Morgunblaðið - 11.11.1993, Page 28
28
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBBR 1993
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1993
29
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Árvakur h.f., Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Björn Vignir Sigurpálsson.
Kringlan 1, 103 Reykjavík. Símar: Skiptiborð 691100. Auglýsingar:
691111. Áskriftir 691122. Áskriftargjald 1400 kr. með vsk. á mánuði
innanlands. í lausasölu 125 kr. með vsk. eintakið.
Nýting innlendrar
orku
A
Isérblaði Morgunblaðsins um
sjávarútvegsmál, Úr Ver-
inu, er greint frá því í gær,
að Rafmagnsveitur ríkisins
hafí ákveðið að lækka verð á
raforku til skipa í hofnum um
25-30% frá og með næstu ára-
mótum. Þessi ákvörðun kemur
í kjölfar verðlækkunar á raf-
orku til skipa hjá Reykjavíkur-
höfn. í fyrradag var og frétt
hér í blaðinu, þess efnis, að
Rafmagnsveita Reykjavíkur
hafí lækkað verð á rafmagni
til húsbyggjenda, svokallað
vinnuljósarafmagn, að meðal-
tali um 27%. Síðast en ekki
sízt skal minnt á markaðsátak
Landsvirkjunar fyrr á þessu
ári. Fyrirtækið bauð kr. 1,00
afslátt á kWst af verði for-
gangsrafmagns til þeirra not-
enda sem fullnægja tilteknum
skilyrðum, m.a. varðandi lág-
marksaukningu í árlegum raf-
magnskaupum. Ennfremur
50% afslátt af verði „ótryggs
rafmagns" til fískimjölsverk-
smiðja og annars atvinnu-
reksturs, til að gera viðkom-
andi kleift að taka upp notkun
rafmagns í stað olíu.
Þessar verðlækkanir hafa
vakið nokkra athygli. í fyrsta
lagi vegna þess að innlendur
markaður hefur aðeins nýtt
um 80% af þeirri raforku, sem
hægt er að framleiða í land-
inu. Það er með öðrum orðum
hægt að framleiða hér innan-
lands langleiðina í 1.000 GWst
á ári umfram það sem nú er
nýtt. í annan stað vegna þess
að verðlækkanir af þessu tagi
hvetja til nýtingar innlendrar
orku í stað innfluttrar. í þriðja
lagi er það bæði í samræmi
við stefnumörkun umhverfis-
ráðstefnunnar í Rio de Janeiro
í fyrra og sáttmála Sameinuðu
þjóðanna um takmörkun gróð-
urhúsaáhrifa að stuðla að
notkun „hreinna orkugjafa",
sem ekki valda mengun í um-
hverfinu.
Fyrir nokkru var settur á
fót starfshópur á vegum iðnað-
arráðuneytisins til að kanna,
hvort hagkvæmt væri að setja
upp rafskautskatla í um tíu
fiskimjölsverksmiðjur, en að-
eins ein fískbræðsla nýtir nú
rafskautskatla, verksmiðjan í
Krossanesi. Fiskimjölsverk-
smiðjur í rekstri eru rúmlega
30 talsins og nota þær að jafn-
aði um 40.000 tonn af svart-
olíu á ári. Nefndin komst að
þeirri niðurstöðu að breyting
yfír í rafskautskatla gæti
reynzt hagkvæm í mörgum til-
fellum. Heildarkostnaður var
áætlaður um 500-600 m.kr.
hjá raforkufyrirtækjum og
fískimjölsverksmiðjum. Nokk-
ur hreyfíng hefur komizt á
málið. Krossanesverksmiðjan
hefur tvöfaldað afl þess raf-
skautsketils, sem þar var fyrir,
og Síldarvinnslan í Neskaup-
stað stefnir að því að koma
upp rafskautskatli í lok yfir-
standandi vertíðar. Aðrar
bræðslur hafa haldið að sér
höndum, það bezt er vitað. Því
veldur lágt olíuverð og ýmis
tæknileg, kostnaðarleg og
staðbundin vandamál.
Markaðsátak Landsvirkjun-
ar hefur þegar leitt til sölu um
6 GWst á ári af forgangsraf-
magni með fyrrgreindum af-
slætti, einkum til fyrirtækja á
sviði ylræktar, fískvinnslu og
mjólkurvinnslu. Þá hefur einn-
ig verið samið um sölu á
„ótryggu rafmagni“ á afslátt-
arkjörum, sem nemur um 60
GWst á ári. Meðal þeirra sém
nýtt hafa sér viðskipti af þessu
tagi eru Hitaveita Akureyrar,
Mjólkursamlag KEA, Fiski-
mjölsverksmiðjan Krossanes
hf., Vikingbrugg hf. og Stein-
ullarverksmiðjan á Sauðár-
króki. Líkur standa til þess að
þeim aðilum fari fjölgandi sem
leita eftir samningum um kaup
á rafmagni með afsláttarkjör-
um. Landsvirkjun og dreifí-
veitur þurfa að fylgja þessu
máli eftir með frekari viðræð-
um við þær fískimjölsverk-
smiðjur þar sem helzt kemur
til álita að innlend orka geti
keppt við innflutta.
Gróðurmold og fiskistofnar
eru nánast fullnýttar auðlindir,
þótt sitthvað standi enn til
bóta í landbúnaði og sjávarút-
vegi. Þriðja auðlindin, orkan í
fallvötnum og jarðvarma
landsins, er á hinn bóginn van-
nýtt. Óbeizluð orka bíður nýrr-
ar stóriðju og hugsanlega einn-
ig raforkusölu um sæstreng til
Evrópu. Þetta tvennt er hins
vegar framtíðarmúsík á líðandi
stundu. Það verkefni blasir
hins vegar við okkur í dag og
næstu misseri að fullnýta þá
innlendu orku sem vatnsafls-
virkjanir í landinu geta fram-
leitt nú þegar. Þar koma til
sögunnar ýmis framleiðslufyr-
irtæki, sem í dag nota inn-
flutta orku að einhveiju eða
öllu leyti, sem og nýr smáiðn-
aður. Oll áhrifaöfl í þjóðfélag-
inu þurfa að leggjast á eitt um
að styrkja markaðsstöðu inn-
lendrar orku.
Fjölmenni var á fundi um Viðreisnarárin á Hótel Borg- í fyrrakvöld
Breytt kjördæmaskípan
gnmnurmn að Viðreisn
„BÓKIN er ekki málsvörn fyrir Alþýðuflokkinn, ekki fyrir Viðreisn-
ina, hún er málsvörn fyrir heilbrigða skynsemi," sagði dr. Gylfi Þ.
Gíslason, á fjölmennum fundi í fyrrakvöld, á Hótel Borg, þar sem nýút-
komin bók hans Viðreisnarárin var til umfjöllunar, ásamt því tímabili
stjórnmálasögunnar á íslandi sem nafngiftin vísar til, 1959 til 1971.
Dr. Gylfi var eins og kunnugt er ráðherra í Viðreisnarstjórninni öll
árin sem hún var við völd. Til fundarins boðaði Félag fijálslyndra jafn-
aðarmanna og auk Gylfa, fluttu þeir Styrmir Gunnarsson, ritstjóri
Morgunblaðsins, og Gunnar Helgi Kristinsson, dósent við Háskóla ís-
lands, erindi á fundinum og allir þrír svöruðu fyrirspurnum fundar-
manna. Yfirskrift fundarins var: „Viðreisnarárin. Stenst goðsögnin
veruleikann, stenst Ný viðreisn samanburðinn?"
Dr. Gylfí rakti í erindi sínu megin-
kafla bókarinnar í helstu atriðum. í
upphafí máls síns sagði Gylfí að
myndun Viðreisnar árið 1959 hefði
verið í fullkomnum takti við það sem
hafði verið að gerast í Vestur-Evrópu
á fímmtán fyrstu árunum eftir síðari
heismstyrjöldina. „Árið 1959 urðu
tímamót á íslandi að tvennu leyti.
Annars vegar var horfíð frá haftabú-
skap og hins vegar var kjördæma-
skipuninni gjörbreytt, en henni var
breytt 50 árum of seint,“ sagði dr.
Gylfí.
Styrmir þ'allaði um spumingar er
vakna við lestur bókar Gylfa, en hóf
mál sitt á að svara yfirskrift fundar-
ins að hluta, með því að segja: „Goð-
sögnin stenst veruleikann ... Við-
reisnarárin eru gullöld lýðveldis-
tímans." Styrmir sagði bók Gylfa
vera ómetanlega heimild um aðdrag-
andann að myndun Viðreisnarstjóm-
arinnar, en þó fyrst og fremst um
þau málefni sem stjórnin beitti sér
fyrir. „Hún er einskonar kennslubók
í Viðreisnarfræðum,“ sagði Styrmir.
Óvenjulegt á íslandi
Gunnar Helgi fjallaði um áhrif
stefnu Viðreisnarstjómarinnar og
áhrif á síðari tíma stefnumótun í
efnahags- og stjórnmálum. Gunnar
Helgi sagði m.a.: „Fyrsta Viðreisn-
arstjómin settist að völdum 1959 og
sat til 1963. Hún var um margt
merkileg stjóm ... Hún byggði stefnu
sína á miklu meiri langtímahugsun
og á ákveðinni sýn á það, hvernig
efnahagslegri og félagslegri velferð
Islendinga jtöí best fyrir komið, þeg-
ar til lengdar léti. Þetta er frekar
óvenjulegt á íslandi. Langtíma-
stefnumótun, er ekki beinlínis sterk-
asta hlið íslenskra stjórnmála-
flokka.“ Gunnar Helgi sagði að
minna hefði verið um nýbreytni í
Viðreisnarstjórninni 1963 til 1967,
en stjóminni hefði tekist að festa í
sessi það kerfi sem hin fyrsta skap-
aði. Hann sagði jafnframt að fersk-
leiki hefði verið horfinn af Viðreisn-
inni á ámnum 1967 til 1971 og
sjálfstraust hennar verið í rénum.
Hvað veit dr. Gylfi?
Meðal þeirra spuminga sem
Styrmir Gunnarsson beindi til dr.
Gylfa í erindi sínu var þessi: „Minni-
hlutastjórn Emils Jónssonar var und-
anfari Viðreisnarstjórnar og spurn-
ing hvort hún hefði orðið til, ef minni-
hlutastjórn Emils hefði ekki verið
mynduð. í desember 1958 var gerð
ákveðin tilraun til að endurreisa þá
vinstri stjórn sem setið hafði að völd-
um frá 1956 og féll í byijun desem-
ber 1958. Samkvæmt því sem fram
hefur komið, meðal annars í ævisögu
Ólafs Thors, eftir Matthías Johann-
essen, var endurreisn vinstri stjórn-
arinnar með aðild Alþýðuflokksins
komin vel á veg, þegar Ásgeir Ás-
geirsson bauð Emil að mynda minni-
hlutastjóm. Hafði Ásgeir Ásgeirsson
með því boði úrslitaáhrif á stjóm-
málaþróunina á íslandi næsta ára-
tug? Hver var undanfari þess að
hann gerði Emil þetta tilboð? Hvaða
samtöl höfðu farið fram á milli Ás-
geirs og forystumanna Sjálfstæðis-
flokks, áður en hann bauð Emil að
mynda minnihlutastjóm? Er Ásgeir
Ásgeirsson með þessari ákvörðun
kannski einhver mesti örlagavaldur
í stjórnmálum lýðveldisins? Hvað
veit dr. Gylfí um þessa sögu, sem
hann ekki segir frá í bók sinni?“
Vissi ekki, en vonaði
Dr. Gylfi lauk lofsorði á Ásgeir
Ásgeirsson er hann svaraði spurning-
unni og sagði síðan: „Ásgeir Ásgeirs-
son virtist taka mjög skyndilega
ákvörðun um að fela Emil Jónssyni
stjórnarmyndunarumboð. Ég held að
Ásgeir Ásgeirsson hafi í einkasam-
tölum gengið úr skugga um að það
væri hægt að framkvæma breytingu
á kjördæmaskipan og að Emil gæti
fengið bæði Sjálfstæðisflokkinn og
Alþýðubandlagið til þess að sam-
þykkja slíka breytingu. Ásgeir Ás-
geirsson vissi ekki að það gæti tek-
ist samstarf Sjálfstæðisflokks og
Alþýðuflokks. En breytt kjördæma-
skipan var grundvöllurinn að mynd-
un Viðreisnarstjórnarinnar. Ásgeir
vonaði ugglaust að upp úr öllu myndi
koma samstarf Sjálfstæðisflokks og
Alþýðuflokks og ég leyfí mér líka
að hrósa honum fyrir þá von.“
Dr. Gylfi Þ. Gíslason flytur erindi sitt um Viðreisnarárin á fjölmennum fundi á Hótel Borg í fyrrakvöld.
FRÁ afhendingu íbúðanna. Taldir frá vinstri; Jón Helgason, fyrir hönd
húsfélagsins, Gylfi Héðinsson og Gunnar Þorláksson.
Afhending íbúða fyr-
ir eldra fólk í Mjódd
NYLEGA fór fram formleg af-
hending 100 þjónustuíbúða fyrir
eldra fólk í Árskógum 6-8 í
Reykjavík.
I Suður-Mjódd hafa á skömmum
tíma risið tvö háhýsi, og hefur þar
verið að verki Byggingafélag Gylfa
og Gunnars hf. í samvinnu við Fé-
lag eldri borgara í Reykjavík og
nágrenni. Samstarf þessara aðila
hefur á undanförnum árum skilað
nær 300 íbúðum í hendur kaup-
enda, 60 ára og eldri, og má þar
benda á hús við Grandaveg 47,
Skúlagötu 70, Hraunbæ 103 og nú
síðast við Árskóga. Við tvö síðast-
nefndu húsin eru þjónustukjarnar,
kostaðir og reknir af Reykjavíkur-
borg, í Hraunbæ 105 er rekið fé-
lagsstarf fyrir eldra fólk, og nú er
unnið að innanhússfrágangi 1.200
m2 þjónustumiðstöðvar í Suður-
Mjódd.
I Suður-Mjódd verður innan-
gengt í þjónustukjarnann á 1. hæð,
í gegnum sameiginlegan sal íbú-
anna. íbúðir skiptast í tvö hús,
hvort um sig 13 hæðir og eru 4
íbúðir á hæð. íbúðir eru ýmist 2.,
3. og 4. herbergja í stærðum frá
70 m2 til 104 m2 fyrir utan sam-
eign. Alls er byggt flatarmál um
1.200 m2 með bílageymslu neðan-
jarðar fyrir 28 bíla, en mörgum
finnst mjög mikilvægt að eiga bíl-
stæði inni og geta gengið örstutta
leið innanhúss að lyftum.
Samvinnuverkefni tannlæknadeilda Háskóla íslands og Amsterdam-háskóla
Aðferð semsegir fyrir um tann-
skemmdir og minnkar kostnað
RANNSÓKNIR á tannátubakteríum hafa verið stundaðar á tannlækna-
deild Háskóla íslands í samvinnu við tannlæknadeild Amsterdam-háskóla
undanfarin ár. Dr. Peter Holbrook dósent hefur leitt rannsóknirnar hér-
lendis og dr. Johannes de Soet í Hollandi. í tengslum við rannsóknirnar
var þróað tannátupróf sem nýtist m.a. til að segja fyrir um tannskemmd-
ir og gæti minnkað tannlækningakostnað stórlega. Hætt var að veita
fjármagni til rannsóknanna í fyrra og hefur prófið því ekki nýst sem
skyldi. Niðurstöður rannsóknanna hafa nýlega birst í „Caries Research“,
einu virtasta tímariti fyrir tannlæknarannsóknir í heiminum.
Samstarf Peters Holbrooks og Jo-
hannesar de Soet hefur nú staðið í sex
ár en de Soet starfar við örverufræði-
deild ACTA (tannlæknadeildar Amst-
erdam-háskóla). Holbrook og Soet
hafa kannað bakteríutengda tannátu,
sérstaklega með tilliti til hlutverks
Streptococcus sobrinus, bakteríu sem
menn hafa haldið að væri hættulegri
en hefðbundin tannátubaktería,
Streptococcus mutans. Streptococcus
sobrinus er algengari hérlendis en í
öðrum löndum Evrópu og það hafa
tannskemmdir verið einnig.
Hægt að segja fyrir um
tannskemmdir með
tannátuprófi
Ut úr rannsóknum á þessum
tveimur tegundum tannátubaktería
og tannskemmdum, sem unnar voru
með kennurum tannlæknadeildar HÍ
og í samvinnu við Stefán Finnboga-
son yfirskólatannlækni í Reykjavík,
var þróað tannátupróf sem gert var
á fjögurra ára börnum. Með prófínu
er hægt að segja til um tannskemmd-
ir á tiltölulega ódýran hátt og
ákvarða hvaða börn þurfa meiri tann-
vernd en önnur. „Við komumst að
því að hjá rúmlega 40% fjögurra ára
barna voru tennur óskemmdar en á
móti var um fimmtungur með mikið
skemmdar tennur. Næsta skref átti
að vera að gera prófið hjá fleiri börn-
um, jafnvel ölium börnum í Reykja-
vík á ákveðnum aldri og flokka þau
eftir niðurstöðum prófsins. Þá hefði
verið hægt að gera tannverndaráætl-
un sem gefur möguleika á að nýta
fjármagn til barnatannlækninga bet-
ur,“ segir Holbrook.
„Þetta er akkúrat það sem er í
þróun í mörgum öðrum löndum, til
að reyna að fínna betri leiðir til að
fyrirbyggja tannskemmdir. Hér hafa
rannsóknirnar hins vegar verið stöðv-
aðar. Þær voru styrktar af tann-
vemdarsjóði í Svíþjóð, af Vísindasjóði
og Rannsóknasjóði HÍ auk þess sem
Reykjavíkurborg styrkti rannsókn-
irnar myndarlega. Eftir að þessi mál
færðust í auknum mæli undir ríkið
hefur verið æ erfíðara að fá peninga
til þeirra og í apríl í fyrra var alveg
skrúfað fyrir. Við vitum þess vegna
ekki hveiju þetta myndi skila ef við
fengjum tækifæri til að láta á það
reyna.“
Vantar 2,5 milljónir til
rannsókna
„Frá Skotlandi hefur komið beiðni
um aðstoð við að setja á laggimar
rannsóknir að okkar fyrirmynd og
fyrirspurnir hafa komið víða að. Enn-
þá er alveg í lausu lofti hvert fram-
haldið verður en við gemm okkur
vonir um að fá fjármagn til rann-
sókna þegar evrópska efnahagssvæð-
ið tekur gildi. Okkur vantar tvær og
hálfa milljón til framkvæma tannátu-
próf hjá öllum fjögurra ára börnum
í Reykjavík og fylgja þeim eftir í
u.þ.b. tvö ár,“ sagði Holbrook. Hjá
Tryggingastofnun fengust þær upp-
lýsingar að á síðasta ári hefðu verið
greiddar rúmlega 670 milljónir krória'
vegna tannviðgerða barna á aldrinum
1-16 ára.
„í rannsóknum okkar höfum við
fundið nokkrar sérkennilegar bakter-
íur sem líta út eins og tannátubakter-
íur en eru ekki eins hættulegar. Okk-
ur langar að rannsaka þær frekar
og er dr. de Soet staddur hér á landi
í því skyni. Við höfum verið að safna
sýnum og einangra bakteríur og ætl-
um að reyna að komast að því hvern-
ig munurinn á þeim og hættulegu
bakteríunum er. Helmingur rann-
sóknanna verður unninn hér og hinn
helmingurinn í Amsterdam," sagði
Holbrook.
Lækkun vaxta: Af
hveiju ekki fyrr?
eftir Sighvat
Björgvinsson
Aðdragandinn
Mörg undanfarin ár hefur verið
hávær krafa um lækkun vaxta. Bent
hefur verið á að vextir hér á landi
væru mun hærri upp á síðkastið en
í nágrannaríkjum. I tengslum við
kjarasamninga sl. vor gaf ríkisstjóm-
in verkalýðshreyfingunni fyrirheit
um aðgerðir til lækkunar vaxta.
Eitt af mínum fyrstu verkum í
viðskiptaráðuneytinu á sl. sumri var
því að skipa nefnd til að kanna vaxta-
myndun á lánsfjármarkaði. Tilgang-
urinn var að skoða lánsijármarkað-
inn í heild þannig að hægt væri að
grípa til yfirgripsmikilla og sam-
ræmdra aðgerða til vaxtalækkunar
í stað þess að einskorða sig við ein-
stök afmörkuð atriði eins og áður
hafði verið reynt. Nefndin skilaði
mér skýrslu í síðasta mánuði þar sem
fram koma upplýsingar um það
hvemig vaxtamyndun verður á inn-
lendum lánsfjármarkaði, upplýsingar
um vaxtaþróun hér á landi og saman-
burður við vexti erlendis.
A grundvelli þessara upplýsinga
lagði ég fram í ríkisstjóm tillögur
um aðgerðir í vaxtamálum. Þær vom
samþykktar þann 26. október sl. og
fjórum ráðherrum falið að vinna
framkvæmdaáætlun. Fyrir tæplega
tveimur vikum voru síðan kynntar
opinberlega samræmdar aðgerðir
ríkisstjórnarinnar til lækkunar
vaxta. í þeim skipti mestu máli sú
ákvörðun að ríkisstjórnin tilkynnti
að ríkissjóður tæki fremur erlend lán
en að sætta sig við hærri vexti hér
á landi en honum byðust á erlendum
markaði og að Seðlabankinn myndi
beita sér með öflugum hætti á verð-
bréfamarkaði til að tryggja lækkun
vaxta á honum. Markmiðið var að
knýja fram lækkun vaxta þannig að
vextir á verðtryggðum skuldabréfum
og húsbréfum lækkuðu niður í 5% í
fyrsta áfanga.
Vaxtalækkun á markaði
Viðbrögð markaðarins hafa ekki
látið á sér standa. Meðalraunávöxtun
í viðskiptum með spariskírteini í
október voru 6,8% en 5,5% að meðal-
tali fyrstu vikuna í nóvember. Sé lit-
ið á ávöxtun í viðskiptum með spari-
skírteini á markaði dagana fyrir yfir-
lýsingu ríkisstjórnarinnar og hún
borin saman við ávöxtun í viðskiptum
nú síðustu daga er lækkunin um
1,5%. Svipað gildir um ávöxtun í
viðskiptum með húsbréf. í stað þess
að vera seld með afföllum eru hús-
bréf nú seld á yfírverði. Á uppboði
ríkisvíxla 3. nóvember sl. var meðal-
nafnávöxtun tekinna tilboða 6,9%
sem er um 1,2% lækkun frá uppboð-
inu í október. Á uppboði spariskír-
teina fyrr í þessari viku var meðal-
raunávöxtun tekinna tilboða 5% sem
er um 2,2% lækkun frá síðasta upp-
boði í október. í dag lækka svo vext-
ir banka og sparisjóða til samræmis
við þá lækkun sem orðið hefur á
markaði síðustu tvær vikur. í kjölfar-
ið munu síðan örugglega fylgja fjár-
festingarlánasjóðir og eignarleigu-
fyrirtæki.
Árangur hinna djörfu aðgerða rík-
isstjórnarinnar á innlendum lánsfjár-
markaði hefur farið fram úr björt-
ustu vonum. Nú ríður á miklu að
varðveita þá lækkun sem þegar hef-
ur náðst og stefna jafnframt að enn
frekari lækkun vaxta þegar markað-
urinn hefur jafnað sig eftir atburði
Sighvatur Björgvinsson
síðustu tveggja vikna. Óhjákvæmi-
legt er að það taki einhvern tíma
og meðan lánsljármarkaðurinn er að
jafna sig má vænta þess að skamm-
tímasveiflur geti orðið á ávöxtunar-
kröfu á markaðnum ofan og neðan
þeirra marka sem ríkisstjórnin setti.
Slíkar sveiflur eru óhjákvæmilegar
og eiga ekki að koma neinum á óvart.
Áhrif vaxtalækkunar
Áhrif af 2% almennri lækkun
raunvaxta á fjárhag heimila og fyrir-
tækja eru mikil. Þannig er fjárhagur
heimila talinn batna um 1,7 milljarða
króna á ári, hagur fyrirtækja í land-
inu um 2,6 milljarða króna og ríkis-
og sveitarfélaga um 0,8 milljarða
króna. Samtals eru þetta yfír 5 millj-
arðar króna. Hér er að sjálfsögðu
einungis tekið tillit til skulda innan-
lands og skulda sem bera breytilega
vexti. Sé litið til lengri tíma og gert
ráð fyrir að skuldir sem bera fasta
vexti verði endurnýjaðar á lægri
vöxtum er um að ræða tæplega 10
milljarða króna lækkun á vaxta-
byrði. Til samanburðar má nefna að
raunvaxtalækkunin er talin skila
heimilum ámóta fjárhæð og lækkun
virðisaukaskatts á matvælum á að
gefa. Munurinn er hins vegar sá að
raunvaxtalækkunin er fugl í hendi
þar sem virðisaukaskattslækkunin
er bara fugl í skógi því allar líkur
benda til að hún skili sér ekki nema
að hluta til almennings í landinu.
Af þessu má ráða að lækkun raun-
vaxta er eitt brýnasta hagsmunamál
heimila og fyrirtækja. Því verða allir
að Ieggjast á eitt um að þessar að-
gerðir takist og að okkur lánist að
raunvaxtastig hér' á landi
sem er í líkingu við það sem gerist
og gengur erlendis.
Með þessari lækkun raunvaxta er
ekki aðeins létt á þungri greiðslu-
byrði margra stórskuldugra heimila
og fyrirtækja. Með henni er einnig
lagður grunnur að nýrri sókn í ís-
lensku atvinnulífi sem of Iengi hefur
einkennst að stöðnun og doða og
skorti á áræði. Lægri vextir leiða til
þess að fyrirtæki endurskoða fjár-
festingaráætlanir sínar og fjárfest-
ingar sem voru óhagkvæmar við
hærra vaxtastig eru skyndilega
orðnar hagkvæmar. Með aukinni
„Árangur hinna djörfu
aðgerða ríkisstjórnar-
innar á innlendum
lánsfjármarkaði hefur
farið fram úr björtustu
vonum. Nú ríður á miklu
að varðveita þá lækkun
sem þegar hefur náðst
og stefna jafnframt að
enn frekari lækkun
vaxta þegar markaður-
inn hefur jafnað sig eft-
ir atburði síðustu
tveggja vikna.“
Ijárfestingu aukast umsvifin og lagð-
ur er grunnur að öflugra atvinnulífi
í framtíðinni.
Af hverju ekki fyrr?
í ljósi þess hve áhrifarík yfirlýsing
ríkisstjórnarinnar frá 29. október
hefur reynst er eðlilegt að margir
spyiji hvers vegna í ósköpunum þetta
hafi ekki verið gert fyrr. Svörin
liggja í augum uppi. Ég nefni það
helsta:
Halli á viðskiptum þjóðarinnar
við útlönd hefur minnkað hratt.
Þegar ríkisstjórnin tók við völdum
árið 1991 var viðskiptahallinn
4,7% af landsframleiðslu en
vegna aðhaldsaðgerða ríkis-
stjórnarinnai’ er viðskiptahallinn »
nú aðeins 1,4% af landsfram-
leiðslu og við flytjum út varning
fyrir meira verðmæti en við flytj-
um inn. Það þýðir að hægt hefur
á skuldasöfnun í útlöndum. Þegar
tekið er tillit til verðbólgu erlend-
is hafa erlendar skuldir lækkað
að raungildi. Ríkisstjómin var því
í þeirri aðstöðu að geta staðið við
fyrirætlun sína um auknar er-
lendar lántökur ef á þyrfti að
halda. Ríkisstjómin hefur með
aðgerðum sínum sjálf skapað sér
þessa aðstöðu.
Um næstu áramót falla úr gildi
enn frekari hömlur á verðbréfa-
kaupum innlendra aðila erlendis.
Þau ákvæði voru leidd í lög af
núverandi ríkisstjórn. Þeir aðilar
sem sætta sig ekki við þau kjör
sem ríkissjóður býður geta því
keypt verðbréf erlendis. Á móti
hugsanlegum lántökum ríkissjóðs
erlendis kæmi því verðbré/aeign
innlendra aðila erlendis. Áhrifin
á skuldastöðuna gætu því orðið
lítil og þar af leiðandi þensluáhrif-
in af erlendum lántökum.
Neysla í þjóðfélaginu hefur farið
ört minnkandi á síðustu misser-
um. Jafnframt eru skuldir heim-
ila miklar. Við þessar aðstæður
má búast við að vaxtalækkun
verði ekki nýtt til að hækka
neyslustigið heldur verði svig-
rúmið notað til að greiða niður
skuldir.
Aðstæður til aðgerða af þessu
tagi voru ekki hagstæðar í kjölfar
gengisfellingar í júní og verð-
bólgukúf í kjölfarið. Nú er verð-
bólga á niðurleið á ný.
í síðasta mánuði kom út skýrsla
um vaxtamyndun á lánsíjármark-
aði þar sem gerð var ítarleg grein
fyrir því hvernig henni er háttað
og lagður grunnur að fjölmörgum
þáttum í hinum samræmdu að-
gerðum ríkisstjórnarinnar.
Þá má geta þess að nýlega hefur
farið fram á vegum alþjóðlegra
fjármálatímarita nýtt mat á láns-
hæfi Islands fyrir erlenda mark-
aði. Í þessu nýja mati hefur með-
al annars verið horft á aðgerðir
ríkisstjórnarinnar til aðhalds í
opinberum fjármálum og til að
varðveita fískistofnana. Þessar
aðgerðir ríkisstjórnarinnar hafa
gert það að verkum að íslending-
ar hafa hækkað í mati á framtíð-
argreiðslugetu þjóða.
Það sem ekki má gerast
Vaxtalækkunina verður að festa
í sessi. Til þess að svo megi verða
er höfuðnauðsyn að það takist að
hemja hallarekstur ríkissjóðs og gera
betur í ríkisfjármálum en boðað er
í fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár. í
þessu efni er ábyrgð ríkisstjómar og
alþingismanna mikil. Sjaldan hefur
verið biýnna að sérhagsmunir víki
fyrir hagsmunum heildarinnar. Jafri-
framt er mikilvægt að aukið svigrúm
heimila og fyrirtækja verði ekki not-
að til að taka aukin lán til að fjár-
magna neyslu heldur verði það notað
til að greiða niður skuldir heimila
og auka fjárfestingu fyrirtækja.
____________________________________
Höfundur er iðnaðar- og
viðskiptarAðherra. >