Morgunblaðið - 11.11.1993, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1993
37 ‘
sýnn og heiðarlegur í allri afstöðu
sinni. Þessir þættir persónu hans
skópu honum vináttu og tryggð
bæði innanlands og erlendis. Hann
var kallaður til fjölda trúnaðar-
starfa og það var aldrei efast um
færni hans né dug til starfanna
allrá.
Eftir að kynni okkar urðu meiri,
átti hann til að hringja eða koma
til að ræða um sálarheill einstakl-
inga, sem lent höfðu í erfiðleikum.
Niðurstaða bókhalds og endur-
greiðsla á vöntun var honum aldrei
eina niðurstaða mála. Hann íeit
einnig til tilfinninga og sársauka
þeirra, sem ruglað höfðu saman
eigin fjármunum og vinnuveitenda
og hann vildi veita þeim styrk.
Oftar en ekki setti hann sig inn
í málefni þessara einstaklinga og
lagði þeim lið á sinn hljóðláta og
farsæla hátt. Allt sýndi þetta þá
persónu sem innra bjó með honum.
Hlýja hans og umhyggja náði ekki
aðeins til hans nánustu heldur einn-
ig til þeirra er þurftu liðsinni og
stuðning. En aldrei hafði hann orð
á því liðsinni sem hann gaf og veitti.
Það er heldur ekki háttur kærleiks-
manna, að tala um eigin verk eða
gjörðir.
í fjölskyldu- og einkalífi var hann
kletturinn sem stóð styrkur og
traustur og það var gott að mega
leita til hans. Hann átti ráð og
orð, sem höfðu merkingu og til-
gang. Það var sem hann talaði aldr-
ei ónytjuorð heldur voru orð hans
og gjörðir tengdar þeirri styrku
persónu og lífssýn sam hann átti.
Þar var hann ekki aðeins eiginmað-
ur, faðir og afi, hann var um leið
tryggasti vinur þeirra allra. Vinur-
inn, sem var fús til að leiða og
styðja í öllum þáttum lífsins.
Það er missirinn mestur og
skarðið stærst. En um leið eruð þið
ríkust þeirra minninga, sem aldrei
hverfa. Þið áttuð með honum dýr-
mætustu stundir lífsins og ykkur
vildi hann allt gefa og veita.
Eiginkonu sinni, Kristrúnu Jó-
hannsdóttur, var hann styrkur og
traustur. Ekki kom þetta síst fram
í veikindum hennar, þar sem hann
bar umhyggju hennar og velferð æ
fyrir bijósti. Þannig var það að-
hlynning hennar, sem fyrst var
hugað að, þegar boð kom um starf-
ið í Brussel. Og gleði hans yfir
þeirri aðhlynningu, sem hún fékk
þar var mikil.
Kæra Kristrún, Sigrún, Jói,
Haddi, Siggi og Vala, ég bið þess
að algóður Guð megi styrkja ykkur
og fjölskyldur ykkar í þungum
sporum. Þið áttuð hann og hann
átti ykkur. Ég er þakklátur fyrir
að hafa fengið að eiga vináttu hans
og tryggð með ykkur.
Minning hins ljúfa og trygga
vinar verður mér ætíð ljós og þakk-
lát. Við Unnur sendum ykkur ein-
lægar samúðarkveðjur. Við erum
með ykkur í huganum enda þótt
höf og lönd skilji að um stund.
Guð blessi minningu Halldórs
V. Sigurðssonar, þess trygga og
trúa kærleiks- og mannvinar.
Pálmi Matthíasson.
Síst átti ég von á því fyrir að-
eins þremur vikum síðan, þegar
mér barst bréf frá Halldóri, að það
yrðu okkar síðustu samskipti. í
bréfí Halldórs kvað við léttan tón,
eins og hans var vandi, er hann
lýsti fyrir mér námskeiði í gæða-
stjórnun sem hann hafði þá nýver-
ið setið í Brussel í tengslum við
starf sitt í stjórnarnefnd endur-
skoðunarmála hjá NATO. Raunar
var þetta ekki í fyrsta skipti sem
Halldór sendi mér efni um gæða-
mál, en þau málefni voru honum
mjög hugleikin, einkum í tengslum
við störf endurskoðenda.
Kynni okkar Halldórs hófust á
árinu 1972, er ég réðst til starfa
hjá Ríkisendurskoðun, þá nýkom-
inn frá námi og vinnu í Bandaríkj-
unum. Undir handleiðslu Halldórs
fékk ég að spreyta mig á mikilvæg-
um verkefnum, sem urðu mér góð-
ur skóli. Þarna kynntist ég því
fyrst, hversu ráðagóður Halldór var
og þægilegur í öllum samskiptum.
Síðan hefur mér ávallt verið sérlega
hlýtt til Halldórs og þakklátur fyr-
ir það traust sem hann sýndi mér.
Atvik höguðu þvi svo, að ég var
ekki nema tæpt ár í vinnu hjá Ríkis-
endurskoðun, en leiðir okkar lágu
þó oft saman eftir það vegna endur-
skoðunarstarfsins.
Halldór kaus lengst af að helga
Ríkisendurskoðun starfskrafta
sína, en hann veitti þeirri stofnun
forustu í aldarijórðung. Á þeim
tíma mátti greina miklar framfarir,
raunar róttækar breytingar í
starfsháttum þeirrar stofnunar. Að
þessum breytingum vann Halldór
í áföngum, eins og best fer á, og
ávann hann stofnuninni mikils
trausts. Ég tel raunar að það sjálf-
stæði sem stofnunin fékk, með
breytingum á lögum um hana, hafi
ekki síst fengið fylgi vegna þess
persónulega trausts sem Halldór
naut meðal ráðamanna. Nú er svo
komið að álitsgerðir stofnunarinnar
um hin margvíslegu málefni vekja
jafnan mikla athygli og umræðu.
Hér á Halldór mikinn heiður skil-
inn, þó að fleiri komi hér að sjálf-
sögðu við sögu í svo stórri stofnun
sem Ríkisendurskoðun er.
Halldór var óneitanlega einn af
forustumönnum í stétt löggiltra
endurskoðenda hér á landi. I því
sambandi má t.d. nefna að Halldór
var formaður í Félagi löggiltra
endurskoðenda og einnig var hann
um tíma formaður Norræna endur-
skoðendasambandsins. Þá hafði
Halldór einnig mikil áhrif á mennt-
unarmál endurskoðenda, því að
hann var meðal þeirra sem á sínum
tíma unnu ötullega að því að
menntun endurskoðenda færðist
inn fyrir veggi háskólans.
Við Halldór áttum einnig saman
gott samstarf í prófnefnd löggiltra
endurskoðenda, en hann var for-
maður þeirrar nefndar til nokkurra
ára. í þessu starfi fannst mér Hall-
dór vera umhugað um að sann-
gjarnar og eðlilegar kröfur væru
gerðar til prófmanna; lagði hann
jafnan áherslu á það við meðnefnd-
armenn sína að öll framkvæmd
prófanna væri með þeim hætti.
Ég vil að lokum þakka forsjón-
inni fyrir að hafa mátt kynnast
þeim heiðursmanni sem Halldór
var. Hann var sönn ánægja að
þekkja og eiga samskipti við. Við
Þórlaug sendum Kristrúnu, eigin-
konu Halldórs, og börnum þeirra
okkar innilegustu samúðarkveðjur.
Við minnumst Halldórs með hlýhug
og virðingu.
Stefán Svavarsson.
Halldór V. Sigurðsson, löggiltur
endurskoðandi, er iátinn 69 ára að
aldri. Félag löggiltra endurskoð-
enda hefur þar með séð á bak mikil-
hæfum og virtum félagsmanni, sem
af þrautseigju og áhuga setti svip
sir.n á félagsstarfið og störf lög-
giltra endurskoðenda hér á landi í
meira en 30 ár.
Halldór, sem var fæddur og
uppalinn á Akranesi, lauk verslun-
arprófi frá Verslunarskóla íslands
árið 1946. Eftir störf á Endurskoð-
unarstofu Björns Steffensen og Ara
Ó. Thorlacius á árunum 1951 til
1954 fékk Halldór löggildingu sem
endurskoðandi 1954. Á árunum
1965 til 1969 rak hann eigin endur-
skoðunarstofu en var síðan skipað-
ur ríkisendurskoðandi 1. september
1969. Því starfí gegndi Halldór
samfellt í yfir 20 ár, eða þar til
að hann tók sæti í Stjórnarnefnd
endurskoðunardeildar NATO í
Brussel á sl. ári. Halldór var afar
farsæll í störfum sínum og naut
mikill virðingar samstarfsmanna.
Undirritaður starfaði undir stjórn
hans í nokkur ár og minnist þess
tíma með ánægju og söknuði.
Halldór var alla tíð mjög virkur
félagsmaður í Félagi löggiltra
endurskoðenda og það naut starfs-
krafta hans og hæfileika á marg-
víslegan hátt. Trúnaðarstörfin voru
mörg en hér verður þó einungis
fátt eitt upp talið. Hann sat í stjórn
félagsins frá 1958 til 1968, þar af
sem formaður árin 1965 til 1968.
Hann sat í Álitsnefnd félagsins frá
1965 til 1982 og var fulltrúi félags-
ins í stjórn Norræna endurskoð-
endasambandsins frá 1959 til
1969. Halldór var síðan forseti
þess sambands árin 1978 og 1979.
Halldór átti sæti í nefnd sem
samdi frumvarp um löggilta endur-
skoðendur, en það frumvarp varð
að lögum árið 1976. Hann var jafn-
framt í tvígang formaður próf-
nefndar löggiltra endurskoðenda,
fyrst árin 1978 til 1979 og síðan
aftur frá 1983 til 1992. Halidór
hefur því bæði í félagsstörfum sín-
um sem og í opinberum störfum
stuðlað mjög að mótun og framþró-
un hlutverks og starfa löggiltra
'endurskoðenda hér á landi og er
til efs að nokkur einn maður hafi
til þessa lagt jafn mikið af mörkum
í því efni. Allir endurskoðendur og
Félag löggiltra endurskoðenda
standa því í mikilli þakkarskuld við
Halldór. Minningin um hann mun
lifa í félagi okkar og störf hans
munu verða skráð á söguspjöld
þess.
Stjórn Félags löggiltra endur-
skoðenda sendir hér með hinum
látna sína hinstu kveðju og vottar
eiginkonu Halldórs, frú Kristrúnu
Jóhannsdóttur, og börnum þeirra
innilega samúð.
Félag löggiltra
endurskoðenda,
Rúnar B. Jóhannsson,
formaður.
Menn halda stundum skammt á leikinn liðið,
er lífið dregur tjaldið fyrir sviðið
og skilur milli skars og kveiks.
En stór og fópr stjörnuaugu skína,
er stormsins svanir hvíla vængi sína
til hærra flugs, til fegra leiks.
(Davíð Stefánsson)
Að ferðalokum er rétt að líta
yfir farinn veg og rifja upp þá
áfanga sem minnisstæðastir voru
Halldór var ekki aðeins yfirmaðu
minn og góður samstarfsmaðu',
heldur átti ég ásamt konu minni
þess kost að ferðast nokkuð með
Halldóri og Kristrúnu konu hans á
þeim tíma er við unnum saman í
Ríkisendurskoðun. í slíkum ferðum
kynnast menn hver öðrum með
nokkuð öðrum hætti en gengur og
gerist í hinum daglegu samskipt-
um. Þetta á þó sérstaklega við um
þær ferðir er stóðu yfír í lengri
tíma, en við fórum í nokkrar slík-
ar. Allt voru þetta afar ánægjuleg-
ar ferðir og eru mér sérstaklega
minnisstæðar ferðir til Genfar, en
þarf fengum við tækifæri til að
ferðast lítillega um fagrar og frið-
sælar sveitir og fjallaþorp í næsta
nágrenni borgarinnar.
Halldór, með sitt dagfarsprúða
fas, átti alltaf auðvelt með að kynn-
ast fólki og ávinna sér vinskap og
virðingu þss. Þetta varð ég
áþreifanlega var við í samstarfi
okkar við systurstofnanir á Norður-
löndum en þar naut hann óskoraðr-
ar virðingar allra og reyndar náins
vinskapar við norskan starfsbróð-
ur. Hann var góður fulltrúi lands
og þjóðar. Rólegur, yfírvegaður og
vel máli farinn á fleiri tungur en
íslensku. Það kom því ekki á óvart
er hann valdist til setu í endurskoð-
unarráði NATO fyrir liðlega ári
síðan. Sá starfstími varð hins vegar
skammur þar sem hann var svo
óvænt og snöggt kvaddur til sinnar
hinstu ferðar.
Ég og fjölskylda mín kveðjum
hann með söknuði og þökk fyrir
að hafa fengið að starfa með hon-
um og kynnast örlítið meir og bet-
ur en gengur og gerist í daglegum
önnum. Innilegustu samúðarkveðj-
ur til Kristrúnar og fjölskyldu.
Gott er að eiga góðs að minnast.
Sveinn Arason.
Hú kr. 6.990,-
ÁSur kr. 9.900,-
Litír: Dökkblátt, grænt og Ijósblátt.
Stærbir: S-XL
Barnadúnúipur
Tilboðsverð nú kr. 4.490.-
Sendum í póstkröfu.
»hummél^P
SPORTBÚ8IN
Armúla 40 • Símar 813555 og 813655
líl
ENGIN HUS
ÁN HITA
S3
Eiirör og tengi
til miðstöðva- og
vatnslagna.
DRAUPNISGÖTU 2 AKUREYRI
SÍMI (96)22360
r^ tVÐVELD^
Eiínc
5 ALL PURPOSE G^'
100% ARABICA G/EÐA KAFFI
NATURAL FLAVC
VACUUrvt PACK£° ,
N£T WT.16 oz ^<!
Góða kaffið í rauðu dósunum frá Mexico