Morgunblaðið - 21.09.1993, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1993
37
Minning
Jónas Björnsson
Það ,var fyrir rúmum sautján
árum að leið mín lá norður yfir
heiðar til nyrsta kaupstaðar þessa
lands, Siglufjarðar. Fjörðurinn
fagri, Þormóðs ramma fagri fjörð-
ur, skartaði sínu fegursta, umfaðm-
aði mig og fjölskyldu mína. Bauð
mig velkomin til starfa á hinni
nyrstu slóð. En það var þó ekki
aðeins fjörðurinn og umhverfi hans
sem bauð mig velkominn. Um það
virtust margir menn og konur sam-
einast.
Fljótt komst ég að því að kirkjan
á staðnum átti góðan hóp manna
sem vildu allt fyrir kirkjuna sína
gera. Átti hóp sem við oft á tíðum
nefnum kirkjuvini.
Einn úr þessum hópi var Jónas
Bergsteinn Björnsson. Hann starf-
aði að kirkjumálum áratugum sam-
an, var meðal annars í kirkjukór
Siglufjarðar í nær fjóra áratugi.
Fyrstu kynnin af honum voru í
gegnum störf sóknarnefndarinnar.
Þar sem og í öllu lífi hafði hann
mikil áhrif. Sérstakur persónuleiki
hans hafði einstaklega jákvæð
áhrif. Sjaldan eða aldrei hefí ég
kynnst manni með eins jákvætt
hugarfar gagnvart mönnum og
málefnum. Hann vildi fyrst og síð-
ast gera gott úr öllum hlutum.
Hans viðbrögðum má lýsa með orð-
unum er segja: „Þetta fer allt vel.“
Það gleymast ekki stundirnar á
sóknarnefndarfundum, þegar Jónas
átti það til að dotta um stund, jafn-
vel þegar rætt var um málefni sem
ekki allir voru sammála um. Þegar
blundinum lauk var svar hans og
tillaga ávallt sú, að hugmyndin
væri góð, hefði góð áhrif á sjálft
lífið og þessvegna þyrfti að vinna
málinu brautargengi. Orðin hans
ljúfu og mildu smituðu út frá sér,
höfðu áhrif, og oft náðust farsælar
og blessunarríkar niðurstöður fyrir
atbeina Jónasar..
Eins og áður sagði hafði Jónas
einnig mikil áhrif á það samfélag
sem starfaði á sönglofti Siglufjarð-
arkirkju, þ.e. sjálft kórstarfíð. Þar
veittu menn því eftirtekt, ef Jónas
vantaði. Þannig varð hann bæði í
kirkjunni og í sjálfu bæjarfélaginu
einhverskonar fastur punktur í til-
verunni. Siglufjörður sér því við
fráfall Jónasar á eftir einum af sín-
um beztu sonum, sem svo sannar-
lega hefur haft jákvæð áhrif á allt
mannlíf þar á stað.
Hann lagði ávallt mikla áherzlu
á að einstaklingurinn fengi að njóta
sín, en vissulega þó ávallt á þann
hátt, að um leið leiddi frelsi ein-
staklingsins til athafna af sér vel-
sæld og velmegun fyrir fjöldann.
Sjálfur var Jónas gott dæmi um það
að beijast ótrauður fyrir betra lífi.
Lét hann ekkert aftra sér í þeirri
baráttu, hvorki heilsuleysi né ann-
að. Trúin og vonin leiddu hann alla
leið. Það var fjölskyldunni og vinum
ávallt ljóst og þá ekki sízt þegar
ævikvöldið var að verða að stað-
reynd. Án trúarinnar og vonarinnar
sem tengist ávallt trúnni, hefði Jón-
as ekki markað þau spor sem hann
gerði. Hann var ávallt bjartsýnn og
vongóður, átti það til að klappa á
LEGSTEINAR
« ALMSTEINNi?
720 Borgarfirði eystra,
sími 97-29977, fax 97-29877
★ MCROPniNT
TIME RECORDER CO.
Stlmpllklukkur fyrir
nútfð og framtið
OTTO B. ARNAR HF.
Skipholti 33 • 105 Reykjavik
Simar 624631 / 624699
öxl samferðamannsins og segja,
„þetta fer allt vel“. Hann vissi að
sá væri til sem lætur allt fara vel,
ef honum er treyst.
Hann mætti því hinni síðustu
stund með æðruleysi. Þakkaði fyrir
allt sem gefið var, í öllu lífi og starfi.
Hann var sæll, vissi að börnin
hans sem svo sannarlega hafa tekið
upp merkið hans í kirkjunni, í bæj-
arfélaginu og víðar, bæru nafn hans
inn í framtíðina.
Við, sem sjáum á eftir sértökum
manni, biðjum lifandi Guð og föður
að blessa minninguna fögru og ljúfu
um Jónas Björnsson. Við biðjum
hann einnig að styrkja og blessa
eiginkonuna Hrefnu sem staðið hef-
ur við hlið hans í blíðu og stríðu.
Ég og fjölskylda mín vottum fjöl-
skyldu Jónasar samúð, megi minn-
ingin um hann styrkja ykkur öll á
kveðjustundu. Megi sá sem gefur
allt líf, sá sem kemur til okkar í
syni sínum Jesú Kristi, leiða ykkur
öll frá strönd til strandar.
Vigfús Þór Árnason.
t
BJARNI BRYNJÓLFSSON
frá Skálavik,
Stokkseyri,
andaðist á Hrafnistu í Reykjavík 18. september.
Fyrir mína hönd og annarra vandamanna,
Guðfinnur G. Ottósson.
t
Móðir mín og tengdamóðir,
PETREA GUÐMUNDSDÓTTIR,
Vfðigrund 24,
Sauðárkróki,
lést í Sjúkrahúsi Sauðárkróks ,17. september.
Bára Þ. Svavarsdóttir, Ólafur A. Jónsson.
t
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og bróðir,
HÖSKULDUR MAGNÚSSON
frá Ólafsvík,
til heimilis á Kjartansgötu 2,
Reykjavík,
andaðist 17. september.
Fyrir hönd aðstandenda.
Sigurður Höskuldsson.
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
ELÍN B. JENSEN,
sem andaðist föstudaginn 10. september, verður jarösungin frá
Dómkirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn 22. september kl. 15.00.
Atli Örn Jensen, Guðfinna Árnadóttir,
Karftas Jensen, Tómas P. Óskarsson,
Þórarinn Elmar Jensen, Svanhildur Gestsdóttir,
Markús E. Jensen, Magðalena Kjartansdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Ástkær eiginkona mín,
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR,
Þórsgötu 9,
Reykjavík,
andaðist á heimili okkar aðfaranótt
sunnudagsins 19. september.
Útförin verður auglýst síðar.
Þeim, sem vilja minnast hennar er vin-
samlega bent á Kristniboðssambandið.
Hermann Þorsteinsson.
t
Innilegar þakkir fyrir samúð og vinarhug
við andlát og útför,
PÁLÍNU ÁGÚSTU SVEINSDÓTTUR,
Miðtúni 3.
Starfsfólki Landspítalans, deild 11 E,
færum viö sérstakar þakkir fyrir hlýhug
og frábæra hjúkrun.
Aðstandendur hinnar látnu.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og
útför,
EYJÓLFS TEITSSONAR.
Soffía Ármannsdóttir,
Elín Eyjólfsdóttir, Magnús Stefánsson,
Teitur Eyjólfsson, Lovisa Viðarsdóttir
og barnabörn.
t
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, systir og amma,
ELÍN INGA BRAGADÓTTIR,
Akurgerði 7A,
Akureyri,
verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn 23. septem-
ber kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast hennar er bent á Krabbameinsfélagið.
Kristinn Hólm Vigfússon,
Lára Björk Kristinsdóttir, Karl Sævar Bragason,
Bragi Hlíðar Kristinsson, Fríða Pétursdóttir,
Baldur Bragason,
Karl Bragason,
Þórhalla Bragadóttir
og barnabörn.
t
Elskuleg eiginkona mín, móðir, dóttir,
systir, mágkona og tengdadóttir,
DROPLAUG SVEINBJÖRNSDÓTTIR,
tannlæknir,
Sæbóisbraut 39, Kópavogi,
sem lést 13. september, verður jarð-
sungin frá Fossvogskirkju í dag, þriðju-
daginn 21. september kl. 15.00.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent
á Reykjalund og Krabbameinsfélag (slands.
Þorvaidur Bragason, Birna Þorvaldsdóttir,
Sveinbjörn Björnsson, Guðlaug Einarsdóttir,
Björn Már Sveinbjörnsson,
Einar Örn Sveinbjörnsson, Soffía Ósk Magnúsdóttir,
Bragi Þórðarson, Elín Þorvaldsdóttir.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
MÁLFRÍÐUR KRISTJÁNSDÓTTIR
frá Steinum,
Aflagranda 40,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju, föstudaginn 24. september
kl. 13.30.
Kristján Finnsson, Júlíana Pálsdóttir,
Jón Finnsson, Sólrún Rafnsdóttir,
Kolbeinn Finnsson, Bryndfs Jóhannesdóttir,
Bjarni Finnsson, Hildur Baldursdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og
útför móður minnar, tengdamóður, ömmu, systur og mágkonu,
ÞÓRUNNAR ÓLAFSDÓTTUR,
Hringbraut 70,
áðurtil heimilis á
Austurgötu 10, Keflavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Sjúkrahúss Keflavíkur.
Guðrún S. Helgadóttir, Sigurður J. Halldórsson,
Helgi Þór, Jenný Sigrún, Erik Olaf,
Erna Vigfúsdóttir, Arnbjörn Ólafsson,
Liss Ólafsson.
t
Kærar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og vinarhug
við andlát og útför móður okkar, tengdamóður og ömmu,
ÖNNU JÓNSDÓTTUR,
Skagabraut 37,
Akranesi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Sjúkrahúss Akraness fyrir
einstaklega góða umönnun.
Hörður Bjarnason, Guðrún Eyjólfsdóttir,
Geir Valdimarsson, Lóa Gfsladóttir,
Jón Valdimarsson, Sigríður Helgadóttir
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýndan vinar-
hug og hlýju við andlát og útför elsku-
legs eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður og afa,
JÓNASAR BERGSTEINS
BJÖRNSSONAR,
Siglufirði.
Hrefna Hermannsdóttir,
Björn Jónasson, Ásdfs Kjartansdóttir,
Guðrún Jónasdóttir,
Halldóra Ingunn Jónasdóttir, Gunnar Trausti Guðbjörnsson,
Hermann Jónasson, Ingibjörg Halldórsdóttir,
Rakel, Jóna Hrefna, Edda Rósa, Bettý, Helga og Halldór.