Morgunblaðið - 12.11.1993, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1993
Minning
/
Súsanna María Bach-
mann Stefánsdóttir
Fædd 4. desember 1920
Dáin 28. október 1993
Okkur systkinin langar í örfáum
orðum að minnast elsku ömmu okk-
ar, Súsönnu Maríu Bachmann Stef-
ánsdóttur, sem lést hinn 28. októ-
ber sl. eftir langvarandi veikindi.
Þegar við lítum til baka minn-
umst við kvöldanna þar sem við
sátum með henni og spiluðum og
ræddum saman um heima og
geima. Barst þá stundum talið að
veikindum hennar og lífsbaráttu.
Hún var alla tíð með eindæmum
dugleg og ósérhlífin og aldrei á því
að gefast upp. í öllu því sem hún
tók sér fyrir hendur vottaði fyrir
mikilli þrautseigju og sem dæmi um
það er þegar hún fékk þá hugmynd
að tína maðka sem tekjulind eftir
að afi varð óvinnufær. A meðan á
þessu stóð varð hún fyrir því óhappi
að þríbrotna á öðrum fæti, en lét
það þó ekki aftra sér og æfði sig
lengi í því hvernig hún gæti best
komið því við að beygja sig eftir
möðkunum með spelkumar á fætin-
um. Attum við með henni marga
ánægjunóttina við maðkatínsluna.
Amma hafði mikið dálæti á ljóð-
um og söng. Okkur langar því hér
um leið og við kveðjum hana að
láta fylgja með eitt af hennar uppá-
haldsljóðum sem er eftir Freystein
Gunnarsson og nefnist Glerbrot:
Ég fann það um síðir, að gæfan er gler,
svo grátlega brothætt hún reyndist mér,
þvi æskan er léttstíg og leikur sér
að ljómandi gullinu fríða.
En glerið er brothætt, og gijótið er víða.
Mér gersemin dýra var gefin í hönd,
í gáskanum héldu mér engin bönd;
ég lék mér á æskunnar Ijómandi strönd,
sá leikur varð gullinu’ að meini.
Ég braut það í ógáti' á örlagasteini.
+
GUÐRÚN HANSDÓTTIR,
Kanastöðum,
Austur-Landeyjum,
lést í Landspítalanum 2. nóvember.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey.
Diðrik Sigurðsson
og aðstandendur.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
ÁSTA THORARENSEN,
áðurtil heimilis
á Laugarnesvegi 118,
lést í Borgarspítalanum 10. nóvember.
Stefanfa Harðardóttir, Ásgeir Sigurgestsson,
Óli Harðarson, Ingunn Helgadóttir,
Guðrún María Harðardóttir, Bjarne I. Jensen,
Solveig Harðardóttir, Heimir Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
BJARNI JÓNSSON,
Faxaskjóli 12,
lést á heimili sínu 11. nóvember 1993.
Adolf Bjarnason, Ásta Jóhannesdóttir,
Kristinn Bjarnason, Kristin Pálmadóttir,
Bjarni G. Bjarnason, Sigrún Gunnarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
GUÐNÝ TORFADÓTTIR,
Laufásvegi 59,
Reykjavík,
lést á hjartadeild Landspítalans að morgni 11. nóvember.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Kristinn Vilhjálmsson,
Jón P. Kristinsson,
Anna Sigríður Kristinsdóttir Fredriksen, Finn R. Fredriksen
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Útför
PÁLÍNU GUÐLAUGSDÓTTUR
Ijósmóður,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli 1. nóvember sl., fer fram frá
Fossvogskirkju mánudaginn 15. nóvember kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Blindrafélagið,
Hamrahlíð 17.
Helgi Guðlaugsson, Gyða Guðmundsdóttir,
Helga Einarsdóttir, Jakob Friðriksson,
Helga Magnúsdóttir, Karl T. Esrason.
Nú skil ég það fyrst, hvað ég skemmti mér við,
er skemmt hef ég dýrasta leikfangið.
Nú sit ég í rökkrinu’ og rísla mér við
að raða brotunum saman.
Ég særi mig á þeim. - En samt er það gaman.
Við þökkum ömmu okkar ótak-
markaða ást og hlýju í okkar garð.
Blessuð sé minning hennar.
Stefán Bachmann,
Fanney Karlsdóttir.
Nú hefur hún elsku amma mín
fengið hvíld og frið frá sínum erfiðu ■
veikindum. Oft gat amma sýnt gleði
sína, hvort það var í söng eða hlátri,
en hún hafði svo gaman af því að
vera í góðra vina hópi og rifja upp
öll gömlu lögin eða syngja með
okkur það sem hún sjálf hafði búið
til, bæði ljóð og lög.
Mér er minnisstætt frá Þorláks-
messu í fyrra, er hún talaði í fyrsta
sinn í minni áheyrn um það hve oft
hún hefði verið tilbúin að kveðja
það líf, sem hún lifði hér á jörðu,
en hún sagði, að enginn réði sínum
næturstað og trúlega væri henni
ætlaður örlítið lengri tími meðal
okkar.
Það verður tómlegt á Einiberginu
nú á jólum að hafa ekki ömmu hjá
okkur eins og venja hefur verið síð-
astliðin 23 ár með aðeins tveimur
undantekningum. í þau skiptin
treysti hún sér einfaldlega ekki til
að koma að því að hún var lasin.
Það var stundum þannig að mamma
sótti ömmu Sússu á sjúkrahúsið,
klæddi hana í jólafötin, lagaði hárið
og snyrti. Þá var amma glöð og
gat átt með okkur aðfangadags-
kvöld.
Það er erfitt að vera staddur er-
lendis og geta ekki fylgt ömmu síð-
asta spölinn.
Að geyma jafnan glaðan hug
það gefur bæði þrótt og dug
og leiðir af sér ljós og yl
og léttir þeim er finna til.
Við Steini hugsum heim til afa
og þökkum honum fyrir alla þá
umhyggju og dugnað er hann sýndi
ömmu síðustu árin.
Eg bið algóðan guð að geyma
hana ömmu mína.
Þín Súsanna.
í dag fer fram útför Súsönnu
frænku minnar, en móðir hennar
Margrét Sveinsdóttir var systir
Þuríðar móður minnar. Þær voru
dætur Sveins Auðunssonar og Vig-
dísar Jónsdóttur. Sveinn var bæjar-
fulltrúi í Hafnarfirði, einn af stofn-
endum verkamannafélagsins Hlífar
og stúkunnar Daníelshers.
Súsanna var fædd árið 1920 og
hefði því orðið 73 ára hinn 4. desem-
ber. Hún var því aðeins tíu ára á
Alþingishátíðinni á Þingvöllum
1930, en þar vöktu þær systur Þóra
og hún svo mikla athygii fyrir feg-
urð og glæsileik að Jón Kaldal ljós-
myndari var fenginn til þess að
taka myndir af þeim, sem síðan
voru gefnar út á minjagripum og
birtar í ýmsum blöðum.
Þó að Súsanna hafi oft verið
fengin til að gæta mín fyrstu árin
og kallað mig jólagjöfina sína, man
ég einna fyrst eftir henni á bama-
stúkufundi í Góðtemplarahúsinu,
þar sem þessi litla fallega frænka
trítlaði upp á sviðið, settist á háa
bekkinn við píanóið án þess að ná
niður á pedalana og heillaði fullan
stúkusalinn með sinni töfrandi
hljómlist og framkomu.
Þessir heillandi töfrar sem stöf-
uðu frá Súsönnu voru eins og rauð-
ur þráður í gegnum alla henna lífs-
göngu og þrátt fyrir mikil veikindi
sl. 20 ár glampaði alltaf í ljósgeisla
hið innra.
I minningunni um Súsönnu koma
orðin gestrisni og glaðværð fyrst
upp í hugann. Það er ógleymanlegL.
hve fljótt löng og dimm vetrarkvöld
liðu við spil og hljóðfæraslátt á
æsku- og ungdómsárum mínum í
Sveinsbæ og Brautarholti. _ Þessi
sérstaki heimilisbragur varð til þess
að aldrei setti að manni vetrar-
kvíða, miklu fremur tilhlökkun til
að taka í spil eða skák með þeim
frændum Sveini Viggó bróður Sús-
önnu og Stíg Sæland lögregluþjóni,
móðurbróður okkar.
Systumar atorka og iðjusemi
fylgdu Súsönnu meðan hún hafði
þrek til og gífurleg handavinna
liggur eftir hana, bæði í pijónlesi
og útsaumi. Hún var alltaf að, aldrei
aðgerðalaus.
Arið 1940 giftist hún Sveini Kr.
Magnússyni málarameistara og
eignuðust þau þijú börn. Þau eru:
Jón Þórir, giftur Sigrúnu Péturs-
dóttur, Karl Harry, í sambýli með
Maria Weiss, og Sveindís, gift
Helga Eyjólfssyni. Barnabömin eru
orðin sex.
Um leið og við þökkum samfylgd-
ina sendum við hjónin Sveini, börn-
um, tengdabömum og barnabörn-
um okkar innilegustu samúðar-
kveðjur.
Blessuð sé minning Súsönnu.
Rafn Hafnfjörð.
BLÓM, UNDIR STIGANUM
í BORGARKRINGLUNNI
SÍMI 811825
] s [-löföar til LXfólksíöllum tarfsgreinum!
HU
+
Ástkær móðir mín, tengdamóðir og amma,
ARNDÍS GUÐRÍÐUR JAKOBSDÓTTIR,
Merkjateigi 5,
Mosfellsbæ,
verður jarðsungin frá Lágafellskirkju laugardaginn 13. nóvember
kl. 14.00.
Bernhard Linn, Dagbjört Pálmadóttir
og börn.
+
Ástkær faðir okkar,
ÓLAFUR JÓSÚA
GUÐMUNDSSON,
sem lést þann 5. nóvember, verður jarð-
sunginn frá Stóra-Laugardalskirkju,
Tálknafirði, laugardaginn 13. nóvember
kl. 14.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Börn hins látna.
+
Útför eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
SÚSÖNNU MARÍU BACHMANN
STEFÁNSDÓTTUR,
fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag,
föstudaginn 12. nóvember, kl. 15.00.
Blóm og kransar eru vinsamlegast
afþakkaðir, en þeir, sem vildu minnast
hinnar látnu, láti liknarstofnanir njóta
þess.
Sveinn Kr. Magnússon,
Jón Þórir Sveinsson, Sigrún Pétursdóttir,
Karl Harry Sveinsson, Maria Weiss,
Sveindís Sveinsdóttir, Helgi Eyjólfsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
ELÍNBORG SIGURÐARDÓTTIR
frá Skuld,
Vestmannaeyjum,
Háengi 3, Selfossi,
sem andaðist 5. nóvember, verður jarð-
sungin frá Selfosskirkju laugardaginn
13. nóvember kL 15.00. Sætaferð frá
Umferðarmiðstöðinni kl. 13.30.
Guðmundur Geir Ólafsson,
Erla Guðmundsdóttir, Gunnar Guðnason,
Ólafur Guðmundsson, Hrafnhildur Guðmundsdóttir,
Ingunn Guðmundsdóttir, Magnús Jakobsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Lokað
Vegna jarðarfarar SÚSÖNNU MARÍU
BACHMANN STEFÁNSDÓTTUR, verður verslun-
in Lækjarkot, Lækjargötu 32, Hafnarfirði, lokuð
föstudaginn 12. nóvember frá kl. 13.00.
Ath.: Opið laugardaga.