Morgunblaðið - 25.11.1993, Síða 38

Morgunblaðið - 25.11.1993, Síða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1993 Telepower Rafhlööur í þráölausa síma - Panasonic - Uniden - Cobra - Beil Sooth -Sooy A' - AT&T ^ Loftnet Sveigjanleg gúmmíhúðuð. loftnet I flesta síma. RAFBORG SF. Rauðarárstíg 1, sími 622130. Husky Lock Overlock saumavélar Fyrir hina kröfuhörðu Mismunaflutningur fyrir prjón Stiglaus sporbreidd og sporlengd Rúllusaumur 49.296,-kr. stgr. VÖLUSTEINNt Faxafen 14,Sími679505 Umboðsmenn um allt land. MEÐAL ANNARRA ORÐA NYBUAR eftir Njörð P. Njarðvík Orðið nýbúar mun vera nýyrði um það fólk sem til skamms tíma hefur verið kallað innflytjendur. Orðið er að mörgu leyti gott, en sú spurning vaknar að vísu hvenær forskeytið ný skuli falla brott. Það er að segja: hversu lengi eru menn nýbúar? Ef fólk flyst hingað til að setjast hér að og ganga inn í ís- lenska þjóð, hvenær hefur það öðl- ast svo fullkominn þegnrétt, að hætt sé að líta á það sem einhvers konar aðskotadýr, einhvers konar sérfyrirbæri, öðruvísi en annað fólk hér á íslandi? Málefni þessa hluta íbúa lands okkar hafa ekki verið mikið til umræðu. Það eitt út af fyrir sig segir okkur, að fólksflutningar til Islands hafa ekki verið áleitið um- hugsunarefni þeirra sem fyrir eru og fæddir hérlendis. Það sýnir okk- ur sömuleiðis, að nýbúar hafa ekki verið neitt vandamál í íslensku þjóðlífi. Þvert á móti er auðvelt að benda á, að þeir hafí auðgað þjóð- menningu okkar að fegurð og margbreytileika. Nægir í því sam- bandi að nefna tónlist og matar- gerð sem dæmi. Óhætt er að full- yrða, að nýbúar (eða réttara sagt þeir sem einu sinni voru nýbúar) hafi átt ómetanlegan þátt í að byggja upp tónlistarlíf á íslandi, ekki aðeins hér á höfuðborgar- svæðinu, heldur um land allt. Rödd nýbúanna sjálfra En þessi þögn um málefni nýbúa segir okkur líka aðra sögu, og hún fjallar um tómlæti. Málið snýst ekki aðeins um það, hvaða augum við sem fyrir erum lítum nýbúa. Það er líka til sú hlið, sem snýr að nýbúunum sjálfum. Það skiptir líka máli, hvaða hug þeir bera til hins nýja lands og þeirrar þjóðar er það byggir. Það er nefnilega ekki sama hvaða framkomu við sýnum og hvemig við búum að þeim, sem við bjóðum velkomin til landsins. Nú nýverið hefur tvívegis verið vakin athygli á þessum nýliðahópi í þjóð okkar. Það gerðist í umræðu- þætti í sjónvarpi sem helgaður var nýbúum. Því miður fór hann nokk- uð úr böndum um hríð og snerist of mikið upp í karp og rifrildi um aukaatriði. Og ef á að ræða mál- efni innflytjenda af alvöru, er gagnslítið að draga fram mann sem er þunglega hlaðinn kynþáttafor- dómum. En þátturinn var að því leyti gagnlegur, að hann léði nýbú- um rödd til að segja okkur, hvem- ig það væri að setjast að á ís- landi. Okkur er hollt að hlýða á slík ’ viðhorf, af því að þau geta kennt okkur ýmislegt um okkur sjálf. Svo birtist viðtal í dagblaði við fjölskyldur flóttafólks frá Víetnam, sem stóð uppi atvinnulaust og gætti að vonum nokkurrar beiskju. Það nær auðvitað ekki nokkurri átt að bjóða flóttafólki til íslands og láta það svo standa uppi at- vinnulaust og bjargarlaust. Sú saga birtir okkur í hnotskum, hversu alvarleg mistök geta orðið, þótt svo sé að sjálfsögðu ekki ætlunin. Það er ekki nóg að telja sér trú um, að það sé góðverk að aumka sig yfír vegalaust fólk. Það þarf líka að gera því kleift að ráða sómasam- lega við nýjar aðstæður í nýju og framandi landi. Hagsmunasamtök nýbúa Og þar með er komið að kjama þessa máls. Tvennt blasir við sem frumnauðsyn: að kenna nýbúum rækilega aðstæður hins nýja þjóð- félags og tungumálið. Sá sem býr í landi án þess að kunna vel tungu- mál þess lands, hlýtur að vera dæmdur utangátta. Tungumálið er lykill að nýju þjóðfélagi. Því næst þarf hinn nýaðkomni að kunna rækilega skil á öllum réttindum sínum og skyldum, svo að ekkert fari milli mála og ekki sé^unnt að pretta hann vegna vanþekkingar. En þetta er ekki nóg. Þótt nýbúi læri íslensku sæmilega og fái þokkalega fræðslu um íslenskt þjóðfélag, þarf hann engu að síður á aðstoð og styrkingu að halda. Þetta þekkjum við öll, sem höfum búið erlendis um lengri tíma. Þess vegna held ég, að það sé nauðsyn- legt að stofnuð verði hagsmuna- samtök nýbúa. Slík samtök þyrftu ekki aðeins nýbúamir sjálfír að skipa, heldur einnig fólk úr hópi okkar hinna, sem er reiðubúið til aðstoðar. Slík samtök þyrftu að vera nægilega öflug til þess að geta haft opna skrifstofu með að minnsta kosti einni manneskju í fullu starfí á boðlegum launum. Það verður að sjálfsögðu að koma til ríflegur styrkur frá opinberum aðilum. Þetta er í raun brýnt mál fyrir okkur öll. Við megum ekki gleyma því að með því að styrkja nýbúa okkar, eram við sjálfkrafa að styrkja þjóðina í heild, okkar eigin þjóð — og auðga hana. Við verðum að gera okkur grein fyrir tvískinnungi okkar í viðhorfí til nýbúa. Við hælum íslendingum í Vesturheimi fyrir það, ef þeir halda í tungu sína og þjóðerni, en samtímis ætlumst við til þess að nýbúar okkar gleymi umsvifalaust fortíð sinni og gerist algerir íslend- ingar. Það er einfaldlega ekki hægt. Það tekur langan tíma. Þann tíma getum við létt nýbúum okkar með skilningi og sómasamlegri aðstoð. Höfundur er rithöfundur og dósent í íslenskum bókmenntum við Háskóla íslands. Ossur, rjupumar og rj úpnavemdarfélagið eftir Guðmund Guðlaugsson Vísindamaðurinn Össur Þegar mér barst til eyma að Öss- ur Skarphéðinsson væri orðinn um- hverfísráðherra varð mér að orði að við skotveiðimenn hefðum nú getað verið óheppnari. Össur væri nú líf- fræðingur og „vísindamaður". Slíkur merkismaður myndi aldrei hefta eða banna ijúpnaveiðar án undangeng- inna vísindalegra rannsókna á ijúp- unni. Vísindamenn gera ekki slíkt. En ég er varla búinn að sleppa orð- inu, þegar Össur stígur á stokk, tos- ar í slaufuna og lætur mjög skyndi- lega stytta veiðitímann um helming. Með þessum gjörning hegðar hann sér alveg eins og liðið hjá Alþjóða hvalveiðiráðinu, sem vill banna hval- veiðar hvað sem það kostar og án HEIMILISIÐNAÐARSKÓLINN Laufásvegi 2 - sími 17800 y Handunnarjólagjafir og skraut Jólafjárhús. Heklað jólaskraut. Jólakettir og kertasólir úr leðri. Kíkir. Applikeraðir jólahlutir. Tágastjörnur. Jóladúkar. Englar, tungl, jólasveinar og jóladúkkur úr tré. Skráning á þessi námskeið stendur yfir. Sýnishorn í glugg- um Heimilisiðnaðarskólans, Laufásvegi 2. Skrifstofan er opin frá 10-12 og 13-15. Skráning í síma 17800. V i > . J þess að hlýða á rök visindamanna. Ég efast ekki um að bróðir Össurar, Magnús, stundum nefndur „hvala- vinur“, er yfír sig hrifínn af „stóra“ bróa. Fleira en veiði kemur til Er veiðiálagið mikið? Ég held ekki. Sagði ekki Ossur sjálfur að menn teldu að stofninn væri um ein milljón fuglar og veiðin um hundrað þúsund fuglar. Þykir Össuri tíu prósent veið- iálag mikið?! Þegar ég hef haldið til veiða í upphafi veiðitímans, þegar áhuginn er mestur, farið upp í fjall nálægt fjölmennum byggðakjama á Norðurlandi, þá hef ég aldrei rekist á aðra veiðimenn í fjallinu, né séð eða heyrt til þeirra í næstu fjöllum og veit ég þó að ijúpur halda til í þeim öllum. Hvað haldið þið að mörg kjörlendi ijúpunnar séu friðuð í dag? T.d. þjóðgarðar og eignalönd. Hvað haldið þið að til séu mörg fjöll og svæði sem enginn fer á sökum erfíðr- ar yfírferðar eða aðkomu. Flestir sportveiðimenn hafa skömm á notk- un vélsleða við veiðar. Sumir nota þá til að koma sér á ákveðna staði en ég efast um að það auki veiðiálag- ið mikið því að þeir veiða ekki annars- staðar á meðan. Það er augljóst á máli mínu að ég tel veiði sportmanna ekki ráða úrslitum um tjúpnafæð. Hvað veldur þá? Tökum Norð-Aust- urland sem dæmi: Þar er töluvert af fálka. Hann étur mikið af ijúpu, kannski eina á dag. Það er tíu sinn- um meira en ég veiði á ári. Hvað skyldi vera hlutfallið milli fálka og skotveiðimanna? Minkur er fjölmenn- ur, t.d. á Melrakkasléttunni, þar sem ég hef séð mikið af honum, og fer fjölgandi. Hann ræðst á ijúpnahreið- ur og drepur allt sem hann getur. Miklu meira en hann borðar. Hann ræðst líka á ijúpur sem graf- ið hafa sig í fönn, það hafa menn séð. Hrafnar era fjölmennir og þeir éta ijúpur og unga. Sama má segja um refí. Mikil gróðureyðing er sum- staðar á Norðurlandi t.d. í kringum Mývatnssveitina. Rjúpan étur ekki sand. Einnig má spyija um áhrif veðurs og mengunar. Rannsóknir — ekki geðþóttaákvarðanir Kunna þeir ijúpnavemdarmenn svörin við þessu? Ég held ekki. Ég held að þeir ættu að einbeita sér að því að rannsaka ijúpuna sjálfír áður en þeir ráðast á sportveiðimenn, sem eru að fylgja einni af framhvötunum, veiðieðlinu, sér til ánægju, heilsubót- ar og upplyftingar. Margir í Rjúpna- verndarfélaginu era svo heppnir að vera landeigendur og bændur. Þeir eiga margir veiðiréttindi t.d. í laxi. Þeir ættu að reyna að fækka minkn- um. Ætli Atli Vigfússon á Laxamýri sé nokkuð á móti drápinu sem slíku? Það hefur aldrei þótt vont mál að troða öngli ofan í kok á laxi við Laxamýri. Rjúpnaveiðar era bara sport eins og laxveiði. Ég vil ekki að ijúpan hverfí af stórum landsvæðum, veiðitakmörkun getur verið af hinu góða en svona aðferðir sem Rjúpnavemdarfélagið notar og Össur notaði (örugglega eftir þrýsting frá einhveijum) era Guðmundur Guðlaugsson „Eg held að þeir ættu að einbeita sér að því að rannsaka rjúpuna sjálfir áður en þeir ráð- ast á sportveiðimenn, sem eru að fylgja einni af frumhvötunum, veiðieðlinu, sér til ánægju, heilsubótar og upplyftingar.“ ekki réttar. Samvinna verður að vera í svona málum. Almenn umræða um orsök ijúpnafæðar, án allra þessara öfga, gæti verið öllum í hag. Ég skora á fleiri sem telja sig eitthvað hafa til málanna að leggja að láta í sér heyra. Höfundur er sportveiðimaður. Þú færð mikið fyrir títið hjá okkur Úrval af búsáhöldum og gjafavörum á ótrúlegu verði. Verðdæmi: 18 glös í pk. kr. 910,- Eldföst form kr. 650,- Ávaxtasett kr. 690,- 1 2 manna matar- og kaffistell kr. 7.320,- Opið mánudaga til föstudaga frá kl. 12-19. Laugardaga kl. 10-17 og sunnudaga kl. 13-17. BÚSÁHALDAMARKAÐURINN, SMÐJUVEGI30, RAUÐ GATA, KÓPAVOGI.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.