Morgunblaðið - 15.10.1993, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 1993
Vetrarlegt
ÞEIR sem voru snemma á ferð-
inni í gærmorgun urðu varir
við að vetur var genginn í garð.
þyngjast á Lágheiði strax í gær-
morgun og var hún ekki fólks-
bílafær er á Ieið daginn og hið
sama var upp á teningnum varð-
andi Öxarfjarðarheiði, en hún var
jeppafær.
• •
Okumenn fóru gætilega á sumardekkjum í fyrsta vetrarveðrinu
Umferð var
óhappalaus
MIKIL hálka var á vegum norðanlands í gær en umferð
gekk áfallalaust fyrir sig. Ekki var fólksbílafæri yfir
Lágheiði og Öxarfjarðarheiði en Víkurskarð var sandbor-
ið.
Bíll valt á Tjörnesi á miðviku-
dagskvöld og er óhappið rekið til
hálkunnar sem þar var. Þrennt
var í bílnum og sluppu allir án
meiðsla, en bíllinn er nokkuð
skemmdur eftir veltuna. Hjá lög-
reglu á Húsavík fengust þær
upplýsingar að mikil hálka væri
í bænum og eins í kring en fyrir
utan bílveltuna á miðvikudags-
kvöld var umferðin óhappalaus.
Götur sandbornar
Tvö minniháttar óhöpp urðu í
umferðinni á Akureyri, tveir bílar
skullu saman í kjölfar hálkunnar
og bíll rann af hennar völdum á
umferðarskilti, en að öðru leyti
var umferðin óhappalaus. Gunn-
ar Randversson, varðstjóri lög-
reglunnar, á Akureyri sagði að
ökumenn hefðu varið varlega í
fyrstu hálku vetrarins. Helstu
umferðargötur voru sandbornar
strax í býtið í gærmorgun.
Sævar Ingason, lögreglumað-
ur á Dalvík, sagði að mjög hált
hefði verið á götum bæjarins, en
vegurinn milli Akureyrar og Dal-
víkur væri að mestu auður. „Fólk
passar sig í umferðinni í fyrstu
hálkunni, það eru allir á sumar-
dekkjum og því ekur fólk gæti-
Iega. Venjulega er það svo að
umferðin er óhappalaus fyrst
þegar hált er, fólk vantreystir sér
á sumardekkjunum, en þegar
vetrardekkin eru komin undir
bílinn þá telja margir sig færa í
flestan sjó og gæta ekki eins að
sér,“ sagði Sævar.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Morgunverkin
ÖKUMENN þurftu að byrja á því er út var komið í gærmorgun
að hreinsa snjó af bílum sínum.
Ekki fólksbílafæri
Hjá vegaeftirliti Vegagerðar
ríkisins á Akureyri fengust þær
upplýsingar í gær að víða hefði
verið mikil hálka á vegum, en
engar fyrirstöður þannig að ekki
þurfti að ryðja. Þá voru einnig
víða hálkublettir á láglendi. Vík-
urskarð og Ljósvatnsskarð yoru
sandborin í gær og það verður
væntanlegá gert aftur nú í dag
ef ástæða þykir til. Færð fór að
Koggti sýn-
ir í Gallerí
AllraHanda
KOLBRÚN Björgólfsdóttir —
Kogga — opnar listsýningu í Gall-
erí AllraHanda á Akureyri á morg-
un, laugardaginn 16. október kl.
14. Sýningin stendur í tvær vikur.
Kogga er ein af þekktustu lista-
mönnum þjóðarinnar, sem valið
hefur leirinn að viðfangsefni.
Hún stundaði nám við Myndlista-
og handíðaskólann í Reykjavík og
síðar Skolen for brugskunst í Kaup-
mannahöfn á árunum 1969 til 1975
og við Hoystack School of Art í
Maine í Bandaríkjunum árið 1984,
sem styrkþegi frá sjóði Pamelu Bre-
ment.
Kogga hefur haldið einkasýningar
og tekið þátt í fjölda samsýninga
heima og erlendis. Að undanförnu
hafa verk eftir hana verið á farand-
sýningunni Art from Above sem far-
ið hefur víða um Bretlandseyjar og
verða verk eftir hana af þeirri sýn-
ingu á meðal muna sem hún sýnir
í Gallerí AllraHanda.
Verk Koggu eru unnin í leir og
samanstanda af listrænni sköpun
þar sem ádeildu og háðs gætir oft
en einnig af vönduðu handbragði og
ákveðnu notagildi.
(FréttatiJkynning.)
Morgunblaðið/Sigurður Björnsson
Göngufólkið
GÖNGUFÓLK í flokki 13 ára og eldri, fremri röð frá vinstri Birna
María, Svava og Lísa, en í efri röð eru frá vinstri Ragnar Freyr,
Egill, Krislján Hauksson þjálfari, Garðar og Árni Gunnar.
Æfingar skíðafólks
komnar í fullan gang
SKÍÐAFÓLK í Ólafsfirði er fyrir nokkru farið að hugsa
fyrir vetrinum þó að enginn sé kominn snjórinn.
Frá Sjávarútvegsdeiidinni á Dalvík - V.M.A.
30 rúmlesta skipstjórnarréttindanámskeið
veróur haldið ef næg þátttaka fæst.
Innritun fyrir 20. október.
Upplýsingar í síma 61 380.
Skólastjóri.
Æfingar hafa staðið í nokkrar
vikur hjá öllum aldurshópum og
þeir eldri hafa reyndar æft í allt
sumar. Eins og fyrri daginn er
gangan vinsælust hjá unglingun-
um. Kristján Hauksson þjálfar nú
göngufólk hjá Skíðadeild Leifturs
og sagði hann í samtali við Morg-
unblaðið að enn sem komið er
væri væri áherslan á þrekþjálfun.
Æfingar eru 3-4 sinnum í viku
og standa í einn til einn og hálfan
tíma í senn. gg
-------» » ♦--------
■ POPPHLJÓMSVEITIN
Pláhnetan er að hefja haustferða-
lag sitt um sveitir landsins og á
laugardagskvöldið 16. október leik-
ur hljómsveitin fyrir Norðlendinga
í Siallanum á Akurevri.
Afturgöngur eftir
Ibsen frumsýndar
AFTURGÖNGUR eftir Henrik Ibsen í leikstjórn Sveins Einarsson-
ar verða frumsýndar á fjölum Samkomuhússins á Akureyri í
kvöld, föstudagskvöldið 15. október.
Afturgöngur er fjölskylduharm-
leikur, þar sem vikið er að þremur
atriðum, ónefndum sjúkdómi, upp-
reisnargirni konunnar og mögu-
legum sifjaspellum. Þetta leikverk
Ibsens er nú eitt af umtöluðustu
leikritum sem sýnt er á leiksviðum
víða um heim og það mest leikna
af verkum hans.
Sýning Sveins Einarssonar á
Afturgöngunum í Kaupmanna-
höfn á síðasta ári þótti ein athygl-
isverðasta leikhúsupplifun í Dan-
mörku og kepptust leikhúsgagn-
rýnendur við að lofa sviðsetningu
hans.
Höfundur leikmyndar er Eiín
Edda Árnadóttir, en þetta er í
fyrsta sinn sem hún starfar með
Leikfélagi Akureyrar, Ingvar
Björnsson hannar lýsingu, en
Bjarni Benediktsson frá Hofteigi
gerði þýðinguna.
Leikarar í sýningunni eru fimm.
Sigurður Karisson leikari hjá Leik-
félagi Akureyrar fer með hlutverk
séra Mandersar, frú Alving er leik-
in af Sunnu Borg og Ósvald son
hennar leikur Kristján Franklín
Magnús sem leikur í fyrsta sinn
hjá LA líkt og Rósa Guðný Þórs-
dóttir sem er í hlutverki Regínu,
en hún er fastráðin hjá LA og þá
er Þráinn Karlsson í hlutverki
Engstrands snikkara.
Frumsýning verður sem fyrr
segir í kvöld, en önnur sýning er
annað kvöld, laugardagskvöldið
16. október, og hefjast sýningar
kl. 20.30.
HllPg’clllg’tl Morgunblaðið/Rúnar Þór
KRISTJÁN Franklín Magnús sem nú leikur í fyrsta sinn hjá
Leikfélagi Akureyrar í hlutverki sínu í Afturgöngunum eftir
Ibsen.