Morgunblaðið - 11.11.1993, Blaðsíða 1
92 SIÐUR B/C/D
STOFNAÐ 1913
257. tbl. 81.árg.
FIMMTUDAGUR II. NÓVEMBER 1993
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Reuter
Fórnarlamb stríðsins
UNGRI konu hraðað á sjúkrahús eftir að hún slasaðist í sprengjuárás á Sarajevo í gær. Fimm létu
lífið og 45 særðust í árásunum. Deilt er um hveijir vörpuðu sprengjum á borgina.
Sprengjuárásum á
Sarajevo linnir ekki
Sarapevo. Brussel. Reuter.
ÞRJU börn og tveir fullorðnir létu lífið og 45 særðust í sprengjuárás-
um á Sarajevo í gær. Þá var aðeins sólarhringur liðinn frá því að
sprengjum var varpað á barnaskóla í borginni, þar sem níu manns,
þeirra á meðal fjögur börn og kennari þeirra, létu lífið. Deilt er
um hveijir vörpuðu sprengjum á borgina, Bosniumenn segja það
vera Serba en þeir hafa staðfastlega neitað því.
Fórnarlömb stríðsins í Bosníu eru
nú orðin um 9.000, aðallega
óbreyttir borgarar. Auk þess hafa
um 55.000 manns særst. Gjör-
gæsludeild sjúkrahúsanna í
Sarajevo var yfirfull af særðu fólki
í gær en blaðamönnum var meinað-
ur aðgangur að henni, þar sem
margir Bosníumenn telja þá hafa
velt sér upp úr þeim hörmungum
sem fórnarlömb stríðsins hafa mátt
þola.
Vijja ekki aflétta
viðskiptabanni
Bandaríkjamenn eru lítt hrifnir
af friðartillögu Frakka og Þjóð-
veija, sem fram kom fyrr í vik-
unni, en hún byggir á því að Serb-
ar láti Bosníumönnum eftir um 3%
lands gegn því að viðskiptabanni á
Serbíu verði aflétt. Telja þeir að
með henni sé verið að umbuna Serb-
um fyrir árásir þeirra á Bosníu.
Frakkar og Þjóðveijar hafa dregið
tillögu sína til baka og kveðast þeir
nú aðeins hafa vilja hvetja Serba
til að taka þátt í að binda endi á
stríðið í Bosníu.
Bobbitt
saklaus
Kjörstjórn heimilar framboð 13 flokka í þingkosningunum í Rússlandi
Átta flokkar fá ekki að
taka þátt í kosuingnnum
Moskvu. Reuter.
KJÖRSTJÓRN í Moskvu heimilaði í gær 13 flokkum að bjóða fram
í þingkosningunum 12. desember en átta öðrum var meinuð þátt-
taka. Kjörstjórnin sagði að flokkarnir átta hefðu ekki skilað undir-
skriftalistum með tilskildum fjölda stuðningsmanna.
Clinton bjartsýnn á
framgang NAFTA
Washington. Reuter.
BILL Clinton Bandaríkjaforseti sagðist í gær viss um að fulltrúa-
deild þingsins myndi staðfesta Fríverslunarsáttmála Norður-Amer-
íku (NAFTA) er atkvæði verða greidd um sáttmálann næstkom-
andi miðvikudag. Akaft hefur verið unnið að því af hálfu forset-
ans að vinna óákveðna þingmenn á hans band, en andstæðingar
sáttmálans þykjast þess vissir að enn sé talsverður meirihluti þing-
deildarinnar andvigur honum.
Bandarísk verkalýðssamtök
hafa haldið uppi hörðum áróðri
gegn staðfestingu NAFTA. Voru
Richard Gephardt, leiðtoga demó-
krata í fulltrúadeildinni, afhentar
undirskriftir 1,9 milljóna félags-
bundinna launþega sem hvöttu til
þess að samkomulagið yrði fellt.
„Þetta er álit almennings, hér tal-
ar þjóðin,“ sagði Gephardt er hann
tók við áskorununum.
Til þess að hljóta staðfestingu
þurfa 218 þingmenn að greiða
atkvæði með NAFTA en fulltrúar
forsetans álitu í gær að enn vant-
aði stuðning um 25 þingmanna til
þess að tryggja framgang sáttmál-
ans.
Clinton sagði sjónvarpskapp-
ræður Als Gore varaforseta og
auðkýfíngsins Ross Perots í fyrri-
nótt staðfesta að með því að segja
sannleikann um NAFTA væri
hægt að sannfæra þjóðina um gildi
sáttmálans. Samkvæmt skoðana-
könnunum, sem gerðar voru eftir
kappræðurnar, fækkaði þeim
verulega sem til þessa hafa sagst
óákveðnir í afstöðunni til NAFTA.
Reyndust 57% fylgjandi sáttmál-
anum miðað við aðeins 34% fyrir
þáttinn. Andstæðingum hafði
fækkað úr 38% í 36% og óákveðn-
um fækkað úr 28% aðspurðra í 7%.
Sjá „Stuðningur við NAFTA
eykst eftir ...“ á bls. 27.
Á meðal flokkanna átta sem
ekki fá að bjóða fram er Rúss-
neska þjóðarsambandið, sem er
undir forystu Sergejs Babúríns,
róttæks þjóðernissinna og leiðtoga
einnar af helstu hreyfingum harð-
línumanna á gamla þinginu.
Hægri öfgamenn í Lýðveldis-
flokknum fá ekki heldur að bjóða
fram. Hinir flokkarnir sex eru all-
ir litlir og nokkrir þeirra umbóta-
sinnaðir lýðræðisflokkar.
Undirskriftalistum stolið?
Flokkarnir áttu að safna undir-
skriftalistum með nöfnum 100.000
stuðningsmanna og fresturinn til
að skila þeim rann út á laugar-
dag. Kjörstjómin fór yfir listana í
þijá daga og komst að þeirri niður-
stöðu að átta flokkanna hefðu
ekki náð tilskildum fjölda stuðn-
ingsmanna.
Forystumenn Rússneska þjóð-
arsambandsins halda því reyndar
fram að lista með 22.000 nöfnum
hafi verið stolið nóttina áður en
fresturinn rann út. Þar hafi verið
að verki sjö vopnaðir menn, þar
af fjórir í búningum öryggissveita
innanríkisráðuneytisins. Formaður
kjörstjórnarinnar sagði að málið
yrði rannsakað og flokkurinn fengi
að bjóða fram ef sannað þætti að
um þjófnað hefði verið að ræða.
Kommúnistaflokkurinn
býður fram
Á meðal flokkanna 13, sem fá
að bjóða fram, eru Kommúnista-
flokkur Rússlands, að minnsta
kosti fimm flokkar umbótasinna,
Borgarasambandið, sem er flokkur
miðjumanna, og Fijálslyndi lýð-
ræðisflokkurinn, hægriöfgaflokk-
ur undir forystu þjóðemissinnans
Vladímírs Zhírínovskíjs.
Sjá „Völd forsetans aukin og
sérstaða lýðvelda...“ á bls. 26.
Manassas, Virginíu. Reuter.
JOHN Wayne Bobbitt var í gær
sýknaður af ákæru um að hafa
nauðgað konu sinni Lorenu, en
hún skar getnaðarlim af honum
sofandi sl. sumar og bar því við
að hann hefði skömmu áður
neytt sig til samræðis.
Kviðdómur skipaður níu konum
og þremur mönnum sýknaði Bobb-
itt, sem er 26 ára, eftir þriggja
daga réttarhöld. Stökk hann hæð
sína í loft upp af fögnuði í réttar-
salnum. Lorena, sem er 24 ára,
hefur verið ákærð fyrir að hafa
valdið manni sínum alvarlegu lík-
amssári af ráðnum hug og á yfir
höfði sér allt að 20 ára fangelsi
verði hún sek fundin. Eftir verkn-
aðinn tók það lækna um 10 stund-
ir að sauma liminn saman. Ber hún
því við, að skyndileg og ómótstæði-
leg hvöt hafi rekið sig til verknað-
arins. Verði það tekið til greina
gæti það talist jafngilda því að um
stundarbijálæði, sem gerir fólk
ósakhæft, hafi verið að ræða.
Rétta
augna-
blikið
BRETINN John
Watkins hlaut í
gær útnefning-
una „áhugaljós-
myndari ársins"
fyrir meðfylgj-
andi mynd af
glóbrystingi að
tylla sér á vatns-
krana í garðin-
um hans. Féll
vatnsdropi úr
krananum við
lendingu söng-
fuglsins smá-
vaxna og sagðist
Watkins hafa
reynt í tvö ár að
fanga augna-
blikið á filmu.