Morgunblaðið - 11.11.1993, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1993
17
Samemmg sveitarfé-
Hvers vegna?
laga
eftir Jón ísberg
Nú stendur yfír enn ein atlagan
að sveitarfélögunum í landinu og
nú eins og áður undir merkjum
hagræðingar og sparnaðar. Auk
þess loforða ríkisvaldsins um að
gera þetta og gera hitt, ef bara
borgararnir vilji afsala sér rétt til
sjálfsstjórnar, sem þeir þó enn hafa.
Ætlunin er að sameina heilar sýslur
í eitt sveitarfélag og þar með gjör-
bylta aldagamalli hreppaskipan og
um leið að taka þann rétt af fólki
að annast sjálft um þau mál sem
snerta daglegt líf þess. Og þetta á
að gera til þess að ríkisvaldið geti
skilað aftur nokkru af því valdi sem
það hefir sölsað undir sig á undan-
fömum áratugum. Stundum að
beiðni vanhæfra sveitarstjórna en
einnig oft á tíðum vegna þeirrar
trúar að allt sé betra og verði full-
komnara, ef ríkið miðstýri málun-
um.
Sameining sveitarfélaga er sjálf-
sögð þar sem hún á við og er gerð
að vilja íbúanna. Dæmi um slíka
sameiningu er Eyjafjarðarsveit. Um
hana var rætt og loks komið í fram-
kvæmd að vilja meirihluta kjósenda.
Landfræðileg rök mæltu með sam-
einingunni og má segja líka sömu
hagsmunir, þ.e. menn lifðu af land-
búnaði, sóttu vinnu til Akureyrar
eða unnu þjónustustörf í hreppun-
um. En hvernig væri fyrir íbúa
Öxnadals, Hörgárdals eða trillu-
karla á Hjalteyri að koma fram
sjónarmiðum sínum?
Talað er um að sameina Reykja-
vík og nokkur aðliggjandi sveitarfé-
lög. Það er ekki sameining í venju-
legum skilningi þess orðs, þar sem
tveir eða fleiri lögaðilar af svipaðri
stærð eða umfangi sameina starf-
semi sína, heldur gleypir Reykjavík
þessi sveitarfélög. Það vill til að
Reykjavík hefir lengst af verið vel
stjórnað svo íbúar þessara núver-
andi sveitarfélaga fá vafalítið góða
þjónustu. En hver verða áhrif
þeirra? En það geta aðrir velt þessu
fyrir sér. Ég ætla bara að ræða þau
mál sem snerta hinar dreifðu
byggðir landsins.
Það er alltaf verið að tala um
að styrkja sveitarstjórnarstigið, en
flumbrugangurinn eða vanþekking-
in verið slík að undirstöðuna hefir
vantað, þ.e. aflið, sem gerir hlutina,
íjármagnið. En nú á úr að bæta.
Ef þið góðir hálsar viljið bara sam-
einast þá ætlum við, góða fólkið í
félagsmálaráðuneytinu, að gefa
ykkur aukaframlag úr Jöfnunar-
sjóði eitt tvö eða jafnvel fimm ár,
og við getum líka breytt reglunum,
svo þið getið átt von á framlögum
næstu árin. Það vita allir að til
þess að sveitarfélag geti starfað
sæmilega verður það að hafa tekj-
ur. Þess vegna er um að gera að
slá á þessa strengi. Ef stjórnvöldum
er alvara að styrkja sveitarstjórnar-
stigið eiga þau að útvega öruggan
tekjustofn, t.d. að sveitarfélögin fái
allan tekjuskattinn, en auðvitað
verða þau að taka að sér verkefni
á móti. Þá fengju þau tryggan
tekjustofn og það sem meira er,
borgararnir gætu betur fylgst með
því, í hvað peningarnir þeirra færu.
Og þá þyrfti heldur enga jöfnunar-
sjóði sem ráðherra getur gripið til
ef vinir hans eru í nauð.
En eru sveitarfélögin þá ekki of
mörg og of lítil? Það er rétt að lítið
sveitarfélag getur ekki mikið gert,
en sveitarfélögin hafa með sér sam-
band sem er héraðsnefndirnar. Þær
á að styrkja og festa í sessi og
umfram allt láta hafa sjálfstæðan
tekjustofn t.d. að tekjuskatturinn
gengi til þeirra og þær greiddu svo
til sveitarfélaganna hluta skattsins,
svipað og ríkið greiðir nú hluta stað-
greiðslunnar til sveitarsjóðanna.
Talað er um að flytja til þessara
Jón ísberg
„Kjósandi góður. Þann
20. nóvember nk. kýst
þú um framtíðarheill
bæjarfélags þíns eða
sveitar. Kynntu þér vel
öll rök með og móti
sameiningunni, láttu
ekki aðra segja þér fyr-
ir verkum, taktu heldur
ákvörðun um hvað þú
telur best fyrir heima-
byggð þína og þá um
leið fyrir þig og fjöl-
skyldu þína.“
væntanlegu nýju og stóru sveitarfé-
laga heilbrigðismál, sem sveitarfé-
lögin sjá nú þegar um að hluta,
mál aldraðra, sem þau sjá einnig
um að hluta, grunnskólann, sem
þau sjá líka um að nokkru, o.fl. svo
breytingin verður ekki mikil, en
peningana vantar, ekki bara eitt,
tvö eða fleiri ár, sem lofað er fram-
lagi úr Jöfnunarsjóði, heldur þarf
að liggja fyrir raunhæf tillaga og
raunar samþykkt um ákveðinn
tekjustofn sem ríkisvaldið getur
ekki ráðskast með að geðþótta.
Héraðsnefndirnar geta tekið við
öllum þessum verkefnum og fleirum
t.d. séð um vegina utan stofnbraut-
anna, hafnirnar og flugvellina eða
sem heitir samgöngumál, auðvitað
í samvinnu og samráði við viðkom-
andi ríkisstofnanir. Þá er fenginn
stór aðili sem hefir afl og getu til
þess að taka að sér vissa þætti
stjórnsýslunnar. Aðallega hefir nú
verið talað um heilbrigðismál og
grunnskólann, enda hefir ríkisvald-
ið eða starfsmenn þess klúðrað þeim
einna mest nú að undanförnu.
En það þarf að styrkja héraðs-
nefndimar. Kjósa til þeirra beint
eða skipa þær fulltrúum úr hrepp-
unum og þá eftir fjölda íbúa. Hrepp-
arnir fái að halda sér að mestu en
unnið yrði að sameiningu þeirra
eftir því sem vilji íbúanna stendur
til og þeir telja sér hagkvæmt.
Héraðsnefndin kemur þá í stað
þessara nýju stóru sveitarfélaga og
tekur eða getur tekið við verkefnum
frá ríkinu eins og talað hefir verið
um og okkur sagt að eigi að gera.
En ég á nú eftir að sjá að það verði
gert.
En eru þá héraðsnefndirnar hæf-
ar til þess að takast þetta á hend-
ur. Að óbreyttum lögum ekki. Það
þarf að tryggja stöðu þeirra á marg-
an hátt og eins og áður er bent á
útvega þeim öruggan tekjustofn.
En þarna verða sömu mennirnir,
sem yrðu forystumenn í hugsanleg-
um stórsveitarfélögum. Ef þeir eru
hæfir þar geta þeir eins stjórnað
héraðsnefndunum.
Hvað vinnst þá með þessu? Fyrst
og fremst að hér verður um þróun
að ræða, en ekki byltingu eins og
að er stefnt. Markmið sameiningar-
innar næst, þ.e. að fá tiltölulegan
stóran aðila til þess 'að fást við
ákveðna málaflokka, án þess að
borgaramir séu sviptir möguleikan-
um á að geta haft áhrif á samfélag
sitt. Og ekki síður það að fram-
kvæmdavaldið og löggjafarvaldið
sýna þá fólkinu í landinu, öllum
almenningi, örlítinn virðingarvott.
Meðhöndlar það ekki eins og skyn-
lausar skepnur, leyfir því sem sagt
að hafa sitt sveitarfélag með
ákveðnum verkefnum nátengt því,
sameinast öðmm, ef og þegar það
er hagkvæmt o.s.frv. Það fær m.ö.o.
að vera í friði með sín einkamál og
heimamál, svo sem fjallskil, sjá um
vatnsveitur og hitaveitur, sorp-
hreinsun, stuðning við íþrótta- og
menningarfélög, sjá um dagvist
barna, umhirðu og fegmn bæjarfé-
lagsins eða sveitarinnar, stuðning
við atvinnulífið og svo óteljandi
margt annað sem kemur upp í dag-
lega lífinu.
Rétt er að taka fram að stækkun
sveitarfélaganna á ekkert skylt við
atvinnusvæði eða úthlutun atvinnu-
leysisbóta. Launþegasamtökin hafa
verið að vinna að sameiningu félaga
og stækkun atvinnusvæða. Ég held
að best sé að þau vinni áfram að
þessu. Ríkisvaldið á ekkert að vera
að grípa þar inn í.
Þetta sameiningarmál virðist
vera gæluverkefni nokkurra stjóm-
málamanna. Fjármagni er óspart
beitt til þess að fegra hugmyndina
og draga fram kostina, því auðvitað
em þeir margir, en þeim má ná á
annan og einfaldari hátt eins og
ég hef bent á. Gallamir á kerfinu
era ekki eins tíundaðir, sem er í
sjálfu sér skiljanlegt. Kostaðar eru
skoðanakannanir og eiga þær að
sýna mikið fýlgi við sameininguna.
En hvernig vom spurningarnar?
Skoðanakannanir era af hinu góða,
en þá þarf að vanda spurningamar
og einnig að upplýsa fólk um mál-
efnið sem spurt er um.
Fjölmiðlar virðast hafa fallið í
þá gryflu að mæla með sameining-
arhugmyndunum án athugasemda.
Vinnuveitendasambandið sendir frá
sér eina af sínum samþykktum og
hvetur til samþykktar. Þeir á þeim
bæ virðast hafa vit á öllu nema að
reka atvinnufyrirtækin af viti.
Menn sem titlaðir era sveitarstjórn-
armenn era sagðir hafa komið sam-
an og allir hvatt til sameiningar.
En hvers konar sveitarstjómar-
menn vora þetta. Óbreyttir bæjar-
stjómar- eða hreppsnefndarmenn?
Eða voru þetta bæjarstjórar, sveit-
arstjórar og framkvæmdastjórar
sveitarstjómasambanda?
Borgarstjórinn í Reykjavík hefír
til umráða fínan bíl frá borginni.
Þar er um að ræða stórt og efnað
sveitarfélag, svo enginn segir neitt.
En það er ekki til siðs að bæjarstjór-
ar eða oddvitar fái þessi tískustöðu-
tákn. Svo mörgum finnst ef til vill
tími sé til kominn að ráða bót á
þessu og koma því þannig í kring
að þeir geti einnig orðið aðnjótandi
fímm milljóna jeppa, svo pöpullinn
geti dáðst að þeim.
Ég vil því mælast til þess við
hvern einasta kjósanda að hann
kynni sér þessi mál mjög vel, kosti
þess og galla að leggja niður sveit-
arfélag hans og afsala sér þar með
því valdi sem hver og einn hefir í
tiltölulega litlum samfélögum, en
fá í staðinn styrkara og fjarlægari
valdastofnun, þar sem hann sem
einstaklingur hefir mjög lítið að
segja. Sveitarfélögin vora og eru
fýrir íbúana og vinna í þeirra þágu.
Það eiga stóru sveitarfélögin einnig
að gera en þú, kjósandi góður, veg-
ur bara miklu minna þar.
Eftir síðustu styijöld voru miklar
sviptingar í Evrópu eftir ógna-
stjórnir einræðisherra. Á Ítalíu ætl-
aði kommúnistaflokkurinn að sýna
fram á að hann gæti komist í stjórn
á lýðræðislegan hátt enda hafði
hann mikið fylgi. Kaþólska kirkjan
barðist gegn þessum áformum und-
ir baráttukjörorðinu: í kjörklefanum
sér guð til þín en Stalín ekki. Og
það bar árangur. Það verður eins í
kjörklefanum 20. nóvember. Og það
bar árangur. Þar sér guð, þ.e. sam-
viska þín, til þín en félagsmálaráðu-
neytið ekki.
Kjósandi góður. Þann 20. nóvem-
ber nk. kýst þú um framtíðarheill
bæjarfélags þíns eða sveitar.
Kynntu þér vel öll rök með og
móti sameiningunni, láttu ekki aðra
segja þér fyrir verkum, taktu heldur
ákvörðun um hvað þú telur best
fyrir heimabyggð þína og þá um
leið fyrir þig og fjölskyldu þína. Þá
getur þú sofnað rólegur að kvöldi
kjördags sáttur við samvisku þína
um að þú hafír gert það sem þú
gerðir að vel athuguðu máli.
Höfundur er sýslumaður og
fyrrverandi oddviti og
sveitarstjómarmaður.
ISUZU
Vetrarskoðun
Bflheima hf.
Bjóðum Opel, lsuzu, Chevrolet og öðrum GM
eigendum vandaða vetrarskoðun
Á bíl með fjögurra strokka vél kr. 5.670.-
Á bíl með sex strokka vél kr. 6.163.-
Á bíl með átta strokka vél kr. 6.409.-
Við munum greina eigendum frá ástandi bílsins og skila bílnum
með ástandsskýrslu.
í þeim tilfellum þar sem skipta þarf um síur eða kerti geta
efniskaup verið frá kr. 1.908.- til kr. 3.750.-
Einnig bjóðum við 10% afslátt á smurþjónustu, sjálf-
skiptingarþjónustu og vélarstillingum til áramóta.
Verslið hjá viðurkenndum þjónustuaðila
Vinsamlegast leitið nánari upplýsinga
hjá verkstæði okkar.
BÍLHEIMAR
Fosshálsi 1 Reykjavík
Sími 634000
GM - OPEL - ISUZU - CHEVROLET - PONTIAC - OLDSMOBILE - CADILLAC - GM