Morgunblaðið - 23.09.1993, Side 10

Morgunblaðið - 23.09.1993, Side 10
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1993 10 SÁLFRÆÐIBÓKIN Ritsljórar Sálfræðibókarinnar, Hörður Þorgilsson og Jakob Smári. __________Bækur_______________ Katrín Fjeldsted Sálfræðibókin. Ritstjórar: Hörð- ur Þorgilsson og Jakob Smári. Mál og menning, Rvík. 1993. Teikningar: Sigrún Eldjárn. Útlit: Erlingur Páll Ingvarsson. Umbrot: Þorsteinn Jóns- son/Mm. Prentun og bókband: Prentsmiðjan Oddi hf. Ritstjóri af hálfu Mm.: Ólöf Eldjárn. Mál og menning hefur nýverið ráðist í það stórvirki að gefa út tæplega 1.000 síðna bók um sálar- fræði. Ef dæma má af viðtökum almennings, en bókin hefur nú þegar selst í 10.000 eintökum, var þörf fyrir bókina brýn og jafnvel langt umfram það sem höfundar áttu von á. Ætli bókin verði ekki metsölubókin í ár? Það er mikil vinna að lesa þessa bók, sérstaklega þegar maður á að ritdæma hana og lesa þess vegna frá upphafi til enda, spjald- anna á milli, sem ég hugsa að fæstir notendur hennar geri. Lík- legra er að hún sé notuð sem upp- flettirit, fólk nýti sér ákveðna kafla í upphafí, eða fari í atriðisorðaskrá í bókarlok. Að loknum lestri reyndi ég að nálgast bókina á þann hátt, og tel að atriðisorðaskrá sé ágæt- lega unnin. Ymis mikilvæg atriði koma þó ekki fram þar, og þá helst vegna þess að um þau er ekki fjallað í bókinni. Þar á meðal má nefna ýmis veigamikil atriði eins og einmanaleika, einangrun og vandamál í nútímaþjóðfélagi eins og einelti. Þá er ekkert fjallað um kynferðislega misnotkun á börnum og áhrif hénnar á ævi þess sem fyrir henni verður. Ritstjórar velja þá leið að skipta efni bókarinnar í 15 meginsvið, en innan hvers sviðs eru 6-10 kaflar sem mynda sjálfstæðar heildir eins og segir í aðfararorð- um. Þannig ná ritstjórar því að fá 35 manns til að leggja til efni, flesta sálfræðinga. Þegar litið er á höfundatal vek- ur það athygli og er bókinni mjög til framdráttar, að höfundar eru MIKIÐ var um dýrðir þegar Sin- fóníuhljómsveit ísiands hélt tón- leika á föstudagskvöldið 17. sept. í Félagsheimilinu í Ólafsvík. Efn- isskráin var fjölbreytt og þarna fékk söngfólk á Snæfellsnesi og úr Ilölum tækifæri til að syngja með hljómsveitinni. Stjórnandi hljómsveitarinnar var Öm Óskarsson og á efnisskránni voru verk eftir Beethoven, Grieg, Massenet, Mendelsohn og Bizet. Auk þess söng Jöklakórinn þrjú lög með hQómsveitinni. Jöklakórinn var samsettur úr kirkjukórum í Grund- arfirði, Ólafsvík, Hellissandi, Stykk- ijarri því að vera einlitur hópur, heldur er þetta fólk með afar mis- munandi bakgrunn og sérstaklega mikla breidd hvað framhaldsnám varðar. Þorrinn hefur stundað framhaldsnám sitt erlendis og má sjá áhrif menntunar á Norðurlönd- unum, Þýskalandi, Englandi, Skotlandi, Bandankjunum, Frakk- landi, Kanada og Islandi. Þetta er ánægjulegt ekki síst vegna þess sem sagt var fyrir all nokkrum árum þegar 16 manns voru í námi í sálarfræði við Háskóla íslands, og þar af fóru 15 til framhalds- náms í klínískri sálarfræði í Árós- um, ef ég man rétt. Löngu liðinn er tími einstefnunnar. Mikið er lagt upp úr vönduðum frágangi, myndir eru fallegar og skýrar, bæði ljósmyndir og teikn- ingar, en vegna stærðar sinnar er bókin fremur óþjál aflestrar, erfitt að hafa hana á náttborðinu og reyna að lesa hana í rúminu, eigin- lega nauðsynlegt að sitja við borð til að tileinka sér efni hennar. Vegna þess hve margir höfund- arnir eru, eru efnistök þeirra mis- munandi. Sumir eru afar fræðileg- ir, theoretískir, en aðrir greinilega vanir að skrifa fyrir almenning og höfða áreiðanlega betur til lesenda þess vegna. Þegar fólk hefur þjálf- un í að tala til almennings, hvort sem það er í fyrirlestrarformi eða með skrifum, fjallar það um hluti sem áhuga vekja og á áhugaverð- an hátt. Sem dæmi um þetta vil ég nefna Álfheiði Steinþórsdóttur og Guðfmnu Eydal, og einnig Sig- ttygg Jónsson en margir yngri sálfræðingar myndu kalla slíkt almenningshylli eða popularisma. Fyrstu þijú meginsviðin lúta að bömum og unglingum, hið fyrsta varðar þroska þeirra, næsta upp- eldi og þriðja sálrasn vandamál bama og unglinga. Ég vissi ekki fyrr en ég las kafla eftir Hrafn- hildi Ragnarsdóttur um fyrstu orð- in að til viðbótar við að læra að segja „bless, takk, meira og ó ó“ séu komin ný orð í fyrsta orða- forða íslenskra barna: „bóla-baka“ sem útleggst viltu spóla mynd- bandið til baka. Reyndar held ég að orðið bless sé orðið afar fátítt ishólmi og Búðardal. Kórinn telur um 80 manns og hefur æft saman öðru hvoru undanfarin ár og haldið tónleika. Var það kómum mikill heiður og ómetanleg reynsla að fá að syngja með Sinfóníuhljómsveit íslands. Húsfyllir var í Félagsheimili Ól- afsvíkur. Eftir tónleikana var boðið upp á kaffi og kom þá í ljós að húsmæður undir Jökli höfðu ekki setið auðum höndum þennan dag því annað eins kökuhlaðborð hefur vart sést síðan Hnallþóra tók á móti umboðsmanni biskups í sög- unni góðu eftir Nóbelsskáldið. - Hallgrímur. hjá ungbörnum, að minnsta kosti heyrist mér flestir foreldrar ung- barna sem koma á stofu til mín kenna börnum sínum að segja hæ og bæ, og er það umhugsunar virði. í kaflanum „Börn ættu að vera vel upp alin“ eftir Sigurð Grétarsson og Sigi'únu Aðalbjarn- ardóttur er fjallað af skynsemi um uppeldi barna, um það að gumað sé af því hve sjálfstæð æskan á íslandi sé, alin upp í fijálsræði og hafi gagn og gott af því að sjá um sig sjálf. Höfundar ræða í framhaldi af því um afskiptaleysi foreldra, hvaða mörk sé eðlilegt að setja börnum og unglingum. í næsta kafla eftir sömu höfunda er fjallað um hugmyndir um upp- eldi fyrr og nú. Þar er m.a. vitnað í „tilskipan um húsagann" sem birt var hérlendis um miðja 18. öld. Þar var kveðið á um að temja börnum guðsótta, hlýðni og erfiði og láta þau ekki alast upp í leti, sjálfræði og öðru vondu. Áð sögn höfunda speglast þessi viðhorf i frásögnum af því hve uppeldi var strangt og vægðarlaust. Fullorðnir hafí krafist skilyrðislausrar hlýðni af börnum og refsingar hafi verið óvægar, börn iðulega barin, hýdd og niðurlægð á annan hátt. I tíma- ritinu Ármann á Alþingi, 1. árg. frá 1829, sem ritstjórinn Baldvin Einarsson helgar uppeldi, er bóndi einn, fulltrúi ríkjandi uppeldisað- ferða látinn lýsa uppeldi barna sinna m.a. með þeim orðum að „þegar þau hafa farið að stálpast og verða ódæl, þá hefi ég barið þau eins og fisk, svo það er ekki mér að kenna að þau eru bæði þrá og stórlynd". I kaflanum um sálræn vanda- mál barna og unglinga, sem skrif- aður er af Siguijóni Björnssyni, kemur fram það álit hans að 3 stéttir sérfræðinga eigi að_ vera best umkomnar að veita uppalend- um og börnum þeirra viðeigandi aðstoð: Barnageðlæknar, klínískt menntaðir sálfræðingar og félags- ráðgjafar. Ég tel afar líklegt að heimilislæknar hafi aðstöðu um- fram flesta aðra til þess að koma auga á þau börn sem hjálpar eru þurfi, og taka á vandanum með foreldrunum, eða vísa þeim til annarra sé þess þörf. í kaflanum um þroska, frávik og fötlun er fallegt ljóð eftir Þórar- in Eldjám um Ola sem lýsir vel sorg foreldris sem fær í hendur fjölfatlað barn. Sigtryggur Jónsson hefur um- sjón með og skrifar kaflana um kynmótun, samskipti kynjanna og kynlíf. Þar er mörgu gerð góð skil, en yfirborðsleg efnistök inn á milli. Allt þó sett fram á fremur áhugaverðan hátt. Hið sama má segja um næsta meginþátt, en umsjón með honum hafa Álfheiður Steinþórsdóttir og Guðfínna Eyd- al. Þar er fjallað um hjónaband og fjölskyldu og gera þær efninu skýr og skemmtileg skil. Nefna má mikilvægi þess hvaða lífs- reynslu einstaklingar hafa að baki þegar þeir ganga í hjónaband, eða stofna til sambands, og hvað séu eðlilegar kröfur að gera. Fjallað er sérstaklega um börn og skiln- aði og veitir víst ekki af í nútíma þjóðfélagi. Sá kafli mætti reyndar vera enn lengri og ítarlegri vegna mikilvægis. Þar á meðal eru ráð til foreldra, svo sem að segja barni sameiginlega frá skilnaði, blanda barninu ekki í viðkvæm deilumál og flóknar útskýringar og hjálpa barninu að skilja að það eigi engan þátt í ákvörðun foreldranna. Margir höfundar falla í þá gryfju að nota 1. persóriu ft. í skrifum sínum, það erum við sem gerum þetta og við sem gerum hitt og eðlileg viðbrögð lesandans eru að velta því fyrir sér hvort það sé höfundurinn og ég, lesandinn, sem séum gerendurnir. Þetta er líklega gert til að forðast það að segja alltaf „maður“ en ennþá verra er valið á 2. persónu et., og 1. kafli bókarinnar heitir „Þú ger- ir það sem þú ert“ og hefst á eftir- farandi hátt: „Þegar við lýsum sjálfum okkur vísum við oft til ýmissa eiginleika sem við teljum okkur búa yfir, við tölum t.d. um að við séum ákveðin, áhrifagjörn, frek, löt eða metnaðarfull. Þá höf- um við líka tilhneigingu til að tala um þessa eiginleika eins og þeir séu viðvarandi og stöðugir. Þessar hversdagslegu lýsingar okkar duga oft vel.“ Undirrituð er e.t.v. þekkt fyrir smásmugulegar at- hugasemdir af þessu tagi, en mér finnst þetta spilla annars ágætlega skrifuðum kafla eftir Hörð Þorgils- son. Ég skellti reyndar upp úr þegar ég sá að hann skrifaði að fólk sem kysi frekar að hitta aðra en að íesa bók skemmti sér líka betur í veislu en bókaormar. Þetta er að vísu með tilvísun í kenningar sem útskýra persónuleika manna, en þar sem ég er veisluglaður bókaormur hnaut ég náttúrulega um þetta. Hörður drepur í lok kaflans á gamalt þrætumál innan sálarfræðinnar, en það er hvort leita megi skýringa á hegðun manna í erfðum þeirra eða um- hverfi. Vinstrimennska fyrri ára- tuga lagði ofuráherslu á þætti umhverfisins og fyrirleit þau borg- aralegu viðhorf að telja erfðir skipta máli. Þarna er kannski komin besta skilgreiningin á hægri og vinstri í pólitík? Talsverð 'fræðsla er í bókinni um sálfræðileg próf, greindarpróf, persónuleikapróf sem margir kannast við. Þar sem bókin er ætluð hinum almenna lesanda væri ekki úr vegi að hafa eitthvað af persónuleikaprófum fyrir fólk að spreyta sig á því áhugi fólks varðandi sálarfræði beinist ekki síst að lesandanum sjálfum. Fólki þykir fróðlegt að vita hvar þess eigin kenndir og hugsanir falla innan normsins. Höfundar 2. kafla, um streitu, umhverfi og lífs- hætti, Sæmundur Hafsteinsson og Jóhann Ingi Gunnarsson, virðast hafa góðan skilning á þessu og setja upp lista eða kvarða yfir at- burði í lífí fólks sem mestri streitu geta valdið. Eiríkur Örn Antonsson hefur umsjón með kaflanum um tilfinn- ingar og tilfinningalega erfiðleika og eins og áður segir kallar hann til fleiri höfunda til að taka á því efni. Skilgreining á andlegri heil- brigði, umfjöllun um heilbrigð samskipti við umhverfið og hæfi- leikinn að vera sjálfum sér nógur koma fyrir þarna, svo og fælni, árátta og þráhyggja, lystarstol með depurð, lystarstol og lotug- ræðgi. Lystarstol er betur þekkt undir nafninu anorexia. Einu læknarnir sem efni eiga í þessari bók eru Tómas Zoega og Gísli Þorsteinsson, en þeir skrifa undir meginþemanu geðrænar truflanir, en það er í umsjón Harð- ar Þorgilssonar og Jakobs Smára. Vegna þeirra atburða sem átt hafa sér stað í þjóðfélaginu á undan- fömum árum hefði mér þótt sjálfs- víg mega fá enn meira vægi. Næstsíðasti kaflinn er um efri árin, skrifaður af Jóni Björnssyni. Þar heldur greinilega vanur maður á penna, hann er vel máli farinn og hefur frá mörgu að segja. Mér hefði þó ekki þótt gera til að heyra í einhveijum af öldrunarlæknun- um, t.d. Ársæli Jónssyni eða Þór Halldórssyni, í þessum kafla. Að auki finnst mér vanta að fjalla um starfslok og þau miklu áhrif sem þau hafa á líf manna og sálarró, sé ekki rétt að þeim staðið. Hér á landi eru allmiklu fleiri hjúkrunarrými hlutfallslega en í nágrannalöndum sem hafa svip- aða aldursdreifingu. Virðing starfsfólks fyrir íbúum langdvalar- stofnunar þarf að vera fyrir hendi, eins þótt gamall og sjúkur eigi í hlut, og víst er að þannig er að málum staðið víðast hvar. Mér er minnisstæð grein sem frændi minn háaldraður, Björn Egilsson, skrif- aði í Tímann fyrir nokkrum árum og lýsti því hvernig það væri að vera á elliheimili á Sauðárkróki og geta ekki ákveðið sjálfur hve- nær hann baðaði sig eða læsi Morgunblaðið. Lokastig bókarinnar er svo um yfirskilvitleg fyrirbæri, þar sem skilgreind er „dulsálarfræði" sem áður kallaðist sálarrannsóknir. Þá er orðið til eitthvað sem kallast „hugmegin“ og skýrir sig sjálft, þar sem megin er hvorugkynsorð og merkir máttur eða afl. Þar með hélt ég að í þgf. væri það „hug- megni“ en höfundar segja að „í hugmegin virðist einstaklingurinn hafa áhrif á umhverfi sitt án þess að beita til þess líkamlegu afli“. Ekki trúi ég því, en líklega mest vegna málfræðinnar. Eg hlýt að enda þennan ritdóm á því að argvítast út í nafnorða- sýki og nýyrðasmíð eins og ég hef oft gert í fyrri ritdómum í Morgun- blaðinu. Tæki nokkuð sem notað er í dulsálarfræði kallast „tilvilj- ari“ og lítur orðið út fyrir að vera gegnsætt sem kallað er, en er vita óskiljanlegt að mínu mati. Sama má segja um „firðhræringar". Þó keyrði um þverbak við geðtruflun sem kallast „almennt slýni“ og á að tákna geðsjúkdóma af völdum sárasóttar (syfilis). Slýni fínnst ekki í orðabók Menningarsjóðs og ég vona að það muni ekki komast á síður hennar. Sá sem dáleiddur er heitir á einum stað „dáþegi" (ekki til í orðabókinni) og mér datt í hug að á sama hátt yrði sá sem myrtur er „drepþegi“ eða „dauðþegi“. Hluti heilans hefur á bls. 517 orðið að „möndlungi“, sem ég hefði haldið að ætti að fara í kökudeig. Það var allavega ekki í minni líffærafræði. Að lokum þetta: Fyrir bók af þessu tagi var mikil þörf, það sanna viðbrögð almennings. Fólk vill kynna sér málin. Bókin upp- fyllir þær væntingar að mörgu leyti. Mál og menning á hrós skil- ið fyrir að vanda til útgáfunnar og reyna að koma til móts við hinn almenna lesanda. Morgunblaðið/Alfons Frá tónleikum Sinfóníuhljómsveitar íslands í Ólafsvík. Sinfóníuhljómsveit Islands í Oiafsvík Ólafsvík.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.