Morgunblaðið - 12.11.1993, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 12.11.1993, Blaðsíða 23
22 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1993 i Jtor0aisMfijM§> Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Kringlan 1, 103 Reykjavík. Símar: Skiptiborð 691100. Auglýsingar: 691111. Áskriftir 691122. Áskriftargjald 1400 kr. með vsk. á mánuði innanlands. í lausasölu 125 kr. með vsk. eintakið. SIS leitar nauða- samninga Stjóm Sámbands íslenzkra samvinnufélaga sam- þykkti á fundi sínum í gær að. leita eftir nauðasamningum við lánardrottna fyrirtækisins. Að sögn stjórnarformannsins, Sig- urðar Markússonar, ætlar stjómin sér u.þ.b. tvær vikur til að kanna til hlítar möguleika á nauðasamningum um skuldir án áfallinna ábyrgða, áfallinna ábyrgða vegna annarra, auk eftirlaunaskuldbindinga, sem nema um 220 milljónum króna. í fréttatilkynningu frá stjóm Sambandsins, sem gefín var út eftir fund hennar í gær, segir m.a., að mikil áföll sem SÍS hefur orðið fyrir á yfir- standandi ári knýji hana til þessarar ákvörðunar. Efna- hagsstaða fyrirtækisins hafi rýmað um hundmð milljóna króna frá síðustu áramótum, en þá vom skuldir Sambands- ins taldar nema 436 milljónum að frátöldum eftirlaunaskuld- bindingum. í tilkynningu stjómarinnar kemur fram, að það em fyrst og fremst gjald- þrot Miklagarðs hf.og íslenzks skinnaiðnaðar hf. á árinu, sem leitt hafa til þessarar niður- stöðu, þótt fleira komi til. Fyrir réttu ári tókust samn- ingar milli stjómar SÍS og Landsbankans um yfírtöku á bókfærðum eignum fyrirtækis- ins að upphæð 3,4 milljarðar króna. Eignarhaldsfélag Landsbankans, Hömlur hf., keypti þessar eignir á rúma 2,5 milljarða, sem gengu til greiðslu skulda Sambandsins við Landsbankann og erlenda banka. Með þessum samning- um taldi stjóm SÍS að tiltölu- lega sléttur sjór væri framund- an og sagði Sigurður Markús- son eftir samningana við Landsbankann í nóvember, að um áramótin yrðu bókfærðar eignir SÍS um einn milljarður króna, en skuldirnar um hálfur milljarður. Hlutfall eiginíjár SIS um áramótin síðustu yrði milli 47% og 48%. Þessar áætlanir hafa að engu orðið og blasir gjaldþrot við SÍS takist ekki nauðasamn- ingar við lánardrottna. Skulda- staðan versnaði mjög síðasta áratug eða svo og var orðin óbærileg fyrir fyrirtækið, enda fjármagnskostnaður orðinn gífurlegur. í ársbyijun 1990 námu skuldimar 12,8 milljörð- um króna. Með eignasölunni tókst að koma skuldunum nið- ur í 436 milljónir um síðustu áramót, en SÍS var ekki lengur svipur hjá sjón. Sambandið var orðið eignarhaldsfélag og hafði orðið að draga sig út úr rekstri. Takist ekki nauðasamningar tvær næstu vikumar verður SÍS gjaldþrota. Þar með lýkur löngum og um margt merkum kafla í verzlunar- og atvinnu- sögu landsins. Stofnfundur Sambandsins var haldinn að Yztafelli 2. febrúar 1902 og með tímanum varð SÍS lang- stærsta og umsvifamesta fyrir- tæki á Islandi, reyndar svo risavaxið að margir töldu það hættulegt fyrir efnahagsþró- unina. Starfsemi SÍS náði yfir innflutnings- og útflutnings- verzlun, heildsölu og smásölu, hvers kyns iðnaðarframleiðslu, sjávarútveg, skipaflutninga, olíusölu og bankastarfsemi. Ástæðurnar fyrir falli Sam- bandsins era vafalaust margar og margslungnar. Augljóst er að það hefur alls ekki verið rekið samkvæmt lögmálum einkareksturs. Hann þarf að skila arði eigi fyrirtækið að lifa, tekjur þurfa að vera meiri en gjöldin og eignir meiri en skuldir. Án þessarar megin- reglu er ekki hægt að reka fyrirtæki nema í tiltölulega skamman tíma. __ Stjómendur SÍS höfðu þessi eðlilegu viðskiptalögmál ekki í heiðri. Fyrirtækið hélt áfram miklum fjárfestingum eftir að verðtrygging fjárskuldbind- inga og raunvextir urðu að meginreglu. Við þær aðstæður rísa fyrirtæki ekki undir óarð- bæram fjárfestingum. Hröð og umfangsmikil uppbygging Sambandsins fyrir lánsfé gekk upp á meðan verðbólgan át upp sparifé landsmanna. Þeir sem höfðu aðgang að lánsfé í bönk- um, ríkisbönkunum fyrst og fremst, þurftu ekki að hafa miklar áhyggjur af endur- greiðslu, því verðbólgan greiddi niður skuldimar, þ.e.a.s. sparifjáreigendur. Þetta ástand hefur vafalaust villt stjómendum Sambandsins sýn, því arðbæmi sjálfs rekst- ursins hefur ekki verið efst á blaði í áætlanagerð heldur hag- urinn af því að fá „gjafafé“ í bönkunum til x'ijárfestinga. Verðtryggingin breytti þessu í einni svipan og jafnframt jókst samkeppni mjög í verzlun og viðskiptum eftir því sem aukið fijálsræði var innleitt, hömlur afnumdar og skömmtun hvers konar var fyrir bí. Sambandið þurfti því að horfa á eftir for- réttindum og keppa á mark- aðnum á jafnréttisgrandvelli og reyndist ófært um það. Þörf talin vera á göngum undir Breiðholtsbrautina Borgarstjóri fundar með íbúum Breiðholtshverfis UNDIRGÖNG undir Breiðholtsbraut, samstilling ijósa og upphitun í brðttustu brekkum götunnar að vetrarlagi voru meðal hugmynda sem ræddar voru á fámennum fundi borgarstjóra, Markúsar Arnar Antonssonar, með íbúum Breiðholtshverfis í Gerðubergi í fyrra- kvöld. Fram komu hugmyndir um árskort í strætisvagna, flutning gæsluvallar vegna loftmengunar og rekstur rafknúinna strætis- vagna í miðborginni. Einnig ræddu íbúarnir ýmis smærri atriði er lúta að frágangi kringum einstök hús og blokkir og létu í ljós áhyggjur ef af lokun Breiðholtsstöðvar lögreglunnar verður. Loks var minnst á umferðaröngþveiti við Fjölbrautaskólann i Breiðholti á morgnana og skort á bílastæðum. Að loknu erindi borgarstjóra var tekið við fyrirspumum. Sú fyrsta varðaði gerð undirganga undir Breiðholtsbraut til móts við verslun- ina Kjöt og fisk, því íbúar þyrftu að sækja ýmsa þjónustu milli hverf- ishluta og því brýnt að bæta sam- göngur fyrir fótgangandi. Einnig var spurt um upphitun á hluta Breiðholtsbrautar að vetrarlagi. Borgarstjóri sagði að áformað hefði verið að hita tilteknar brekk- ur. Upphitunarkerfi fylgdi hins veg- ar mikill kostnaður því gjald fyrir heitt vatn væri hátt. Þetta þyrfti því að skoðast nánar en sjálfsagt væri að nýta þennan góða kost sem heita vatnið væri. Það kom einnig fram í máli Markúsar Amar Ant- onssonar að gerð undirganga væri dýr, kostaði 20-30 milljónir, og því þyrfti að skoða aðra kosti. Borgar- stjóri nefndi það líka að þar sem slík undirgöng hefðu verið gerð, t.d. á mótum Miklubrautar og Lönguhlíðar heyrði það til undan- tekninga að vegfarendur legðu leið sína þar í gegn. Þannig þyrfti að girða aðrar leiðir rammlega af svo fótgangandi nýttu sér þennan möguleika. Benti einn fundarmanna á að skýringarinnar gæti verið að leita í því að ekki vissu allir um þau undirgöng sem búið væri að grafa því þau væm ekki nógu vel merkt. Spurt var um útivistarsvæðið í Elliðaárdal. Fram kom í svari borg- arstjóra að gert væri ráð fyrir að dalurinn yrði sem óspilltastur. Hann sagði þó að til stæði að koma æfingatækjum til Iíkamsræktar fyr- ir við göngustíga og aðstöðu fyrir skokkara. Árskort í strætó Hvað athugasemdir um lokun Breiðholtsstöðvar lögreglunnar varðaði sagði borgarstjóri að það væri ríkisins að ákveða það, hins vegar teldi hann ólíklegt að henni yrði lokað. Einn fundarmanna stakk upp á því að tekið yrði upp árskort í strætó og sérstakt skólakort fyrir nemendur. Markús Öm Antonsson sagði að verið væri að taka græna kortið til athugunar. Menn hefðu verið mjög ánægðir með viðtökur almennings og þessum athuga- semdum yrði komið á framfæri við . SVR hf. þegar þar að kæmi. Einnig hefði verið leitað eftir heimild hjá Reykjavíkurborg til þess að hefja rekstur á rafknúnum strætisvögnum í miðborginni og myndi það væntanlega draga úr' mengun sem er mikil af dieselvögn- unum. Fram komu óskir um að gæsluvöllur í Hólahverfí yrði fluttur vegna mengunar frá umferðargöt- um. Sagði Markús Örn að völlurinn yrði að öllum líkindum fluttur að Suðurhólum en erfitt væri að finna svæði sem væri nógu langt frá bfla- umferð. Við fyrirspum um ókláraðar byggingar við Jafnasel og skýrði borgarstjóri frá því að upphaflega hefði svæðið verið hugsað fyrir létt- an iðnað, t.d. matvælaframleiðslu. Þar sem Sorpa væri nú með gáma- stöð á þessum stað væri í athugun að borgin leysti eignina til sín enda ættu sorphirða og matvælaiðnaður ekki sérstaklega vel saman. Loks var rætt um skort á bíla- stæðum og umferðaröngþveiti við Fjölbrautaskólann á morgnana. Borgarstjóri nefndi að upphaflega hefði engan órað fyrir því að notkun skólanema á einkabílum yrði jafn mikil og raun ber vitni, nú væri þess hins vegar gætt við hönnun skólahúsnæðis fyrir framhalds- skólanema. Borgarstjóri batt endahnút á fundarhaldið með umfjöllun um Reykjavík framtíðarinnar, sem gæti getið sér gott orð sem hrein og ómenguð höfuðborg. Leggja ætti frekari áherslu á kynningu á ráð- stefnuaðstöðu og ferðaþjónustu. Borgarafundur ÞÓTT fundurinn í Gerðubergi væri ekki fjölmennur bárust borgarsljóra mörg úrlausnarefni sem reynt verður að ráða bót á. Fundur stjórnar Sambands íslenskra samvinnufélaga um stöðu fyrirtækisins Möguleikar á nauðasamn- ingum kannaðir til hlítar HÉR fer á eftir í heild fréttatil- kynning sijórnar Sambands ís- lenskra samvinnufélaga sem gefin var út eftir fund stjómar- innar í gær. „A fundi sínum í Reykjavík í dag ákvað stjóm Sambandsins að láta kanna til hlítar möguleika á nauða- samningum við lánardrottna fyrir- tækisins. Það eru stjórnarformaður, Sigurður Markússon, og varafor- maður stjómar, Þorsteinn Sveins- son, sem munu vinna að þessu verk- efni í umboði stjómarinnar. Staðan í árslok 1992 Segja má að til ársloka 1992 hafi áætlanir Sambandsstjómar um sölu eigna og niðurgreiðslu skulda gengið eftir. Samkvæmt ársreikn- ingi 1992 voru skuldir Sambandsins 436 mkr. (eftirlaunaskuldbindingar ekki meðtaldar) en í árslok 1989 höfðu skuldimar verið 12,8 millj- arðar (m.v. verðlag í árslok 1992). Skuldastaðan í árslok 1992 var því komin niður í 3,4% af því sem hún var þrem árum fyrr. Mikil áföll á yfirstandandi ári Það sem knýr Sambandsstjórn til þeirrar ákvörðunar sem tekin var á fundi hennar í dag, eru mikil áföll sem Sambandið hefur orðið fyrir á yfirstandandi ári og rýrt hafa efna- hagsstöðu þess um hundruð millj- óna króna frá síðustu áramótum. Skulu hér rakin stærstu málin af þessum toga: 1. Hinn 11. júní 1993 var bú íslensks skinnaiðnaðar hf. tekið til gjaldþrotaskipta. Sambandið átti 90% af hlutafé í félagi þessu og var það bókað á 122 mkr. í árs- reikningi Sambandsins fyrir árið 1992. Þegar íslenskur skinnaiðnað- ur fór í þrot, skuldaði félagið Sam- bandinu um 4 mkr. í viðskiptareikn- ingi. Þá má ætla að kröfuhafar í bú íslensks skinnaiðnaðar geri 76 mkr. kröfu á Sambandið vegna veðkrafna sem ekki fæst fullnægt með fasteignaveðunum sjálfum. 2. Hinn 15. júní 1993 var bú Miklagarðs hf. tekið til gjaldþrota- skipta. Sambandið átti 89% af hlutafé í félaginu, að nafnverði 450 mkr., en hlutafjáreign þessi var að fullu afskrifuð í ársreikningi Sam- bandsins 1992. Þegar Mikligarður hf. fór í þrot, skuldaði hann Sam- bandinu um 40 mkr. í viðskipta- reikningi, en eins og fram hefur komið í fréttum breytti Sambandið, 1. nóvember 1992, 400 mkr. af gjaldföllnum skammtímaskuldum Miklagarðs hf. í hlutafé. Þá má geta þess að handhafar krafna með sjálfsskuldarábyrgð Sambandsins hafa krafið Sambandið um 24 mkr. vegna Miklagarðs. 3. í lok júní 1993 féll dómur í héraði í riftunarmáli þrotabús KRON gegn Sambandinu. Sú fjár- hæð, sem Sambandið var dæmt til að endurgreiða þrotabúinu, var tal- in um 35 mkr. í þann mund sem dómurinn féll. Hefur Sambandið áfrýjað máli þessu til Hæstaréttar. Efnahagur Sambandsins í lok október 1993 Þau rekstrarlegu og efnahags- legu áföll á yfírstandandi ári, sem hér var gerð grein fyrir, hafa leitt til þess að efnahagsstaða Sam- bandsins hefur gjörbreyst, frá árs- lokum 1992 til loka október 1993.' Samkvæmt samantekt hins löggilta endurskoðanda Sambandsins, er efnahagsstaðan sem hér segir í lok október, 1993: mkr. Skuldir, án áfallinna ábyrgða.....184 Áfallnar ábyrgðir vegna annarra, áætl. upph...............159 Samtals skuldir og áfallnar ábyrgðir.................343 Fasteignir ........................83 Áhöld, innréttingar, bifreiðir ogvélar............................13 Eignarhlutar í öðrum félögum ......87 Aðrareignir........................31 Eignir samtals ...................214 Skuldir umfram eignir.............129 Skuldastaðan í lok október 1993 er 343 mkr. eða 2,7% af því sem hún var í árslok 1989. Eiginfjár- staða, sem var jákvæð í árslok 1992 um 159 mkr., hefur nú snúist yfir í neikvæða eiginfjárstöðu að fjár- hæð 129 mkr. í lok október 1993. Þá eru ótaldar lífeyrisskuldbinding- ar, en að mati endurskoðandans koma 220 mkr. í hlut Sambands- ins. Þannig nema skuldir og Iífeyris- skuldbindingar nú 349 mkr. um- fram eignir." MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1993 23 ASÍ um áhrif lækkunar virðisaukaskatts af matvælum á stöðu lágtekjufjölskyldu Morgunblaðið/Þorkell Forystusveit ASÍ Frá blaðamannafundi J>ar sem forystumenn Alþýðusambands íslands kynntu áhrif af lækkun virðisauka- skatts af matvælum. A myndinni eru, talið frá vinstri: Gylfi Ambjörnsson, Hervar Gunnarsson, Benedikt Davíðsson, Ingibjörg R. Guðmundsdóttir, Björn Grétar Sveinsson og HaUdór Grönvold. Hagur batnar um 1.200 tíl 1.700 kr. á mánuði ASI krefst aðgerða gegn skatt- svikum MIÐSTJÓRN ASÍ hefur sent frá sér ályktun þar sem lýst er þungum áhyggjum af miklum skattsvikum í þjóðfélaginu. „Dag eftir dag full- yrða ráðherrar og æðstu embættis- menn í stjórnkerfinu í fjölmiðlum að innheimtu virðisaukaskatts sé verulega ábótavant og nú um ára- mót þegar lækka á skatt af matvæl- um í 14% stefni í algjört öngþveiti í innheimtu skattsins," segir í ályktuninni. Er þess krafist að ríkisstjóm og Alþingi grípi þegar til aðgerða og sjái til þess að virðisaukaskatturinn skili þeim árangri sem að var stefnt. Er vitnað til upplýsinga um 11 milljarða kr. undanskot frá skatti og 15 millj- arða afskrift álagðra gjalda sem sýni að yfírlýsingar þáverandi íjármálaráð- herra og núverandi utanríkisráðherra um að virðisaukaskattskerfið myndi auka skilvirkni í innheimtu skattsins hefðu ekki gengið eftir. SAMKVÆMT útreikningum Alþýðusambands fslands mun verð á matvælum lækka samtals um 5,5% vegna kjarasamninganna síðastlið- ið vor, en hluti af þessari lækkun er þegar kominn fram með niður- greiðslum á tilteknum kjöt- og mjólkurvörum frá 1. júní síðastliðn- um. í kjölfar þess að virðisaukaskattur af matvælum lækkar form- lega úr 24,5% í 14% um næstu áramót munu matvæli og drykkjarvör- ur lækka um 4,5% að meðaltali, og framfærsluvísitalan því lækka um 0,8-0,9% í janúar og febrúar. Staða lágtekjufjölskyldna mun að mati ASI batna um 1,7-2,2% um næstu áramót, eða um 2.200-2.600 krónur á mánuði, eftir því hvort þær eru undir eða yfir skattleysis- mörkum. Að teknu tilliti til þess að verðbólga sé áætluð 0,8% frá upphafi til loka næsta árs verði endanleg áhrif 0.9-1,4%, eða á bilinu 1.200-1.700 krónur á mánuði. Kaupmáttur fjölskyldna með meðaltekj- ur mun um áramótin aukast um 1,1%, eða 2.200 krónur, en 0,4%, eða 700 kr., að teknu tilliti til verðbólgu. Hjá hátekjufólki mun hagur- inn batna um 0,5% um áramótin, eða 1.300 kr., en í árslok næsta árs verður kaupmáttur 0,3% lakari vegna áhrifa verðbólgunnar. Á blaðamannafundi sem Alþýðu- samband íslands boðaði til í gær kom fram í máli Benedikts Davíðs- sonar, forseta ASÍ, að þegar form- legt svar hefði borist frá ríkisstjóm- inni 5. nóvember síðastliðinn varð- andi það hvort hún hygðist standa við gefin fyrirheit við gerð kjara- samninga síðastliðið vor og tillögur um vaxtaniðurfærslu vom að kom- ast í framkvæmd, þá hefði að mati launanefndarinnar ákvæðum kjara- samningsins og yfirlýsingarinnar frá í vor verið fullnægt að því leyti að forsendur væm ekki til uppsagn- ar kjarasamningsins. „Það sem blásið hefur verið upp, um að þarna hafi í raun verið um samningaviðræður að ræða eins og þær gerast hefðbundnar, þá er það algjör misskilningur og að mínu viti, bara sett á svið til þess að leiða fólk á villigötur," sagði Benedikt. B-leið aldrei komið til greina í máli Gylfa Arnbjömssonar, hag- fræðings ÁSÍ, kom fram að sú hug- mynd sem sett var fram um að fall- ið yrði frá lækkun virðisaukaskatts á matvæli og reynt að ná sömu kaupmáttaráhrifum með annarri útfærslu hefði í raun og vem aldrei getað komið til umræðu þar sem kjarasamningar eru gildandi. Gylfi sagði að þessi leið, sem kölluð hefur verið B-leið, hefði líklega þýtt 0,8% kaupmáttarrýmun lágtekjufólks í lok næsta árs, og hjá þeim sem væm með meira en 85 þúsund kr. í mánaðarlaun og ekki hefðu notið launabóta væri kaupmáttarskerð- ingin 1,6%. „Efnislega afstaðan til þessa tilboðs var í sjálfu sér ekki flókin vegna þess að þama var klár- lega um mun lakari leið að ræða, og hún hefði að uppsögðum kjara- samningum ekki komið til greina,“ sagði hann. Víðtækar verðkannanir Benedikt Davíðsson sagði að í raun og vem væri engin trygging fyrir því að vöruverð muni lækka um áramótin sem nemur lækkun virðisaukaskatts af matvælum. Reynslan hefði hins vegar sýnt að afnám aðstöðugjalds um síðustu áramót og auknar niðurgreiðslur á kjöt- og mjólkurvörum 1. júní síð- astliðinn hefðu skilað sér til neytenda, og ef mið væri tekið af harðri samkeppni á matvörumark- aðnum væri engin ástæða til að ætla annað en að iækkun virðis- aukaskattsins muni skila sér. Hann sagði að ASÍ myndi í samvinnu við BSRB og Neytendasamtökin fylgja breytingunni fast eftir með víðtæk- um verðkönnunum. ------------------------tp Fyrrverandi bæjarstjóri krefst launa út kjörtímabilið BJARNI Grímsson, fyrrum bæjarsljóri á Ólafsfirði, sem sagt var upp í kjölfar deilna innan Sjálfstæðisfiokksins í bænum í nóvember í fyrra, gerir kröfu um laun til loka kjörtímabilsins og 6 mánaða biðlauna eftir sveitarstjórnar- kosningar, samtals rúmlega 8 milljónir króna. Bjarni gerir þessa kröfu í dómsmáli sem hann hefur höfðað gegn Ólafs- fjarðarbæ fyrir Héraðsdómi Norðurlands. Mál bæjarstjórans fyrrverandi er á því byggt að honum hafi borið laun í ár eftir uppsögnina, auk 6 mánaða biðlauna og eigi hann þannig ógreidd laun í 18 mánuði auk 6 mánaða biðlauna og 6% framlags launagreiðanda í lífeyrissjóð. Samtals er um að «j. ræða 8,3 milljónir en til frádrátt- ar koma 1,7 milljóna króna laun þá 6 mánuði eftir uppsögnina sem hann naut launa og biðlasna. Flutningur verkefna sýslumanna í Kópavogi og Reykjavík til 5 embætta í Reykjavík 50 störf yrðu lögð niður Talið spara ríkinu 43 millj. í rekstri á næsta ári með fyrirvara MEÐ því að leggja niður embætti sýslumannanna í Kópavogi og Hafnar- firði og fela fimm opinberum embættum sem starfandi eru í Reylga- vík munu allt að 50 störf verða lögð niður án þess að fjölgun komi á móti hjá þeim embættum sem við verkefnunum taka, samkvæmt skýrslu sem starfshópur á vegum dómsmálaráðuneytis og fjármálaráðuneytis hefur tekið saman. Þar kemur fram að gert sé ráð fyrir að þeim 59 lögreglumönnum sem nú starfa í Kópavogi og Hafnarfirði bjóðist starf við embætti lögreglustjórans í Reykjavík, og þeir sem hafni því til- boði fyrirgeri rétti til biðlauna, en að á móti 66 störfum í yfirstjórn og á skrifstofum embættanna tveggja sem lögð verði niður komi fjölgun um 16 störf þjá sýslumanninum í Reykjavík, auk þess sem gera megi ráð fyrir minniháttar fjölgun hjá öðrum stofnunum sem við verkefnum taka. í skýrslu nefndarinnar er gert ráð fyrir að ríkissjóður fái á næsta ári 50 milljón króna tekjur af sölu húss lögreglunnar og sýslu- mannsins í Kópavogi. Ráðgerður sparnaður ríkissjóðs vegna niðurlagningar embættanna, að moþtaidri sölu á húsinu í Kópa- vogi, er 93 miiljónir króna á árunum 1993 til 1994. í greinargerð starfs- hópsins segir að ekki sé vafi á því að sýslumannsembættin í Kópavogi og Hafnarfirði séu meðal ódýrustu sýslumannsembætta landsins miðað við kostnað á hvern íbúa en það úti- loki ekki að mögulegt sé að inna þessi störf af hendi á hagkvæmari hátt í stærri stofnunum með sama eða betri árangri. Hins vegar sé erfitt að áætla þann sparnað sem af muni leiða m.a. vegna óvissu um að hve miklu leyti þurfi að auka afkastagetu þeira stofn- ana sem við verkefnum taki og að hve miklu leyti vannýtt afkastageta nýtist. í skýrslu starfshópsins kemur fram að við þessa breytingu fjölgi starfs- mönnum sýslumannsembættisins í Reykjavik úr 49 í 65 og í framhaldi af því þurfi að huga að húsnæðisþörf embættisins. 27 millj. sparíst í yfirstjórn löggæslu Eftir stækkun lögreglustjóraemb- ættisins í Reykjavík um 59 starfs- menn nái breytingin fram að ganga verður sú hagræðingarkrafa gerð til embættisins að 27 milljóna króna fjár- veiting sem nemur hlutdeild yfir- stjómar vegna lögreglustjórnar í Kópavogi og Hafnarfírði verði ekki færð á embættið. Starfshópurinn telur að útgjöld Tiyggingastofnunar ríkisins aukist um 5 milljónir króna við það að taka við þjónustu þeirri við íbúa Kópavogs og Hafnarfjarðar sem sýslumanns- embættin í kaupstöðunum hafa sinnt fyrir 43 milljónir króna. Útibú í Hafn- arfirði sinni einkum upplýsingaþjón- ustu en aðalafgreiðslan í Reykjavflí- sinni þjónustu við Kópavogsbúa. Tollurinn hagræði Sú innheimta gjalda til ríkissjóðs sem fram hefur farið í sýslumanns- embættunum tveimur færist annars vegar til Gjaldheimtunnar í Reykjavík og hins vegar Tollstjóra, gangi hug- myndir um niðurlagningu embætt- anna tveggja eftir. Starfshópurinn gerir ráð fyrir að Tollstjórinn geti tekið við auknum verkefnum með hagræðingu án aukins kostnaðar en hækka þurfí fjárveitingu til Gjal^ heimtunnar um 10 milljónir króna, eða úr 136 í 146 milljónir króna. Tollstjóri í Reykjavík mun einnig taka yfir starfsemi tolladeildar sýslu- manns í Hafnarfirði sem kostað hefur 10,6 milljónir króna á ári. Á því sviði er ekki gert ráð fyrir spamaði sem neinu nemi, segir í áliti starfshópsins, sem telur að hækka þurfi íjárveitir.^ til Tollstjóra af þessum sökum um 5 milljónir króna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.