Morgunblaðið - 23.11.1993, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER 1993
Slippstöðin-Oddi
Greiðslu-
stöðvun
framlengd
HÉRAÐSDÓMUR Norðurlands
eystra veitti í gær Slippstöðinni-
Odda hf. heimild til að fram-
lengja greiðslustöðvun sem fyrir-
tækið hefur verið í um þrjá mán-
uði eða til 22. febrúar á næsta ári.
Greiðslustöðvun Slippstöðvarinn-
ar-Odda hf. rann út í gær, en fyrir-
tækið hafði þá verið í greiðslustöðv-
un frá því í sumar. Stjóm fyrirtæk-
isins óskaði eftir því að hún yrði
framlengd til þriggja mánaða í við-
bót og veitti Asgeir Pétur Ásgeirs-
son héraðsdómari fyrirtækinu
heimild til að framlengja greiðslu-
stöðvun til 22. febrúar árið 1994.
----♦ » ♦---
Vör bauð lægst
í viðbyggingu
á flugstöð
VÖR hf. bauð lægst í fyrsta
áfanga viðbyggingar við Flug-
stöðina á Akureyri, en tilboð
voru opnuð í vikunni.
Sex verktakar buðu í verkið, en
einkum er um að ræða jarðvegs-
vinnu auk þess sem steypa á upp
gólfplötu og fleira. Kostnaðaráætl-
un var upp á rúmlega 7,7 milljónir
króna. Tilboðið frá Vör var upp á
tæpar 6,2 milljónir króna eða um
80,1% af kostnaðaráætlun.
----» -»-»--
■ SYSTRAKVÖLD verður
haldið í Glerárkirkju í kvöld, þriðju-
dagskvöldið 23. nóvember og hefst
það kl. 20.30. Kyrrðarstund verður
í kirkjunni í hádeginu á morgun,
miðvikudag frá kl. 12 til 13, léttur
sameiginlegur hádegisverður í lok-
in. Fyrirbænastund á fimmtudag,
25. nóvember kl. 18.15.
Jólatré seldust upp á síðasta ári og því meira höggvið að þessu sinni
Áætlað
að selja
ríflega
2.000
tréí ár
STARFSFÓLK Skógrækt-
arfélags Eyfirðinga í
Kjarnaskógi hefur síðustu
daga verið að höggva,
snyrta og flokka jólatré, en
áætlað er að seld verði ríf-
lega 2.000 jólatré fyrir þessi
jól. Verð á innlendum jól-
atrjám verður svipað og í
fyrra, en þau innfluttu
hækka væntanlega í kring-
um 10% á milli ára.
Hallgrímur Indriðason fram-
kvæmdastjóri Skógræktarfélags
Eyfirðinga sagði að heidur meira
hefði verið höggvið af tijám nú
en fyrir síðustu jól, en þá seldust
þau öll upp og fengu færri en
vildu. „Við viljum síst af öllu
standa í þeim sporum aftur,“
sagði Hallgrímur en reynt er þó
að haga málum á þann hátt að
höggva ekki mikið umfram það
sem talið er að seljist.
Gott að vera í skóginum
Friðgeir Jónsson skógræktar-
bóndi í Ystafelli í Köldukinn var
í Kjarnaskógi í gær, en hann
selur Skógræktarfélagi Eyfirð-
inga á milli 150 og 200 tré úr
skógi sínum, Fellsskógi, en alls
hefur hann höggvið um 300 tré
úr skóginum sem hann selur til
Húsavíkur auk Akureyrar. Þá
er hann einnig umsjónarmaður
Jólatrén flokkuð
Morgunblaðið/Rúnar Þór
RÍFLEGA 2.000 jólatré hafa verið höggvin, snyrt og flokkuð hjá Skógræktarfélagi Eyfirðinga í Kjarna-
skógi og voru starfsmennirnir í óða önn að flokka tré úr Fossselsskógi austan Skjálfandafljóts í gær.
Skógræktarfélags Þingeyinga í
Fössselsskógi en þaðan voru tek-
in um 500 tré.
Friðgeir sagði ræktun og sölu
á jólatijám helstu tekjulind sína,
en sala á jólatijám færi vaxandi
um allt héraðið. „Það er mjög
gaman að vera skógræktar-
bóndi, það er gott að vera í skóg-
inum, þar er kyrrt og gott þann-
ig að mér líkar þetta starf ágæt-
lega,“ sagði Friðgeir.
Sala á jólatijám hefst 10. des-
ember næstkomandi og verða
útsölustaðir Skógræktarfélags
Eyfirðinga í miðbæ Akureyrar,
í Kjarnaskógi og við Sunnuhlíð.
Fyrir n'æstu helgi verða seldar
greinar, enda fyrsti sunnudagur
í aðventu næstkomandi sunnu-
dag.
Pétur Pétursson heilsugæslulæknir sýknaður af fjárkröfum vaxtarræktarmanna
Ummæli læknisins um vaxt-
arræktarmenn dæmd ómerk
PÉTUR Pétursson heilsugæslulæknir á Akureyri var sýknaður af
öllum fjárkröfum sem vaxtarræktarmenn höfðu gert á hendur hon-
um í Héraðsdómi Norðurlands eystra í gær, en ummæli sem hann
hafði viðhaft um kraftlyftinga- og vaxtarræktarmenn voru dæmd
ómerk. Þá var Pétur dæmdur til að greiða Ólafi Sigurgeirssyni lög-
manni miskahætur, málskostnað og að kosta birtingu dóms í meið-
yrðamáli er Ólafur höfðaði gegn Pétri og reis í kjölfar málaferla
vaxtarræktarmanna gegn Pétri Péturssyni. Ummæli Péturs um Ólaf
voru dæmd ómerk.
Eirrör og tengi
til miðstöðva- og
vatnslagna.
fLTIfirifi Verslift yib
JUtlLij ,agmann-
DRAUPNISGÖTU 2 AKUREYRI
SÍMI (96)22360
Stefnendur, 26 vaxtarræktar-
menn, gerðu þær dómkröfur að Pét-
ur yrði dæmdur til að greiða hveijum
þeirra 300 þúsund krónur í miska-
bætur, eða samtals 7,8 milljónir
króna. Ennfremur að Pétur yrði
dæmdur til tveggja ára fangelsisvist-
ar og að umraæli hans: „Mér skiist
það, að þeir sem að stunda vaxtar^,
rækt, það heyri til undantekninga,
ef að þeir karlmenn eru ekki á
sprautum", verði dæmd dauð og
ómerk. Loks var þess krafist að hann
greiddi málskostnað og íjárhæð til
að kosta birtingu dómsins.
Pétur krafðist sýknu af öllum kröf-
um stefnenda í málinu.
Vörumerki fyrir
lyfjamisnotkun
Ofangreind ummæli lét Pétur falla
í útvarpsþættinum „í dagsins önn“
í Ríkisútvarpinu árið 1991 og í kjöl-
farið hófst mikil umræða í fjölmiðlum
um notkun hormónalyfja í íþróttum,
einkum kraftlyftingum og vaxtar-
rækt. Vaxtarræktarmenn sem
stefndu Pétri töldu að aðdróttanir í
sinn garð vegna málsins hefðu valdið
sér miklum miska og óþægindum,
rógburður um lyflamisnotkun sé al-
varlegur, en varla sé neitt meira
meiðandi um karlmann én fullyrðing
um getuleysi eða ófijósemi. Markmið
vaxtarræktarmanna sé að fullkomna
karlmannsímyndina, en eftir aðdrótt-
anir Péturs hafi líkami vaxtarræktar-
manna verið notaður sem vörumerki
fyrir lyljamisnotkun, slíkur líkami sé
sönnun um dóp, getuleysi og óheil-
brigði, aðdáun og virðing hverfí.
I greinargerð Péturs kemur fram
að hann hafí á læknisferli sínum
verið virkur í almenninguppfræðslu
og rekið sterkan áróður fyrir heilsu-
vernd og bent á ýmsa þætti í heil-
brigðiskerfinu sem betur mættu fara.
Umrætt mál sé einungis einn liður í
þeirri heilsupólitík sem hann telur
sér skylt að stunda. Misnotkun lyfja
við íþróttaiðkun sé þekkt og megi
öllum vera ljóst að það vandamál sé
staðreynd _hér á landi.
í dómi Ásgeirs Péturs Ásgeirsson-
ar héraðsdómara segir að ekki þyki
sannað að stefnendur hafí orðið fyrir
slíkum miska er íjárkrafa þeirra
miðast við. Um áðurnefnd ummæli
Péturs þar sem vikið er að lyfjanotk-
un vaxtarræktarmanna segir í dómn-
um að þau verði ekki talin honum
vítalaUs, þó hann í sjálfu sér sé að
vekja athygli á sannanlegri heilsuvá
og honum hafí gengið gott eitt til.
Fallist er á að Pétur hafí með þeim
misgert við stefnendur og eru þessi
ummæli hans dæmd ómerk.
í tengslum við málarekstur þenn-
an höfðaði Ólafur Sigurgeirsson lög-
maður vaxtarræktarmannanna
meiðyrðamál gegn Pétri Péturssyni
þar sem hann krafðist þess að ýmis
ummæli er Pétur viðhafði í fjölmiðl-
um um sig yrðu dæmd dauð og
ómerk, að hann yrði dæmdur í
tveggja ára fangelsi vegna þeirra,
að hann greiddi stefnanda 500 þús-
und krónur í miskabætur, 100 þús-
und krónur til að kosta birtingu
dómsins og til greiðslu málskostn-
aðar. Pétur krafðist sýknu af öllum
kröfum.
Ummæli Péturs voru í gær dæmd
ómerk og honum gert að greiða Ólafi
20 þúsund krónur í miskabætur
ásamt dráttarvöxtum, 30 þúsund
krónur í málskostnað og 10 þúsund
krónur til að kosta birtingu dómsins.