Morgunblaðið - 25.11.1993, Side 22

Morgunblaðið - 25.11.1993, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LIF FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1993 Jóladagatöl fyrir börnin FYRSTI desember er á næsta leiti og mætti fara að huga að dagatali fyrir smáfólkið. Það er ágætt að sporna við súkkulaðiáti á morgnana og útbúa 24 litla pakka fyrir börn og festa á snærisspotta, greni eins og hér má sjá eða hengja þá á hveijum morgni við rúmið. Pakkarnir þurfa ekkert að vera stórkostlegir, það má kaupa kassa af einhveiju dóti og gefa einn og einn hlut úr kubbakassa eða öðrum leikfangakassa sem hentar hverju barni. Ef ekki eru til aurar fyrir því má setja miða í hvern pakka og lofa barninu því að lesa sögu þann daginn, fara að skoða jóla- sveina í búðargluggum, föndra, baka eða gera annað sem barninu þykir skemmtilegt. Möguleikamir eru margir og næstum öruggt að barnið á eftir að kunna að meta þessa fyrirhöfn. Sumar Melkavörur eru ódýrari hérlendis Sænski MELKA-herrafatnaður hefur verið á markaði hér í ald- arfjórðung og í verðkönnun sem Magnús Erlendsson, umboðs- maður Melka lét gera nýlega á sams konar vörum þess hér, í Kaupmannahöfn, Amsterdam og London kom í ljós að verð var í öllum tilfellum lægst hér. í Danmörku var verð athugað í Magasin de Nord. Úlpa af tegund 220 kostaði 1.299 DKR eða 13.670 þar. Hjá Hagkaup í Kringl- unni kostar sama úlpa 11.895 kr. og munar 1.775 kr. Melka-peysa, tegund 600, kostaði í Selfridges við Oxfordstræti í London 59,95 pund eða 6.365 kr. Sama peysa kostar hér 5.400 kr. Melka-skyrt- ur kostuðu að jafnaðarverði 109,40 gyllini í Byerkorf í Amster- dam eða 4.100 kr. Hér erjafnaðar- verð á MELKA-skyrtum 3.800 kr. Astæðan mun vera að merkja- vara erlendis er oft og einatt með mun hærri álagningu en hér og gilti það um fleiri merki en Melka. Hundruð bollu uppskriftir í einni bók Danir hafa löngum verið þekktir fyrir matargerð sína og ekki síst hafa kjötbollur þeirra gert garðinn frægan. í síðasta mánuði kom út í Danmörku matreiðslubókin 312 bolluuppskriftir (312 Frikadeller pá gaflen). Þar eru gefnar uppskriftir af fiskibollum, allskyns kjötbollum, grænmetis- og eftirréttabollum. Það eru Monica Ritterband, upp- lýsingafulltrúi hjá Carlsberg og Rolf Nielsen sem söfnuðu upp- skriftunum saman og prófuðu þær. Þau ráðleggja fólki að láta bollurnar steikjast áfram í ofni eftir að þær hafa verið steiktar á pönnu og halda þannig á þeim hita á meðan verið er að elda ann- að. Þau benda á að oft sé gott að setja ost yfir svo að bollumar séu bornar fram með bráðnuðum osti. Við birtum hér þijár bolluupp- skriftir, eina af dönskum kjötboll- um, eina fiskibolluuppskrift og að síðustu grænmetisbollur. Eftir að hafa flett bókinni nokk- uð nákvæmlega og prófað nokkrar uppskriftir verðúr að segjast eins og er að það 'er gaman að eiga svona bók og auðvelt að fá hug- myndir með að fletta henni því við notum mikið af hökkuðu kjöti hér á íslandi og einnig fískhakki og veitir ekki af tilbreytingu í mat- argerðina. Hinsvegar vantar sárlega í bókina uppskriftir af sósum og meðlæti því þegar um framandi uppskriftir af bollum er að ræða væri gam- an að kunna upp- skriftir af sósum sem passa við. Aðferðir eru aldrei \ gefnar upp, einungis hráefnið sem á að fara í bollurnar. Danskar kjötbollur 250 g hakkaó kálfakjöt 250 g hakkað svínakjöt 1 fíntsaxaðurlaukur 50 g hveiti 'hd\ pilsner (má nota mjólk eða vatn ef vill) salt og pipar smjör til að steikja úr ýsuhakk líka) 150 g rifið ferskt sellerí 2 fint hakkaðir laukar 2 pressuð hvítlauksrif 100 g hveiti 1 tsk lyftiduft 1 'hd\ fisk- eða grænmetiskraftur Þorskbollur með selleríi 400 fínt hakkaður þorskur (hlýtur að mega nota 1 msk plöntuolía salt og pipar eftir smekk olía til að steikja úr Grænmetlsbollur 250 g soðnar og stappaðar kartöflur 1 25 g soðnar stappaðar gulrætur 125 g stappaður og soðinn púrrulaukur 125 g soðið og stappað sellerí 1 laukur 100 g brauðmylsna 1 msk kartöflumjöl 1 'h dl þeyttur rjómi salt og pipar ólífuolía og smjör til helminga til að steikja uppúr. Framtiðar * 30 sðluaðilar unáir sama þaki * Nýjar vörur úaglega * Slúrkosllegt vöruúrval * Besta verðlð - Bestu jólainnkaupin r4( ‘ ' OPIÐ Fimmtudag kl. 13-18 Föstudag kl. 13 - 18.30 LAUGARDAG KL.11-17 SUNNUDAG KL. 11 - 17 Hamborgarhryggir með hungangi eða appelsínum í byrjun desember ætla forráða- menn Meistarans að koma með nýjungar á markaðinn. Er það jólasteik í breyttum búningi, svokallaður appelsínu-ham- borgarhryggur, hunangs-ham- borgarhryggur, appelsínu- lambabógur og hunangs-lamba- bógnr. Að sögn Þórarins Guðlaugssonar matreiðslumeistara hjá Meistaran- um eru á ferð marineraðir hamborg- arhryggir, annarsvegar í appelsínu- legi og svo birkireykt í hunangs- legi. Lambabógurinn sem er marin- eraður í svipuðum legi, appelsínu eða birkireykt og í hunangslegi. Með kjötinu fylgir síðan appel- sínusykurbráð og hunangssykur- bráð sem sett er yfir í lok eldunar- tíma. Þórarinn segir að þróun á þess- um nýju kjötvörum hafi staðið um nokkurt skeið og kjötið á ekki að sjóða, það er tilbúið í ofninn og Anna Salka Jeppesen, mat- nákvæmar leiðbeiningar eru á reiðslumaður hægri hönd Þórar- pakkningum hvemig fara á að. ■ ins Guðlaugssonar. Matarklúbbsbækur komnar á almennan markað Á vegum Matar- og vínklúbbs AB hafa verið gefnar út níu matreiðslubækur, síðast bókin Smákökur, sem er bók desember- mánaðar. Þær hafa nú verið sett- ar á almennan markað og kostar hver bók kr. 1.990. Bækurnar eru: Mexíkóskir réttir, Thailensk matseld, Salatsósur og kryddlegir, Pönnukökur - Eggja- kökur, Sósur, Pastaréttir, Spænskir smáréttir og spænsk matreiðsla, Súpur og Smákökur. ■

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.