Morgunblaðið - 21.09.1993, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1993
25
kalkúnakjötsins
Halldór Blöndal landbúnaðarráðherra
Morgunblaðið/Kristinn
Aðgerðir tollgæslunnar kynntar
FRIÐRIK Sophusson fjármálaráðherra boðaði í gær til fréttamanna-
fundar til að skýra þær aðgerðir er starfsmenn ríkistollstjóraeinbættis-
ins lögðu hald á kalkúnakjötið í gærmorgun. Honum á hægri hönd
er Sigurgeir A. Jónsson ríkistollstjóri en á vinstri hönd Snorri Olsen,
skrifstofustjóri í fjármálaráðuneytinu.
akjöts-
erðum
sáttum með því að viðurkenna reglu-
gerð landbúnaðarráðherra og úr-
skurð forsætisráðherra en jafnframt
væri hann að leitast við að standa
við þá yfirlýsingu sem hann hafi
gefið í fjölmiðlum um að hægt væri
að flytja þessar vörur inn í gegnum
Keflavíkurflugvöll. „Það kemur mjög
skýrt fram af hálfu utanríkisráð-
herra að hann hefur gefið fyrirmæli
til sýslumannsins á Keflavíkurflug-
velli um að virða reglugerðina og
úrskurðinn. Ég lít svo á að sá ágrein-
ingur sé því úr sögunni,“ sagði hann.
Nóg af kalkúna-
kjöti til í landinu
HALLDOR Blöndal landbúnaðarráðherra segir að skýrt sé kveðið á
um það í lögum að óheimilt sé að flytja soðnar kjötvörur inn í landið
ef nægilegt magn sé til af því í landinu. „Þetta er alveg skýlaust og
ég hef sett reglugerð sem er byggð á lögunum og heimild í innflutn-
ingslögum. Þannig að þetta er alveg ljóst,“ sagði hann.
Halldór sagði að landbúnaðar-
ráðuneytinu hefði ekki borist nein
umsókn frá Bónus um heimild til
innflutnings eins og lög gerðu ráð
fyrir í slíkum málum. „Það veltur
síðan á afgreiðslu þeirra hvort inn-
flutningur er heimill og í þessu til-
viki, þar sem um kalkúnalæri er að
ræða, er nóg til að af þeim í land-
inu,“ sagði hann.
Utanríkisráðherra um aðgerð ríkistollstjóra að gera kalkúnalærin upptæk
Aðspurður hvort innflutningur
kalkúnakjötsins á sunnudag væri
refsiverður sagðist Halldót ekki geta
um það sagt, en benti á að dýralækn-
ir hefði yfirumsjón með aðgerðum
gegn smitsjúkdómum búfjár og inn-
flutningi og útflutningi lifandi dýra
og búfjárafurða að því er varðaði
heilbrigðismál og hollustuhætti. „Ég
hélt satt að segja að Bónus hefði
sent yfirdýralækni gögnin og átti
ekki von á öðru, en svo reyndist
ekki vera,“ sagði hann.
Staðfesting
Rengi persónulega heimild
tollstjóra til þessa framferðis
Halldór kvaðst líta svo á, að
ákvörðun utanríkisráðherra um að
framvegis skuli tollmeðferð á soðnu
kjöti vera hagað í samræmi við úr-
skurð forsætisráðherra um forræði
á innflutningi búvara, væri staðfest-
ingu á því af hálfu utanríkisráðherra
að innflutningur kalkúnalæranna
hefði ekki verið í samræmi við lög.
Forræði utanríkisráðherra á Keflavíkurflugvelli hafið yfir allan vafa
JON Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra segir að fjármálaráð-
herra verði að taka á sig alla ábyrgð á þeirri ákvörðun er starfsmenn
ríkistollsljóra gerðu upptæk 132 kg af kalkúnakjöti í gær „Þetta mál
er úr mínum höndum. Eg persónulega rengi heimild tollstjóra til þessa
framferðis. Mér þykir miður að til þessara aðgerða skuli hafa verið
gripið og tel það misráðið. Þetta er enn eitt tilefnið sem borgurunum
er gefið til málshöfðunar á hendur ríkinu. Ég ætla bara að vona að
ríkissjóður hafi efni á að greiða þær skaðabótakröfur sem ég held
að geti af hlotist en veit þó að fjármálaráðherra er býsna blankur um
þessar rnundir," sagði hann.
Jón Baldvin hafnar því að tollaf-
greiðslan á kalkúnakjötinu á sunnu-
dag hafí verið ólögmæt. Segist hann
hafa sem starfandi viðskiptaráðherra
kynnt forsætisráðherra lögfræðiálit
viðskiptaráðuneytisins þar sem fram
neytisins
m.
Þessi niðurstaða breytir ekki því
að við tollmeðferð innflutnings Bónuss
sf., sem fyrr var vísað til, verður að
huga að eftirfarandi þáttum:
Það er ein af meginreglum íslensks
stjórnarfars að stjórnarframkvæmdin
er lögbundin. í embættisverkum sín-
um ber stjórnsýsluhöfum að fara eftir
lögum. Stjórnvaldi ber að gæta al-
mannahags í hvívetna, eftir því sem
vald þess og verksvið leyfir. Ákvarð-
anir stjórnvalda eiga því ekki aðeins
að vera lögmætar, heldur eiga þær
jafnframt að vera réttmætar, en í því
felst að þær séu skynsamlegar, sann-
gjarnar eða a.m.k. réttlætanlegar eins
og á stendur hveiju sinni.
Aðalreglan er að stjórnarathafnir
beri að skýra fremur þröngt, einkum
þær stjórnarathafnir sem grípa inn á
réttindasvið þegnanna. Þróun íslensks
réttar hefur í auknum mæli byggst á
því að fara beri varlega við túlkun
íþyngjandi stjórnsýsluákvarðana. Þá
ber að minna á að þessi skýring er í
samræmi við almenn mannréttinda-
sjónarmið. I dómaraframkvæmd
Hæstaréttar hefur komið fram að
stjórnvaldsákvarðanir, sem takmarka
frelsi borgaranna og ekki byggjast á
fullnægjandi lagastoð, beri að túlka
einstaklingi í hag þar sem mannrétt-
indaákvæði séu sett einstaklingum til
verndar en ekki stjórnvöldum1.
Þróun réttarins hefur leitt til þess
að gerðar eru auknar kröfur til stjóm-
sýslunnar. Nægir í þvi sambandi að
benda á lög um umboðsmann Alþing-
is og nýsett stjómsýslulög. I almenn-
um viðskiptum milli einstaklinga ríkir
jafnræði með aðilum. Svo er ekki
háttað í viðskiptum einstaklinga við
stjórnsýslu.
komi að reglugerð landbúnaðarráð-
herra um takmörkun á innflutningi
búvara skorti lagastoð. Segir hann
að með henni taki landbúnaðarráð-
herra sér vald til setja viðurkenndar
iðnaðarvörur úr landbúnaðarhráefn-
Réttaröryggissjónarmið krefjast
þess að borgurunum sé ljóst hvað má
og hvað ekki. í tilviki sem þessu liggja
sterk rök til þess að stjómvöld axli
ábyrgð af því þegar réttaróvissa ríkir
af þeirra völdum, en velti ekki ábyrgð-
inni af slíku ástandi yfir á borgarana.
Það er hlutverk stjórnvalda að hafa
um það forgöngu að réttaróvissu sé
eytt.
Þá er það viðurkennt að reglur inn-
an stjórnsýslunnar eigi að vera skýr-
ar. Þetta á ekki síst við um íþyngj-
andi ákvarðanir.
Af framansögðu er ljóst að sú óvissa
sem ríkir um heimildir til takmörkun-
ar á innflutningi soðinna búvara hefur
leitt til þess að innflytjendur hafa
mátt ætla að innflutningur af þessu
tagi væri þeim heimill. Ríkislögmaður
og stjórnvöld hafa ekki náð að greiða
úr þeirri réttaróvissu sem til staðar
er. Það er því eðlilegt að túlka réttaró-
vissu á þessu sviði borgurunum í hag.
um á bannlista. Hún brjóti einnig í
bága við tvíhliða samning íslands
og EB, sem þegar hafi tekið gildi
og lokst stæðist hún ekki gagnvart
EES-samningnum sem íslendingar
hefðu samþykkt þótt hann hafi ekki
enn tekið gildi.
Segir hann að ágreiningur hlið-
stæðra stjórnvalda, landbúnaðarráð-
herra og utanríkis- og viðskiptaráð-
herra um túlkun laga hafi leitt til
réttaróvissu, sem stjórnvöld beri
ábyrgð á svo lengi sem þau leysi
ekki málið. „Það sem ég hef gert í
þessu máli er byggt á grundvelli
laga,“ segir Jón Baldvin.
Segist hann annars vegar hafa
Með hliðsjón af því sem að framan
er rakið um meginreglur laga á sviði
stjómsýsluréttar og þá réttaróvissu,
sem fyrir hendi er, telur utanríkisráð-
herra sér ekki fært, í tilviki sem þessu,
að skerða athafnafrelsi innflytjanda á
grundvelli reglugerðar með jafn vafa-
samri lagastoð og hér um ræðir. Rétt
er því að innflytjandi njóti þess vafa
sem fyrir hendi er.
Utanríkisráðherra hefur því ákveð-
ið, þar sem aðstæður allar krefjast
þess, að umræddur innflutningur verði
ekki hindraður af tollstjóra á Keflavík-
urflugvelli og varan afgreidd með fyr-
irvara um greiðslu gjalda til ríkis-
sjóðs, eins og venja er í tilvikum sem
þessum. Rétt er að taka fram að
ákvörðun þessi hefur ekki fordæmis-
gildi."
1 Sjá m.a. dóm Hæ»taréttar frá 15. scpt-
cmber 1988 í máli Sigurðar Ármanns Sigur-
jónssonar gegn umsjónamefnd leigubif-
reiða.
mælt fyrir um það á Keflavíkurflug-
velli að tollmeðferð soðins kjöts skuli
framvegis vera í samræmi við úr-
skurð forsætisráðherra þar til rétt-
bær stjórnvöld ákvæðu annað. „Það
getur gerst við það að reglugerð
landbúnaðarráðherrra verði dregin
til baka, sem ég hef óskað eftir að
verði gert. Það getur gerst við það
að samkomulag takist innan ríkis-
stjórnar og þingmeirihluta um fram-
tíðarskipan þessara mála. Það getur
gerst við það að dómstólar komist
að þeirri niðurstöðu að reglugerðin
styðjist ekki við lög. Ég legg áherslu
á að ég verð ekki sakaður um að
boða ein lög í dag og önnur á morg-
un eða að ein lög gildi á Keflavíkur-
flugvelli og önnur annarsstaðar. Með
þessu erum við að tryggja sam-
ræmda lagaframkvæmd þangað til
sjálfum lögunum hefur verið breytt,“
sagði hann.
Réttaróvssa túlkuð
einstaklinguum íhag
Jón Baldvin benti á ýmsar rök-
semdir fyrir því að ákveðið hefði
verið að leyfa innflutning kalkúna-
kjötsins á sunnudag. Innflytjendur
hafi mátt ætla að innflutningur af
þessu tagi væri þeim heimill. Þess
vegna beri að reyna að greiða úr
réttaróvissu þeim í hag. Stjórnvöld
beri sjálf ábyrgð á réttaróvissunni
og eigi ekki að velta ábyrgðinni af
því yfir á einstaklinga og óbreytta
borgara, sem ekki ættu að gjalda
fyrir mistök stjórnvalda. Þá væri
þetta í samræmi við þróun íslensks
réttar sem lýsti sér í dómafram-
kvæmd Hæstaréttar, nýlegri laga-
setningu um umboðsmann Alþingis
og stjórnsýslulög, þar sem grundvall-
arforsendan væri sú að stjórnvaldsá-
kvarðanir sem takmörkuðu frelsi
borgaranna og byggðu ekki á full-
nægjandi lagastoð eins og til dæmis
reglugerð landbúnaðarráðherra bæri
að túlka einstaklingunum í hag.
Jón Baldvin segir einnig aðspurður
að hafið sé yfir allan vafa að utanrík-
isráðherra sé æðsti yfirmaður tolla-
mála á Keflavíkurflugvelli. Það sé
ótvírætt skv. ákvæðum laga frá 1954
um yfirstjórn á varnarsvæðunum,
með vísan til reglugerðar um Stjórn-
arráðið og laga um um embætti lög-
reglustjóra á Keflavíkurflugvelli.
Auk þess megi visa til niðurstöðu
dómstóla, sem hafi m.a. staðfest að
utanríkisráðherra fari með dómsmál
á Keflavíkurflugvelli, mannaforráð,
fyrirmæli og yfirstjórnvald þar.
„Þetta hefur aldrei verið rengt,“ seg-
ir hann.
----».-----
Hörð gagnrýni
stjórnarandstöðu
Stjórnin
biðjist
lausnar
ÞINGFLOKKAR Alþýðubanda-
lags og Framsóknarflokks hafa
sent frá sér yfirlýsingar í kjölfar
atburða síðustu daga og deilur um
innflutning á búvörum milli ráð-
herra ríkissljórnarinnar. Alþýðu-
bandalagið krefst þess að forsæt-
isráðherra biðjist lausnar annað
hvort fyrir utanríkisráðherra eða
ríkisstjórn í heild og Framsóknar-
flokkurinn vill að Alþingi verði
kallað saman þegar í stað.
Þingfiokkur Alþýðubandalags lýs-
ir yfir þungum áhyggjum af þeim
fáheyrðu tíðindum sem gerst hafa á
vettvangi ríkisstjórnarinnar síðustu
daga. Telur þingflokkurinn að for-
sætisráðherra hafi algerlega misst
tökin á ráðherrum og ríkisstjórn sé
í raun óstarfhæf. í tilkynningu frá
flokknum um málið segir m.a.: „Fjár-
málaráðherra hefur réttilega í morg-
un látið tollverði gera upptækan
varning sem utanríkisráðherra lét
afgreiða og þar með fellt þann dóm
að utanríkisráðherra hafi átt hlut-
deild að ólöglegum innflutningi. Ut-
anríkisráðherra hefur í sérstakri til-
kynningu í gær lýst því yfir að land-
búnaðarráðherra sé sekur um lög-
leysu.“
Þing komi saman
í^ályktun sem þingflokkur Fram-
sóknarflokksins hefur sent frá sér
krefst hann þess að Alþingi komi
saman án tafar og fjalli um það al-
varlega ástand sem orðið er í stjórn
landsins. I ályktuninni segir: „Á
sama tíma og atvinnulífið riðar til
falls er landið stjómlaust vegna
harðvítugra deilna ráðherra. Úr-
skurður forsætisráðherra er einskis
virtur af utanríkisráðherra og ráð-
herrar bera lögbrot hver á annan.
Ríkisstjórn er firrt öllu trausti.
Um slíkt ástand hlýtur Alþingi að
fjalla þegar í stað.“
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Með kalkúnalæri
HÉR skoða þeir Guðmundur Garðarsson og Magnús Jónasson kalkúna-
læri hjá Jóhannesi Jónssyni, en hann dreifði þeim á fundi Heimdallar
um landbúnaðarmál á sunnudagskvöld.