Morgunblaðið - 15.10.1993, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 1993
HEILSA OG
HEILBRIGÐI
í PERLUNNI9. -17. OKT.
Opið: Virka daga kl. 17-22, laugard.
ogsunnud. kl. 13-19.
ÓKEYPIS AÐGANGUR
Dagur helgaður
krabbameinslækningum
Excel 4.0
Macintosh og Windows: 25.-29. okt. kl. 9-12
Access gagnagrunnurinn
18. - 22. október kl. 16-19
FileMaker Pro
18. - 22. október kl. 16-19
Quark Xpress
Macintosh og Windows: 18.-22. okt kl. 13-16
PageMaker
Macintosh og Windows: 25.-29. okt kl. 13-16 g
Macintosh f. byrjendur s
25.-29. októberkl. 16-19
System 7.0 og net
18.-20. októberkl. 9-12
Windows 3.1
2S.-27. október kl.16-19
Word námskeið
Macintosh og Windows: 19.10-2.11 kl. 19:30-22:30
Tölvu- og verkfræöiþjónustan
Grensásvegi16
Sími 68 80 90
1^ 1993^1
í KVÖLD
KL. 21.00
SÓLON
ÍSLANDUS
DIE FIDELEN
MUNCHENER
VITINN, SANDGERÐI
Vanir menn ásamt Þuríði
Sigurðardóttur.
PIZZA BARINN,
BREIÐHOLTI
Dúettinn 66%
AKUREYRI
Allir betri bjórstaðir.
SERPANTANIR
^ ^ I -^"Borgartúni 29
DVERGLILJUR
Crocus
Blóm vlkunnar
Umsjón: Agústa Björnsdóttir
Þáttur nr. 280
Nú á miðri „laukatíð" sýnist
ekki úr vegi að rifja upp eitthvað
af þeim fróðleik um dvergliljur
sem Kristinn Guðsteinsson, sá
fjölfróði ræktunarmaður, miðlaði
þættinum fyrir fáum árum:
„Dvergliljur eða krókusar eins og
þær eru oftast nefndar, eru lág-
vaxnar jurtir sem blómstra
snemma að vorinu og eru meðal
fyrstu vorblóma í garðinum. Þær
eru hnúðjurtir af sverðliljuættinni
og hafa margar reynst harðgerðar
og langlífar. Algengust eru stór-
blóma afbrigði af tegundinni
Crocus vernus sem vex villt um
stóran hluta S- og Mið-Evrópu,
oft hátt til fjalla, er skipt í tvær
undirtegundir. Önnur þeirra er sú
dverglilja sem algengust er í Alpa-
fjöllunum og vex þar í 600-2500
m hæð. Hún er sjaldan ræktuð í
görðum og erlendis er hún talin
erfið í ræktun. Hér á landi þrífst
hún þó ágætlega þar sem loftslag
hér er líkt því sem hún á að venj-
ast í heimkynnum sínum. Eins og
áður er sagt eru blómstóru af-
brigðin algengust og hafa verið
ræktuð hér um langan aldur.
Blómin eru í ýmsum blæbrigðum
fjólublárra lita og stundum eru
þau alveg hvít. Nefna má afbrigð-
ið „Remembrance", með Ijósfjólu-
blá blóm, „Flower Record" dökk-
fjólublá, „Jeanne de Arc“ hvít og
„Striped Beauty" með hvít blóm
með fjólubláum röndum. Nokkrár
tegundir dverglilja bera gul blóm,
og langalgengust þeirra er garða-
afbrigðið „Large Dutch Yellow"
eða „Golden Yellow“. Það er afar
harðgert og fjölgar sér ört. Af
smáblóma dvergliljum, sem oftast
eru með gulum eða hvítum blóm-
um má t.d. nefna „E.P. Bowles“
og „Cream Beauty". „Snow Bunt-
ing“ er með hvítum blómum og
hefur reynst afar vel. Við ræktun
Crocus vernus „Striped Be-
auty“.
hefur sú tegund blandast annarri
og við það orðið til mörg falleg
afbrigði með bláum blómum, eins
og „Princess Beatrix", „Blue Pe-
arl“, „Blue Peter“ o.fl. o.fl., einn-
ig má nefna nýlegt afbrigði „Prins
Claus“.
Þó að dvergliljur séu harðgerð-
ar, langlífar jurtir, er ýmislegt
sem hafa þarf í huga við ræktun
þeirra. Velja þarf hlýjan og sólrík-
an vaxtarstað vegna þess að
blómin opnast ekki til fulls nema
í sólskini eða hlýju veðri. Jarðveg-
urinn þarf að vera vel framræst-
ur, helst sandblendinn. Smáblóma
tegundir er best að rækta í stein-
hæðum eða upphækkuðum beðum
þar sem frárennsli er öruggt. Hér
á landi hefur reynst vel að setja
hnúðana fremur grunnt niður.
Stórblóma afbrigðin er nóg að
hylja með 3-4 sm þykku moldar-
lagi, smáblóma þannig að aðeins
2-3 sm moldarlag hylji þá. Grunn
niðursetning hefur örvandi áhrif
á fjölgun hnúðanna. Of djúp nið-
ursetning getur tafið fyrir blómg-
un um langan tíma, jafnvel mörg
ár og einnig valdið rotnun og
dauða hnúðanna. Við niðursetn-
ingu er hæfilegt að bilið milli
hnúðanna sé 5-10 sm. Á 3-4 ára
fresti þarf að taka hnúðana upp,
vegna fjölgunar þeirra sem oft
er mikil. Það er gert þegar blöð
taka að gulna, en þó best áður
en þau eru alveg visnuð burt. Að
lokinni þurrkun og hreinsun eru
hnúðarnir settir niður aftur annað
hvort strax eða þegar líður á
haustið.
Meðlæti með köldu kjöti
Heimilishorn
Bergljót Ingólfsdóttir
Það getur verið þægilegt að hafa
kjötið tilbúið og bera fram kalt og
þá með heitu eða köldu meðlæti.
Þægilegra getur það varla verið svo
ekki fari of mikill tími í matseld,
ekki síst þegar boðið er í mat. Kalt
svínakjöt, t.d. bayon skinka er af-
bragðs matur, kalt Londonlamb er
líka ágætt til þeirra nota.
Sellerísalat með ananas og hnetum
25Ó g rótarsellerí, (seljurót)
300 g niðursoðinn ananas
'h dl brytjaðar möndlur
2 msk. majones
1 dl kaffnjómi
sýrður ijómi, (að smekk)
'h tsk. salt
örlítill pipar.
Sellerírótin afhýdd og skorin í ca.
sm þykka bita sem soðnir eru í salt-
vatni í nokkrar mínútur. Látið renna
vel af bitunum eftir suðu og kælið.
Ananasinn skorinn í litla bita og
blandað saman við selleríið og möndl-
unum stráð yfir. Majones, ijóma og
sýrðum ijóma blandað saman og
kryddi bætt í eftir smekk. Öllu bland-
að saman. Ætlað fyrir 4.
Blómkál með steinseljusóu
1 blómkálshöfuð (ca. 500 g)
vatn, salt
2 msk. hveiti
3 'h dl mjólk + blómkálssoð
'k tsk. salt
örlítill pipar
1 dl rifínn ostur
steinselja (persille)
Blómkálið snöggsoðið, hveiti og
mjólk hrært saman í potti, suðan lát-
in koma upp og þynnt út með blóm-
kálssoðinu, bragðbætt með kryddi.
Ostinum og brytjaðri steinseljunni
bætt út í. Heitri sósunni hellt yfír
heitt blómkálið um leið og borið er
fram. Ætlað fyrir 2 -3.
Kartöflusalat
Venjulegt kartöflusalat, búið til úr
köldum kartöflum, majones og sýrð-
um ijóma, er gott með köldu kjöti.
Gott er að hafa vel útilátinn brytjað-
an lauk í og krydda eftir smekk.
wmmmmsmmammmmaumm
c
/œtiu/aí/^, /cuuja/x/ujx- oí/ m/f/uu/qt/rs/wö/c/t o/tó/e/1
Á hlaðborði eru fjölbreyttir réttir, sem ættu að koma sumum
skemmtilega á óvart en gleðja aðra, sem til þekkja.
. Forréttir:
j
Rhl, , Fftirréttir:
™£^ZrMkÍr0S,ar
- SANNARLEGA TlLEFNl TIL AÐ FARA ÚT AÐ BORÐA!
Ath. Pantið tímanlega, því villibráðarhlaðborðið
verður AÐEINS í OKTÓBER.
Verð2.950,- kr.
Borðapantanir og
upplýsingar
í síma 91-29900.
-lofar góóu!
Innanlandslína Flugleiða
Farpantanir og sala farmiða í innanlandsflugi.
Upplýsingar um ferðargjöld og ferðir innanlands.
Opið alla daga frá
FLUGLEIÐIR
kl. 08.00 - 18.00. INNANLANDS
HARÐVIÐARVAL HF.
KRÓKHÁLSI 4 R. SÍMI 671010
MclsiMiat) á beijum degi!