Morgunblaðið - 21.09.1993, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1993
Skákþing fslands
Helgi og Þröstur efstir
___________Skák
Margeir Pétursson
Lokabaráttan á Skákþingi
íslands 1993 hefst í kvöld eftir
fimm daga hlé á mótinu sem
gert var vegna Evrópukeppni
taflfélaga og undanrása á at-
skákmóti Reykjavíkur. Þrjár
umferðir eru eftir og fjórir
skákmenn eiga möguleika á
íslandsmeistaratitlinum. Þeir
Helgi Ólafsson og Þröstur Þór-
hallsson eru efstir með sex
vinninga af átta mögulegum,
en Hannes Hlífar Stefánsson
fylgir fast á hæla þeirra með
fimm og hálfan vinning og
ekki er enn hægt að afskrifa
Jóhann Hjartarson, sem hefur
fimm vinninga.
Pjórir efstu menn hafa allir
teflt innbyrðis svo úrslitin ráðast
af því hverig þeim vegnar gegn
skákmönnum sem aftar eru í röð-
inni. Miðað við það hvernig and-.
stæðingum þeirra hefur gengið á
mótinu virðist Helgi eiga auðveld-
ari mótheija en Þröstur. Af töfl-
unni hér til hliðar má ráða heildar-
stöðuna og hverjir eiga eftir að
tefla innbyrðis.
Það hefur verið hart barist á
þessu íslandsmóti og keppendur
skipst á um forystuhlutverkið.
Jóhann Hjartarson byijaði mjög
vel, en hefur nú hlotið aðeins einn
vinning úr síðustu þremur skák-
unum og verður nú að treysta á
að óvænt óhöpp hendi keppinauta
hans þijá. Jóhann tefldi í París
um helgina með Evrópumeistur-
um Bayern Munchen. Þeir voru
óvænt slegnir út í annarri umferð
Evrópukeppninnar af austurrísku
meisturunum. Traustustu stólp-
amir hjá Bayern, þeir Hiibner og
Ribli töpuðu báðir. Jóhanni vegn-
aði hins vegar vel, vann báðar
skákir sínar í viðureignum Bayern
við portúgölsku og austurrísku
meistarana.
Þröstur Þórhallsson fór hægt
HYKC-MÓTIÐ ÍVG 1 1 3 s 6 7 8 9 10 11 ii vm K'ÓÐ
1 Þr&stur þbrhisllsson 2W0 V// Y//r Tz Tz 1 Tz / 1 Tz 1 (0 l-Z
2 Hauh/r flnqixntýsson 2295 'k m 0 O 1 Tz l 1 0 H 5-Cr
3 Johann H/artarson 2ÍD5 h 1 m 0 Tz Tz 'h 1 / 5 H
H Hdgi Ö/afsson 2530 0 1 1 V/A /// Tz / 1 1 Tz (0 1-2
5 BjörfVin Jonsson 1905 'k O Tz Tz l Tz O 0 Tz Th 11-12
(0 findri 'flss Grítarsson 2510 O /z Tz V/a /// Tz Tz 0 Tz 1 3 ti 7
? Stsvar Bjarnason 2290 O 0 Tz V// '/// 1 0 1 O 0 2 h 11-12
8 Tórmas BjSrnsson 2290 Ti Tz Tz 0 //// m /1 O Tz 0 3 2-/0
9 GiArmu-nJuT Gís/oson 1190 O 1 I / 0 I O O 0 3 S-IO
10 Hélgi 'Ass Grétarssvn 23í5 Tz O 1 Tz 0 / / /// m O 9 5-í
11 Jón GarSar /ijarsson 2325 0 O O Tz O / Tz / /// m 3 ?-IO
11 Hannis H. Stefínsson 2500 O / 0 Tz / 1 / 1 u/á 5'k 3
af stað með tveimur jafnteflum
en komst í efsta sætið með því
að leggja Hannes Hlífar Stefáns-
son að velli í frestaðri skák þeirra
úr fyrstu umferð.
Ef einhver skyldi efast upp að
allt verði lagt í sölurnar næstu
þijá dagana í Faxafeni 12 nægir
að rifja upp að Helgi Ólafsson
stefnir nú að því að vinna íslands-
meistaratitilinn þriðja árið í röð.
Það hefur engum tekist frá því
að Asmundur Ásgeirsson var ís-
landsmeistari á árunum
1944—46. Áður hafði einungis
Pétri Zóphaníassyni tekist þetta,
en hann hélt titlinum árin
1913-17.
Þeir Þröstur Þórhallsson og
Hannes Hlífar hafa aldrei orðið
Islandsmeistarar og Jóhann
Hjartarson er örugglega farinn
að sakna bikarsins, en hann varð
síðast íslandsmeistari árið 1984.
Björgvin semur af sér
Einn þeirra skákmanna sem
valdið hafa vonbrigðum með
frammistöðu sinni á Skákþinginu
er Björgvin Jónsson, nýbakaður
alþjóðameistari. Hann byijaði
mjög iila og þótt taflmennskan
hafí batnað með hverri umferð
er Björgvin samt eini keppandinn
sem enn á eftir að vinna skák.
Eftir mótlætið í byijun var hann
alltof ginnkeyptur fyrir því að ná
jafntefli gegn stigahæstu kepp-
endunum:
Svart: Jóhann Hjartarson
abcdafgh
Hvítt: Björgvin Jónsson
í þessari stöðu tók Björgvin
jafntefli með þráskák: 33. Rf6+
- Kg7 34. Rh5+ - Kh7 o.s.frv.
Hann átti hins vegar afar sterkan
möguleika: 33. fxg6+! — fxg6
34. Rf6+ - Kg7 35. Dh4! og
aðalhótun hvíts er að vinna svörtu
drottninguna með 36. Hd7+, en
að auki liggur 36. Rg4 í loftinu.
Það er afar erfítt fyrir svartan
að veijast þessu, og staða hans
er líklega töpuð í nokkrum leikj-
um. 36. — Df7 er þannig svarað
með 37. Rg4 - Hh5 38. Dg3 og
hótar bæði 39. Dc3+ og 39. Dd6.
I næstu umferð á eftir lenti
Björgvin snemma í miklum erfíð-
leikum gegn Helga Ólafssyni og
var þar að auki í bullandi tíma-
a b c d • I g h
Hvítt: Helgi Ólafsson
Hvítur lék síðast 39. Bd6—b8
og bauð jafntefli sem Björgvin
þáði. En hann átti eftir að naga
sig í handarbökin fyrir það, því
eftir 39. — De6! hefur svartur
vinningsstöðu. 40. Bxa7 gengur
þá ekki vegna 40. — De2+ 41.
Kh3 - Dxf3 42. De7 (Ekki 42.
Kh2 - Be5) 42. - Bd4! með
máthótun í fjórða leik, sem hvítur
á ekki viðunandi svar við. 43.
Dh4+ — Kg7 bjargar t.d. engu.
En það er ekki nóg með að
svartur eigi vinningsleikinn 39. —
De6. Einfaldasta leiðin í stöð-
Helgi Ólafsson
hraki. Helgi teygði sig of langt,
en fann upp á því snjallræði að
bjóða jafntefli þegar Björgvin var
svo tímanaumur að honum gafst
hreinlega ekki færi á að meta
stöðuna:
Svart: Björgvin Jónsson
Þröstur Þórhallsson
unni, 39. — De2+ 40. Kh3 —
Dxc4 gefur einnig góða vinnings-
möguleika. Eftir t.d. 41. Bxa7 —
Bg7! 42. De7 - Dfl+ 43. Kh2 -
Df2+ 44. Kh3 — Dxf3 blasir einn-
ig sigurinn við.
Atskákmót Reykjavíkur
Undanrásir á atskákmóti
Reykjavíkur fóru fram um helgina
og var teflt um átta sæti í úrslita-
keppninni sem hefst 7. október.
Þátttakendur voru 58 talsins og
urðu úrslit Jjessi:
1. Davíð Olafsson 7 Vi v. af 9
mögulegum
2. -3. Askell Örn Kárason og
Jón Garðar Viðarsson 7 v.
4.-6. Haukur Angantýsson,
Andri Áss Grétarsson og Jó-
hann Örn Sigurjónsson 6V2 v.
7. Héðinn Steingrímsson 6 v.
og 40,5 stig
8. Arnar E. Gunnarsson 6 v. og
39,5j stig.
9. Ágúst S. Karlsson 6 v. og 38
stig
10. Bragi Halldórsson 6 v. og
37 stig
11. Arinbjöm Gunnarsson 6 v.
12. —15. Dan Hansson, Sigurður
Daði Sigfússon, Jón Torfason
og Haraldur Baldursson 5V2 v.
30 þátttakendur höfðu 2.000
Elo-skákstig eða meira, svo mótið
verður að teljast mjög sterkt.
Stórsókn Shorts end-
aði með þráskák
Stórskemmtilegar skákir
sáu dagsins ljós í báðum heims-
meistaraeinvígjunum um helg-
ina. I London sótti Nigel Short
enn einu sinni þungt að Gary
Kasparov, sem var í miklu
tímahraki. í þetta sinn tókst
Englendingnum að forðast
tímaþröngina sem reynst hef-
ur honum svo dýrkeypt, en þá
tókst ekki betur til en svo að
hann tefldi of hratt og missti
af langhættulegasta möguleik-
anum áhorfendum til sárra
vonbrigða. Eftir þessi mistök
Shorts varð hann að taka þrá-
skák og skákinni lauk án þess
að hann gæti notfært sér tíma-
hrak heimsmeistarans. Jan
Timman kom með glæsilegan
nýjan leik snemma í áttundu
einvígisskák sinni við Karpov
í Hollandi og náði auðveldu
jafntefli.
Gary Kasparov heldur miklu
forskoti sínu á Short, staðan er
41/2—1V2 honum í vil. Kasparov
hefur unnið þijár skákir og þijár
hafa orðið jafntefli. Englending-
urinn er í þeirri erfíðu sálfræði-
legu aðstöðu að hafa ekki unnið
skák af heimsmeistaranum síðan
1987 og þótt hann sýni mikil til-
þrif virðist ekkert duga.
Stórmeistarar í London voru
orðnir mjög bjartsýnir á sóknar-
möguleika Shorts. Viktor
Kortsnoj var í hópi þeirra sem
fylgdust með skákinni, en hann
var í London með hollenska fé-
laginu Volmac sem á föstudag
sigraði Taflfélag Garðabæjar í
Evrópukeppni taflfélaga og sló
Garðbæingana út. Kortsnoj taldi
um tíma að staða Kasparovs
væri erfið og jafnvel vonlaus.
Það kom svo í ljós eftir skák-
ina að hvorugur meistaranna
hafði séð hættulegasta möguleik-
ann í stöðunni. Um örugga vinn-
ingsleið var ekki að ræða, en til
að halda taflinu gangandi hefði
Kasparov orðið að fórna peði og
kóngur hans að leita skjóls úti á
miðju borðinu.
6. einvígisskákin í London:
Hvítt: Nigel Short
Svart: Gary Kasparov
Sikileyjarvörn 1. e4 — c5 2.
Rf3 - d6 3. d4 - cxd4 4. Rxd4
- Rf6 5. Rc3 - a6 6. Bc4
Bobby Fischer hafði dálæti á
þessu svari við Najdorf-afbrigð-
inu.
6. - e6 7. Bb3 - Rbd7 8. f4 -
Rc5 9. f5 - Be7
Það er of hættulegt að þiggja
peðsfórnina: 9. — Rxe4 10. Rxe4
— Rxe4 11. Df3 d5 12. fxe6 og
síðan stutthrókar hvítur með
þungri pressu eftir f-línunni.
10. Df3 - 0-0 11. Be3 - e5 12.
Rde2 - b5!?
Hér hafði Kasparov eytt hvorki
meira né minna en 52 mínútum
og afraksturinn er nýr leikur.
Hann vill ekki fá að sjá endurbót
Short á því hefðbundna 12. —
Rxb3 13. áxb3 — b5, en þá hef-
ur svartur gott mótspil eftir 14.
Bxb5 - d5.
Short lagðist nú líka í þunga
þanka, notaði 50 mínútúr á
næsta leik.
13. Bd5 - Hb8 14. b4!?
Tvíeggjaður leikur. Short veik-
ir peðastöðu sína á drottningar-
væng og hvíta c-peðið á eftir að
verða veikleiki það sem eftir er
skákarinnar.
14. - Rcd7 15. 0-0 - Rxd5 16.
Rxd5 - Bb7 17. Rec3 - Rf6
18. Hadl - Bxd5
Hér kom einnig til greina að
halda spennunni á miðborðinu
lengur og leika 18. — Hc8.
19. Rxd5 - Rxd5 20. Hxd5 -
Hc8?
Kasparov átti nú aðeins 17
mínútur eftir á næstu 20 leiki
og þessi eðlilegi leikur dugir ekki
til að viðhalda jafnvæginu. Eftir
skákina sögðu teflendur að 20. —
Dc7 hefði verið betra. Short blés
nú til sóknar án þess að hugsa
sig um og átti 39 mínútur eftir.
21. Dg4 - f6
Þessi óvirki vamarleikur er
ekki dæmigerður fyrir Kasparov,
en hann varð að svara hótuninni
22. Bh6 - Bf6 23. Bxg7 - Bxg7
24. f6. Ekki gekk 21. - Bf6?
vegna 22. Bc5! — Hc6 23. Hfdl
— Be7 24. f6! og hvítur vinnur.
22. Hf3 - Hxc2 23. Hh3 - Hf7
24. Dh5 - h6
Hér hikaði Short, þótt næsti
leikur hans virðist augljós.
Kortsnoj var ekki sáttur við það:
„Hann er að hugsa um biskups-
fóm á h6, en hún er röng og það
rangt að leyfa sér að hugsa um
hana,“ sagði rödd 30 ára reynslu
úr erfiðum einvígjum og Kortsnoj
reyndist hafa lög að mæla.
25. Dg6 - Kf8
• bcda fgh
Varnir Kasparovs á kóngs-
væng halda ekki. Hann verður
að reyna að bjarga sér á flótta.
Hann átti nú aðeins átta mínútur
eftir, en Short 20. Nú fórnaði
Englendingurinn biskupi án þess
að hugsa sig um. E.t.v. hefur
honum yfirsést 28. leikur and-
stæðingsins, en líklegra er þó að
hann hafi ekki talið sig eiga
meira en jafntefli. Báðir teflend-
ur vanmátu hér algerlega mögu-
leikann 26. Dh7! — Ke8 27. Dg8+
og svartur á um tvennt að velja:
a) 27. — Bf8 (Eðlilegast, en nú
vinnur hvítur) 28. Bc5! og svart-
ur á ekki fullnægjandi vörn við
29. Hhd3. Þá fellur svarta peðið
á d6 fellur og vörnin hrynur.
Kasparov sagðist ekki hafa séð
þetta fyrr en of seint og Short
var alveg blindur á hrókstilfærsl-
una frá h-línunni yfir á d-línuna.
Svartur hefði því orðið að reyna:
b) 27. - Hf8! 28. Dxg7 - Dc7!
(Eftir að hafa séð þetta sagði
Kortsnoj að málið væri ekki eins
einfalt og allir héldu. En mögu-
leikar hvíts eru samt góðir) 29.
Dg6+! (Betra en 29. Dxh6 —
Dc4) og nú er bæði 29. — Hf7
og 29. — Kd7 svarað með 30.
Bxh6! og svartur er ennþá í ákaf-
lega krappri vörn.
26. Bxh6? - gxh6 27. Hxh6 -
Db6+ 28. Hc5! - Bd8! 29. Hh8+
- Ke7 30. Hh7
Eini leikurinn til að ná þrá-
skák. Þessi æsifengna baráttu-
skák fær nú snöggan endi.
30. - Hxh7 31. Dxh7+ - Kf8
Jafntefli því hvítur þráskákar.
Kasparov og Short tefla í dag
Sjöunda einvígisskákin í Lond-
on verður tefld í dag og hefur
Gary Kasparov hvítt. Skákunn-
endur geta fylgst með henni á
síðu 255 í textavarpi RÚV. Þar
er skákin uppfærð jafnóðum á
nokkurra leikja fresti. Einnig er
hægt að fylgjast með henni frá
kl. 17 í níundu umferð Skákþings
íslands í Faxafeni 12.