Morgunblaðið - 23.09.1993, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 23.09.1993, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1993 Árið 1920 liggja saman leiðir fimmtán ára stúlku og kínversks auðmanns. Þau heillast hvort af öðru og ástin nær heljartökum á þeim. En þetta er forboðin ást. Fjölskylda hennar útskúfar henni ogfaðir hans afneitar honum. Ekkert færþó aðskilið hina lostafullu elskendur. Mun samband þeirra lifa af umrótið í kringum þau? Stórkostleg mynd hins frábæra leikstjóra JEAN-JACQUES ANNAUD (Nafii rósarinnar). Mynd fyrir elskendur - unga jafnt sem gamla. Kemur út í dð| HASKOLABIO SÍMI611212 Aldarminning Ólafur Magnús- son skipstjóri í dag, 23., september er öld liðin frá því að Ólafur Magnússon skip- stjóri kenndur við ms. Eldborg mb. 3 frá Borgamesi fæddist að Sellátr- um í Tálknafirði. Foreldrar Ólafs voru Sigrún Ólafsdóttir ljósmóðir frá Auðkúlu í Amarfirði og Magnús Kristjánsson skipstjóri, Bíldudal. Barnungur hóf Ólafur sjósókn með föður sínum og bræðmm og ungl- ingur vestur á íjörðum var hann orðlagður aflamaður á handfæri. Tuttugu og þriggja ára innritaðist hann í Stýrimannaskólann í Reykja- vík og lauk þaðan prófi vorið 1917. Stýrimaður á togumm og síðar for- maður á bátum, meðal annars bát- um Haraldar Böðvarssonar á Akra- nesi og búsettur þar eignaðist hann tvo syni með fyrri konu sinni Guð- rúnu Halldórsdóttur frá Bíldudal, þá Svavar klæðskerameistara og Gunnar skipstjóra. Guðrúnu missti Ólafur eftir fjögurra ára sambúð. Eftirlifandi konu sinni, Hlíf Matt- híasdóttur Ólafssonar alþingis- manns, kvæntist Ólafur árið 1926 og eignuðustu þau fimm böm, Matthías, Marsibil, Sigrúnu, Roy og Ólöfu. Arið 1934 stofna nokkrir Borg- nesingar útgerðarfélagið Grím hf. og festa kaup á ms. Eldborgu skráða mb. 3. Fastráðinn skipstjóri sækir Ólafur skipið til Noregs og verður óslitið með það í 13 ár. Áfallalítið sigldi Eldborgin öli stríðsárin með ísvarinn bátafísk til Englands og var annáluð fyrir gæði farmsins, en stundaði sfldveiðar fyrir Norðurlandi á sumrin og árið 1943 nam heildarafli skipsins 30.300 málum er reyndist met sem stóð óhaggað í mörg ár. Ólafur Magnússon lést að Hrafn- istu í Reykjavík 24. mars 1961, 68 ára að aldri. Mynd sem dregin er upp af Ólafi í kafla bókarinnar „Farmaður í friði og stríði" sjóferðaminningum Ólafs Tómassonar stýrimanns eftir Jó- hannes Helga (Skuggsjá 1976) á bls. 147-149, lýsir sjómennsku Ólafs Magnússonar einstaklega vel og að gefnu tilefni er tilhlýðilegt að birta hana hér með Ieyfi höfund- ar. — Eg var hjá honum þangað til eg fór stýrimaður yfir á Laxfoss. Þar kynntist eg Ólafi heitnum Magnússyni, einhveijum klárasta sjómanni sem eg hef fyrir hitt um dagana. Hann var kvæntur mikil- hæfri sæmdarkonu, Hlíf, systur Jóns Matthíassonar. Ólafur var þrekmenni með afbrigðum, síldar- kóngur í mörg ár. Mikið lærði eg af Pétri Ingjaldssyni sem var með Laxfoss, lærði á Faxaflóann og suðurströndina. Pétur var óþreyt- andi að kenna stýrimönnum sínum. Og svo leysir Ölafur Magnússon um þetta á eftir, segir hann, en það þarf skarpa sjón til. Hann lýtur yfir kortið, dregur línu með fingrin- um, segir: Ef við tökum þessa stefnu í klukkutíma þá ættum við að koma í þennan grunna ál sem þama er. Rórmaðurinn fær fyrirmæli um breytta stefnu og Ólafur gengur að brúarglugganum og gefur mér merki að koma til sín, svipast þög- ull um, grandskoðar öldurnar, leit- ar, segir svo allt í einu: Líttu á þessa öldu þarna, segir hann, fimmtu öldu. Eg geri sem hann biður. Líttu svo á þessa. Eg fylgdi bendingu hans eftir með augunum. Og líttu svo á þessa. Eg fýlgi bendingu hans eftir með augunum. Og líttu svo í landáttina. Sjáðu hvernig aldan kembir þarna. Taktu eftir. Nú skiptir hún úr blámanum yfír í hvítuna. Það bregður fýrir ofurlitl- um gulleitum blæ. Hún er falleg þessi. Taktu nú eftir. Og aldan hneig, skipti úr bláman- um, hjaðnaði í glæhvíta froðuna. En eitt sekúndubrot brá fyrir gulri slikju. Um leið og hún hneig. Ólafur var þekktur fyrir þetta, frétti eg seinna, hvemig hann las botninn af öldunum. Við drögum upp handlóðið. Og það er ekki um að villast. Við erum komnir alltof nærri þrátt fýrir ríf- lega afdrift. Ólafur tekur stefnuna tvær mílur af þrídranga og þegar við eram búnir að sigla tímann sem hann áætlaði í drangann þá vorum við þar, á punktinum, sáum hann gnæfa upp úr öldurótinu. Eg dáist að þessu enn þann dag í dag. Þetta var sjómennska og þekking sem sagði sex. Allir sjómenn kunna að lesa í sjólag og strauma, enda reynir á það við landtöku, en öðm máli gegnir um hárfín litbrigði í slæmu skyggni á djúpsævi. 1 Lyra var millilandaskip. 2 Blýlóð atað tólg, notað til að taka botnprufu. Virðing fyrir óbilandi áhuga, kjarki og dugnaði manns sem háði harða lífsbaráttu í stríði og friði, með öngli og skutli, beitti þekkingu sinni af mikilli snilld og óragur gekk á hólm við hveija þá hættu sem á vegi hans var, háði marga rimmu við höfuðskepnurnar og hrósaði ætíð sigri, en átti svo í margra ára" kvalafullu stríði við veikindi sem að lokum lögðu hann helsærðan að velli: Virðing fyrir góðum maka — föður, sönnum manni lifír með ekkju og bömum mann fram af manni um langa framtíð. Samantekt á bók, ljósmyndir o.fl. (Eldborgarsaga) sem í þessu tilefni átti að liggja fýrir fullsköpuð, mun, vegna ófyrirsjáanlegra atvika, tefj- ast. Fyrir áramót, er áætlun sem vonandi stenst. Matth. Ól. Sigurbjörn Sigurðs- son — Minning Fæddur 11. desember 1975 Dáinn 5. september 1993 Hann Sigurbjörn Sigurðsson, Sibbi eins og hann var alltaf kallaður, er farinn frá okkur. Þessi fallegi og rólegi drengur sem kom svo oft í heimsókn til mín þegar hann var hjá ömmu sinni og afa á Skagaströnd. Það fór ekki mikið fyrir honum, hann kom og heilsaði frænku sinni, fékk lánaðar bækur og settist inn í herbergi og las. Það heyrðist aldrei í honum og stundum var ég búin að gleyma að hann væri hjá mér þegar hann kom fram og þakkaði fyrir sig, kvaddi og fór aftur til ömmu sinnar. Hann var sonur Sigurðar Sigur- björnssonar og Önnu Jónsdóttur, alnafni afa síns á Blönduósi. Hann átti fímm systkini, tvær systur sem hann ólst upp með á Húsavík og þijá bræður sem búa í Vestmanna- eyjum og hann heimsótti á sumrin. Hans er nú sárt saknað af pabba sínum og bræðmnum Hirti, Hann- esi og Oskari sem dýrkuðu stóra bróður sinn. Með þessum orðum vil ég kveðja Sibba frænda minn. Megi Guð fylgja honum í nýjum og góðum heimi. Elsku Diddi og fjölskylda og Anna og fjölskylda, ég votta ykkur mína dýpstu samúð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þðkk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Með kveðju frá föðursystkinum og ömmu og afa á Blönduósi. Erna Sigurbjörnsdóttir. Heyrðu nafni minn, hann er að vísu hlaðinn báturinn, en eg ætla samt að halda mínu striki. Verðum bara að gera vel fyrir driftinni. Held að vindinn muni herða. Þegar við svo emm komnir vel fyrir og landið týnt í sortann ítrek- ar hann við mig, að gera vel fyrir driftinni og láta sig vita strax ef eg verði var við eitthvað gmnsam- legt. Ólafur fer svo niður til sín að halla sér, vaktin var tvískipt, sex og sex, og tveir tímar uns Ólafur átti að leysa mig af. Vindinn herti eins og Ólafur hafði spáð og eg geri þá enn meira fyrir driftinni, rekinu, landsmenn skilja það orð betur, gerði rýmilega fyrir rekinu til að hætta ekki á neitt. Að tveim tímum liðnum kemur Ólafur upp og spyr hver afdriftin sé. Eg segi honum það. Það ætti að duga, segir hann, en líttu á sjóinn, bætir hann við. Ólafur hafði svipmikil augu, lista- mannssión sem Matthías sonur hans erfði, er mér sagt. Á sjóinn, segi eg. Eg sé ekkert athugavert við hann. Við skulum lóða. Hvað meinarðu skipstjóri? Sjórinn er sendinn, ekki mikið — en sendinn samt. Eg rýni gegnum sortann í öldum- ar, en verð einskis vísari, sé ekkert athugavert. Eg skal leiða þig í allan sannleika ■ r Með ELSKHUGANUM tekst Annaud mjög vel upp “. XXX 1/2 - G.B. DV „Hugljúf saga um ást og losta". XXX PRESSAN hann af einn túr til Vestmannaeyja og af Ólafí lærði eg merkilega lex- íu, sem eg ekki vissi fyrr en þá að væri til. Lýra1 hélt sjó við Reykja- nesið lagði ekki í hann, enda hauga- sjór og dimmviðri, en Ólafur sagði rólega: „Skilur ekkert efiir fyrir imyndunaraflið“. - EMPIRE „Lætur Sharon Stone líta út eins og Mjallhvíti“. - TheSUN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.