Morgunblaðið - 21.09.1993, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1993
31
• i • • x Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Sigurliðið
Meistararnir og aðstoðarliðið hafa unnið átta rallmót í röð á sérsmíðuðum Metró rallbílnum.
Meistararnir unnu
bikarinn til eignar
AKSTURSÍÞRÓTTIR
Gunnlaugur Rögnvaldsson
ÍSLANDSMEISTARARNIR í
rallakstri, Ásgeir Sigurðsson
og Bragi Guðmundsson á Metró
unnu alþjóðarall Pizza 67 og
Bifreiðaíþróttaklúbbs Reykja-
víkur um helgina. Komu þeir
rúmum tíu mínútum á undan
þeim Jóni Ragnarssyni og Þór
Daníelssyni á Mazda í mark.
Með sigrinum tryggðu þeir
Ásgeir og Bragi sér meistara-
titilinn þriðja árið í röð og þar
með bikarinn sem fylgir titlin-
um til eignar. Þeir félagar hafa
unnið átta rallmót í röð og
fimmtán af tuttugu mótum,
sem þeir hafa keppt í á bílnum.
„Við vorum búnir að undirbúa
okkur undir mikinn slag, vorum
með góða leiðarlýsingu og tilbún-
ir að slást af hörku við Steingrím
Ingason. Því miður féll hann úr
leik á fyrsta degi og eftirleikurinn
varð tiltölulega auðveldur", sagði
Bragi Guðmundsson í samtali við
Morgunblaðið.
Rallið var 300 km að lengd á
sérleiðum og þótti nokkuð ljóst
að baráttan yrði milli meistaranna
og Steingríms Ingasonar og Páls
Kára Pálssonar á Nissan. En á
fimmtu sérleið á fyrsta degi velti
Steingrímur á erfiðum stað, þar
sem nokkrir aðrir áttu einnig fullt
í fangi með að komast í gegn.
„Ég fór fullgeyst og missti bíl-
inn út í kant, þaðan endasentist
hann síðan út af. Það kom slæmt
högg á bílinn í þessu brambolti
og hann er mjög illa farinn“, sagði
Steingrímur sem meiddist í baki
við óhappið og getur ekki keppt
í lokamóti ársins af þeim sökum.
Eftir þetta óhapp áttu meistaram-
ir tiltölulega greiða leið fyrir
höndum, enginn ógnaði þeim á
sérleiðum.
Sá gamálreyndi hlaut silfrið
Rallkappinn gamalkunni Jón
Ragnarsson settist að nýju undir
stýri eftir að hafa ekið i mörg ár
sem aðstoðarökumaður sonar
síns, sem er meiddur. Hann jók
hraðann smám saman, átti um
tíma í keppni við Ævar Sigdórs-
son og Ægi Ármannsson á Lanc-
ia Delta, en skildi þá eftir að lok-
um með bronspeninginn. Þeir
Ævar og Ægir unnu í flokki
óbreyttra bíla og náðu þar með
góðri stöðu til Islandsmeistara í
þeim flokki, þegar einu móti er
ólokið. Helstu andstæðingar
þeirra um titilinn, Óskar Ólafsson
og Jóhannes Jóhannesson féllu
fljótlega úr leik vegna bilunar.
Fimmta sætið í fimmtu
heimsókninni
Aðeins ein erlend áhöfn var í
rallinu og ökumaðurinn Philip
Goubert var í sinni fimmtu heim-
sókn og náði fimmta sæti á Suzuki
Swift. I fyrra varð hann af keppni
þegar keppnisbíll hans gleymdist
á hafnarbakka en núna komst
bæði bíllinn til landsins og alla
leið í endamark við Pizza 67 í
Tryggvagötu.
„Eg hef alltaf jafn gaman af
keppninni og sérleiðirnar eru
skemmtilegar, þó margar séu
grófar. Ég hef trú á að ef rallið
væri í ágúst þá væri auðveldara
að fá keppendur til landsins. Það
þarf að byija að kynna næsta
rall strax og ég held að heims-
meistaramótið í Englandi væri
góður vettvangur. RAC rallið er
mjög fjölmennt og mikið af ævin-
týramönnum sem væru tilbúnir
að skreppa til íslands. Ég legg
af stað í rallið í tuttugusta skipti
í nóvember þannig að maður legg-
ur ýmislegt á sig fyrir rallið.
Keppnin hér var góð en ég hefði
vilja sjá fleiri útlendinga", sagði
Goubert.
Bílaþjónusta í Skeifunni
OPNUÐ hefur verið bílaþjón-
usta í Skeifunni 11. Er þar að-
staða til viðgerða, lyfta og öll
rafsuðutæki.
Einnig verður veitt ýmis þjónusta
svo sem bílaviðgerðir, dekkjavið-
gerðir, rafgeymaþjónusta, verslun
með bíla- og bónvörur, þvotta- og
bónaðstaða, söluskoðun á notuðum
bifreiðum og neyðarþjónusta allan
sólarhringinn.
Opið verður alla daga, virka daga
frá kl. 8-22, laugardaga og sunnu-
daga frá kl. 10-18.
Slttfl ouglýsingar
I.O.O.F. Ob.1= 1749218'h = .
I.O.O.F. Rb. 4 = 1439218 -
Frá Sálarrannsókna-
félagi íslands
Haldiö verður framhaldsnám-
skeið í næmi og heilun dagana
23. og 24. september (kvöld-
námskeið). Meöal efnis: Grunn-
skilningur á persónulegum
spíritisma, kenningar og hagnýt
notkun dulspeki, kenningar og
hagnýt notkun kristalla o.fl.
Leiðbeinendur verða bresku
miðlarnir June og Geoff Hughes.
Skráning á skrifstofu félagsins f
símum 18130 og 618130.
Stjórnin.
UTIVIST
Hallvoigarstig 1 • simi 614330
Lengri ferðir næstu
helgi
Síðasta ferð haustsins í Bása
við Þórsmörk 24.-26. sept.
Haustlitadýrð og náttúrufegurð
Goðalands og Þórsmerkur er
engu lík. Gönguferðir með farar-
stjóra, gist í velútbúnum skála.
Sérstakt verðtilboð á þessari
síöustu ferð.
Fimmvörðuháls 25.-26. sept.
Gengið yfir Fimmvörðuháls frá
Skógum og í Bása við Þórsmörk.
Gist í Fimmvörðuskála. Farar-
stjóri Þráinn Þórisson. Nánari
uppl. og miðasala á skrifstofu
Útivistar.
Dagsferð sunnud. 26. sept.
Kl. 10.30 Þingvallagangan 4.
áfangi.
Útivist.
Farfuglar
Haustferð
íValaból
Eldri og yngri Farfuglar!
Mætum öll í Valaból næsta laug-
ardag 25. september.
Farið frá Kaldárseli kl. 13.30.
Farfuglar.
Skíðadeild
Fundur um æfinga- og vetrar-
starf skíðadeildarinnar, verður
haldinn í Gerðubergi í kvöld,
þriðjudag kl. 20.30. Nýir félagar
velkomnir. Upplýsingar: símar
666794 og 72206.
Stjórnin.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 - SÍMI 6825B1*
Þriðjudagskvöld, 21. sept.
Opið hús í Mörkinni 6 (risi)
Efni: Fjallahjóiaferðir.
Opið hús verður framvegis,
hálfsmánaðarlega í allan vetur
og oftar ef þurfa þykir.
Húsið opnað kl. 20.30. Kvöldið
verður helgað fjallahjólaferðum.
Magnús Bergsson, formaður Is-
lenska fjallahjólaklúbbsins kynn-
ir útbúnað til fjallahjólaferða ekki
síst í vetrarferðum. Einnig verð-
ur pistill um útbúnað fyrir konur.
Allir velkomnir meðan húsrými
leyfir. Heitt á könnunni. Allir vel-
komnir, félagar sem aðrir, einnig
þeir sem ekki eiga fjallahjól.
Myndakvöld FÍ verða annan
miðvikudag í hverjum mánuði í
Sóknarsalnum og er það fyrsta
þann 13. október.
Helgarferðir 24.-26. sept.
Landmannalaugar - Jökulgil.
2. Fjallahjólaferð: Laugar -
Eldgjá. Brottför föstud. kl. 20.
3. Þórsmörk f haustlitum, 2 d.
Brottför laugard. kl. 08.
Upplýsingar og farmiðar á
skrifst., Mörkinni 6.
Laugardagsferð 25. sept. kl.
08.00: Á slóðum Snorra á
Húsafelli.
Ferðafélag (slands.
WtÆkÆÞAUGL YSINGAR
SJALFSTIEDISFLOKKURINN
I- Ý. I. A (i S S T A R F
Aðalfundur Landsmálafélagsins
Fram íHafnarfirði
Landsmálafélagið Fram heldur aðalfund í Sjálfstæðishúsinu, Hafnar-
firði þriðjudaginn 28. september kl. 20.00.
Dagskrá fundarins verður:
★Venjuleg aðalfundarstörf.
★ Kjör fulltrúa á landsfund.
★ önnur mál.
Stjórnin
Athugið breyttur fundardagur frá því sem áður var auglýst
Félag sjálfstæðismanna í
Smáíbúða-i Bústaða- og
Fossvogshverfi
Almennur félagsfundur verður haldinn í
Valhöll, Háaleitisbraut 1, þriðjudaginn 21.
september og hefst kl. 20.30.
Dagskrá:
Kosning 9 fulltrúa á landsfund
Sjálfstæðisflokksins sem haldinn verður
21 .-24. október nk.
Gestir fundarins:
Friðrik Sophusson, fjármálaráðherra ræðir
um stjórnmálaviðhorfið. Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson, borgarfulltrúi, formaður skipu-
lagsnefndar, ásamt Ólafi F. Magnússyni, varaborgarfulltrúa ræða
borgarmálefni.
Fundarstjóri: Jóna Gróa Sigurðardóttir, varaborgarfulltrúi.
Hvað varð um hugsjónir
ungra sjálfstæðismanna?
Undanfarin ár hafa
nokkrir fyrrverandi
forystumenn ungra
sjálfstæðismanna
setið á Alþingi fyrir
Sjálfstæðisflokkinn.
Hafa þessir menn
villst af leið?
Hví er báknið ekki
fariö burt?
Hvf eru hagsmunir
kjördæmanna settir ofar heildarhagsmunum þjóðarinnar?
Hvað varð um hugsjónir SUS?
Samband ungra sjálfstæðismanna heldur almennan fund um störf
og stefnu SUS og framkvæmd stefnumála þess á Alþingi.
Ræðumenn verða: Ari Edwald, aðstoðarmaður dómsmélaráðherra,
Jón Kristinn Snæhólm, sagnfræðingur og alþingismennirnir Vilhjálm-
ur Egilsson og Einar K. Guðfinnsson.
Fundarstjóri verður formaður SUS Guðlaugur Þór Þórðarson.
Fundurinn er öllum opinn og byrjar kl. 18.00 miðvikudaginn 22. sept-
ember í Kornhlöðunni.