Morgunblaðið - 12.11.1993, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 12.11.1993, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1993 Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra um kvótakaupin Deili áhyggjum með sjó- mönnum vegna þessa máls Kvótakaup sjómanna nema 800 millj. segir formaður VSFI ÞORSTEINN Pálsson sjávarútvegsráðherra segir að hann deili áhyggjum með sjómönnum vegna þátttöku þeirra í kvótakaupum og hann telur Ijóst að virða beri lög og halda kjarasamninga hvað þetta atriði varðar. Þetta kom m.a. fram í máli Þorsteins Pálssonar er hann ávarpaði Vélstjóraþing í gærdag. Þorsteinn hvatti menn til að ná sátt í þessu deilumáli, enda til mikils að vinna ef svo gæti orðið. Helgi Laxdal formaður Vélstjóra- félags Islands setti þingið og í ræðu sinni íjallaði hann nokkuð um kvótakaup sjómanna. „Sé bara mið- að við flutning á þorskkvóta frá einu skipi til annars í eigu óskyldra útgerða þá nam hann á síðasta físk- veiðiári rúmum 64 þúsund lestum að andvirði 2.300 milljónum króna miðað við 35 króna kílóverð," segir Helgi. „Sennilega er þessj tala í hærri kantinum þar sem einhver hluti er tvífluttur, en á móti kemur að meðalverð á þorski er að öllum líkindum hærra en 35 krónur á kíló. Hlutur sjómanna í þessum 2.300 milljónum, hafí þeir verið þátttak- endur, er um 800 milljónir króna. Það má því leiða að því sterk rök að 800 milljónir hafí verið fluttar frá sjómönnum til útgerða á síðasta fískveiðiári bara vegna kaupa á þorskveiðiheimildum, sem numu um 4% af heildartekjum sjómanna og svarar til lækkunar skiptahlutfalls úr 75% í 72%.“ Veiðar utan lögsögu Þorsteinn Pálsson fjallaði 1 ávarpi sínu um erfíðleika þá sem sjávarút- vegurinn á í sökum minnkandi afla- heimilda og verðfalls á erlendum mörkuðum. En í stöðunni eru einn- ig sóknarfæri, einkum hvað varðar veiðar utan lögsögu ríkja. „Við verðum að treysta okkar stöðu með sókn á erlendum vettvangi utan lögsögu ríkja og leita þar nýrra leiða," segir Þorsteinn og ennfrem- ur að vaxandi áhugi sé fyrir sam- vinnu og samstarfí við aðrar þjóðir á vettvangi veiða og vinnslu. Þeir Guðjón A. Kristjánsson for- maður FFSÍ og Óskar Vigfússon formaður Sjómannasamtakanna ávörpuðu báðir þingið í gærdag og fjölluðu um þátttöku sjómanna í kvótakaupum. Guðjón segir að hafna beri alfarið núverandi kvóta- kerfí ef ekki takist að laga þennan agnúa og fleiri á því og Oskar seg- ir að þróunin hafí sýnt að kjara- samningur sjómanna sé að verða að ómerku plaggi. VEÐUR VEÐURHORFUR I DAG, 12. NOVEMBER YFIRLIT: Um 300 km vestur af Bjargtöngum er 973 mb lægð sem þok- ast heldur noröaustur. SPÁ: Suðvestan kaldi eða stinningskaldi með allhvössum éljum sunnan- og vestanlands, en hægari vindur og að mestu bjart veður norðanlands og austan. Heldur kólnandi veður. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á LAUGARDAG, SUNNUDAG OG MÁNUDAG: Lengst af vest- læg eða suðvestlæg átt með éljagangi sunnanlands og vestan en björtu veðri á Norðaustur- og Austurlandi, snýst þó öðru hverju til norðvestan- áttar með éljum á annesjum norðaustanlands. Hiti yfirleitt um eða und- ir frostmarki, sums staðar talsvert frost inn til landsins. Nýir veðurfregnatíman 1.30, 4.30, 7.30, 10.46, 12.45, 16.30, 19.30, 22.30. Svaraími Veðurstofu Islands - Veðurfregnir: 990600. o <á •ö m Sunnan, 4 vindstig. Vindórin sýnir vindstefnu og fjaðrimar vindstyrk, Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað heil fjöður er 2 vindstig.. / / / * / * * * * . JL * 10° Hitastig / / / r r * / / * / * * * * * V v V V Súld \ Rigning Slydda Snjókoma Skúrir Slydduél Él = Þoka ' " i-m’-1 1 ——mmrmm—wmm —. ■ . ■ v.--. 1 ■ ■ . ■ ... FÆRÐA VEGUM: (Kl.17.30ígær) Töluverður éljagangur er á Suður- og Vesturlandi og vegir víðast hálir, sama er með vegi á heiðum norðanlands. Á Vestfjörðum er ófært um Hrafnseyrarheiði, Þorskafjarðarheiðar og Eyrarfjall. Þungfært um Kletts- háls og Dynjandisheiði. Aðrir vegir á Vestfjörðum eru faerir en víða tals- verð hálka. Annars staðar á landinu eru vegir greiðfærir eins og er. Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í sfma 91-631500 og á grænni línu, 99-6315. Vegagerðin. VEÐUR VIÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma Akureyri, Reykjaviit hlti veður 1 úrkoma +1 Bergen 6 alskýjað Helsinki +3 léttskýjað Kaupmannahöfn 4 rigning Narssarssuaq +15 léttskýjað Nuuk vantar Ósló 6 rigning Stokkhðlmur 2 alskýjað Þórshöfn 6 úrkoma Algarve 24 léttakýjað Amsterdam 9 skúr Barcelona 16 skýjað Berlín 5 þokumóóa Chicago 6 skýjað Feneyjar 13 þokumóða Frankfurt 10 skýjað Glasgow 8 léttskýjað Hamborg 7 rigning London 9 léttskýjað LosAngeles 14 rigning Luxemborg 7 léttskýjað Madrtd 13 skýjað Malaga 19 alskýjað Mallorca 20 skýjað Montreal 1 alskýjað NewYork 5 heiðskírt Orlando 12 léttskýjað Paríe 11 léttskýjað Madelra 17 súld Róm 19 þokumóða Vín 9 skýjað Washington 1 þokumóða Winnipeg +1 skýjað V íDAG kl. 12.00 Heímild: Veðurstofa tslands (Byggt á veðurspá kl. 16.15 í geer) Rainvextir banka sparisjóða Miðað við áætlaða meðalnafnvexti nýrra lána, skv. vaxtatöllu Seðlabankans — Almenn skuldabréfalán — Vísitölubundin lán * Islensk-er- lenda hefur ekkikært RANNSÓKNARLÖGREGLU ríkisins hefur ekki boríst kæra í tengslum við sölu á Mackint- osh’s-sælgæti í versluninni F&A. Friðrik G. Friðriksson annar eiganda verslunarinnar sagði þetta ekki koma á óvart, enda hefði hann hreinan skjöld. Októ Einarsson sölustjóri hjá íslensk-erlenda og Danól sagði til- gangi fyrirtækisins náð. „Við vild- um vekja athygli á að útrunnið sælgæti væri til sölu í F&A,“ sagði Októ við Morgunblaðið í gær. Raunvextir skulda- bréfalánanú 10,1% RAUNVEXTIR almennra skuldabréfalána bankanna eru nú að meðal- tali 2,6% hærri en vextir visitölubundinna lána, miðað við að verð- bólgan sé nú 2,8%. Nafnvextir bankanna eru nú 13,2% að meðaltali sem þýðir 10,1% raunvexti. Á sama tíma eru raunvextir vísitölubund- inna lána að meðaltali 7,5%. í sveiflukenndri verðbólgu er erf- itt að meta raunvexti óverðtryggðra lána á einhverjum tilteknum degi. Verðbólgan hefur verið að lækka en svo virðist sem bankarnir hafí ekki fylgt henni fyllilega eftir. Hækkun lánskjaravísitölunnar í byijun þessa mánaðar samsvaraði 2,9% verðbólgu á ári. Ef miðað er við þriggja mánaða tímabil, tveir mánuðir aftur í tímann og áætlun Seðlabankans fýrir næsta mánuð, er verðbólgan 2,8% og hún verður enn lægri ef tekin er rauntala fyrir einn mánuð og þróunin tvo næstu mánuði áætluð. Við þá raunvaxta- útreikninga sem hér eru birtir er miðað við 2,8% verðbólgu. Raunvextir almennra skulda- bréfalána eru hæstir hjá íslands- banka, 10,6%, og þar er jafnframt mesti munurinn á vöxtum verð- tryggðra lána og raunvaxta óverð- tryggðra lána, 2,8%. Landsbankinn er hins vegar með lægstu raunvext- ina, 9,7%, tæpu prósenti lægri en íslandsbanki. Stjómendur Búmðarbanka og sparísjóðanna Ekki forsendur að lækka meira JÓN Adolf Guðjónsson, bankastjórí Búnaðarbankans, og Baldvin Tryggvason, formaður Sambands íslenskra sparísjóða, meta það svo að ekki séu aðstæður til að lækka vexti vísitölubundinna lána meira en þeirrá stofnanir gerðu, eða 1,75 til 1,8%. Meðalvextir íslandsbanka lækkuðu um 2% og Landsbanka um 1,9%, samkvæint vaxtatöflu Seðla- bankans. Jón Adolf sagði að Búnaðarbank- inn teldi ekki aðstæður til að frekari lækkunar vaxta í bili. Áfram yrði fylgst með þróuninni, meðal annars verðbólgunni, og staðan metin síðar. Aðspurður um hvort ekki hefðu verið skapaðar forsendur fyrir 2% raun- vaxtalækkun sagði Jón Adolf að skuldabréf bankans hefðu gjarnan fylgt vöxtum á spariskírteinum á eftirmarkaði. Staðan þar væri sú að vextimir hefðu ekki lækkað um 2%, heldur um 1,7%. Þá vakti hann at- hygli á því að Búnaðarbankinn hefði Flytja má fuglana til landsins BRYNJÓLFUR Sandholt yfír- dýralæknir ákvað í gær að veita leyfi til að flylja fuglana 50 sem fundust við tollskoðun í Kristjánssundi fyrir helgi til íslands. í samtali við Morgunblaðið sagði Brynjólfur að umsögn sín lægi fyrir um að flytja megi fugl- ana aftur til íslands þar sem þeir séu fluttir til landsins í rannsókn- arskyni en ekki til neyslu eða annarrar notkunar. Hann kvaðst eiga von á á landbúnaðarráðu- neytið afgreiddi málið og gæfi samþykki sitt í dag, föstudag. lækkað vexti almennra skuldabréfal- ána um 2% og þar væri bankinn með lægstu kjörvextina. „Markaðurinn verður að ráða“ Baldvin Tryggvason sagði að sparisjóðirnir hefðu lækkað kjörvexti vísitölubundinna lána í 5,5% sem væri það sama og Búnaðarbankinn byði og nokkru lægra en hjá íslands- banka. Hann sagði að sparisjóðirnir hefðu ekki treyst sér að lækka vext- ina um 2%, aðstæðumar hefðu ekki leyft það. „Markaðurinn verður að ráða,“ sagði Baldvin. Hann sagði að ef Landsbankinn gæti lækkað vexti sína meira væri það hans mál en vakti athygli á því að þar væri um að ræða ríkisbanka. „Við rekum okk- ar stofnanir þannig að enginn tapi á því að eiga viðskipti við þær. Eigið fé rýmar ekki og við fáum ekki ríkis- framlög, við verðum að standa á eig- in fótum," sagði Baldvin. ------*- ♦ ♦----- Verð á ICY- vodka lækkar VERÐ Á ICY-vodka í 750 milli- lítra flöskum hefur verið lækkað og kostar flaskan nú 2.290 í útsöl- um ÁTVR. Nemur lækkunin 130 krónum. í frétt frá Sprota hf. segir, að eftir verðbreytinguna sé ICY-vodka eitt það ódýrasta á markaðnum miðað við magn í flösku. Sproti hf. framleiðir ICY-vodka í Borgarnesi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.