Morgunblaðið - 23.09.1993, Side 34
34
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1993
Sérútgáfurnaraf Abyss, Lawrence of Arabia, Spartacus,
Aliens, JFK, The shining, Blade Runner, The Magnificent
Seven, Indiana Jones, Back to the Future, Beauty and the
Beast, TheTerminator, Akira, Rambo o.s.frv. fást hjá 2001
íWidescreen og hágæða hi-fi steríó...2001 þarsem kvik-
myndir og gæði eru samnefnari (PAL, NTSC, Laser og VHS).
Verslun, Pöntunarþjónusta og Myndavinnsla 2001,
Hverfisgata 61B, sími 612220, fax 626003.
HÉRAÐIÐ
SAINT EMILION
KYNNT í KVÖLD
Borðapantanir
í síma 25700
Fimmtudagskvöld eru vtnhéraðakvöld.
fíat Uno Arctic
- fyrir norðlægar slóðir
Bestu bílakaupin!
Uno Arctic býðst nú á miklu lægra verði en sambæri-
legir bílar frá V-Evrópu og Asíulöndum.
Verð frá748.000
kr. á götuna,
ryðvarinn og skráður.
Það borgar sig að gera verðsamanburð við aðra bíla.
Við tökum gamla bílinn upp í og lánum allt að 75%
kaupverðs til 36 mánaða.
Komið og reynsluakið
ÍTALSKIR BÍLAR HF.
Skeifunni 17-108 Reykjavík - sími (91) 677620
ORUGG REIÐHJOLI
HÆTTULEGUM LEIK
eftir Sigríði Á.
Asgrímsdóttur
Skyldutrygging bifreiða veldur
því að vegfarendum eru í flestum
tilvikum tryggðar bætur í umferðar-
slysum jafnvel þegar sá sem veldur
tjóninu er ekki borgunarmaður fyrir
tjóninu. Hver er ábyrgð hjólreiða-
manns sem veldur öðrum tjóni?
Spurningunni er hér með komið
á framfæri og vona ég að einhver
fróðari mér muni svara henni sem
fyrst. Rétt vegfarenda til trygginga-
bóta og ábyrgð ef slys ber að hönd-
um vegna hjóireiða þarf að upplýsa.
Lög og reglur um þessi atriði þurfa
að vera skýr og öllum kunn.
Skilningur hjólreiðamanna á
nauðsyn þess að virða umferðarlög
og reglur er forsenda þess að hægt
sé að mæla með aukinni notkun
reiðhjóia sem samgöngutækis. í
nokkrum lesendabréfum í Bréfum
til blaðsins í Morgunblaðinu í sumar
hefur komið fram hjá mörgum hjól-
reiðamönnum að þeir túlka umferð-
arlögin á sinn hátt þannig að marg-
ir vilja hjóla í gagnstæða stefnu við
bíla og halda sig því á vinstra vegar-
kanti. Ökumenn bifreiða verða því
að vera viðbúnir hjólandi vegfarend-
um ýmist til-hliðar við sig eða á
móti sér hvar sem er og hvenær 'sem
er.
Trúlega má benda á atvik þar sem
röng staðsetning og stefna hjól-
reiðamanns hafí forðað slysi og
skiljanleg er ónotatilfinning hjól-
reiðamanrfsins með bílastrauminn í
bakið. Glundroði í þessu máli sem
stafar af þvi að lög og reglur eru
ekki virt veldur þó mikilli ringulreið
og hættu í umferðinni. Öryggi í
umferðinni verður að bæta og það
kallar á endurskoðun laga og reglna
sem snerta notkun reiðhjóla í víðum
skilningi.
Vaxandi fjöldi hjólreiðamanna á
götum nú og umræðan í fjölmiðlum
hafa þó vonandi vakið ráðamenn
samgöngumála til umhugsunar um
aðstöðuleysi hjólreiðamanna í sam-
göngukerfinu.
Hjólreiðamenn á íslandi hafa ekki
Hvers
vegna
brosir
maðurinn?
Hann hefurhaftmikið
hárlos, en nú hefur það
stöðvast eftir notkun á
VIVISCAL
95% af þeim er tóku þátt í til-
raunum finnskra vísindamanna
jókst hárvöxtur um 38%.
Allar upplýsingar veitir
HÁRSNYRTISTOFAN
HRINGBRAUT 119 S 22077
Sigríður Á. Ásgrímsdóttir
„Reykjavíkurborg og
fyrirtæki og stofnanir
sem marka vilja fram-
sækna stefnu í um-
hverfis- og samgöngu-
málum ættu að drífa í
því sem fyrst að koma
upp aðstöðu fyrir við-
skiptavini sem kjósa að
ferðast um á reiðhjóli.“
verið mjög áberandi undanfarin ár.
Sem samgöngutæki hefur reiðhjólið
ekki vegið þungt. Þeir sem skipu-
leggja samgönguleiðir hafa því alls
ekki tekið reiðhjólin með í reikning-
inn við skipulagningu samgöngu-
leiða. Nú eru merki um að almenn-
ingur hafi tekið ákveðna stefnu sem
breyta kann viðteknum skoðunum
á gildi reiðhjólsins sem samgöngu-
tækis.
Það eru margir samverkandi
þættir sem flokka má í þijú áhuga-
svið sem almenningur er upptekinn
af:
Umhverfi — sparnaður
— heilsa
Að breyta frá notkun reiðhjóla
við leik og meðal fámenns áhuga-
hóps til almennrar og víðtækrar
notkunar sem samgöngutækis jaðr-
ar við byltingu sem kallar á endur-
skoðun stefnu Reykjavíkurborgar
og nágrannasveitarfélaga í sam-
göngumálum.
Hver er ábyrgð borgaryfirvalda á
þeirri áhættu sem skapast hefur
vegna sífellt meiri slysahættu hjól-
andi vegfarenda í borginni vegna
„ástands" gatna og stíga?
Samgönguleiðir fyrir reiðhjól og
bíla þurfa að vera aðskildar af ör-
yggisástæðum og hefur það í för
með sér aukinn kostnað, að minnsta
kosti í byijun. Nauðsynlegt er fyrir
borgaryfírvöld í Reykjavík að gera
úttekt á því hvernig hægt sé á sem
hagkvæmastan hátt að byggja sam-
göngumannvirki fyrir blandaða
umferð einkabíla, almenningsvagna
og reiðhjóla. Gera þarf áætlun um
hvernig hægt væri að koma á slíku
kerfí í áföngum þannig að kostnað-
ur samfélagsins verði viðráðanlegur.
Almenn notkun reiðhjóla mun draga
úr umferð bíla. Minni þörf verður á
að breikka götur vegna bílaumferð-
arinnar. Fjármunir til samgöngu-
mannvirkja framtíðarinnar sem fyr-
irsjáanlega verða að koma til vegna
bílaumferðar einnar munu skiptast
á akvegi fyrir bíla og hjólreiðastíga
samtímis og ferðamátinn mun skipt-
ast.
Færa má rök fyrir því að kostnáð-
arlega munu mannvirki vegna hjól-
reiða afkasta meiru en jafn verðmæt
mannvirki fyrir bíla og kostnaðar-
auki sá sem vænta má vegna lagn-
ingu nýrra hjólastíga vinnast til
baka með tímanum.
Kostnaður við bílastæði borinn
saman við kostnað vegna aðstöðu
til að leggja reiðhjólum skiptir líka
máli í þessum samanburði. Sem
stendur er afar erfitt fyrir hjólreiða-
menn að nota hjól í útréttingum
milli staða vegna þess að óvíða er
mögulegt að leggja frá sér reiðhjól
á öruggan máta. Reiðhjóli þarf að
læsa og helst að binda við staur eða
stand svo því verði ekki stolið.
Reykjavíkurborg og fyrirtæki og
stofnanir sem marka vilja fram-
sækna stefnu í umhverfis- og sam-
göngumálum ættu að drífa íþvísem
fyrst að koma upp aðstöðu fyrir
viðskiptavini sem kjósa að ferðast
um á reiðhjóli.
Hvaða reglur gilda um
öryggisbúnað reiðhjóla?
Framfarir hafa verið miklar í
framleiðslu reiðhjóla síðustu árin.
Þau eru orðin mjög þægileg og ör-
ugg í notkun. Mögulegt er að fara
ferða sinna upp brekkur án mikillar
áreynslu og jafnvel yfir óslétta vegi
er hægt að hjóla nokkuð hratt og
örugglega. Ný efni, ný hönnun og
nýr búnaður, allt hjálpast að til að
auka úrval og gæði reiðhjóla, allt
frá fjallahjólum upp í rennileg kapp-
aksturshjól. Alþjóðlegur staðall ISO
4210 gildir fyrir reiðhjól og þar eru
kröfur um öryggi og styrkleika í
hönnun, samsetningu og prófunum
settar fram. Helsta öryggisatriði
varðandi reiðhjólin eru bremsurnar
og prófunarkröfur fyrir þær. Önnur
mikilvæg atriði eru kröfur sem stýr-
isbúnaður, pedalar og söðull þurfa
að uppfýlla. Við kaup á reiðhjólum
ættu þeir neytendur sem tryggja
vilja kaup sín á góðri vöru að fá
það staðfest hjá seljendum að reið-
hjólið og allur búnaður þess upp-
fylli prófanir samkvæmt þessum
staðli.
I dómsmálaráðuneytinu hefur
verið unnið að reglugerð fyrir reið-
þjól og í drögum er gert ráð fyrir
kröfum um öryggisbúnað sem til
þessa hefur ekki verið skylda, held-
ur hefur lögreglan og Umferðarráð
mælt með notkun hans. Um er að
ræða tvöfalt bremsukerfi, endur-
skinsmerki, keðjuhlíf, bjöllu og ljós.
Einnig hefur Umferðarráð og aðilar
sem starfa að slysavörnum mælt
mjög eindregið með notkun reið-
hjólahjálma og er jafnvel rætt um
að lögleiða notkun þeirra.
Urval aukabúnaðar og sérstaks
fatnaðar er mikið og segja má að
ákveðin tíska í hjólreiðum hafi bor-
ist hingað til lands eins og í svo
mörgu öðru sem við búum við í
nútímanum.
Eru vaxandi hjólreiðar bara
eins konar tískufyrirbrigði?
Ég tel að mörg rök séu fyrir því
að almenningur óski þess að nota
hjól sem samgöngutæki í framtíð-
inni. Gæði reiðhjóla eru betri en
áður og búnaðurinn öruggari auk
þess sem ímynd hjólreiðamannsins
hefur hlotið viðurkenningu þannig
að nú eru það ekki „bara sérvitring-
ar“ sem hjóla. Kostir reiðhjólsins í
samanburði við kosti bílsins munu
ráða vali almennings á farkostum í
framtíðinni.
Auk þess að menga minna, kosta
minna og gefa hreyfingu er saman-
burður hjóls og bíls sem samgöngu-
tækis hjólinu á margan hátt hag-
stæður. í flestum tilvikum er einn
maður á ferð í bíl sínum þannig að
þótt yfírburðir bílsins gagnvart hjól-
inu varðandi fjölda farþega séu fyr-
ir hendi þá eru þeir ekki nýttir.
Svipað er að segja um samanburð
á ferðahraða í borgum og bæjum.
Aka má bíl miklu hraðar en hægt
er að hjóla, en umferðarálagið veld-
ur því að maður á reiðhjóli kemst
oft á jafn skömmum tíma leiðar
sinnar og bílstjórinn þrátt fyrir það.
Höfundur er verkfræðingur
Neytendasam takanna.