Morgunblaðið - 02.10.1993, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 02.10.1993, Qupperneq 26
26 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 1993 Minning Kjartan Friðgeir Þorsteinsson Fæddur 30. júní 1976 Dáinn 25. september 1993 Laugardaginn 25. september 1993 gerðist sá hræðilegi atburður að vinur minn og félagi, Kjartan Friðgeir Þorsteinsson, lét lífið í hörmulegu slysi. Mann setur hljóð- an, ótal spurningar vakna, en eng- in svör. Hvemig getur svona lagað gerst, ungur maður rétt að byija lífið, lífsglaður, bjartsýnn og ham- ingjusamur? Sagt er að þeir deyi ungir sem guðirnir elska. Kjartan var fæddur 30. júní 1976, sonur hjónanna Rósu Kjart- ansdóttur og Þorsteins Sigfússon- ar, svæðisstjóra Orkubús Vest- fjarða í Strandasýslu. Hann var einn af þremur systkinum, eldri systir Guðný Maríanna gift Tryggva Tryggvasyni, þau eiga eina dóttur, Rósu Margréti, og yngri bróðir hans Kári. Kjartan var alinn upp sín fyrstu ár á ísafirði en fluttist til Hólmavíkur ásamt foreldrum og systkinum mjög ung- , ur og átti heima þar síðan. Kynni okkar Kjartans hófust er ég fór að sækja sumarvinnu til Hólmavíkur fyrir nokkrum árum. Heimkynni mín við ísafjarðardjúp og ferðir mínar þangað á sumrin urðu til þess að kynni okkar héld- ust og vinskapurinn jókst, enda heillaðist hver sá sem kynntist Kjartani af honum. Hann var alltaf brosandi sama á hveiju gekk, kom öllum í gott skap með gríni og glensi. Hann var orðinn stór vina- hópurinn okkar bæði í Reykjavík og fyrir vestan. Ávallt var Kjartan tilbúinn að hjálpa til við sveita- störfin, og má segja að síðustu ár hafi hann verið með mér heima um flestar helgar í frítíma sínum. í heyskap á sumrin, réttum á haustin og við annað það er gera þurfti, og var Kjartan orðinn góður vinur allra í fjölskyldunni. Það var sama hvern eða hvar vantaði að- stoð, alltaf var Kjartan reiðubúinn. Kjartan var skynsamur og fram- sýnn maður. Hann hætti í skóla eftir grunnskólanám og vann hjá Orkubúi Vestfjarða undir góðri og öruggri leiðsögn föður síns. Hann var búinn að kaupa sér nýlegan bíl nokkru áður en hann fékk bíl- prófið. Bfllinn stóð bara fyrir utan hjá honum og var ansi oft bónaður og þrifínn þar til ökuprófíð var loksins í höfn. Það verður erfítt að sætta sig við að hafa misst góðan og trygg- an vin, en við sem eftir sitjum getum aðeins sætt okkur við það, Mig langar að minnast ömmu minnar, Ólafar Ingunnar Bjöms- dóttur, í örfáum orðum en hún lést í Landspítalanum 22. september sl. Amma og afi bjuggu á Kársnes- braut 24 þegar ég fæddist og áttu heima þar mestalla sína búskapar- tíð, en áttu heima síðustu árin á Ásbraut 15. Ég man eftir ömmu sem glað- værri persónu og þegar hún hló gat maður ekki annað en hlegið líka, því að hún hafði svo smitandi hlátur. Ég man eftir að amma var vön að gefa okkur stundum ristað brauð og heitt kakó, eða þegar hún hugsaði um mig þegar ég fékk hettusóttina af því að mamma og pabbi þurftu að fara aftur heim á Höfn. En ég man líka eftir ömm- unni sem var alltaf að minna mig á að hjálpa mömmu að passa litlu systkinin mín og laga til, en ég að honum hafi verið ætlað eitthvað meira en lífíð hér á jörðu gefur. Þar eru margir sem syrgja Kjart- an, en þyngstur harmur er kveðinn að foreldrum hans og systkinum því að ávallt var samband þeirra mjög gott. Guðný systir Kjartans býr í Reykjavík ásamt manni sínum og lítilli dóttur sem var sólargeisl- inn hans Kjartans stóra frænda. Það var hreykinn frændi, sem kom með baðþorð undir hendinni til systur sinnar eftir að hún kom heim af fæðingardeildinni. Þær voru ófáar ferðirnar hans til Reykjavíkur að hitta systur sína og fjölskyldu hennar. Það verður dapurlegt að koma í sveitina og eiga ekki von á Kjart- ani framar inn úr dyrunum hlæj- andi með alla sína bjartsýni og gleði.-Eitt er það sem enginn getur frá okkur tekið, en það eru allar ljúfu og góðu minningarnar. Fyrir hönd fjölskyldu minnar bið ég algóðan Guð að geyma góðan dreng og styrkja fjölskyldu hans og aðra ástvini. Einar Rúnar Kristjánsson, Kirkjubóli, Langadal. Að morgni sunnudagsins bárust okkur þau hörmulegu tíðindi að Kjartan, kærastinn hennar Álf- heiðar systur, hefði dáið kvöldið áður. Seinast þegar við sáum þau voru þau glöð og hamingjusöm og áttu lífið framundan, en skjótt skipast veður í lofti. Skyndilega er hann hrifinn á brott frá ástvinum sínum og erfítt er að skilja hvaða tilgang það hefur. Kynni okkar af Kjartani voru ekki mikil, en við kynntumst hon- um fyrst í sumar þegar hann fór að vera með Álfheiði systur. Sáum við strax að þar fór góður dreng- ur, sem var bæði hress og skemmtilegur. Elsku Alfheiður, guði veri með þér á þessum erfiðu stundum. Foreldrum, systkinum og öðrum aðstandendum sendum við okkar innilegustu samúðarkveðjur. Gíslína og Guðrún Gunnsteinsdætur. Kjartan Friðgeir Þorsteinsson hét hann og var sonur hjónanna Rósu Kjartansdóttur og Þorsteins Sigfússonar, sem búsett eru á Hólmavík, og þar var heimili hans. Mig langar með örfáum fátæk- legum orðum að minnast þessa held að það hafí nú farið inn um annað eyrað og út um hitt hjá mér, því að annars hefði hún ekki þurft að minnast á þetta eins oft og hún gerði. En það sem ég held að hafí nú veitt ömmu mesta gleði seinustu árin voru langömmubörnin, fjórir drengir og nú yngst stúlka sem gefur strákunum ekkert eftir, og henni hefði örugjglega þótt gaman að vita að það sjötta er á leiðinni. En þetta er lífsins gangur, menn deyja og aðrir koma í staðinn, og ég vona að amma mín sé komin á betri stað núna og henni líði betur en henni gerði síðustu mánuðina. Um leið og ég vil þakka ömmu minni samfylgdina bið ég Guð að styrkja afa, mömmu, Bjössa frænda og fjölskyldur þeirra. Hrafnhildur Björnsdóttir. pilts, sem féll frá í blóma lífsins. Ég og fjölskylda mín höfðum af honum kynni í nokkra mánuði, sem hófst með því að vinátta tókst með honum og Alfheiði dóttur okk- ar hjóna. Nokkrum sinnum dvald- ist hann hér á heimili okkar, og hún fór einnig í heimsóknir til hans, og þar var henni vel tekið. Líklega er það svo, að fullorðið fólk er að jafnaði gagnrýnið á unglinga og ungt fólk. En Kjartan gaf af sér góðan þokka, var hægur í allri framkomu, þó glaðlyndur, og það var gott að umgangast hann. Það að minnast sautján ára manns gefur ekki tilefni til langrar greinar. Fyrir foreldra, sem hafa alið upp barn frá fæðingu til sautj- án ára aldurs, er nokkuð löng saga að baki. Barnsárin með sinni gleði og áhyggjum eftir atvikum og þeg- ar hér er komið verður ungi maður- inn að fara að takast á við lífið. Flestir eru þó svo heppnir að eiga foreldrana að lengur, svo var það hér. Kjartan heitinn bar það með sér. Föstudaginn 24. september héldum við hjónin til Akureyrar með dóttur okkar, sem ætlaði að hefja nám við Menntaskólann á Akureyri. Unga fólkið hafði þá verið samvistum í tvo daga og endurfundir voru ákveðnir. En þeir endurfundir urðu ekki, því að á sunnudagsmorguninn fékk ég upp- hringingu og í símanum var faðir Kjartans, sem tilkynnti mér, að hann hefði látist í bílslysi kvöldið áður. Ég dáðist að æðruleysi Þor- steins, þegar hann tilkynnti mér svo váleg tíðindi. Þarna var kveð- inn upp dómur, sem allir verða að hlíta, hversu þungbær sem hann er. Sár harmur er nú kveðinn að foreldrum og öðrum ástvinum Kjartans heitins. Harmabót er að söknuðinum fylgja ljúfar minning- ar um þann, sem syrgður er. Það er mikill fjársjóður að eiga góðar minningar um látinn ástvin, því að sá, sem ekki hefir átt mikið, hefír heldur ekki mikið að syrgja. Hér eru góðar minningar að baki. Ég vona að góður guð gefi þeim, sem hér syrgja, styrk til að kom- ast út í lífið á ný. Því svo best rækjum við skyldur við þann látna, að lífíð geti haldið áfram á sinn eðlilega hátt. Við hjónin og fjöl- skylda okkar sendum ástvinum Kjartans okkar innilegustu samúð- arkveðjur. Guð blessi minningu Kjartans Friðgeirs Þorsteinssonar. Gunnsteinn Gíslason, Norðurfirði. Laugardagurinn 25. september sl. rann upp fremur dimmur og drungalegur, þó ekkert frábrugð- inn þeim haustdögum sem Strandamenn rnega vænta á þess- um árstíma. Áður en þessi dagur var á enda hafði syrt að í brjóstum mannfólksins þegar fréttir bárust um að ungur piltur hefði látist í hörmulegu bílslysi rétt utan við Hólmavík. Kjartan Friðgeir Þorsteinsson var aðeins 17 ára þegar hann hvarf á vit almættisins svo óvænt og upp í hugann koma brennandi spurn- ingar, en fátt er um svör. Mikill harmur er kveðinn að vinum og ættingjum, en sárust er sorg for- eldra og systkina sem sjá á bak syni og bróður. Kennarar og starfsfólk Grunn- skóla Hólmavíkur minnist fyrrum nemanda, glaðlynds pilts sem átti sína framtíðardrauma, drauma er rætast í nýjum heimkynnum, þar sem ljósið er eilíft. Orð eru lítils megnug, en minn- ingin er sterk, hún varir út yfir gröf og dauða. Elsku Rósa og Steini, systkini, aðrir aðstandendur og vinir. Megi þessi minning um ljúfan dreng verða ykkur styrkur á sorgar- stundu. Innilegar samúðarkveðjur til ykkar allra. Kennarar og starfsfólk Grunnskóla Hólmavíkur. Kjartan Friðgeir Þorsteinsson fæddist á ísafirði 30. júní 1976 og var því aðeins 17 ára þegar hann lést í bílslysi að kvöldi laugar- dagsins 25. þ.m. Hann var eitt þriggja barna hjónanna Rósu Kjartansdóttur frá Eskifirði og Þorsteins Sigfússonar frá ísafírði sem búið hafa á Hólmavík síðan 1985. Ekki þarf að hafa mörg orð um sorg og söknuð sem að fjölskyld- unni er kveðinn þegar ungur mað- ur er hrifínn burtu á þennan hátt, enda fá engin orð lýst sorg og söknuði. Kjartani kynntumst við fyrir þremur árum. Hann var ein- staklega elskulegur ungur maður, glaðlyndur og viðræðugóður og bar með sér mikla hlýju. Tal hans var allt svo laust við sífur og böl en lýsti áhuga og gleði. Hann var að vísu óráðinn, eins og ungir menn gjarnan eru, en hann var ókvíðinn og undi lífinu vel og framtíðin beið hans. Hann sagði okkur á dögun- um að honum hefði líkað vel á sjón- um. Sjórinn heillaði hann og helst var það nám í vélstjórn sem hann vildi stunda til þess að geta verið á sjónum. I sumar kynntist Kjartan ungri stúlku sem enn jók á gleði hans og það var glaður ungur maður sem mætti okkur laugardaginn fyrir fjórum vikum þegar við kom- um til Hólmavíkur að líta á systur- dóttur hans og sonardóttur okkar. En „meðan hjörtun sofa býst sorg- in heiman að — og sorgin gleymir engum,“ segir Tómas í kvæði sínu Þjóðvísu og við vöknuðum við vondan draum. En minningin um Kjartan Friðgeir Þorsteinsson ber með sér birtu sem endast mun lengi. Við sendum ykkur, Rósa, Þor- steinn, Kári, Guðný og Tryggvi, samúðarkveðjur svo og öllum ætt- ingjum og vinum sem sakna. Megi Guð blessa minningu góðs drengs. Margrét og Tryggvi. Eg fel í forsjá þína, Guð faðir sálu mína, því nú er komin nótt. Um ljósið lát mig dreyma, og ljúfa engla geyma öll þömin þín svo blundi rótt. - (M. Joch.) Það var svo fjarlægt í mínum huga að hugsa um dauðann, þegar ég talaði við hann Kjartan vin minn í síðasta sinn á föstudags- kvöld. En aðeins sólarhring síðar, laugardagskvöldið 25. september. barst okkur sú fregn að Kjartan hefði látist í bílslysi, skammt fyrir sunnan Hólmavík. Og við stöndum eftir ráðþrota og finnst þetta ekki geta hafa gerst og finnst það eng- an veginn sanngjarnt að hrífa í burtu á einni svipstundu ungt fólk í blóma lífsins. En við sem eftir stöndum getum engu breytt. Og ekkert er sem áður var. En eitt eigum við þó sem aldrei verður frá okkur tekið og við getum glatt okkur við; það eru minningar lið- inna daga og. ára. Mér varð hugsað til þess þegar Kjartan og félagar hans komu í heimsókn í eldhúsið til mín. Þá var oft glatt á hjalla og skrafað og skeggrætt yfír kakóbolla eða mjólkurglasi. Og mörg voru málin sem bar á góma og voru brotin til mergjar og aldrei þraut umræðu- efni. Það er svo ómetanlegt fyrir okkur sem eldri erum, þegar börn og unglingar gefa sér tíma til að líta inn til okkar og stoppa um stund. Ég man líka eftir vormorgni fyrir nokkrum árum þegar Kjartan og litli bróðir hans hann Kári komu til mín með bros á vör og blóm í potti sem mamma þeirra hafði gefið þeim til að færa mér. Minn- ingasjóðurinn er ótæmandi fjár- sjóður sem við getum ornað okkur við á þessum döpru dögum. Við þökkum honum Kjartani samverustundirnar á liðnum árum og biðjum honum blessunar á nýju tilverustigi við ný störf því það er trú mín og vissa að þegar okkar jarðvistarlífi lýkur, þá bíði okkar annað og enn betra líf og þar er nóg að starfa guðs um geim. Og ég er viss um að við hittumst öll hinumegin þegar þar að kemur. Elsku Rósa, Steini, Guðný og Kári og aðrir ástvinir. Við Sverrir sendum ykkur okkar dýpstu samúðarkveðjur og biðjum Guð að styrkja ykkur og gefa ykkur aftur bjarta daga. Rósa og Sverrir. I dag, laugardaginn 2. október, er systursonur minn Kjartan Frið- geir Þorsteinsson lagður til hinstu hvílu. Það var á laugardagskvöld fyrir viku sem okkur bárust þau hörmu- legu tíðindi norðan frá Hólmavík að Kjartan hefði látist í bílslysi þá fyrr um kvöldið. Skyndilega smeygir sorgin sér í hús og maður ste'ndur andspænis henni bæði agndofa og reiður. Hvers vegna er 17 ára piltur í blóma lífsins hrifinn burt svo harkalega, svo fyrirvaralaust? Hann sem var svo jákvæður og hress og alltaf til í að gera öllum greiða ef hann gat. Hann sem öll börn hændust að og tilbáðu. Hver er tilgangurinn með því að hrifsa svona ungan, fjörugan og vinsælan dreng úr hópi okkar? En fátt er um svör. Mér verður hugsað til þess hvað amma sagði við mig þegar ég missti föður minn: „Veiga mín, þetta er allt fyrirfram ákveð- ið og allt hefur þetta sinn tilgang.“ Það er er bara svo erfitt að sætta sig við að svona ungur og heilbrigður drengur hverfi frá svona skjótt. Við sem eftir sitjum verðum að hugga okkur við þær góðu minningar sem hann gaf okk- ur og ekki verða frá okkur teknar. Okkur er ætlaður mislangur tími hér á jörðu og við verðum að trúa því að Kjartani sé ætlað stærra og mikilvægara hlutverk á öðru tilverustigi, hlutverk sem ekki er sýnilegt okkur sem eftir lifum. Þar sem Kjartan var gæddur óvenju miklum mannkostum er e.t.v. unnt að skilja þennan vilja almættisins. Ég fylgdist með æsku og upp- vaxtarárum Kjartans úr fjarska þar sem ég bjó í öðrum landshluta og var það eftirminnilegt hversu yndislegt barn hann var. Hann fór snemma að fylgjast vel með öllu og þá sérstaklega því sem pabbi hans aðhafðist. Hann var ekki hár í loftinu þegar hann þekkti flestar tegundir bíla, enda áttu bílar hug hans allan er fram liðu stundir. Það var stoltur og ánægður frændi sem kom til að sýna mér bílinn sinn nú í sumar. Kjartan minn nú þegar komið er að kveðjustund langar mig til að þakka þér fyrir samverustund- imar og hversu góður þú varst bömunum mínum. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. (V. Briem.) Elsku Rósa, Steini, Guðný og Kári, ég votta ykkur mína dýpstu samúð og bið góðan Guð að veita ykkur og öðrum aðstandendum styrk í þessari miklu sorg. Sigurveig María Kjartansdóttir. Olöf Ingunn Bjöms- dóttir - Minning

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.