Morgunblaðið - 21.09.1993, Side 48
Frakkar
rannsaka
norðurljós
FRANSKIR vísindamenn vinna nú
að uppsetningu ratsjárstöðvar rétt
norðan við Stokkseyri. Þaðan
verða gerðar rannsóknir á norður-
ljósum og munu þær standa í tíu
ár. Rannsóknirnar eru liður í sam-
starfsverkefni fimm þjóða en sjö
aðrar sambærilegar stöðvar verða
reistar á norðurheimskautssvæð-
inu, allt frá Alaska í vestri til Finn-
lands í austri.
Að sögn Gunnlaugs Björnssonar
hjá Raunvísindastofnun Háskóla ís-
lands verða tuttugu möstur í ratsjár-
stöðinni. Frá þeim verða send ratsjár-
merki upp í háloftin og endurkastið
síðan mælt. Mælingar hefjast senni-
lega í mars eða apríl og munu standa
í 10 ár. Þær ganga út á að fylgjast
með áhrifum sólar á segulsvið jarðar
en norðurljós verða til þegar raf-
hlaðnar agnir frá sólinni lenda í
árekstrum við agnir í efstu lögum
gufuhvolfs jarðar.
Frakkar standa straum af kostn-
aði við uppsetningu mastranna en
starfsmenn Raunvísindastofnunar
munu sjá um rekstur hennar og taka
þátt í úrvinnslu niðurstaðna mæl-
4nga.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Ekki Smuguþorskur
OPINBERRI heimsókn Jans Henrys T. Olsens, sjáv-
arútvegsráðherra Noregs, sem hófst á laugardag,
lýkur í dag. Olsen átti í gær fund með Þorsteini
Pálssyni sjávarútvegsráðherra þar sem sameiginleg
hagsmunamál þjóðanna í sjávarútvegsmálum, norsk-
ísienski sfldarstofninn, úthafskarfaveiðar, loðnu-
samningur þjóðanna, hvalveiðimál og síðast en ekki
síst veiðar íslenskra skipa í Smugunni svokölluðu í
Barentshafí voru til umræðu. Ráðherrarnir lögðu
áherslu á að ekki hefðu neinar formlegar kröfur
verið lagðar fram vegna Smugu-veiðanna. Að fund-
inum loknum héldu ráðherramir til Vestmannaeyja
og heimsóttu m.a. Náttúrugripasafn Vestmannaeyja.
Myndin var tekin í safninu og á henni sjást starfs-
bræðurnir virða fyrir sér þorsk í búri — sem er örugg-
lega ekki úr Smugunni. Sjá nánar á bls. 19.
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I 103 REYKJAVÍK
SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 85
ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1993
VERÐ I LAUSASOLU 125 KR. MEÐ VSK.
Þórður til
Guðmundur sagði að aðalfundur
Dagsbrúnar hefði í vor í kjölfar sam-
þykktar stjómar og trúnaðarráðs
samþykkt einróma að skrifa Fram-
sókn og leita hófanna varðandi sam-
einingu. Raunar hefði komið upp úr
kafinu að Framsókn hefði stungið
upp á viðræðum um sameiningu fyr-
ir nokkrum árum, en því hefði ekki
verið svarað af hálfu Dagsbrúnar á
sínum tíma. Svar hefði borist nú
nýverið og þar hefði komið fram að
Bochum
Þórður Guð-
jónsson, yngsti
A-landsliðs-
maður íslands-
og bikarmeist-
ara Skaga-
manna í knatt-
spymu, fer til
þýska liðsins
Bochum eftir
. Evrópuleik IA og Feyenoord í
Hollandi í næstu viku, en þýska
félagið hefur sýnt áhuga á að
gera samning við markahrókinn.
Þórður segir tilboðið spenn-
andi, því verði samningur að
veruleika geti hann sameinað
knattspymu og nám í Þýskalandi
eins og stefnt hafi verið að.
Nánar/Bl.
Viðræður um sameiningu
Dagsbrúnar og Framsóknar
Framsókn hefði skipað nefnd til við-
ræðna úm sameiningu og þá hefði
Dagsbrún skipað menn af sinni hálfu.
Hann gerði ráð fyrir að nefndin
myndi koma saman til fyrsta fundar
síðar í þessari viku.
Kynskipt verkalýðsfélög
að hverfa
Guðmundur sagði að kynskipt
verkalýðsfélög hefðu verið að hverfa
smám saman. Til dæmis væru ekki
nema fá ár síðan verkalýðsfélögin í
Keflavík sameinuðust. 300 konur
væru nú þegar félagar í Dagsbrún,
enda væru konur farnar að vinna
störf sem til skamms tíma hefðu
verið talin hefðbundin karlastörf, svo
sem við bensínafgreiðslu, akstur og
fleira og þeim fjölgaði sífellt í þessum
störfum. Tækniþróunin í atvinnulíf-
inu hefði gert þetta að verkum. Þá
væru tvær konur nú þegar í tíu
manna stjórn Dagsbrúnar. Ritari
Dagsbrúnar væri kona og aðaltrún-
aðarmaður félagsins hjá Reykjavík-
urborg væri kona og sæti í stjóm
félagsins. Árlega væm skráðir tugir
kvenna í félagið og ekkert lát væri
á þeirri þróun.
Sparnaður
Guðmundur sagði að hann áliti að
sameining félaganna myndi verða til
þess að styrkja stöðu kvenna. Hann
teldi að fólk vildi sameiningu og hún
ætti að geta orðið til þess að minnka
misrétti kynjanna. Það myndi spar-
ast fé við að reka eina skrifstofu í
staðinn fyrir tvær og minnti á að
lífeyrissjóður félaganna væri sameig-
inlegur. Eignir félaganna væru hins
vegar mismunandi og margt gæti
orðið til þess að viðræður um samein-
ingu rækju upp á sker.
Umfangsmikil lögreglurannsókn á málum 38 ára höfuðpaurs fíkniefnahrings
Hefur flutt inn á annan
tug kílóa af fíkniefnum
Fíkniefnalögreglan hefur fengið framlengt um hálfan mánuð gæslu-
varðhald yfir 38 ára gömlum manni sem talinn er skipuleggjandi
og höfuðpaur umfangsmikils fíkniefnahrings sem hefur flutt inn
til landsins á annan tug kílóa af hassi og nokkur kíló af amfetam-
íni. Um nokkrar ferðir er að ræða, samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins, flestar i sumar en a.m.k. ein í fyrrasumar. Alls hafa fimm
manns setið í gæsluvarðhaldi vegna málsins, höfuðpaurinn og fjög-
ur „burðardýr" — menn sem tekið höfðu að sér að bera fíkniefni inn
í landið gegn greiðslu fyrir frá 250-500 þúsund krónur. Að auki
hefur á annan tug manna verið yfirheyrður í tengslum við rannsókn-
ina, að sögn fíkniefnalögreglu.
Rannsókn málsins hófst að
gagni, samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins, þegar tveir menn,
47 og 51 árs, voru handteknir á
Keflavíkurflugvelli 25. júlí síðast-
liðinn með 3 kg af hassi og um
900 gm af amfetamíni. Það eru
einu fíkniefnin sem lögregla hefur
komist yfir í málinu og má gera
ráð fyrir að maðurinn hafi komið
fíkniefnum fyrir tugi milljóna
króna í dreifíngu úr þeim sending-
um og af því magni sem nú er
talið upplýst um innflutning á.
Þriðji maðurinn var handtekinn
fyrr í sumar.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins vöknuðu fljótlega grun-
semdir um hver stæði á bak við
innflutninginn. Lögreglan fylgdist
með ferðum og athöfnum hins
mannsins og beið þess að hann
hefði samband við vitorðsmenn
sína sem látnir voru lausir úr
gæsluvarðhaldi um þetta leyti.
Áðfaranótt 1. september þegar vit-
að var að maðurinn væri á fundi
á heimili annars þeirra sem setið
höfðu í varðhaldi réðst lögreglan
þar til inngöngu og handtók þre-
menningana.
Fjárvana „burðardýr"
Hinn meinti höfuðpaur er 38 ára
gamall og hefur ekki stundað laun-
aða vinnu alllengi, og telur lögregl-
an að hann hafi haft framfæri sitt
af eiturlyfjadreifingunni. „Burðar-
dýrin“ fjögur hafa ekki áður kom-
ið við sögu fíkniefnamála en þar
er um að ræða menn sem voru í
miklum fjárhagskröggum og tóku
að sér að reka erindi mannsins
gegn greiðslu, sem nam frá 250
til 500 þúsund krónum.
VIÐRÆÐUNEFNDIR til að ræða sameiningu verkamanna-
félagsins Dagsbrúnar og verkakvennafélagsins Framsókn-
ar í Reykjavík hafa verið skipaðar og er gert ráð fyrir að
fyrsti viðræðufundurinn verði síðar í þessari viku. Guð-
mundur J. Guðmundsson, formaður Dagsbrúnar, segir að
kynskipt verkalýðsfélög séu orðin tímaskekkja og að eitt
sameinað átta þúsund manna félag myndi styrkja stöðu
verkafólks í borginni. Hann sagði að kynskipt verkalýðsfé-
lög væru einungis á fjórum stöðum á landinu ennþá, í
Reykjavík, Hafnarfirði, Vestmannaeyjum og á Sauðárkróki.
Slæmar
kvefpest-
ir ganga
SLÆMAR kvefpestir hafa
gengið að undanförnu en
engin flensutilfelli hafa verið
greind.
Einkenni kvefpesta sem hafa
gengið að undanförnu minna
um margt á flensu, að sögn
Heimis Bjarnasonar aðstoðar-
héraslæknir í Reykjavík. Hann
sagði að tilfellin væru álíka
mörg og á sama tíma undanfar-
in ár. Heimir sagði að einkenn-
in væru kvef, hósti, hitavella
og höfuðverkur. Hann sagði að
veikin gæti lagst þungt á fólk
og væri full ástæða fýrir þá sem
veiktust og eru ekki hraustir
fyrir að fara vel með sig.
Lengri meðgöngutími
Heimir sagði að meðgöngu-
tími kvefpesta væri 3 til 4 dag-
ar áður eri einkenni kæmu í ljós
en einkenni flensu gætu komið
í ljós einum og hálfum sólar-
hring eftir smitun. Hann sagði
að engin flensutilfelli hefðu
greinst en ekki væri ólíklegt
að flensa bærist hingað í næsta
mánuði eins og hún hefur gert
undanfarin ár.