Morgunblaðið - 12.11.1993, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 12.11.1993, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1993 félk í fréttum Herbert og aðstoðarmennirnir Ágúst Jakobsson, Kristinn Þórðarson, Hjörtur Grétarsson og Einar. Með þeim á myndinni er breskur aðstoðarmaður, Larry Manke. Herbert færir Herbie eintak af geisladisk sínum. ÚTGÁFA Herbert kveður sér hljóðs Herbert Guðmundsson hefur lítið látið á sér kræla síðustu ár, en kveður sér hljóðs fyrir þessi jól með breiðskífunni Being Human. Til að kynna plötuna bryddar Herbert upp á ýmsu. Epr hann m.a. fyrir skemmstu til Los Angeles þar sem hann vann að tveimur tónlistarmynd- böndum með nokkrum íslenskum kvikmyndagerðarmönnum. Þetta voru þeir Agúst Jakobsson sem sá um tökur, Kristinn Þórðarson sem var framkvæmdastjóri, Hjörtur Grét- arsson sem leikstýrði og Einar, sem klippti myndbandið. Herbert sagði myndbandagerð dýrt gaman og líklega færu ekki nema ævintýramenn utan þeirra er- inda. „En verður maður ekki að vera bjartsýnn," bætti hann við. í Los Angeies hitti hann banda- ríska tónlistarmanr.inn Herbie Hancock og kyijaði með honum, en báðir eru búddatrúar. Herbert minnti á að þegar Herbie hefði komið hing- að til lands á Listahátíð á sínum tíma hafí hann einmitt kyijað með íslensk- um búddistum. Herbert sagði að dvölin ytrá'hefði verið mikil vinnutöm, unnið frá því snemma á morgnana þar til lagst var fyrir að kveldi. Hann sagðist hafa orðið var við skógareldana sem sviðið hafa mikið land í Kalifomíu undanfarið. „Það var reylcjarmökkur yfír austurhluta borgarinnar og alls staðar var hvítt öskulag. Iðulega dró öskuský fyrir sólu, en það spiliti ekki tökum hjá mér, því að þær voru búnar þegar eldarnir náðu hámarki." Morgunblaðið/Vilborg Runólfsdóttir Nemendur 1-L hlaupa í skarðið ásamt kennara sínum Bergljótu Aradóttur, sem sést á miðri mynd, og öðrum kennurum. SKÓLALÍF Gulrætur að smakka hressir alla krakka lVj emendur Laugarnesskóla "*■ ” tileinkuðu dagana 1.-5. nóv- ember hollum lífsháttum. Gerðar voru kannanir um tómstundir og mataræði, auk þess sem ávaxta- réttir voru útbúnir og hvatt var til aukinnar vatnsneyslu. Utivist var meiri en á venju- legum skóladegi, því nemendur tók þátt í ýmsum útileikjum sem skipulagðir voru á skólavellinum. Hjá eldri nemendum var hefð- bundin stundaskrá lögð til hliðar en í staðinn völdu þeir sér verk- efni eins og skyndihjálp, ratleik, hjólaþrautir, matreiðslu, leikfimi, útileiki og dans. Yngri nemendur héldu hópinn og unnu ýmis verk- efni tengd hollustu. Daglega tóku allir nemendur og starfsfólk skólans þátt í hrejrfíngu á sal og göngum skól- ans. Um þennan þátt sáu bæði nemendur, kennarar, skólastjóri og Magnús Scheving þolfimi- meistari. Auk hans komu í heim- sókn Hrafnhildur Pétursdóttir og Katrín Ólafsdóttir tannfræðing- ar og Þorvarður Ömólfsson frá Krabbameinsfélaginu. I lok ánægjulegrar viku var farið í skrúðgöngu um Laug- Svava María Jónsdóttir og Rln Samia Raiss sýna tilþrif í morgunleikfiminni. ardalinn undir veifum sem nem- endur höfðu búið til. Á veifunum vom myndir af ýmsum ávöxtum og grænmeti ásamt slagorðum eins og „Gulrætur að smakka, hressir alla krakka" og „Banan- ar, perur og epli í maga, bæta líðan í marga daga“. t i íkvöld með SSSQL VerllOOO kr. Ath....hefObundiö fjör annað kvöld Þorvaldi Gunn ná upp dórsson vason emmningu O PIÐ _F RÁ KLUKKAN 19:00 - 03:00 Lowgav»9Í 45 > s. 21 255 í kvöld plAhnetan Laugardag TODMOBILE ÁRTÖN VAGNHOFÐA 1 1, REYKJAVIK, SÍMI 685090 Gömlu og nýju dansarnir í kvöld i 'mi _ ' iNi .fif Pf Hljómsveitin Túnis ásamt söngkonunni ÖNNU JÓNU leikur frá kl. 22-03 Miðaverð kr. 800. Tökum að okkur minni og stærri hópa fyrir árshátíðir o.fl. Örfá kvöld laustil áramóta. Eruni nú þegar farin að bóka fyrir næsta ár. Mióo- og boróapontanir pRZSK i simum 685090 og 670051. 0 TREGASVEITIN RÍÓ TRÍÓ BÓHEM KVÖLD

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.