Morgunblaðið - 21.09.1993, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ VIDSKIPTI/ATVINN1ILÍF ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1993
EININGABREF 2
EIGNARSKATTSFRJALS
Raunávöxtun
sl. 6 mánuði
Erlent
8,3%
KAUPÞING HF
Ijjggilt verdbréfafyrirtœki
Kringluuni 5, stmi 689080
í rigu Rúnadarbanka fs/anr/s og sftarisjóðanna
ICEPRO, nefnd um bætt verkiag í viðskiptum
og EAN á ísiandi efna til kynningarfundar um
pappírslaus verslunarskjöl. Kynnipgin verður
haldin í fundarsal Verslunarráðs íslands á 7.
hæð húss versfunarinnar miðvikudaginn 29.
nóvember kl. 12.00-14.00.
Kynningín er öllum opín og aðgangur ókeypis.
imo nelnúiii & EúH é íslnnúi.
'■irrne 'V-,
✓ Traktorstengdar þvingunarhrærivélar.
✓ Mötun auðveld með traktor. Mikil afköst.
✓ Tvær stærðir: 2ja og 3ja poka.
H
F
ÁRMÚLA 11 - SÍMI 681500
•ÓDÝRAR FRYSTIKISTUR
V
Murdoch faðmar heim-
inn með fjölmiðlunum
ÞAÐ á við um flesta athafna-
menn, að með aldrinum draga
þeir úr umsvifunum, en því er
ekki að heilsa með fjölmiðla-
kónginn Rupert Murdoch. Nú,
þegar hann hefur tvö ár um sex-
tugt, virðist hann, eftir því
hvernig á það er litið, annað-
hvort vera að leggja heiminn að
fótum sér eða loksins að verða
mikilmennskubijálæðinu að
bráð.
Síðustu vikur hafa verið mjög
óvenjulegar, jafnvel á mælikvarða
Murdochs. Fyrir utan allt húllum-
hæið í kringum nýja áskriftarpakk-
ann að Sky Television, sem mun
bjóða upp á 20 rásir á næsta ári,
kom hann eftirtöldu í verk: 24
klukkustunda kapalrás í Bandaríkj-
unum; önnur rás á Sky Sport í
Bretlandi; samstarf við Breska sjón-
varpið um könnun á fjarskiptum
framtíðarinnar og samningar við
tvo aðra fjölmiðlarisa, Emilio Azc-
arra Milmo, eiganda Televisa í
Mexikó, og Leo Kirch í Þýskalandi
en hann hefur mjög víðtæk réttindi
til að sýna þar Hollywood-kvik-
myndir.
Auk alls þessa voru gerðir samn-
ingar við National Transcommunic-
ation í Bretlandi og Comstream í
Bandaríkjunum um gerð stafræns
gervihnattakerfis, sem opnað gæti
fyrir hundruð sjónvarpsrása í Evr-
ópu og Asíu; Murdoch keypti
Delphi, fyrirtæki í Boston, fyrir 12
milljónir dollara til að kanna þá
tækni að „senda blöðin“ heim með
rafrænum hætti, og, að síðustu, þá
lækkaði hann verðið á flaggskipinu
í blaðaflotanum, The Times, úr 45
pensum í 30.
Áhyggjur af stöðu Hong Kong
Murdoch er einnig að semja um
sölu á meirihluta hlutabréfa í The
South China Morning Post, dag-
blaði í Hong Kong, og ástæðan er
sú, að hann hefur áhyggjur af
rekstri dagblaðs þar eftir 1997 þeg-
ar krúnunýlendan fellur undir Kína.
Ætlaði hann að vera búinn að
ganga frá þessum málum áður en
þau töfðust vegna kaupa hans á
Star TV í Hong Kong fyrir 525
milljónir dollara.
Ráðstefna
Nýting upplýsingatækni
SÆNSKA fyrirtækið Antera AB mun efna til eins dags ráðstefnu
um upplýsingatækni og samvinnslu á Hótel Loftleiðum hinn 15. októ-
ber nk. A ráðstefnunni verður fjallað um hvernig nýjasta upplýsinga-
tækni verður best nýtt til að bæta afköst hjá fyrirtækjum og auka
gæði framleiðslu. Fjallað verður um hagnýtingu nýjustu tölvutækni
og hinn mannlega þátt í notkun tölvugagna.
Að sögn Kents Olssons, fram-
kvæmdastjóra Antera, hefur fyrir-
tækið sérhæft sig í upplýsingatækni
og þjónar mörgum stórfyrirtækjum
á Norðurlöndum og í Evrópu. Fyrir-
tækið er í samstarfi við alþjóðlega
tölvufyrirtækið Butler Group. EJS
hf. er samstarfsaðili Antera AB hér
á landi en það hefur einnig haft
samstaf við Póst og síma.
Vendipunktur
Um 4.000 boðsmiðar hafa verið
sendir til íslenskra fýrirtækja og
aðila vegna ráðstefnunnar. Kent
> Olsson sagði mikilvægt fyrir stjórn-
KÆLI - O G FRYSTISKAPAR*
V
VESTFROST A FRABÆRU VERÐI
Frystikistur í mörgum stœrðum
• Yfir 25 öra reynsla á fslandi.
• Niðurfall í botni fyrir afþíðingu
• Óryggisrofar v/hitabreytinga og bama
• Spamaðarstilling - djúpfrystirofi
• Ljós í loki -
• Danfoss kerfi
Dönsk gœðavara - 3ja ára ábyrgð
n~an
Úrval kœli- og
frystiskápa
• Orkusparandi -
• Tvœrpressurí
sambyggðum
skápum
• Hœgri eða vinstri
opnun
• Djúpfrystirofi —
ðryggisrofi
• Danfoss kerfi
acíficii
• FAXAFEN 12 • SlMI 38000 •
„Stóra málið“
Star TV, sem sjónvarpar á fimm
rásum til 38 Asíulanda, er „stóra
málið“ í augum Murdochs. Hann
bindur miklar vonir við Asíumark-
aðinn en segist jafnframt gera sér
grein fyrir áhættunni þar.
„Indland er mikill markaður og
ég sé fyrir mér, að Star verði skipt
upp, annars vegar fyrir Indland og
hins vegar fyrir Kína. Þama er um
tvo ólíka menningarheima að
ræða,“ segir Murdoch og telur, að
hugsanlega verði sérstök þjónusta
fyrir þær 200 milljónir manna, sem
búa í Indónesíu. Glampinn í augum
Murdochs þýðir, að bráðum ráði
hann yfir sjónvarpsrásum, sem ná
um allan heim.
" Þessar áætlanir hafa óhjákvæmi-
lega í för með sér samkeppni við
BBC World Service og kannski sér-
staklega við Ted Turner og CNN.
Turner dregur heldur enga dul á,
að keppinautur hans sé fyrst og
fremst Rupert Murdoch.
Menningarleg
heimsvaldastefna
Erfiðleikarnir á Asíumarkaði eru
miklir. Það er til dæmis vanda bund-
ið að framleiða nógu ódýra mót-
tökudiska fyrir markaðinn og yfir-
völd segjast vera á varðbergi gagn-
vart menningarlegri heimsvalda-
stefnu. Það er líka óvíst, að kín-
versk yfirvöld fallist á beint gervi-
hnattasjónvarp, þau eru hrifnari af
kapalsjónvarpinu þar sem þá er
auðveldara að stjórna því, sem sýnt
er. Það tekur hins vegar langan
tíma að koma því upp. Murdoch
segir, að verði Star TV úthýst frá
Hong Kong af einhveijum ástæðum
geti það sent út frá Los Angeles
og „örugglega“ frá Ástralíu.
Það er tvennt, sem veldur því,
að Murdoch hefur náð jafn langt
og raun ber vitni. Annars vegar
hefur hann tileinkað sér nýjustu
tækni fyrr en keppinautarnir og
hins vegar hefur hann sérstaka til-
finningu fyrir því hvernig hægt er
að búa til nýjan markað í stað þess
að bíða eftir þróuninni.
endur að fylgjast vel með þessum
málum því komið væri að ákveðnum
vendipunkti í hagnýtinu upplýs-
ingatækni í fyrirtækjarekstri.
Antera mun standa fyrir eins
dags ráðstefnum í höfuðborgum
allra Norðurlandanna í október und-
ir nafninu „Client/Server Confer-
ence 1993“. Á ráðstefnuna hér á
landi koma fræðimenn frá mörgum
þjóðlöndum. Olsson lagði áherslu á
það ráðstefnan væri ekki ætluð
tölvufólki fyrst og fremst heldur
stjórnendum fyrirtækja sem vildu
leita leiða til að bæta reksturinn.
Skjótvirkur stíflueyðir
Eyðir stíflum
fljótt
• Tuskur
• Feiti
• Lífræn efni
• Hár
• Dömubindi
• Sótthreinsar
einnig lagnir
One Shot fer
fljótt að stíflunni
af því að það er
tvisvar sinnum
þyngra en vatn.
Útsölustaðir:
Shell- og Esso
-stöðvar
og helstu byggingavöru-
verslanir.
Dreifing: Hringás hf.,
sími 677878 - fax 677022
XJöfóar til
JL X fólks í öllum
starfsgreinum!
•ÓÝRAR FRYSTIKISTUR, KÆLI - OG FRYSTISKÁPAR*