyfi fáist
fyrir innflutningnum en að öðrum
kosti verði sendingin ekki afhent að
nýju til ráðstöfunar innanlands.
Fram kom á fréttamannafundin-
um að ríkistollstjóri sendi sýslu-
manninum á Keflavíkurflugvelli bréf
17. september þar sem segir að að
gefnu tilefni sé vakin athygli á reglu-
gerð landbúnaðarráðherra um tak-
mörkun á innflutningi landbúnaðar-
afurða frá 10. sept.
Utanríkisráðherra að
leita sátta
Friðrik vildi ekki svara því í gær
hver það raunverulega væri sem
hefði brotið gegn fyrirmælum reglu-
gerðar landbúnaðarráðherra við toll-
afgreiðslu kalkúnakjötsins. Benti
hann hins vegar á að utanríkisráð-
herra hefði fært rök í sérstakri grein-
argerð fyrir þeirri ákvörðun sinni í
að veita Bónus undanþágu og hver
og einn yrði að meta þau.
„En ég tel að þessi afgreiðsla
sýslumannsins á Keflavíkurflugvelli
í gær (sunnudag) bijóti í bága við
lög og reglur og þess vegna séu þær
aðgerðir sem gripið var til í dag rétt-
lætanlegar," sagði Friðrik
„Ég sé ekki annað en að Alþingi
hljóti að taka á þessum málum og
gefa framkvæmdavaldinu skýr fyrir-
mæli um það hvernig stánda skuli
að þessum málum,“ sagði hann enn-
fremur. Friðrik sagði augljóst að
utanríkisráðherra væri að leita eftir
Greinargerð utanríkisráðu
UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ sendi frá sér fréttatilkynningu ásamt grein-
argerð á sunnudag um þá ákvörðun utaníkisráðherra að heimila tollaf-
greiðslu á Keflavíkurflugvelli á u.þ.b. 144 kg. af soðnum kalkúnalærum
sem fyrirtækið Bónus sf. flutti til landsins. I fréttatilkynningunni segir
að utanríkisráðherra sem æðsti yfirmaður tollamála á Keflavíkurflug-
velli hafi ákveðið að varan skuli tollafgreidd inn til landsins og afhent
innflytjanda. „Utanríkisráðherra hefur jafnframt ákveðið að þessi af-
greiðsla skuli ekki hafa fordæmisgildi og hefur hann lagt fyrir sýslu-
mann að haga tollmeðferð soðins kjöts framvegis í samræmi við úrskurð
forsætisráðherra á innflutningi búvara,“ segir ennfremur í fréttatilkynn-
ingunni.
Sreinargerð utanríkisráðuneytisins
um málið fer hér á eftir.
„Hinn 9. september sl. setti land-
búnaðarráðherra reglugerð nr.
373/1993 um takmörkun á innflutn-
ingi landbúnaðarvara.
Það er álit viðskipta- og iðnaðar-
ráðuneytanna að reglugerðin sé ekki
byggð á fullnægjandi lagastoð, þar
sem búvörulögin veiti ekki sjálfstæða
lagaheimild til takmörkunar á inn-
flutningi. Þá takmarki reglugerðin
innflutning fjölmargra vöruflokka iðn-
aðarvara, unninna úr landbúnaðarhrá-
efni, sem ekki geti talist landbúnaðar-
vörur, og hafa ekki lotið innflutnings-
banni, t.d. smjörlíki.
Þá er það álit viðskipta- og iðnaðar-
ráðuneytanna að ákvæði reglugerðar-
innar bijóti gegn samningi Islands við
Evrópubandalagið um sérstakt fyrir-
komulag í landbúnaði frá 2. maí 1992,
sem þegar hefur tekið gildi. Reglu-
gerðin gengur einnig gegn ákvæðum
bókunar 3 við EES-samninginn, sem
staðfestur hefur verið af íslands hálfu,
þrátt fyrir að hann hafi ekki tekið
gildi. Utanríkisráðuneytið, sem fer
með túlkun milliríkjasamninga, hefur
tekið undir þetta álit viðskipta- og
iðnaðarráðuneytanna.
Af þessu leiðir að hliðsett stjórn-
völd, viðskipta- og iðnaðarráðuneytin
og utanríkisráðuneytið annars vegar
ög landbúnaðarráðuneytið hins vegar,
greinir á um lagaheimildir til að tak-
marka innflutning búvara.
H.
Fyrirtækið Bónus sf. hefur flutt til
landsins soðið kalkúnakjöt og óskar
eftir tollafgreiðslu þess á Keflavíku-
flugvelli.
Rétt er að minna á að.á degi hveij-
um er soðin kjötvara flutt inn til lands-
ins af ferðamönnum og áhöfnum skipa
og flugvéla, með sérstakri heimild í
lögum. Sú mismunun sem hér á sér
stað vekur spumingu um hvernig
komið er virðingu fyrir þeirri grunn-
reglu íslenskrar stjómskipunar og
vestræns lýðræðis að allir borgarar
skuli jafnir fyrir lögum, '
Samkvæmt ákvæðum laga 106/
1954 um yfirstjórn á varnarsvæðun-
um og reglugerð um stjórnarráðið fer
utanríkisráðherra með yfirstjórn tolla-
mála á Keflavíkurflugvelli. Það heyrir
því undir utanríkisráðherra að taka
ákvarðanir um tollafgreiðslu um-
ræddrar vöru.
Utanríkisráðherra hefur í tvígang,
sem starfandi viðskiptaráðherra, leit-
að álits ríkislögmanns á þeim lagalegu
álitamálum sem hér er um að tefla
en fengið synjun í bæði skiptin. í síð-
ara bréfi sínu til utanríkisráðherra
kvaðst ríkislögmaður efnislega ekki
geta gefið álitsgerð vegna þeirrar
skyldu sinnar að gæta hagsmuna rík-
isins í væntanlegu dómsmáli vegna
innflutnings Hagkaupa hf. á soðinni
skinku.
Yið mat á gildi reglugerðar land-
búnaðarráðherra ber að hafa í huga
að í stjórnarfarsrétti er greint á milli
fveggja tilvika ef um er að ræða
stjómarathafnir sem skortir lagastoð.
Annars vegar getur verið um að ræða
að stjórnarathöfn sé ógild, þ.e. að
engu hafandi. Hins vegar getur stjórn-
arathöfn sem skortir lagastoð verið
ógildanleg, á þann hátt að eftir henni
verður að fara þar til hún hefur verið
úrskurðuð ógild af dómstólum. íþyngj-
andi stjórnararhafnir verða fremur
taldar ógildar en ívilnandi stjómarat-
hafnir.
Mikil óvissa ríkir um hvort heimilt
sé að takmarka innflutning á um-
ræddri vöm á grundvelli reglugerðar
landbúnaðarráðherra. Utanríkisráð-
herra telur sér, eins og málum er
háttað, ekki fært að virða að vettugi
reglugerð hliðsetts stjómvalds sem
sett er með formlega réttum hætti.
Brýna nauðsyn ber til að réttaróvissu
verði eytt, réttaröryggi tryggt og lög-
um verið framfylgt á sama hátt um
land allt.
Utanríkisráðherra hefur því ákveðið
að tollmeðferð soðins kjöts beri fram-
vegis að haga í samræmi við úrskurð
forsætisráðherra um forræði á inn-
flutningi búvara, frá 8. september sl.,
þar til stjómvöld eða dómstólar hafa
leyst úr þeim ágreiningi sem að ofan
er lýst.