Morgunblaðið - 15.10.1993, Page 46
46
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 1993
KNATTSPYRNA / HEIMSMEISTARAKEPPNIN
Englendingar æfir vegna frammistöðu dómarans í leiknum gegn Hollendingum
Jólasveinn-
inn býr í
Smálöndum
— sagði lands-
liðsþjálfari Svía
Svíar sigruðu Finna og gull-
tryggðu sér sæti í úrslitun-
um í BandaríHjunum næsta sum-
ar. En ekki á þann hátt sem þeir
höfðu reiknað með. „Þetta siær
öllu við! Nú trúi ég á jólasveininn
— hann hlýtur að búa í Smálönd-
um,“ sagði Tommy Svensson,
þjálfari Svía eftir að öll úrslitin í
6. riðli lágu fyrir. Svíar unnu
Finna 3:2 í leik sem þótti langt
frá því góður en síðan kom í ljós
að Frakkar höfðu tapað á heima-
velli, 2:3, fyrir ísraelum og þá
gátu Svíar fyrst fagnað fyrir al-
vöru. Martin Dahlin og Henrik
Larsson, sem gerðu mörk Svía
gegn Finnum, öll í fyrri hálfleik,
en þeir eru báðir úr Smálöndunum
í suðurhluta Svíþjóðar.
Svíar eru nú efstir í riðlinum
með einu stigi meira en Frakkar
og tveimur meira en Búlgarir, en
Frakkland og Búlgaría eigast við
í síðasta leik riðilsins, þannig að
Svíar verða annað hvort í fyrsta
eða öðru sæti riðilsins, hvemig
sem sá leikur fer.
Reuter
Koeman átti að fá rautt
GRAHAM Taylor, landsliðsþjálfari Englands, á blaðamannafundi í London í gær. Á veggnum fyrir aftan þjálfarann
hafði verið sett upp risastór ljósmynd af atvikinu úr leiknum á miðvikudag er Ronald Koeman felldi David Platt, og átti
skv. reglunum að fá reisupassann, en slapp með áminningu.
Koeman segist hissa á að
hafa ekki verið rekinn útaf
ÞYSKI dómarinn Karl Josef Assenmacher fékk kaldar kveðjur á
síðum ensku dagblaðanna í gær. Hann dæmdi leik Hollands og
Englands í undankeppni heimsmeistaramótsins í Rottardam í
fyrrakvöld, og þótti standa sig illa; Graham Taylor, þjálfari Eng-
lands, gagnrýndi dómarann harkaiega strax eftir leik og blöðin
tóku hressilega undir í gær. Hollendingar hrósuðu hins vegar
happi, viðurkenndu að þeir hefðu haft heppnina með sér í leikn-
um, en þeir standa nú mjög vel að vígi í baráttunni um sæti f
úrslitakeppninni næsta sumar. Möguleikar Englendinga eru hins
vegar hverfandi.
Graham Taylor hefur oft verið
gagnrýndur harðlega í ensku
blöðunum eftir tapleiki enska lands-
liðsins, en í gær var hann að mestu
látinn í friði, og Assenmacher fékk
þess í stað skammirnar. Þess var
krafist að Alþjóða knattspyrnusam-
bandið (FIFA) rannsakaði frammi-
stöðu hans, en dómarinn þótti gera
afdrífarík mistök með því að vísa
fyrirliða Hollendinga, Ronald Koe-
man, ekki af velli þegar staðan var
enn 0:0. Hann braut þá á David
Platt, fyrirliða Englands, sem kom-
inn var einn í gegn, rétt utan víta-
teigs. Englendingar heimtuðu reynd-
ar vítaspyrnu, en dómarinn hafði
rétt fyrir sér með því að dæma auka-
spyrnu. En þar sem Platt var á auð-
um sjó rændi Koeman hann mark-
tækifæri og skv. reglum er refsing
fyrir það brottrekstur.
Koeman hissa
„Brotið var utan vítateigs. Ég
bjóst við að fá rauða spjaldið og
varð mjög hissa þegar ég snéri mér
við og sá að dómarinn hafði ekki
rekið mig útaf,“ sagði Koeman við
fréttamenn eftir leikinn. Englend-
ingar urðu æfir er hann fékk aðeins
gult spjald, og það var sem salt í
sárið þegar hollenski fyrirliðinn gerði
fyrra mark leiksins aðeins fáeinum
mínútum síðar — maðurinn sem átti
alls ekki að vera inni á vellinum,
eins og Graham Taylor orðaði það.
Englendingar gagnrýndu Þjóðveij-
ann einnig fyrir misræmi í dómum;
leikmaður þeirra hefði t.d. fengið
gult spjald fyrir að fara of snemma
úr varnarvegg er aukaspyrna var
tekin, en Hollendingur sloppið með
sams konar athæfi skömmu áður.
Hollenski þjálfarinn, Dick
Advocaat, viðurkenndi að heppnin
hefði verið með liði hans á miðviku-
dag, en varaði menn sína við of
mikilli bjartsýni. Liðinu dugar jafn-
tefli í Póllandi í síðasta leiknum til
að fara í úrslitakeppnina í Bandaríkj-
unum. Varnarmaðurin Frank de
Boer var hins vegar mjög bjartsýnn
og sagði: „Það ætti ekki að vera
neitt vandamál að komast áfram.
Með svona lið eigum við einfaldlega
að sigra í Póllandi."
Enn ein rósin...
„Við vissum að þið næðuð að stíga
þetta síðasta litla skref. Til ham-
ingju!“ sagði í skeyti sem Gro Harl-
em Brundtland, forsætisráðherra
Noregs, sendi knattspymulandsliði
þjóðarinnar til Póllands, eftir 3:0
sigur gegn heimamönnum í fyrra-
kvöld. Norðmenn voru þar með
komnir í úrslit HM í fyrsta sinn síð-
an 1938, og enn ein rós í hnappagat
norskra íþróttamanna var orðin að
veruleika.
Norskir fjölmiðlar voru mjög
bjartsýnir eftir leikinn. Sumir gengu
svo langt að segja að norska liðið
gæti komið stórkostlega á óvart í
Bandaríkjunum.
GOLF
|| SIGLINGAR
Gott hjá Ulfari í Orlando
Ulfar Jónsson tók þátt í f|ölmehnu golfmóti í Orlando
í Flórída í vikunni. Úlfari gekk illa fyrsta daginn, lék
á 76 höggum en tók sig á og kom inn á 70 höggum
daginn eftir og síðasta daginn gerði hann enn betur og
lauk leik á 69 höggum. Samtals lék hann því á 215
höggum og dugði það honum í 13. til 16. sæti. Fyrir
þann árangur fékk Úlfar um 27 þúsund kr. og hefur
honum þá tekist að vinna til verðlaunafjár í tveimur af
þremur mótum sem hann hefur tekið þátt í.
Mótið í Orlando var síðasta mótið í Bandaríkjunum
fyrir úrtökumótin fyrir þá sem vilja komast að sem at-
vinnumenn og_í mótinu voru margir sem ætla að reyna
fyrir sér þar. Árangur Úlfars er því mjög góður. Næsta
mót hjá kappanum verður eftir tæpan hálfan mánuð.
Úlfar
Firmakeppni
Bridgesambands íslands
Arleg firmakeppni verður helgina 23.-24. okt. nk.
Skróning og nónari upplýsingar hjá
Bridgesambandi Islands í síma 619360.
Endeavour
með forystuna
NÝ-SJÁLENSKA skútan Endeavo-
ur heldur enn forystunni í Whitbre-
ad siglingakeppninni, umhverfis
jörðina. Skúturnar lögðu upp frá
Southampton í Englandi 25. sept-
ember og voru í.gær eftir 18 daga
siglingu komnar að strönd Brasilíu
á leið sinni til Punte del Este í
Uruguay. Skipstjóri á Endevoru er
Grant Dalton en skútan er af gerð-
inni Maxi ketch.
Endeavour hafði í gær siglt um
4.300 sjómílur og átti eftir 1.603
mílur til Punte del Este. Japanska
skútan Tokio, sem Ný-Sjálending-
urinn Chris Dickson stjórnar, var í
öðru sæti, 54 mílum á eftir Ende-
vor. Merit Cup frá Sviss var í þriðja
sæti, 16 mílum á eftir Tokio. Denn-
is Conner á Winston var í 5. sæti.
14 skútur eru með í keppninni á
fyrsta áfanga af sex. Staða efstu
bátanna er þessi:
1. Endeavour (N-Sjálandi).1.603
2. Tokio (Japan)......1.657.
3. Merit Cup (Sviss)........1.673.
4. Galicia 93 (Spáni).......1.741.
5. Winston (Bandar.)........1.748.
6. La Poste (Frakklandi)....1.752.
faöm
FOLK
M ÞORVALDUR Örlygsson
gerði sigurmark Stoke City í leik
gegn ítalska félaginu Cosenza, 2:1,
á Victoria Ground í Stoke á þriðju-
dag. Þetta var í ensk-ítölsku bikar-
keppninni, þar sem mætast lið úr
ensku 1. deildinni og ítölsku 2. deild-
inni.
■ EYJÓLFUR Sverrisson fékk
5. gula spjald sitt á keppnistímabil-
inu um sl. helgi gegn Kaiserslaut-
ern, og tekur því út eins leiks bann
gegn Niirnberg á laugardag.
M ÓLAFUR H. Kristjánsson ,
varnarmaður úr FH, var valinn í
íslenska landsliðshópinn sem fer til
Túnis í dag. Hann kemur inní hóp-
inn fyrir Kristján Jónsson úr Fram
sem er að skoða aðstæður hjá Bodö
í Noregi.
■ TVEIR giskarar, íslenskur og
sænskur, voru með alla 14 leikina
rétta á Eurotips getraunaseðlinum
í fyrradag, og hlýtur hvor rúmar
8,7 milljónir króna. íslenski giskar-
inn keypti seðil á 320 krónur í Vall-
arhúsinu í Keflavík á þriðjudaginn.
Vinningsröðin var þessi: X12, 211,
112, 21111
■ JÚLÍUS Jónosson gerði fimm
mörk og lék mjög vel með Avidesa
er liðið heimsótti Granollers í
spænsku deildarkeppninni í hand-
knattleik um síðustu helgi og sigr-
aði 27:22. Avidesa hefur unnið tvo
af þremur fyrstu leikjum sínum í
deildinni. Geir Sveinsson gerði tvö
mörk gegn sínum gömlu félögum í
Granollers.
■ ÁGÚST Hauksson verður
áfram þjálfari 2. deildarliðs Þróttar
frá Reykjavík í knattspyrnu. Stjórn
knattspyrnudeildar hefur samið við
hann til tveggja ára.
■ MARK Hughes, framheiji Man.
Utd. og landsliðs Wales, var bókað-
ur í HM-landsleiknum gegn Kýpur
í fyrrakvöld, og missir af síðasta
leik Wales í riðlinum, gegn Rúmen-
íu.
I LOU Macari, framkvæmda-
stjóri Stoke, ræddi í gær við for-
ráðamenn Glasgow Celtic í Skot-
landi. Þeir hafa áhuga á að hann
taki við stjórn liðsins, eftir að Liam
Brady sagði upp. Macari er Skoti
og lék með Celtic fyrir margt löngu.
■ PAUL Ince, fyrirliði enska
landsliðsins í knattspyrnu, fékk gult
spjald í leiknum gegn Hollandi í
fyrrakvöld og missir af síðasta leik
liðsins í undanriðli heimsmeistara-
keppninnar, gegn San Marínó.
■ PAOLO Mantovani, forseti ít-
alska kriattspymufélagsins Sampd-
oria, lést í gær, 63 ára. Banamein
hans var hjartaslag.
■ GERARD Houllier, landsliðs-
þjálfari Frakka, segir í viðtali við
íþróttadagblaðið L’Equipe að hann
hafi áhuga á að vera með liðið fram-
yfir HM í Frakklandi 1998. Houlli-
er tók við liðinu af Michel Platini
eftir Evrópukeppnina 1992. Frakk-
ar höfðu ekki tapað leik í meira en
ár þar til í fyrrakvöld, er ísraelar
sigruðu þá í París.
■ ALEN Boksic frá Króatíu var
í gær seldur frá Marseille í Frakk-
landi til Lazio á ítaliu fyrir 70
milljónir franka (um 860 millj. kr.).
Boksic, sem var keyptur fyrir 10
millj. franka frá Hajduk Split í
fyrra, verður þó með Marseille í
næstu þremur leikjum, en reiknað
er með að fyrsti leikur hans með
Lazio verði gegn Napolí 7. nóv.
■ DIEGO Maradona var valinn í
stóran landsliðshóp Argentínu fyrir
HM-leikinn gegn Astralíu, en óljóst
var hvort hann fengi vegabréfsárit-
un. Samkvæmt áströlskum lögum
má meina inngöngu í landið öllum
þeim, sem hafa haft fíkniefni undir
höndum og er Maradona þar á
meðal. Hann fékk þó vegabréfsárit-
un.
I SENEGAL hefur ákveðið að
taka ekki þátt í alþjóða keppni fé-
lagsliða og landsliða í knattspyrnu
í a.m.k. tvö ár eða á meðan mark-
viss uppbyggirg fer fram. Eingöngu
verður tekið þátt í Afríkuleikunum
í mars á næsta ári.