Morgunblaðið - 21.09.1993, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1993
33
Honda Civic GLi, árg. '91, sjálfsk.,
4 d., brúnn, ek. 44 þús. Verð
1.040.
MMC Lancer GLX, árg. '91,
sjálfsk., 5 d., hvítur, ek. 41 þús.
Verð 980 þús.
MMC Lancer GLXi, árg. ’91,
sjálfsk., 5 d., rauður, 34 þús. Verð
1.050.
Suzuki Swift, árg. '91, 5 g., 5 d.,
blár, ek. 35 þús. Verð 680 þús.
Heimsmeistaramótið í Hollandi
Afbragðs mótssvæði
- sem þolir þó vart úrhellisrigningu
Hestar
Mercedes Benz, árg. '86, 5 g., 5
d., grænn, ek. 126 þús. Verð 2,0
millj.
Lada Samara 1500, árg. '91, 5
g., 5 d., hvítur, ek. 15 þús. Verð
490 þús.
Subaru E10, árg. '87, hvítur. Verö
160 þús.
Honda Civic GTi, árg. ’89, 5 g., 4
d., ek. 78 þús. Verð 790 þús. ’
BIFREIÐAR & LANDBÚNAÐAR'JÉLAR HF.
Suðurlandsbraut 14,
s. 681200, beinn s. 814060.
Daihatsu Charade, árg. '90,
sjálfsk., 4 d., rauður, ek. 31 þús.
Verð 680 þús.
Valdimar Kristinsson
MJÖG ýtarlega hefur verið
fjallað um Heimsmeistaramótið
í Hollandi hér í hestaþættinum
þótt lítið hafi verið skrifað um
aðstöðuna á mótsstað og verður
bætt úr því nú. Eins og fram
hefur komið er mótsstaðurinn
í miðju útivistarsvæði Amsterd-
ambúa skammt norðvestur af
borginni. Fyrir rúmu ári var
haldið mót þar kallað M.E.C.
og til þess ætlað að láta reyna
á bæði starfslið og mótsstaðinn
og vellina.
Allt gekk þetta vel nema hvað
vellimir voru ómögulegir. Að öðru
leiti þótti mótssvæðið lofa mjög
góðu og starfsliðið einnig. Nánast
öll vinna við framkvæmd mótsins
nú var unnin af sjálfboðaliðum
og í fljótu bragði séð virtust kon-
ur þar í miklum meirihluta. Fram-
gangur mótsins var í góðu lagi,
dagskráin rann nokkuð ljúflega í
gegn og litlar tafir. Uppsetning
dagskrár var nokkuð. breytt frá
því sem tíðkast hefur til dæmis
var forkeppni í tölti ekki á laugar-
degi eins og verið hefur. Þá stóð-
ið mótið nú degi lengur en áður.
„Sléttunum eigi kvíddu“
Margir höfðu áhyggjur af að
ekki tækist að laga efnið í völlun-
um fyrir heimsmeistaramótið en
sá ótti reyndist að mestu ástæðu-
laus því þeir reyndust hið besta.
Var látið mjog vel af þeim alla
daga mótsins að sunnudeginum
frátöldum. Þegar hestar íslenska
liðsins komu á svæði var nokkur
rigning og vellirnir mjög hálir.
Öll hrossin voru á sléttskeifum
þannig að þeim gekk illa að fóta
sig á völlunum. Þegar leið að
móti stytti upp og voru vellirnir
þá hreint frábærir, þéttir í sér en
þó vel fjaðrandi. Á sunnudeginum
rigndi þvílíkt að meira segja ís-
lendingum var farið að ofbjóða.
Við alla þessa ofankomu spændist
leirinn í völlunum upp og varð að
einni eðju þannig að bæði menn
og sér í lagi hestar urðu eitt
drullustykki og átti þá vel við fer-
skeytlan þar sem segir „Þótt slíp-
ist hestur og slitni gjörð, slettun-
um eigi kvíddu, hugsaðu hvorki
um himinn né jörð, haltu þér fast
og ríddu”. Þrátt fyrir þessar tor-
færur héldu hrossin takti og ferð
ótrúlega vel og kom vel í ljós
hversu vel þjálfuð hrossin eru sem
þarna öttu kappi í úrslitum. Var
skrýtið að sjá hrossin geysast
áfram með töglin sem voru einn
drullumassi hangandi beint niður
í stað þess að brúsa aftur. Vegna
veðursins var verðlaunaafhending
færð inn í stóra samkomutjaldið
þar sem dansleikir mótsins höfðu
verið haldnir. Þótt mótssvæðið
hafi reynst vel í flesta staði hefur
það sama veikleikann og flest
mótssvæði á meginlandinu, þau
taka mjög illa við mikilli rigningu.
Jarðvegur er yfirleitt mjög leir-
kenndur og hleypir bleytu illa í
gegnum sig þannig að úr verður
eitt drullusvað ef mikið rignir.
Hestamenn þinga í haust
AÐ VENJU halda hestamenn tvö
ársþing í haust. Hið fyrra, árs-
þing Landsambands hesta-
mannafélaga, verður haldið í
Varmahlíð í Skagafirði 29. til
30. október nk.
Það eru skagfirsku hestamanna-
félögin sem sjá um þinghaldið að
þessu sinni. Seinna þingið er árs-
þing Hestaíþróttasamband íslands
sem haldið verður á Akureyri 19.
til 20. nóvember næstkomandi í
boði Léttis. Tillögum þarf í báðum
tilvikum að skila inn á sameigin-
lega skrifstofu beggja sambanda
fjórum vikum fyrir þingin.
íslensku liðsmennirnir voru ánægðir með þá aðstöðu sem þeim
var úthlutað á mótsstað.
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
Mótsvæðið í Spaarnwoude reyndist vel þótt ekki tæki það vel við stórrigningunni á sunnudeginum.
Aðstaða fyrir áhorfendur var yfir-
leitt góð, uppsett áhorfendastæði
bæði við hringvöll og skeiðbraut.
Stutt í matsölu sem reyndar þótti
heldur takmörkuð framan af móti
en bætt var úr því þegar á leið
og fólki fór fjölgandi á mótsstað.
Aðstaða íslenska liðsins fyrir
hestana var alveg til fyrirmyndar
og allir liðsmenn mjög sáttir við
hana. Stórt tjald var í beitarhólf-
inu sem íslendingum var úthlutað
með stíuboxum í fyrir hvern hest.
íslenska liðið bjó á móteli í göngu-
fjarlægð frá mótsstað og voru
leigð reiðhjól fyrir menn til að
komast á milli staða. Þótt ekki
væri þetta fyrsta flokks gististað-
ur lét enginn það fara í taugarnar
á sér heldu einbeittu sér að keppn-
inni.
Ekki gekk öllum áfallalaust að
finna mótssvæðið sem var mjög
illa merkt. Ástæðan fyrir því mun
sú að viðkomandi yfirvöld bönn-
uðu allar merkingar á vegum í
nágrenni mótsvæðisins og fengu
margir auka útsýnisferðir um
næsta nágrenni á ýmsum tímum
sólarhringsins. Þrátt fyrir þetta
er talið að allir hafí skilað sér að
endingu á mótsstaðinn.
Hollendingar eftirbátar Svía
Á mótinu í Svíþjóð 1991 var
blaðamönnum boðið upp á ein-
hveija þá bestu vinnuaðstöðu sem
um getur á þessum mótum enda
stöðugt aukinn áhugi fjölmiðla
fyrir þessum samkomum. Öfugt
við það sem búist hafði verið við
reyndust Hollendingar Svíum eft-
irbátar í þessum efnum þótt ekki
sé hægt að segja að aðstaðan
hafí verið afleit. Að vísu áttu ís-
lenskir fjölmiðlamenn hauk í homi
sem var Þorgeir Guðlaugsson en
hann var blaðafulltrúi mótsins og
reyndist löndum sínum vel. Nokk-
ur taugatitringur hefur oft verið
vegna ljósmyndara inn á hring-
vellinum en þau mál virðast vera
komin í góðan farveg og virtust
samskipti ljósmyndara og móts-
stjórnar í góðu lagi nú.
í mótslok á sunnudag var allt svæðið meira og minna umflotið
vatni.
Völlurinn leystist upp í eðju mikla á sunnudeginum.