Morgunblaðið - 15.10.1993, Qupperneq 1
88 SIÐURB/C
STOFNAÐ 1913
234. tbl. 81. árg.
FOSTUDAGUR 15. OKTOBER1993
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Rússar taka afstöðu gegn Abkhözum
Ásakanir um
þjóðahreinsun
Moskvu. Reuter, The Daily Telegraph.
RÚSSAR sökuðu í gær uppreisnarmenn Abkhaza í Georgíu um þjóða-
hreinsun og hvöttu þá til að binda enda á þetta athæfi. „Ofbeldi, stuld-
ir og rán sem beinast gegn friðsömum borgurum, þar á meðal Rúss-
um, Georgíumönnum og fólki af öðru þjóðerni, halda áfram í Abkhaz-
iu,“ sagði í yfirlýsingu stjórnar Borísar Jeltsíns forseta í gær. Þess
er krafist að Abkhazar hætti að bijóta gegn mannréttindum hinna
þjóðabrotanna sem samaniagt eru um 80% íbúa héraðsins.
Edúard Shevardnadze, leiðtogi
Georgíu, ákvað á föstudag að landið
gengi í Samveldi sjálfstæðra ríkja
en hann hefur áður sakað harðlínu-
menn í rússneska hernum um að
styðja aðskilnaðarsinna Abkhaza.
Shevardnadze segist einnig vera að
hugleiða að bjóða Rússum afnot af
mikilvægum herbækistöðvum í
Georgíu sem þeir glötuðu þegar
Sovétríkin hrundu.
Grunur um stuðning Rússa við
Abkhaza hefur verið rökstuddur með
því að fullkominn vopnabúnaður
geti aðeins hafa komist í hendur
þeirra með vitund heryfírvalda í
Moskvu. Þar að auki hafa ráðamenn
Norskur sjávfirútvegiir
Aðgerðir
gegn lög-
brotum
Óslé. Frá Jan Gunnar Furuly,
fréttaritara Morgunblaðsins.
YFIRVÖLD í norskum sjávarút-
vegi fá tæplega áttatíu milljóna
króna fjárveitingu á næsta ári til
að berjast gegn Iögbrotum í
greininni. Jan Henry T. Olsen
sjávarútvegsráðherra heitir því
að aðgerðir gegn norskum og
rússneskum lögbrjótum verði
hertar.
Ástæðan er uppljóstranir um um-
fangsmikinn og ólöglegan útflutning
á fiski, auk þess sem Rússar lönduðu
þorski ólöglega. Segir ráðherrann
að eftirlit með fiskveiöum eigi að
vera skilvirkara. Ætlunin sé að auka
samvinnu lögreglu, skatta- og tolla-
yfírvalda svo hægt sé að kanna
ástandið oftar til sjós og í höfnum.
Georgíu fullyrt að meginhluti her-
afla aðskilnaðarsinna sé Rússar.
Ritskoðun hert
Stjórnvöid í Moskvu ákváðu í gær
að banna algerlega útgáfu um 15
blaða og tímarita kommúnista og
þjóðernissinna sem stutt hafa áköf-
ustu andstæðinga Jeltsíns. Pravda
og Sovétskaja Rossía fengu þó leyfi
til að koma út að því tilskildu að
þau skiptu um heiti og ritstjórarnir
yrðu reknir; blaðamenn þeirra höfn-
uðu þegar kröfunum. Sjónvarps-
fréttaþáttur, sem var undir stjórn
andstæðings Jeltsíns, var einnig
bannaður í gær.
Izvestía, sem styður annars Jelts-
ín, birti í gær drög að forsetatilskip-
un sem myndi gefa öryggissveitum
sáma rétt til að bijóta mannréttindi
og tíðkaðist á sovétskeiðinu. Pavel
Gratsjov varnarmálaráðherra hvatti
Jeltsín til að efna ekki til forseta-
kjörs fyrr en 1996.
Reuter
Barist um brauðið
MOSKVUBÚAR hömstruðu brauð í gær því að ætlunin er að verðlag á brauði, sem er undirstaðan í
fæði Rússa, verði gefið frjálst í dag, föstudag. Er búist við miklum verðhækkunum. Stjórnvöld hyggjast
sjá til þess að fátæklingar fái styrk til brauðkaupa. Óðaverðbólga ríkir í landinu og á tekjulágt fólk fullt
í fangi með að láta peningana duga fyrir mat og öðrum nauðsynjum. Vextir á sparifé hafa verið mun
lægri en verðbólgan en í gær var skýrt frá því að þeir yrðu hækkaðir úr 180% í 210%. Er þetta talið
merki um að stjórn Jeltsíns hyggist grípa tiJ harkalegra ráða gegn verðbólgunni.
Aideed sleppir tveimur friðargæsluliðum úr haldi í Sómalíu
Clinton tregur til þátttöku
í friðargæsluverkefnum
Mogadishu, Washington. Reuter.
BILL Clinton Bandaríkjaforseti sagði í gær að sú reynsla, sem
Bandaríkjamenn hefðu orðið fyrir í Sómalíu, myndi leiða til þess
að hann yrði tregari til þess í framtíðinni að lofa þátttöku banda-
rískra hermanna í friðargæsluverkefnum. Hann sakaði pólitíska
andstæðinga sína, er gagnrýndu sljórnina fyrir mistök, um að
láta sem þeir skildu ekki að því væru takmörk sett hve miklu
valdi Bandaríkin gætu beitt á alþjóðavettvangi. Forsetinn lét
þessi ummæli falla á blaðamannafundi í kjölfar þess að sómalski
stríðsherrann Mohamed Farah Aideed sleppti úr haldi tveimur
gæsluliðum Sameinuðu þjóðanna, öðrum þeirra bandarískum.
„Reynslan af Sómalíu gerir það
að verkum að ég mun sýna meiri
varfærni við að ákveða þátttöku
Bandaríkjamanna í friðargæsluverk-
efnum leiki minnsti vafi á því hvaða
ákvarðanir verða teknar af annarri
herstjórn en okkar eigin sem heyrir
beint undir Bandaríkjastjórn,“ sagði
Clinton.
Forsetinn • var spurður hvort
mannfallið í Sómalíu hefði leitt til
Skýrsla Amnesty-samtakanna um ástand mannréttindamála í Norður-Kóreu
Pyntingar og opinberar aftökur
Tókýó. Reuter.
STALÍNISTASTJÓRN Kim Il-sungs í Norður-Kóreu hefur látið
pynta og taka af lífi þúsundir manna síðustu 30 árin; tugþúsund-
ir hafa verið fangelsaðar. Kemur þetta fram í nýrri skýrslu
Amnesty International. Réttarfarið er skrípaleikur og þeir, sem
gerast sekir um „hugmyndafræðilegt hverflyndi" og aðra „gagn-
byltingarglæpi" eru teknir af lífi opinberlega.
í skýrslunni er vitnað í heimild-
ir, sem segjá frá miklum matar-
og orkuskorti í Norður-Kóreu síð-
ustu árin en hann hefur aftur
valdið því, að aftökum vegna svo-
kallaðra efnahagsglæpa hefur
fjölgað verulega. Fréttir eru um,
að fangar hafi dáið úr hungri og
kulda í klefum sínum og sam-
kvæmt sumuiíi heimildum er tug-
Kim Il-sung, leiðtogi N-Kóreu.
þúsundum manna haldið í fanga-
búðum. Stjórnvöld í N-Kóreu neita
því.
Því er haldið fram, að N-Kóreu-
stjórn reki enn fangabúðir í Rúss-
landi í tengslum við skógarhögg,
sem N-Kóreumenn hafa fengið
að stunda í Khabarovsk og Amúr.
Samningar um það að renna út í
desember og verða ekki endurnýj-
aðir að sögn rússneskra stjórn-
valda.
þess að hann vildi síður senda
Bandaríkjaherlið til friðargæslu-
starfa í Bosníu. Hann sagðist ávallt
hafa krafist þess að hernaðaraðgerð-
ir í Bosníu yrðu undir merkjum Atl-
antshafsbandalagsins, NATO, vegna
þess að yfirmaður herafla NATO í
Evrópu væri bandarískur hershöfð-
ingi. Hann væri því sannfærður um
að ekki aðeins væri öryggi banda-
rískra hermanna betur borgið með
NATO-aðgerðum heldur væru einnig
meiri líkur á að þær myndu skila
árangri.
Vildi sýna friðarvilja
Leiðtogar Samtaka Afríkuríkja,
Arababandalagsins og Samtaka isl-
amskra ríkja sendu frá sér yfirlýs-
ingu ásamt Boutros Boutros-Ghali,
framkvæmdastjóra SÞ, í gær þar
sem aðildarríki áðurnefndra sam-
taka eru hvött til að leggja fram
herlið til friðargæslu í Sómalíu og
fé til uppbyggingar þar í landi.
Aideed sagði á blaðamannafundi
sem hann hélt á leynilegum stað í
Mogadishu skömmu áður en her-
mönnunum var veitt frelsi, að hann
hefði sleppt þeim til að sýna friðar-
vilja sinn. Krafðist hann þess á
móti að þeim stuðningsmönnum
hans, sem væru í haldi yrði sleppt.