Morgunblaðið - 15.10.1993, Side 39
MÖRÓUíÍíIlÁDÍÐ FÖSTUdÁGUR ÍS.'OKTÓBÉR1 Hf
Leikkonan Geena Davis og finnski leikstjórinn Renny Harlin gengu
í hjónaband fyrir skömmu.
BRÚÐKAUP
Geena Davis
giftist
leikstjóra
Leikkonan Geena Davis og finnski
leikstjórinn Renny Harlin gengu
í hjónaband fyrir skömmu í Kalifom-
íu. Var víst ekki um neitt smá brúð-
kaup að ræða og segja sögur að
kostnaður hafi alls verið í kringum
sjö hundruð þúsund dollara (um 50
milljónir íslenskra króna). Meðal ann-
ars var leigð flugvél sem gaf frá sér
reyk og myndaði hjarta á himninum,
auk þess sem gestir gátu farið á bak
hesta og fíla, svo eitthvað sé nefnt.
Um tvö hundruð gestir mættu til
þriggja daga hátíðahalda, þar sem
bæði brúðkaupið og ýmiss konar
skemmtun fór fram undir berum
himni. Að sögn viðstaddra endaði
brúðkaupsveislan með því undir
morgun að finnskir ættingjar Rennys
hentu gestum út í sundlaugina. Virt-
ust menn taka því vel og höfðu mikla
skemmtan af. „Ég hef aldrei á ævi
minni séð neina brúðkaupsveislu í lík-
ingu við þessa,“ varð einum gestanna
að orði eftir veisluna.
Nemendur frá Stórutjarnaskóla standa lengst til vinstri, siðan koma sigurvegararnir frá Gagnfræða-
skóla Sauðárkróks, en lengst til hægri eru nemendur Seljaskóla.
H J ÓLREIÐ AKEPPNI
Nemendur frá Sauðárkróki sigruðu
Sveit Gagnfræðaskóla Sauðár-
króks hreppti fyrsta sæti í hjól-
reiðakeppni, sem fram fór á vegum
Bindindisfélags ökumanna, Umferð-
arráðs, lögreglunnar og menntamála-
ráðuneytisins. Fór úrslitakeppnin
fram í nágrenni Perlunnar síðastlið-
inn laugardag, þar sem keppt var í
góðakstri og skriflegum spurningum.
------------.. ..................
GÆÐAFLÍSAR Á GÓÐU VERÐI
* -
Stórhöfða 17, við Gullinbrú,
sími 67 48 44
Stretsbuxur
kr. 2.900
Mikið úrval af
altskonar buxum
Opib á laugardöaum
kl. 11-16
HARÐVIÐARVAL HF.
KRÓKHÁLSi 4 R. SÍMI 671010
Hlutu nemendur að launum íslensku
alfræðibókina frá bókaútgáfunni Erni
og Örlygi.
I öðru sæti lenti sveit Stórutjarna-
skóla, sem fékk að launum útvarps-
tæki með geislaspilara frá Sjónvarp-
smiðstöðinni og í þriðja sæti varð
sveit Seljaskóla. Hlaut skólinn að
launum tölvuborð frá Pennanum.
Hjólreiðakeppnin hefst með spurn-
ingakeppni 12 ára barna út um allt
land í mars árlega. í framhaldi af
því hefst keppni í milliriðlum og tóku
4.000 nemendur þátt í henni. Síðan
er keppt í fjórum riðlum og þeir sem
þar standa sig best taka síðan þátt
í úrslitakeppninni. Að þessu sinni
voru það ijórtán börn frá sjö skóium.
og
Mdjóiianiivringarnir
ÍKVÖLD
Egill Ólafsson og Bergþór Pálsson
skemmta matargestum um helgina
Borðapantanir í síma 689-686
Fyrirlestrar í Perlunni
16. október á sýningunni
HEILSAOG HEILBRIGÐI
sem eru tileinkabir
óhefbbundnum leibum til heilbrigöis
Sérstakt heilsufcedi verdur á bodstólum í hádeginu.
Upplagt tcekifceri að kynnast bráðsnjöllum heilsuréttum.
í lok hvers fyrirlesturs gefst gestum kostur á að leggja
spurningar fyrir fýrirlesarana.
Allir velkomnir — Ókeypis.
Eftirtaldir aðilar kostuðu þessa auglýsingu: Eðalvörur,
Betra líf, Heilsubúðin, Perlan, Nýaldarsamtökin.
Af því tilefni gefst gestum sýningarinnar kostur á
að hlusta á eftirfarandi fyrirlesara í ráðstefnusalnum
í kjallara Perlunnar:
Kl. 13.00 Guðrún Bergmann
NÝ STEFNA í HEILBRIGÐISMÁLUM
Kl. 13.45 Hallgrímur Þ. Magnússon
FÆÐA, HEILSA 0G HEILBRIGÐI
Kl. 14.30 Sif Ingólfsdóttir
NÆRING, BÆTIEFNI0G SÝRUSTIG
LÍKAMANS
Kl. 15.15 Einar Logi Einarsson
GRASALÆKNINGAR Á ÍSLANDI
0G VÍÐAR
Kl. 16.00 Selma Júlíusdóttir
SAGA 0G ÁHRIFILMKJARNAOLÍU
Kl. 16.45 Ævar Jóhannessson
LÚPÍNUSEIÐI VIÐ KRABBAMEINI
Kl. 17.30 Einar Þ. Ásgeirsson
ÁHRIF SEGULSVIÐSMENGUNAR
Á HEILSUNA
Kl. 18.15 Guðrún Óladóttir
REIKI HEILUN