Morgunblaðið - 08.01.1994, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JANUAR 1994
5
Stefnt er
að mínni
notkun
á salti
BORGARYFIRVÖLD stefna að
því að draga úr notkun salts á
götur vegna hálku um 30-35% að
sögn Sigurðar Skarphéðinssonar
gatnamálastjóra. Tveimur mæli-
stöðvum verður komið fyrir í til-
raunaskyni innan borgarmark-
anna en þeim er ætlað að mæla
hita- og rakastig og vind í and-
rúmsloftinu. Er vonast til að með
þessu móti megi fá nákvæmari
veðurspár og stemma stigu við
hálku með því að salta götur í
þann mund sem hún myndast, að
sögn gatnamálastjóra.
Sigurður Skarphéðinsson segir að
upplýsingar frá mælistöðvunum, sem
settar verða upp í efri byggðum borg-
arinnar, verði færðar inn á línurit.
Reynt verði að skoða afstöðu milli
hita- og rakastigs í lofti og setja í
samhengi við hálkumyndun á götum.
Fáist nákvæmari veðurspá með
þessu móti megi bera salt á götur í
þann mund er hálka myndast í stað
þess að bregðast við eftirá. „Við
ætlum að reyna að standa öðruvísi
að söltun í framtíðinni og minnka
saltnotkun um 30-35%. Borgin festi
kaup á 500 tonnum af salti í tilrauna-
skyni frá íslenska saltfélaginu á
Reykjanesi í nóvember á síðasta ári.
Um var að ræða fíngerðara salt en
við kaupum að utan og erum við að
fikra okkur áfram við notkun þess.
Þetta salt hentar vel til notkunar við
frostmark er glæra er í þann mund
að myndast á götum,“ segir Sigurð-
ur. Hann segir einnig að hins vegar
þoli það salt sem þegar hafi verið
keypt frá Evrópu betur geymsluhús-
næðið sem borgin ráði yfir því það
sé grófgerðara, en raki hafi komist
í íslenska saltið í húsnæðinu og því
hafi reynst erfitt að nota það en til
standi að fá betri geymsluaðstöðu.
-----» ------
Obreytt bensínverð
Tekjutap
ríkissjóðs
allt að 185
milljónir
SU ákvörðun olíufélaganna að
iækka bensínverð sem næmi aukn-
um álögum ríkisins á bensínlítrann
um áramót, með tilstuðlan lækk-
andi heimsmarkaðsverðs og halda
þannig bensínverði óbreyttu, hefur
í för með sér 160-185 miiljón kr.
telqutap fyrir ríkissjóð miðað við
óbreytt verð. Aætlað var að hækk-
un vörugjalds á bensíni um áramót
myndi skila beint til ríkissjóðs rúm-
lega 1,7 milljarða kr. í tekjur.
Álögumar miðast við 5% hækkun
á föstu bensíngjaldi er rennurtil vega-
gerðar og að almennt vörugjald á
bensíni hækkar úr 90% í 97%, og
átti það að skila ríkissjóði 1.725 millj-
ónum króna. Vörugjaldið er háð inn-
flútningsverði á bensíni, auk þess sem
hlutur ríkisins af virðisaukaskatti á
bensíni lækkar einnig. Um 180 millj-
ónir lítra af bensíni eru fluttir til
landsins árlega. Lækkuðu olíufélögin
bensínlítrann um 1,40 kr. sem jafn-
gildir þeirri tölu sem vörugjald og
bensíngjald áttu að bæta við þáver-
andi verð, þannig að verðið til neyt-
enda helst óbreytt. Þetta leiðir til tekj-
utaps ríkissjóðs upp á um 100-125
milljónir kr. samkvæmt upplýsingum
úr fjármálaráðuneytinu, auk þess sem
áhrif verðlækkunar á virðisaukaskatt
þýðir tekjuskerðingu upp á um 60
milljónir kr., eða samtals 160-185
milljónir kr. á ársgrundvelli miðað við
verð í desember.
mánaða ábyrgð á notuðum Daihatsu og Volvo bílum i eigu Brimborgar!
1 O O % ÁBYRGÐ
Opið laugardaga kl. 10:00 - 17:00
Það getur verið töluverð áhætta að kaupa notaðan bíl. Þú getur auðveldlega sannreynt að útlit bflsins sé í lagi en fæstir
hafa getu né aðstöðu til að sannreyna hvað leynist undir yfirborðinu. Þess vegna býður Brimborg hf. SEX mánaða
ábyrgð á notuðum Daihatsu og Völvo bflum í eigu Brimborgar. Allir notaðir bílar af þessum tegundum eru yfirfarnir af
þjónustumiðstöð Brimborgar og þar er allt lagfært sem er í ólagi áður en bflarnir eru seldir. Þannig er öryggi þitt tryggt.
Ábyrgðfn gildir til sex mánaða eða að 7500 km. og allt er í ábyrgð nema yfirbygging bílsins. faxafeni s • sími 9i-(sssro