Morgunblaðið - 15.10.1993, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 1993
33
Minning
*
Níelsína Osk Daní-
elsdóttir Wiium
Fædd 23. febrúar 1913
Dáin 7. október 1993
í þessum fáu orðum langar mig
til að kveðja ömmu mína, Níelsínu
Ósk Daníelsdóttur Wiium, sem lést
7. október eftir stutta sjúkralegu.
Ég mun ætíð minnast hennar sem
mjög skemmtilegrar og hressrar
konu. Þó að á háan aldur væri kom-
in og heilsan ekki alltaf upp á það
allra besta tókst henni yfirleitt að
halda góða skapinu.
Amma mín var fædd og uppalin
í sárri fátækt og þurfti ætíð að
hafa mikið fyrir lífinu. Hún var
ekki nema 16 ára þegar hún datt
á skautum og eftir tvö ár á sjúkra-
húsi var hún útskrifuð með ævi-
langa fötlun.
Það var árið 1932 sem amma
giftist Sigurði Magnússyni Wiium
og saman áttu þau fjóra syni og
eina dóttur. Það var svo árið 1957
að Sína amma missti manninn sinn
ojg voru þá framundan erfiðir tímar
því að heima voru þrír ungir synir
og varð þá amma að fara út á hinn
harða vinnumarkað verkafólksins.
Vinnudagar ömmu voru langir og
ekki bætti fötlun úr, fiskvinna allan
daginn og ræstingar f skólum öll
kvöld og iðulega um helgar.
Amma Sína var líka hörkukona
sem bein í nefinu. Ég minnist þess
ekki að hafa nokkru sinni heyrt
hana klaga eða bera sig illa.
Lífið lék við ömmu þegar hún
Fæddur 15. nóvember 1946
Dáinn 7. október 1993
í dag kveðjum við ástkæran son
okkar og bróður sem andaðist að
morgni 7. október sl. eftir harða en
hetjulega baráttu. Ekki kvartaði
hann, heldur horfði fram á veginn
og eygði alitaf von um bjarta fram-
tíð.
Sagt er að Guð elski þá er deyja
ungir, en alltaf er erfitt að kveðja
þá er hverfa yfir móðuna miklu fyr-
ir aldur fram.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin strið.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Guðmundur var fæddur á Stokks-
eyri, sonur hjónanna Víglundar Guð-
mundssonar og Ólafar Karlsdóttur,
næstelstur níu systkina. Hann ólst
upp á Stokkseyri og sextán ára gam-
all fór hann að stunda sjóinn og
varð sjómennskan hans ævistarf.
Guðmundur kvæntist eftirlifandi
eiginkonu sinni Aðalheiði Sigtryggs-
dóttur 15. nóvember 1971, en hún
var þá ekkja og fjögurra barna móð-
ir og gekk hann þeim Jóhanni, 01-
geiri, Ellý og Höllu í föðurstað. Árið
1973 eignuðust þau saman dóttur,
Melkorku. Barnabörnin eru fjögur
og voru þau öll augasteinar afa síns
endá var hann mjög barngóður.
Við biðjum Guð að blessa og
styrkja Nönnu, börnin og fjölskyld-
urnar í þeirra miklu sorg.
Þótt ég sé látinn, harmið mig ekki með tár-
um, hugsið ekki um dauðann með harmi
og ótta. Ég er svo nærri, að hvert eitt tár
ykkar snertir mig og kvelur, þótt látinn þig
mig haldið. En þegar þið hlægið og syngið
með glöðum hug, lyftist sál mín upp í mót
til ljóssins. Verið glöð og þakklát fyrir allt
kynntist seinni afa mínum, honum
Jóni Bergmann, árið 1973. Fóru þá
í hönd betri tímar og bjó amma
mín við mikið ástríki og umhyggju-
semi þessa góða manns. Á þessum
árum voru öll börn ömmu farin að
heiman og barnabörnunum fjölgaði.
Móðir mín og faðir minn, sem er
næstyngsti sonur Sínu ömmu, slitu
samvistir á þessu tímabili og þá
reyndust amma og afi mér, bróður
mínum og föður einstaklega hjálp-
leg og varð af þeim sökum samband
okkar mjög náið. Voru þau alltaf
tilbúin að hjálpa til og heimili þeirra
stóð okkur alltaf opið.
Fátt var eins gott og að koma á
Baldursgötuna þar sem þau bjuggu
lengst af og fengum við alltaf jafn-
hlýjar móttökur og stóð aldrei illa
á. Þau áttu alltaf góða bíla og má
segja að amma hafi verið haldin
hálfgerðri bíladellu. Það voru ófá
skiptin sem afi og amma óku með
mig og son minn hingað og þangað
í ýmsum erindum, en afi tók litla
Símon frá fyrstu stund sem sínu
eigin barnabarni.
Það var þungbært fyrir ömmu
að sjá á eftir afa árið 1990, enda
var afi einstakur maður sem öllum
þótti vænt um.
Síðastliðin þrjú ár hafa eflaust
verið ömmu erfið en það var auðsjá-
anlegt að söknuðurinn eftir afa var
mikill því hún talaði stöðugt um
hann í bréfum sínum til mín. Veit
ég að safnaðarstarf við Grensás-
sem lífið gefur, og ég, þótt látinn sé, tek
þátt í gleði ykkar yfir lífínu.
(Höfundur ókunnur)
Við trúum því að þeir látnu séu
ekki horfnir að fullu, þeir eru aðeins
farnir á undan.
Kæri Gummi, blessuð sé minning
þín, við þökkum þér fyrir allt.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vöm í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Þýð. S. Egilsson).
Mamma, pabbi, systkini
og fjölskyldur þeirra.
Elskulegur frændi minn, Guð-
mundur Karl Víglundsson eða
Gummi, er dáinn.
Ég þakka allt frá okkar fyrstu kynnum.
Það yrði margt, ef telja skyldi það.
í lífsins bók það leyfir samt í minnum,
er letrað skýrt á eitthvert hennar blað.
Ég fann í þínu heita stóra hjarta,
þá helgu tryggð og vináttunnar ljós,
er gerir jafnvel dimma daga bjarta,
úr dufti lætur spretta lífsins rós.
(í vökulok eftir Margréti Jónsdóttur.)
Þegar þú ert sorgmæddur skoðaðu þá aftur
huga þinn, og þú munt sjá, að þú grætur
vegna þess, sem var gleði þín.
(Ur Spámanninum.)
Ég krýp og faðma fótskör þína,
frelsari minn, á bænastund.
Ég legg sem barnið bresti mína,
bróðir, í þína líknarmund.
Ég hafna auðs og hefðar völdum
hyl mig í þínum kærleiks öldum.
Ég bið guð að styrkja alla ástvini
hans. Blessuð veri minning þín.
Hjördís frænka.
Kveikt er ljós við ljós,
burt er sortans svið.
Angar rós við rós,
opnast himins hlið.
Niður stjörnum stráð,
engill fram hjá fer.
kirkju var það sem hjálpaði ömmu
að takast á við sín einmanalegu ár
og eiga prestarnir þar, þeir Halldór
og Gylfi, miklar þakkir skildar.
Ég hringdi í ömmu ekki alls fyr-
ir löngu og baðst þá gistingar hjá
henni þegar ég kæmi til Islands
eftir áramót. Því miður fékk ég
ekki að upplifa þá ánægju, en þá
sagði amma að hana hefði dreymt
afa Jón sl. nótt og hvort það væri
ekki undarlegt. Hún vildi nú helst
bara fá að fara bráðum og bað Guð
um að gefa það að hún fengi held-
ur að fara en að verða alveg heilsu-
laus. Guð hefur bænheyrt hana
ömmu mína og þó við sitjum hér
fyllt tómi, sorg og söknuði, er gleð-
in samt mikil yfír því að þetta fór
eins og amma vildi sjálf. Nú er hún
í tryggum höndum hjá Guði og
þeim sem stóðu henni næst.
Bestu þakkir amma mín fyrir
alla hjálp, vináttu, hlýju og ást sem
þú hefur veitt mér og bróður mín-
Drottins nægð og náð,
boðin alþjóð er.
Guð er eilíf ást,
engu hjarta er hætt.
Ríkir eilíf ást,
sérhvert böl skal bætt.
Lofið guð, sem gaf,
þakkið hjálp og hlíf.
Tæmt er húmsins dhaf,
allt er ljós og líf.
(Stefán frá Hvítadal)
Elsku Gummi frændi, takk fyrir
allar góðar stundirnar þegar ég var
lítil og allar stundir sem við áttum
saman. Guð blessi þig.
Elsku Nanna, amma, afi og fjöl-
skyldur. Guð styrki ykkur og blessi
í ykkar miklu sorg.
Kær kveðja,
Kristín Jóhanna.
um, föður og syni. Þú munt alltaf
lifa í hjörtum okkar og huga. Að
lokum kveð ég þig elsku amma mín
og sendi þér þennan sálm:
Ég lifi’ í Jesú nafni,
í Jesú nafni’ eg dey,
þó heilsa’ og líf mér hafni,
hræðist ég dauðann ei.
Dauði, ég óttast eigi
afl þitt né valdið gilt,
í Kristí krafti’ eg segi:
Kom þú sæll, þá þú vilt.
(H.P.)
Linda Ósk Símonardóttir Wiium.
Hún amma mín, Sína Wiium, eins
og hún var oftast nefnd, var mér
af mínum nánustu einna kærust.
Þetta einstaka hörkukvendi sem
fram að sínum síðustu vikum hafði
gegnt mér móðurhlutverki af ein-
stakri natni, meira og minna frá
því að ég var sjö ára gamall, en
þá missti ég hana móður mína.
Hún amma mín kæra var alin
upp í sárri fátækt og þurfti hún svo
sannarlega að vinna fyrir sínu og
marga ógæfuna upplifði hún á sinni
viðburðaríku ævi. Voru foreldrar
hennar ekki nægum efnum búnir
til að halda henni heimili og var
hún send í fóstur fyrir fermingar-
aldur. Er hún var sextán ára gömul
datt hún illa á skautum og varð
varanlega stíft hné afleiðing þess.
Já, hún amma kunni takt lífsins,
auk alls þessa missti hún tvo kæra
eiginmenn á ferðinni. Sinn fyrri,
Sigurð Magnússon, missti hún árið
1957 og skildi hann eftir sig fjóra
syni og eina dóttur. Kom hún þeim
hraustum og heilbrigðum út úr
hreiðrinu og eru allir þessir ungar
heiðarlegir og löghlýðnir sómaborg-
arar rétt eins og ömmu var mikil-
vægast.
Gæfan var henni ömmu minni
kæru ekki alltaf óholl. Árið 1973
kynntist hún amma honum afa
mínum, Jóni Bergman, og bjuggu
þau í hamingju mest megnis á Bald-
ursgötu 20. Man ég mjög eftir mín-
um árum þar. Hvernig hún amma
klappaði alltaf á höndina á mér
þegar við horfðum á sjónvarpið og
gaf mér ætíð miklu meira á diskinn
en ég óskaði eftir.
Árið 1990 varð amma fyrir áfalli
sem hún komst aldrei alveg yfir,
en þá missti hún seinni mann sinn,
hann Jón afa. Það sem mér fannst
einna sárast við andlát hans var
að hann gat ég aldrei kvatt. Amma
var alltaf örlítið beisk, en kveinkaði
sér aldrei. Hún var sannkallaður
jaxl sem kvartaði aldrei.
Ég reyndi að heimsækja hana
sem mest eftir lát afa míns kæra
og urðum við mestu trúnaðarvinir.
Við hlustuðum á sinfóníur saman
og má geta þess að uppáhaldsverk
okkar voru Árstíðirnar eftir Vi-
valdi. Amma einfaldlega lognaðist
út af, tók á sig mynd fugls, gaf sig
á vald tóna, tilfinninga og flaug um
heimsins gresjur er við hlustuðum.
Amma mín kæra er horfín úr
sínum slitna líkama og komin á
framandi slóðir, en það sem amma
kenndi mér og lagði áherslur á mun
ég varðveita alla mína ævi. Heiðar-
leiki, siðferði og hinn eini og sanni
sannleikur voru hennar einkunnar-
orð. Hún var í stanslausri leit að
réttlæti.
Eitt af því sem amma kenndi
mér var að segja ekki orð né tjá
tilfinningar sem ég ekki meinti. Það
hef ég gert að einu minna
„prinsippa".
Hana ömmu mína þótti mér svo
vænt um að engin orð fá lýst. Fyr-
ir hönd okkar föður míns,
Símon H. Wiium.
StdíD
fyrir
steinsteypu.
Á undan timanum
í 100 ár.
Léttir
meöfærilegir
viðhaldslitlir.
Ávallt fyrirliggjandi. '/
þþ
CO Þ. ÞORGRÍMSSON & CO Ármúla 29, sími 38640
FYRIRLIGGJANDI: GÚLFSLÍPIVÉLAR - RIPPER ÞJÖPPUR - DJELUR
- STEYPUSA6IR - HRJERIVÉLAR - SAGARBLðB - Vdnduð Iramleiðsla.
1973
1993
Mifia
KRINGLUNNI 689
LAUGAVEGI 19 o 174
20 ára
Bjóðum 30% afslátt af öllum vörum
dagana 15. -25. október.
Verðdæmi:
Blómapeysur kr. 3.990 2.790
Ullarpeysur kr. 5.990 3.990
Bómullarpeysur kr. 5.990 3.990
Úlpur kr. 9.990 6.990
Hippamussur kr. 3.990 2.790
Blazerjakkar kr. 8.990 6.290
Dragtir kr. 14.990 9.990
Allt nýjar vörur frá London,
París og Amsterdam.
NOVELL
Ráðstefna
Novell ráðstefna verður haldin að Hótel Holiday Inn í dag
15. október kl. 13.00 í boði Novell og Tæknivals.
Fyrirlestrar fara fram á ensku. Þátttaka er öllum opin meöan
húsrúm leyfir og tilkynnist Tæknivali í síma 681665.
]Ág Tæknlval
Skeifan 17, sími 681665
NOVELL umboðiö á ísiandi
Guðmundur Karl Víg-
lundsson - Minning