Morgunblaðið - 21.09.1993, Qupperneq 38
38
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1993
Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
LANDSBYGGÐIN
Eldri borg-
arar í út
sýnisflug
Neskaupstað.
Islandsflug kynnti nýlega eldri
borgurum í Neskaupstað flug-
vélakost sinn og starfsemi. Félagið
bauð þeim upp á kaffiveitingar
ásamt útsýnisflugi hér um ná-
grennið. Töluverður flöldi eldri
borgara þáði boðið og var ekki
annað að sjá en að þeim hefði lík-
að vel enda veður og útsýni gott.
Á myndinni má sjá einn hópinn
að loknu útsýnisflugi.
★ STRIKAMERKING
5 634578"901008
Prentarar fyrir strikamerki
Hóflegt verð
íslensk leturgerð
Prentun: EAN-ít, EAN-13, UPC, Code
39, Corle 93, Codabar, ofl.
Aflesarapennar fyrir strikamerki
OTTO B. ARNAR HF.
Skipholli 33 -105 Reykjavík
Símar624631 • 624699
Cartier
50-75% AFSLATTUR
Nú er lag að gera góð kaup.
Úrvals vörur á tombóluprís!
Óðinsgötu 2, s. 91 -13577
fclk í
fréttum
AFMÆLI LÆKNAFÉLAGSINS
Átta heiðraðir fyrir
gifturíkan starfsferil
Atta læknar voru heiðraðir fyrir
langan og gifturíkan starfs-
feril á sérstakri hátíðardagskrá í
tilefni af 75 ára afmæli Læknafé-
lags íslands á miðvikudag. Há-
tíðardagskráin stóð raunar í átta
daga og gekk hún mjög vel að
sögn Sverris Bergmann, formanns
Læknafélagsins.
Afmælisdagskrá
„Við erum að halda upp á 75
ára afmæli félagsins núna þó það
hafi raunar verið stofnað í janúar-
mánuði árið 1918,“ sagði Sverrir
þegar rætt var við hann. „Hátíðar-
dagskráin hófst á námskeiði í
skyndihjálp en svo tók við fræðsl-
unámskeið á mánudag og þriðju-
dag., Á miðvikudag var síðan sér-
stök áhersla lögð á faraldsfræði-
legar rannsóknir á Vísindaþingi og
var þá prófessor W. Allan Hauser
frá Kólumbíu-háskóla meðal fyrir-
lesara,“ sagði Sverrir en sérstök
hátíðardagskrá í tilefni afmælisins
var haldin á fimmtudag.
Fyrir hádegi var m.a. flutt ágrip
af sögu Læknafélags íslands og 1
félagið heiðraði átta lækna fyrir
langan og gifturíkan starfsferil.
Læknarnir eru þau Alma Þórarins-
son, Bjami Jónsson, Guðmundur
Bjömsson, Gunnar Biering, Hauk-
ur Kristjánsson, Tómas Helgason,
Páll Sigurðsson og Þorsteinn Sig-
urðsson. Eftir hádegi var dagskrá-
in flutt úr Borgartúni 6 í Borgar-
leikhúsið og voru þá fluttir fyrir-
lestrar undir yfírskriftinni Nútíð
og framtíð.
Sverrir sagði að þátttaka hefði
verið gífurlega mikil. Hann lagði
áherslu á mikilvægi þess fyrir
lækna að koma saman með þessum
hætti. „Ég held að það sé mjög I
mikilvægt fyrir allar stéttir að
koma saman á tímamótum til þess
að átta sig á sjálfri sér og stöðu (
sinni,“ sagði hann. Auk fjölda er-
lendra gestafyrirlesara fylgdust
fulltrúar frá Danmörku, Noregi, *
Svíþjóð, Bretlandi og Hollandi með
dagskrá afmælisins.
Hátíðarávarp
HELGA Hannesdóttir, formaður hátíðardagskrárnefndar, flutti
ávarp í Borgarleikhúsinu í tilefni afmælisins.
Bjarni Tryggva í ham.
(
(
(
TONLIST
Kyrjað
*
Ibúar á Höfn í Homafirði gerðu
sér glaða daga um síðustu
helgi því á föstudagskvöldið var
Geirmundur Valtýsson með sína
venjulegu sveiflu í Sindrabæ. Þeir
sem fengu ekki nóg það kvöldið
gátu mætt á hótelið á laugardags-
kvöldinu og verið á rólegri nótun-
um við undirleik Bjarna Tryggva,
staðbundins trúbadors og neta-
gerðarmanns. Kyijaði hann slag-
ara, ekki síst úr smiðju Pink Floyd
og Jethro Tull. Er líða tók á kvöld-
ið náði pilturinn upp góðri
stemmningu að sögn nærstaddra.
áHöfn
Hress Hafnarbúi....