Morgunblaðið - 15.10.1993, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 1993
31
dæmið, þá er um að ræða vega-
lengd sem er styttri en frá Reykja-
vík til Kefiavíkur og fast tilboð á
þessari leið er 250 sænskar krónur.
Þetta var aðeins lítið sýnishorn af
umræðunni í Svíþjóð, en hún snýst
að mestu leyti um svindl, ofbeldi
og okur.
Leigubílstjóri í Malmö, Mikael
Svensson, varpar fram eftirfarandi
spurningu í sænsku blaði í október
sl.: Afnám takmörkunar á fjölda
leigubíla hefur ekki heppnast í
neinu landi. Hvers vegna ætti Sví-
þjóð að vera undantekning?
Frelsi í leiguakstri?
Reynslan í Svíþjóð hefur haft það
í för með sér að umræða um afnám
takmörkunar á hinum Norðurlönd-
unum hefur hjaðnað. Reynsla Svía
er með þeim hætti. Eins var tak-
mörkun á fjölda leigubíla afnumin
í San Diego í Bandaríkjunum fyrir
nokkrum árum. Reynslan þar er
ótrúlega lík reynslunni í Svíþjóð.
Staðreyndin er sú að þegar menn
ætla að ná fram „frelsi“ í leigu-
akstri með því að afnema takmörk-
un eru menn í raun að kalla yfir
sig ófrelsi og óöryggi, bæði fyrir
bílstjóra og viðskiptavini leigubíla.
Reyndar veit ég ekki um neinn stað,
þar sem ríkir meira frelsi í leigu-
akstri en hérlendis, vegna þess, að
hér ríkir strangt aðhald og tak-
mörkun.
Við á íslandi eigum að sjálfsögðu
að haga okkar málum í samræmi
við íslenskar forsendur. En við eig-
um einnig að forðast það að brenna
okkur á sama eldi og aðrir. Það er
sjálfsagður hlutur að fyrirkomulag
leiguaksturs sé í umræðunni og við
eigum að velja þá leið sem við telj-
um skila bestu og ódýrustu þjón-
ustunni.
Við leigubílstjórar værum vafa-
laust tilbúnir til að beijast á frjáls-
um markaði. Nú þegar ríkir meiri
samkeppni á Reykjavíkursvæðinu
en í flestum sambærilegum borgum
á Norðurlöndum. En við leigubíl-
stjórar erum ekki tilbúnir til þess
að láta aðra eyðileggja fyrir okkur
starfsgreinina, en það erum við
hræddir um að mundi gerast ef
takmörkun væri afnumin og verð-
lag gefið fijálst, það kennir okkur
reynsla annarra. Við viljum að við-
skiptavinir okkar telji sig örugga í
bílunum hjá okkur og við viljum
ekki kalla yfir okkur, að ferðamönn-
um sé ráðlagt að forðast að nota
leigubíla vegna okurs.
Sænskir leigubílstjórar segja að
stjórnvöld veiti leigubifreiðastjórum
ekki nægjanlegt aðhald. Það leikur
enginn vafi á því að eftirlit lög-
reglu með leiguakstrinum þarf að
vera öflugt, þar sem takmörkun á
íjölda þeirra er ekki til staðar.
Leiguakstur er eitt besta skálka-
skjól fyrir afbrotamenn af ýmsu
tagi, þ.e.a.s. hafi þeir aðgang að
leiguakstrinum. Þeir hafa ekki
þennan aðgang á íslandi í dag, en
þeir fengju hann, ef takmörkun
yrði afnumin. Það hefur hvergi svo
ég viti til tekist að forða því. Lög-
reglan hefur nóg að gera í dag, svo
við séum ekki að bæta á hana
óþarfa verkefnum.
En það versta við afnám tak-
mörkunar er hættan á því að við-
skiptavinir leigubifreiða teldu leigu-
akstur ekki lengur öruggan ferða-
máta og að þeir þurfi að prútta um
verð í hvert skipti sem þeir taka
leigubíl.
Hérlendis hefur það verið þáttur
í takmörkun á fjölda leigubifreiða
að skylda þá sem hafa atvinnuleyfi
til að vera í sama félagi. Annars
staðar í Evrópu hefur þetta verið
leyst með öðrum hætti. Eftir dóm-
inn í Strassbourg er ljóst að við
þurfum að breyta okkar kerfi og
það verður að sjálfsögðu gert. Það
er skylda stjórnvalda að gera það
á þann hátt að viðskiptavinum
leiguþifreiða verði tryggt öryggi og
ferðaþjónusta skaðist ekki. Eg er
sannfærður um að séu þessi mál
skoðuð af sanngirni mun niðurstað-
an verða öllum í hag, nema þeim
er vilja ekki fara eftir lögum og
reglum í landinu.
1 Þarna er átt við umsjónarnefnd leigubif-
reiða, sem er skipuð af samgönguráðherra.
Höfundur erformaður
Bifrciðastjórafélagsins Frama.
■ VERÐANDI gengst fyrir ráð-
stefnu um utanríkismál laugardag-
inn 16. okt. Ráðstefnan verður hald-
in í Þjóðleikhúskjallaranum og
hefst kl. 10.30. Yfirskrift ráðstefn-
unnar er: Breyttur heimur - hvað
gerðum við? en með henni vill ungt
íélagshyggjufólk í Verðandi opna
umræður um stöðu íslands á fjöl-
þjóðlegum vettvangi og nýja sýn í
alþjóðamál. Ráðstefnan er öllum
opin. Ráðstefnugjald er ekkert en í
hádeginu geta ráðstefnugestir keypt
málsverð á staðnum. Leikhúskjallar-
inn hefur nýverið verið opnaður.
Gerðar hafa verið gagngerar breyt-
ingar á salnum og er hann nú mjög
vel fallinn til ráðstefnuhalds.
■ í VON um að fá fleira kvenfólk
til liðs við aikido-klúbbinn var boð-
ið hingað kvenkennaranum Eleonor
Bjerlemo 2. Dan (Svíþjóð). Hún
hefur stundað aikido sl. 12 ár og
nýtur virðingarí aikidoklúbbum
Stokkhólmsborgar. Hún er nú búsett
í Japan og hefur numið aikido í
Hombu dojo (höfuðstöðvar aikidos-
ins) sl. 5 ár. Eleonor verður starf-
andi við klúbbinn, sem er til húsa í
Gallerí Sporti, Mörkinni 8, fram
til 21. október nk.
■ ÁRSÞING NRH, Norðurlanda-
ráðs lesbía og homma, verður hald-
ið í Norræna húsinu í Reykjavík
dagana 15.-17. október. Ársþingið
sitja fulltrúar frá hinum ýmsu félög-
um lesbía og homma á Norðurlönd-
unum og eiga Samtökin 78 aðild
að ráðinu fyrir Islands hönd.
Vikur T20 Síðast Sæti Titill Flytjandi
Nýtt Nýtt 1 Algjört möst Ýmsir
1 9 2 What's Love Got to do With it Tina Turner
1 1 3 Zooropa U2
1 6 4 Black Sunday Cypress Hill
1 4 5 In Utero Nirvana
1 10 6 River of Dreams Billy Joel
1 12 7 Ten Pearl Jam
1 2 8 Ekki þessi leiðindi Bogomil Font
1 7 9 Debut Björk
Nýtt Nýtt 10 Bat out of Heli Meatloaf
1 5 11 Now 25 Ýmsir
1 3 12 Grensan Ýmsir
1 16 13 Gold Abba
1 8 14 The Album Haddaway
1 11 15 Rokk í Reykjavík Ýmsir
Nýtt Nýtt 16 Promises and Lies UB40
1 14 17 Core Stone Templete Pilots
Nýtt Nýtt 18 Silver Ýmsir
Nýtt Nýtt 19 Music Box Mariah Carey
1 17 20 10 Summoner's Tales Sting
Samtíningur
á toppinn
Platan á toppi íslenska popplistans, Topp XX
listans yfir söluhæstu plötur á íslandi sem
Gallup tekur saman er samtíningur úr ýmsum
áttum sem sannar að fólk kann vel að meta að
fá grúa vinsælla laga í einum pakka. Algjört
möst heitir platan og safnar saman vinsælum
eldri lögum og nýjum sem eru á toppnum í dag.
Safnplötur voru fyrir margt löngu mjög áberandi
í útgáfu hér, en heldur hefur dregið úr á síðustu
árum. Nú hafa þær tekið kipp aftur og
stóruútgáfurnar hafa sent frá sér hverja
safnplötuna af annarri og hyggjast halda því
áfram á meðan einhver fæst til að kaupa.
Greinilegt er og að markaður fyrir safnplötur er
góður um þessar mundir, enda hefur
smáskífumarkaður aldrei náð flugi hér á landi
og ekki allir sem vilja kaupa hljómsveitarplötu
fyrir eitt lag. Safnplatan hentar því vel til að
smala saman vinsælum lögum og jafnvel til að
kynna eitthvað nýtt og kanna vinsældir. Oft hafa
safnplötur verið með nokkrum íslenskum lögum
á til skrauts eða til að kanna undirtektir við nýrri
sveit eða stefnu. Á Algjöru mösti er aftur á móti
ekki nema eitt íslenskt lag að þessu sinni,
Ævintýri, sem SSSól og Todmobile hljóðrituðu
saman til að kynna sameiginlega rokkhátíð
þeirra í Kaplakrika síðsumars.
Soul Asylum hefur notið mikilla
vinsælda með lag sitt Runaway
Train og plata sveitarínnar
hefur selst prýðilega þó ekki sé
hún með þeim 20 söluhæstu.
Myndbandið við Runaway Train
hefur einnig vakið mikla
athygli, þar sem skotið er inn
myndum af týndum börnum og
unglingum i Bandaríkjunum, en
þegar hafa einhver skilað sér
eða haft samband við foreidra
sínaeftiraðsýningará
myndbandinu hófust í MTV.
Annars eru á plötunni erlend lög sem notið hafa
vinsælda í sumar og eru mörg enn á toppnum
eða nálægt honum, eins og Delicate með
Terence Trent D'Arby, Runaway Train með Soul
Asylum, sem nýtur reyndar enn mikilla
vinsælda, Mr. Vain með Culture Club, sem verið
hefur á toppnum um alla Evrópu, Happy Nation
með sænsku diskósveitinni Ace of Base, Slow
Motion með Leilu K., I Don't Like Reggae með
French Connection, More and More með
Captain Hollywood, Faces með 2 Unlimited,
gamli Grease-slagarinn You're the One that I
Want sem þau Debbie Gibson og Craig
McLachlan syngja, La Tristese Durea með
Manic Street Preachers, So Young með Suede,
björtustu voninni í Bretlandi, Voice of Freedom
með Freedom Williams, mikill lagagrautur með
helstu lögum KC & the Sunshine Band, sem
kallast Megamix, The Official Bootleg og loks er
lagið Condemnation með Depeche Mode.
íslenski popplistinn er unninn af Gallup fyrir Morgunblaðið, Sjónvarpið, Rás 2
og Samtök hljómplötuframleiðenda.
íslenski popplistinn-TOPP XX er á dagskrá Sjónvarpsins á föstudögum
og á dagskrá Rásar 2 á laugardögum.
■ SÉRA Bragi Skúlason,
sjúkrahúsprestur flytur erindi um
Sorg og trú í safnaðarheimilinu
Kirkjuhvoli næstu fjóra laugardaga
þ.e. 16., 23., 30. okt. og 6. nóv.
kl. 13-14 hvern dag. Þann 7. nóv-
ember mun sr. Bragi Skúlason,
predika við Guðsþjónustu í Garða-
kirkju og þá verður einnig látinna
ástvina minnst með bænagjörð.
Bræðrafélag Garðakirkju stendur
fyrir þessum fræðslustundum í
samráði við sóknarprest og sóknar-
nefnd. Allir eru velkomnir.
Bílamarkaö urinn
Smiðjuvegi 46E
v/ReykjanesbrauL
Kopavogi, sími
371800
Daihatsu Charade TS EFi 16v ’83, rauð-
ur, 1300 vó, bein innsp., 5 g., ek. aðeins
4 þ. km. Sem nýr. V. 860 þús.
Mazda 323 1.6 station 4x4 '93, rauður,
5 g., ek. aðeins 3 þ. km., álfelgur o.fl. V.
1340 þús., sk. á ód.
Honda Prelude EX 2.0i 16v ’91, grásans,
5 g., ek. aðeins 29 þ. km., rafm. í öllu, hiti
í sætum, álfelgur, sóllúga o.fl. Sem nýr.
V. 1700 þús.
Nissan SLX Sedan '93, rauður, sjálfsk.,
ek. 12 þ., rafm. í rúðum, spoiler o.fl. V.
1180 þús., sk. á ód.
MMC Galant GLSi 4x4 '90, hvítur, 5 g.,
ek. 67 þ., rafm. í öllu, hiti í sætum, saml.
stuðarar, álfelgur o.fl. Toppeintak.
V. 1190 þús.
MMC Lancer GLX '89, sjálfsk., ek. 47 þ.,
spoiler o.fl. V. 780 þús.
o.fl. Óvenju gott eintak. V. 790 þús.
Tilboðsverð
á ýmsum bifreiðum
Wagoneer LTD 4.0L ’89, sjálfsk., m/öllu,
ek. 74 þ. V. 1890 þús.
Honda Prelude 2000 EXi '86, 5 g., ek.
86 þ., leðurinnr. o.fl. V. 750 þús.
Dodge Ramcharger SE’83, rauður/grár,
sjálfsk., ek. 120 þ. V. 690 þús., sk. á ód.
Nissan Micra GL '89, rauður, sjálfsk., ek.
43 þ. V. 480 þús., sk. á ód.
Lada 1500 station '92, hvítur, 5 g., ek.
32 þ. V. 450 þús. stgr.
Subaru Justy J-12 '90, rauður, ek. 35 þ.
V. 750 þús.
Daihatsu Charade CS '88, 5 dyra, 4 g.,
ek. aðeins 34 þ. V. 430 þús.
MMC Pajero langur '87, beinsín, 5 g.,
ek. 107 þ., sóllúga, o.fl. V. 1150 þús.
Fjörug bflaviðskipti: Vantar á skrá og á staðinn góða bfla, helst skoðaða '94. Ath.: Bón og þvottur á staðnum.
VJterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiðill!