Morgunblaðið - 23.11.1993, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER 1993
37
Minning
Helga Helgadóttir
Fædd 1. júní 1906
Dáin 29. október 1993
Þá er hún fallin frá móðursystir
mín, Helga í Gróðrarstöðinni, þar
sem ég man eftir henni best. Hún
hélt sinni reisn, hressileika og hrein-
skilni til hinsta dags. Tvö síðustu
árin voru henni erfið og þurfti að
taka af henni annan fótinn, en því
tók hún með æðruleysi.
Helga var fædd á ísafirði 1. júní
1906 og var á 88. aldursári er hún
lést. Hún var sjötta í hópi átta
systkina en þau voru Guðný, Guð-
rún, Sólveig, Margrét, Þorlákur,
Nanna og Sveinn og enn eru á lífi
Guðný og Margrét í hárri elli. Helga
ólst upp á ísafirði en foreldrar henn-
ar voru Helgi Sveinsson bankastjóri
og Kristjana Jónsdóttir frá Gaut-
löndum. Helgi var mikill félags-
málamaður og starfaði að bindindis-
málum af kappi. í þeim anda ólst
Helga upp og mótaðist.
Móður sína missti hún tæplega
þriggja ára gömul og mundi hana
ekki. Helgi fluttist til Reykjavíkur,
en systir hans Margrét var í heim-
sókn frá Kanada þegar móðir Helgu
lést 5. desember 1908 frá átta ung-
um börnum, því yngsta nýfæddu.
Margrét tók að sér umönnun barn-
anna á örlagaríkum tímum.
Þau bjuggu í Garðastræti 13 eða
Garðó eins og við kölluðum það.
Þar var mikið menningarheimili.
Fjölskylduböndin voru sterk og þar
hittust systkinin oft þegar þau
höfðu stofnað sína eigin fjölskyldu.
Þaðan eigum við barnabörnin okkar
góðu minningar af fjölskylduboðum
og heimsóknum og þar var maður
alltaf velkominn.
Helga hóf nám í Kvennaskólan-
um í Reykjavík 1921. Síðan fór hún
til Kaupmannahafnar og lærði þar
fatasaum, sem ekki var algengt hjá
ungum stúlkum á þeim tíma. Hún
stofnaði saumastofu í Reykjavík og
rak hana þangað til hún giftist árið
1937.
Helga giftist Eiríki Einarssyni,
en hann var sonur Einars Helgason-
ar stofnanda Gróðrarstöðvarinnar í
Reykjavík og Kristínar Guðmunds-
dóttur. Eiríkur var mætur arkitekt
og hannaði margar þekktar bygg-
ingar og rak arkitektastofu. Hann
átti fágætt safn guðsorðabóka, m.a.
Guðsbrandsbiblíu. Hann lést á góð-
um aldri árið 1969. Helga kom eins
og sólargeisli inn í fjölskylduna
stuttu eftir lát Einars og fyllti heim-
ilið lífi og fjöri á ný.
Starfssvið Helgu og heimiii var
í Gróðrarstöðinni og var með ólík-
indum hvað hún komst yfir á því
mannmarga heimili. Oft lágu leiðir
milli heimilis móður minnar á Berg-
staðastræti 69 og Gróðrarstöðvar-
innar. Minningarnar þaðan eru ljúf-
ar, sérlega um jólin og á vorin. Til
dæmis man ég ekki eftir lifandi
kertaljósum á jólatré nema þar.
Einu sinni lá þó við slysi þegar
kviknaði í trénu. Gaman var að leika
sér í stóra garðinum og klifra í stóra
trénu við húsið og fylgjast með
gróðrarstörfum. Helga var frábær
húsmóðir og matmóðir, sem er
manni mannisstætt. Hver man ekki
skæra hláturinn hennar Helgu og
hver hlustaði ekki eftir því sem hún
sagði, hvort sem það var frásögn
af einhverjum atburðum eða er hún
fór með ljóð. Hún kunni ógrynni
af ljóðum og hafði miklar mætur á
skáldunum okkar, t.d. Páli Ólafs-
syni, Davíð og mörgum fleirum.
Helga var mjög hreinskilin og sagði
sínar skoðanir hreint út ef því var
að skipta. Oft hlógu þær Heiða
kona mín og hún að því þegar þær
lokuðust inni á Grenjaðarstaðar-
bænum, er hún var í heimsókn hjá
okkur á Húsavík. Seinustu sam-
fundir okkar Heiðu og Helgu voru
í september í haust.
Helga og Eiríkur eignuðust fjög-
ur börn, Kristínu, f. 6. jan. 1938,
Margréti Helpi, f. 16. maí 1942,
Einar, f. 9. júní 1944, og Helga,
f. 13. okt. 1951, sem er jafnframt
yngstur af barnabörnum Helga
Sveinssonar. Þau eru öll gift og
hafa komist vel áfram. Barnabörnin
eru 13 en langömmubörnin sjö og
voru þau Helgu mikil stoð á efri
árunum, en Helga var þeim fróð-
leiksbrunnur.
Helga seldi Gróðrarstöðina árið
1978. Var það erfið ákvörðun en
nauðsynleg. Hún fluttist að Keldu-
landi 5, og bjó þar til í september
sl. er hún fluttist í Seljahlíð, en þá
húmaði að kveldi.
Einn ánægjulegasti atburður á
efri árum hennar var þegar Einar
sonur hennar keypti Gróðrarstöðina
og endurheimti hana í ættina.
Við Heiða sendum börnum,
barnabörnum, tengdabörnum og
systrum hennar innilegar kveðjur.
Lífshlaupinu er lokið, en minningin
lifir. Guð blessi ykkur öll. Ég vil
enda þessi orð með ljóðlínum Hann-
esar Hafstein.
Er sólin hnípr hægt í djúpan sæ
og höfuð sitt til næturhvíldar byrgir,
á svalri grund, í golu þýðum blæ
er gott að hvíla þeim, er vini syrgir.
Ottar Viðar.
Guðrún Víglunds-
dóttir - Minning
Fædd 11. mars 1950
Dáin 17. október 1993
Mig langar í fáum orðum að
minnast hennar Gurru, sem ég kalh
aði ævinlega Gurrý. Ég kynntist
henni þegar ég var barn, því að hún
kom þá oft heim til mömmu. Svo
sást hún ekki heima hjá okkur í
nokkur ár, ekki fyrr en ég kynntist
Diddu systur hennar. Við urðum
góðar vinkonur.
Didda kom mér aftur í kynni við
Gurru og það var indælt að koma
heim til hennar. Það var mikið ljör
í henni og hún bjó við mikið ástríki.
Hún vakti aðdáun manns strax og
maður fór að tala við hana. Hún
var svo hörð við sjálfa sig og sýndi
okkur fram á að með vilja og ást
getur maður lifað lengi þrátt fyrir
svona mikil og erfið veikindi, eins
og hún gekk í gegnum.
Mér verður oft hugsað til Gurru
þegar ég horfi á handbolta- og
knattspyrnuleiki í sjónvarpinu. Ég
Fæddur 16. ágúst 1924
Dáinn 11. október 1993
Hinn 31. október síðastliðinn var
til foldar færður í kyrrþey að eigin
ósk vinur minn frá unglingsárum
Gunnar Gissurarson. Gunnar var
einstakur persónuleiki til orðs og
æðis, gullvandaður í öllum störfum
sem hann tók sér fyrir hendur og
naut virðingar allra sem honum
kynntust í lífi og starfi.
Ég hitti Gunnar þrem vikum áður
en hann lést, á stéttinni fyrir fram-
an íbúðina mína þar sem hann var
að koma heim með konu sinni og
að venju fórum við að rabba saman
um daginn og veginn. Þá segir hann
in'A mi’fr minn minnctu mín
get aldrei gleymt því þegar við vor-
um í Hveragerði og fjölskylda henn-
ar og þau systkinin horfðu á sjón-
varpsútsendingu frá handboltaleik.
Þvílíkt fjör. Það var miklu skemmti-
legra að horfa á þau en sjónvarps-
skjáinn. Þau hoppuðu og hljóðuðu
og gerðu að gamni sínu, ekki síst
Gurra mín.
Ef maður fór á knattspyrnuvöll
á Akureyri til að horfa á Þór og
KA leika, heyrði maður í Gurru.
Þá var sagt: Nei, sko, Víglundar-
systkinin eru komin.
Gurra var mikil manneskja og
við hjónin minnumst hennar fyrir
þá hlýju og ástúð sem hún sýndi
okkur. En umfram allt elskaði hún
tjölskyldu sína, foreldra og systk-
ini. Hún bar hag þeirra ævinlega
fyrir bijósti og var stoð þeirra og
stytta þegar bræður hennar Jóhann
og Bjarni létust með skömmu milli-
bili fyrir nokkru.
Við spyijum: Af hveiju Gurra?
En það er Guð sem kallar. Við
Steini minn, því að nú er ég á för-
um.“ Ég sló þessu upp í grín og
segi: „Enginn veit hver annan gref-
ur, Gunnar minn, ef ég lifi þig er
mér heiður að því.“ Og hér og nú
stend ég við það.
Gunnar var trúmaður í orði og á
borði, liðsmaður Krists til góðra
verka. Ef við minnumst unglingsára
þinna, Gunnar minn, þá háði þér
sjónin þegar við strákarnir vorum
í prakkarastrikum unglingsáranna.
Ég segi því að þrátt fyrir veikindi
þín í gegnum lífið varst þú kallaður
til af æðri mætti að leiðbeina þeim
sem gengu breiða veginn.
Guð blessi konu þína og alla þá
sem þú studdir til betra mannlífs.
Sfoi’mrnmiir Milrnlóccmi
þörfnuðumst hennar mikið, en vafa-
laust hefur hennar einnig verið þörf
hjá Guði. Þar eigum við eftir að
hitta hana á ný þegar Guð kallar
okkur til sín.
Við hjónin geymum minninguna
um Gurru í hug okkar og hjarta
og þökkum henni og fjölskyldu
hennar allt gott. Guð blessi þau og
styrki á þessum erfiðu tímamótum.
Herborg Harðardóttir.
LEGSTEINAR
Dæmi 35.000 51.000
um afsláttarverð ’ - 3.500 - 5,100
31.500 45.900
Flutningskostnaður innitalinn.
Stuttur afgreiðslufrestur.
Fáið myndalistann okkar.
'MM
stkiivn
720 Borgarfirði eystra, sími 97-29977.
Minning
Gunnar Gissurarson
+
Útför
GUNNARS KRISTJÁNSSONAR
bónda,
Dagverðareyri,
fer fram frá Akureyrarkirkju fimmtudagin 25. nóvember kl. 13.30.
Jarðsett verður að Glæsibæ.
Fjóla Pálsdóttir,
Oddur Gunnarsson, Gfgja Snædal,
Seselía M. Gunnarsdóttir, Jóhannes Þengilsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
Móðir okkar, tengamóðir, amma og langamma,
ÁSTA THORARENSEN,
áðurtil heimilis
á Laugarnesvegi 118,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju í dag, þriðjudaginn
23. nóvember, kl. 13.30.
Stefania Harðardóttir, Ásgeir Sigurgestsson,
Óli Harðarson, Ingunn Helgadóttir,
Guðrún Marfa Harðardóttir, Bjarne I. Jensen,
Solveig Harðardóttir, Heimir Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Ástkær sonur okkar og bróðir,
SÆVAR BJARNASON,
Valhúsabraut 5,
verður jarðsunginn frá Seltjarnarnes-
kirkju miðvikudaginn 24. nóvember
kl. 15.00.
Þeim, sem vildu minnast hans, er bent
á barnadeild Landskotsspítala.
Bjarni Ómar Ragnarsson, Ragna Marinósdóttir,
Hrönn Bjarnadóttir,
Ragnar Bjarnason.
+
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og
afi,
BJÖRGVIN ÓLAFSSON,
fyrrverandi vörubílstjóri,
dvalarheimilinu Höfða,
áður Suðurgötu 94,
Akranesi,
andaðist í Sjúkrahúsi Akraness 19. nóv-
ember.
Útförin fer fram frá Akraneskirkju föstu-
daginn 26. nóvember kl. 14.00.
Helgi Björgvinsson, Ingibjörg Sigurðardóttir,
Guðrún Björgvinsdóttir, Snæbjörn Snæbjörnsson,
Sigrún Björgvinsdóttir, Gunnar Lárusson,
Þorbjörg Þorbjörnsdóttir, Helgi Ibsen,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Hjartkær móðir okkar,
GUÐBJÖRG JÓNSDÓTTIR
frá Sjónarhóli,
Hafnarfirði,
lést aðfaranótt 21. nóvember í St.
Jósefspítalanum í Hafnarfirði.
Jarðsett verður frá Fríkirkjunni í Hafnar-
firði föstudaginn 26. nóvemberkl. 13.30.
Blóm og kransar afbeðnir, en þeim, sem
vilja minnast hinnar látnu, er bent á
Fríkirkjuna eða líknarfélög.
Bára Björnsdóttir,
Bragi V. Björnsson,
Jón Boði Björnsson,
Birgir Björnsson,
Guðlaug B. Björnsdóttir
og fjölskyldur.
+
Alúðarþakkir sendum við öllum þeim,
sem sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför föður okkar, tengdaföð-
ur, afa og langafa,
MARONS BJÖRNSSONAR,
Ásabraut 3,
Sandgerði.
Þórir Maronsson,
Björn Maronsson,
Viggó Maronsson,
Helgi Maronsson,
Elsa Kristjánsdóttir,
Lydía Egilsdóttir,
Erla Sveinbjörnsdóttir,
Þórunn Haraldsdóttir,
Margrét Maronsdóttir, Magnús Jónasson,
barnabörn og barnabarnabörn.