Morgunblaðið - 11.11.1993, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1993
33
Fyrsti kynnmgarfundur á Suðurlandi um sameiningu sveitarfélaga
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Frá kynningarfundinjum á Selfossi um sameiningu sveitarfélaga.
SÆTÚNI 8 SÍMl 69 15 00 ■ FAX 69 15 55
Bakið er ekki að drepa þig - það er líklega dýnan!
DUX rúmdýnan - einstök ogfrábær hönnun.
DUX dýnan er mjúk og lagar sig fullkomlega
að líkama þínum.
Þú liggur ekki á henni - hún umvefúr þig.
Það er stundum dýru verði keypt að kaupa ódýrt.
10% staðgreiðsluafsláttur á takmörkuðu magni.
Á harðri dýnu liggur
hryggsúlan í sveig
DUX
Á DUX-dýnu liggur
hryggsúlan bein
GEGNUM GLERIÐ
Faxafeni 7 (Epalhúsinu). Sfmi: 689950
FOLKS-
ÍLALAND HF.
Sameiningarmálin
rædd í Borgarfirði
Hvannatúni í Andakíl.
Á ALMENNUM hreppskilafundi í Andakílshreppi var kynnt og rædd
ítarleg sameiginleg viljayfirlýsing núverandi sveitarstjórna, ef íbúar
samþykkja sameininguna 20. nóvember. Að yfirlýsingunni standa
hrepparnir fimm sem svæðanefnd hefur gert tillögu um að gætu sam-
einast.
Um er að ræða Andakílshrepp,
Skorradalshrepp, Lundarreykjadals-
hrepp, Reykholtsdalshrepp og Hálsa-
hrepp. Oddvitar þessara hreppa hafa
í mörg ár rætt um saméiningarmál.
Þeir höfðu að eigin frumkvæði leitað
eftir viðbrögðum sveitarfélaga í Mýr-
arsýslu en svæðanefnd gerði ekki
tillögu um slíka tilhögun. í almennum
atriðum viljayfirlýsingarinnar segir
að reiknað verður með að eignir og
skuldir allra framangreindra sveit-
arfélaga sem eru til staðar þegar
sameining fer fram, komist á hendi
hins nýja sveitarfélags, sé ekki annað
tekið fram í viljayfirlýsingunni. Að
öllu jöfnu skuli sú þjónusta sem ver-
ið hefur við þegna framangreindra
sveitarfélaga ekki breytast til hins
verra við sameiningu þeirra.
Umræður um viljayfirlýsinguna
snerist að mestu um hlutlausa fyrir-
spurnir, einstakar að vísu nokkuð
neikvæðar. Vegamál um svæðið, sér-
staklega um Andakílshrepp, voru
ofarlega á baugi. í hreppnum er að-
eins kominn mjög stuttur kafli með
bundnu slitlagi og óráðið er um veg-
arstæði frá Andakílsá og Grímsá.
Oddviti svaraði fyrirspurnum og
sagði frá kostum og göllum samein-
ingar. Telja má víst að sveitarstjóm-
armenn hafi komið auga á marga
kosti sameiningar hreppanna eftir
áralangan undirbúning og frum-
kvæði. _ D.J.
Fyrir nútíma eldhúsiö
Viðgerðarþjónusta
fyrir flestar gerðir fólksbíla.
ISÆótorstillingajt*
Piis'fckerfi
Bremsuviðgerðir
ITI3ZD3
sdrfræðingar á staðnum!
Bíldshöfða 18
67 39 90
Grimnþjónustan færíst nær fólk-
inu en yfirsljómin fjarlægist
Selfossi.
FYRSTI kynningarfundur umdæmanefndar Suðurlands um sameiningu
sveitarfélaga var haldinn á Selfossi 1. nóvember. Fundurinn var fámenn-
ari en búist var við en þar urðu eigi að síður líflegar umræður. Bragi
Guðbrandsson, aðstoðarmaður félagsmálaráðherra, hafði framsögu um
sameiningarmálin.
„Grunnþjónustan mun ekki fjar-
lægjast fólkið en yfirstjórnin mun
gera það,“ sagði Bragi meðal annars
er hann ræddi sameininguna og benti
á að íbúarnir leituðu eftir grunnþjón-
ustunni en sæktu hana ekki til yfir-
stjómarinnar heldur til þjónustu-
stofnananna. Sem dæmi um það
nefndi hann að allan þann tíma sem
hann hefði búið í Reykjavík hefði
hann aldrei átt erindi við yfirstjórn-
ina á borgarskrifstofunum. Hann
benti á að staðbundin þjónusta mundi
eflast við sameiningu þar sem það
væri aðeins á færi stærstu sveitarfé-
laganna að veita þá þjónustu sem
væri lögbundin.
Bragi benti á að flutningur verk-
efna frá ríkinu fjölgaði störfum í
sveitarfélögunum. Þörf yrði á sér-
Fundinn sóttu um 50 Hafnarbúar.
Morgunblaðið/Jón Gunnar Gunnarsson
Austur-Skaftafellssýsla
Fundur um samein-
ingu sveitarfélaga
Höfn.
UMDÆMANEFND Austur- Skaftafellssýslu boðaði til fundar um sam-
einingu sveitarfélaga í Austur-Skaftafellssýslu á Höfn 27. október sl.
Albert Eymundsson forseti bæjarstjómar á Höfn og Ólafur Ragnarsson
sveitarstjóri Djúpavogshrepps töluðu máli sameiningar fyrir hönd
nefndarinnar. Fram kom í máli þeirra að um væri að ræða miklar
breytingar á núverandi stjórnsýslukerfi og ef af sameiningu yrði myndi
verða umtalsverður verkefnaflutningur frá ríki til nýrra sveitarfélaga
á næstunni. Gert er ráð fyrir að þau yfirtaki rekstur grunnskóla, heil-
sugæslu, öldrunarþjónustu og málefni fatlaðra á næstu ámm. Ennfrem-
ur hafa sveitarfélögin í sýslunni sýnt áhuga á að gerast reynslusveitar-
félag ef af sameiningu verður nú og má þá búast við að fleiri verk-
efni flyttust frá ríki til þess.
Allmargir fundarmenn tjáðu sig
um sameiningu og voru flestir á því
að til hennar myndi koma fyrr en
síðar og lýstu sig sammála henni.
Þó fannst sumum að fara bæri held-
ur hægar í málinu, að mörgu væri
að hyggja. Fundarboðendur lögðu á
það áherslu að ýmis hagræðing
myndi fylgja í kjölfar sameiningar.
Þannig yrði grunnskólinn rekinn af
einum aðila en ekki tveimur eins og
nú er. Og sama mætti segja af all-
mörgum málaflokkum. Fjármagn
myndi færast heim í hérað eða öllu
heldur það færi ekki fyrst til Reykja-
víkur og kæmi síðan aftur eftir dúk
og disk til baka og þá í minna mæli
en fór burtu. Öll ákvarðanataka yrði
skilvirkari og var sem dæmi nefnt
að framhaldsskóli Austur Skafta-
fellssýslu lýtur í raun engri stjóm í
héraði sem getur tekið á málefnum
hans.
Ólafur Ragnarsson lýsti samein-
ingu í Djúpavogshreppi sem hann
kvað reynsluna með eindæmum góða
með þó stutt væri. Ljóst væri að
sveitarfélög yrðu að stækka meðal
annars til að unnt reyndist að fá
menntað fólk til ýmissa þjónustu-
starfa og annarra sem litlir hreppar
réðu alls ekki við. Sigurður Hjaltason
fyrrum sveitarstjóri á Höfn og fyrr-
um framkvæmdastjóri Sambands
sveitarfélaga í Austurlandsumdæmi
lýsti sig eindregið fylgjandi samein-
ingu en eins og fleiri vildi hann flýta
sér hægt. Albert minnti á ófarir
Færeyinga og kvað þær meðal ann-
ars til komnar vegna mikillar óstjórn-
ar í sveitarstjórnarmálum enda hefðu
hæfðum starfskrafti ásamt því sem
ýmis sérfræðivinna sem unnin væri
fyrir smærri sveitarfélögin af aðilum
á höfuðborgarsvæðinu flyttist heim
og yrði ódýrari. Þá benti hann á að
sameiningin stækkaði atvinnusvæðin
og yki með því möguieika fyrirtækja
til hagkvæmari rekstrar.
Nái tillögur um sameiningu fram
að ganga næst 200 milljóna króna
árlegur sparnaður í yfirstjóm. Þá
benti Bragi á að með sameiningu og
stækkun yrði dregið úr hagsmuna-
tengslum þar sem ákveðnar og al-
mennar reglur giltu um afgreiðslu
erinda íbúanna.
í máli Braga kom fram að flutn-
ingur verkefna frá ríki til sveitarfé-
laga er af stærðargráðu um 15 millj-
arðar. Hann sagði að meginhlutverk
Jöfnunarsjóðs sveitarfélaganna yrði
að jafna þjónustumöguleika. Ráð-
stöfunarfé sjóðsins yrði aukið um
100%. Þegar sameiningarmöguleikar
lægju fyrir færu í hönd samningar
milli ríkis og sveitarfélaganna á jafn-
réttisgrunni um hvaða verkefni það
yrðu sem færðust yfir til sveitarfé-
laganna. Það lægi nú fyrir að þess-
ara verkefna yrði með aukinni hlut-
deild sveitarfelaganna í tekjuskatt-
stofni.
Á fundinum kom fram gagnrýni
á sameiningamefndina fyrir að hafa
ekki látið reikna út hvernig fjárhags-
staða hinna nýju sveitarfélaga yrði
eftir sameiningu. Einnig var gagn-
rýnt að ekki lægi fyrir hvemig afrétt-
armálum yrði háttað þar sem mörk
sveitarfélaga breyttust. Einn fundar-
manna varaði við því að sameining
færi fram þegar fjárhagur ríkisins
væri bágur. T.
° Sig. Jons.
Danir krafíst fækkunar sveitarfélaga
þar úr 50 í 8. Honum virtist ennfrem-
ur að sveitarstjómarmenn litlu sveit-
arfélaganna hefðu helst komið í veg
fyrir sameiningu af hræðslu við eitt-
hvað.
Sturlaugur Þorsteinsson bæjar-
stjóri á Höfn kvað ljóst að tekjur
allra sveitarfélaganna í sýslunni
mundu aukast úr 260 milljónum
króna í um 400 milljónir yrðu þau
sameinuð. Hann kvað núverandi
samvinnu skilvirka einungis þegar
öll sveitarfélögin væru sammála en
annars væri Sýslunefnd ákaflega
óskilvirk. Það væri tímabært að taka
ákvarðanir heima í héraði sem nú
væru teknar í Reykjavík.
- JGG.
CÖ Wa-
^vélar
fyrir nútíma
eldhúsið
Þýskar úrvaisvélar
sem metnaöur er lagöur í.
endingagóðar og þægilegar
i alla staöi.
Eigum fyrirliggjandi vélar
50-60 sm. breiðar með eöa án
blástursofni
Verð frá kr.
A1-705,-
^ I stgr.
<ö>
Heimilistæki hf