Morgunblaðið - 08.01.1994, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 08.01.1994, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ ÍÞROTTIR LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 1994 47. I I I ð I I I l i * * -+ HANDKNATTLEIKUR / EVROPUKEPPNI LANDSLIÐA Sagan er öll - þó enn séu tveir kaflar eftir Sóknin í lagi en vörnin ekki GEIR Sveinsson, fyrirliði íslenska liðsins, skorar eitt af mörkum sínum — í gærkvöldi af miklu harðfylgi. Geir lék mjög vel í sókninni, en náði sér ekki á strik í vöminni frekar en félagar hans. Mikhaíl Jakimovich, einn besti maður Hvít-Rússa í gær- kvöldi, horfir á eftir Geir á mynd- inni. Morgunblaðið/Bjami LÉLEGUR varnarleikur varð ís- lenska landsliðinu fyrst og fremst að falli gegn Hvít-Rúss- um í Evrópukeppninni íhand- knattleik í Laugardalshöll í gærkvöldi, og draumurinn um að komast i úrslitakeppni mótsins í Portúgal í vor er nán- ast úr sögunni. Urslitin urðu 26:29, eftir að Hvít-Rússar höfðu haftyfir 14:12 íhálfleik og mest náð sex marka forystu í seinni hálfleik. Möguleikar á Portúgalsferð eru fræðilegir, en það er næsta fáránlegt að hugleiða hann. (Til að svo fari verður ísland að vinna á sunnu- dag, Hvít-Rússar að bursta Króata í Króatíu og íslendingar að sigra Finna með miklum mun. Þá yrðu Hvít-Rússar sig- urvegarar í riðlinum og íslend- ingar kæmust hugsanlega upp fyrir Króata í annað sæti á betri markatölu) Allt var eins og best varð á kosið í Laugardalshöll þegar leikurinn hófst; húsið nánast troð- fullt, stemmningin rafmögnuð og ■■■■■1 leikurinn fór svo Skapti sem ekki illa af Hallgrímsson stað. Hvít-Rússar, sem voru heima- menn að þessu sinni. gerðu að vísu fyrsta markið en ísland komst fljótlega í 2:1 eftir langskot Héðins og Júlíusar. Én þetta var því miður í eina skiptið sem ísland komst yfir í leiknum. Fyrstu mínútumar virtust menn á gífurlegri hraðferð; það var eins og ætti að klára leikinn í hvelli; sóknimar vom varla byrjaðar þeg- ar búið var að hleypa af, og óskiljanlegt fát og fum á íslending- um. Annað var að sjá til „heima- manna“ sem voru þvert á móti ailt að því þunglamalegir og hægir í sóknaraðgerðum sínum, en það gaf betri raun. Á þessum kafla kom strax í ljós að íslenska vörnin var ekki nógu góð. Strákamir vom ekki nægilega hreyfanlegir og samvinna af skornum skammti. Þetta einkenndi vamarleikinn allan tímann; hinn frábæri Jakimovitch (13), Khalepo (4)— sem virkaði svifaseinn, en skoraði þó sjö mörk — fengu allt of mikinn tíma til að athafna sig; gengu nánast framhjá varnarmönnum Islands langtímum saman, án þess að almennilega væri reynt að taka á þeim. Blóðugt er að sjá slíkt, þegar vitað mál er að íslensku strákamir geta miklu betur. En hvers vegna em vörnin ekki betri en raun ber vitni? Var ekki lögð nógu mikil áhersla á hana í undirbúningnum? Em menn of þreyttir, eftir of stífar æfíngar undanfarið? Þessum spurningum verður að svara. En það verður að segja strákunum til málsbóta, að sóknin var á köflum góð, þrátt fyrir að menn væra of bráðir á stundum. Það var til dæmis afar slæmt að sjá hvemig liðið tapaði knettinum í tvígang og fékk á sig mark, meðan einn Hvít-Rússinn var rekinn af velli í fyrri hálfleikn- um. Slíkt ber vott um að aga skorti; yfírvegunin sé ekki næg. En mörg markanna vom glæsi- leg; Sigurður Sveinsson fór á kost- um; gerði fjögur mörk og átti fimm frábærar línusendingar sem gáfu mark, Héðinn gerði einnig glæsileg mörk, Geir lék stórt hlutverk í sókninni og Valdimar naut þess að leika við hlið Sigurðar. Horna- mennimir hinum megin — Konráð lengst af — vora nánast ekki með í leiknum. í liði Hvíta-Rússlands voru nokkrir góðir leikmenn, ef til vill fyrst og fremst klókir, en liðsheild- in var ekki það sterk að með eðli- legri frammistöðu hefðu íslending- ar átt að geta sigrað. Sem fyrr sagði varð munurinn mestur sex mörk; 16:22, er seinni hálfleikur var tæplega hálfnaður. Eftir það vöknuðu Islendingar virkilega til lífsins; það var eins og þeir gerðu sér allt í einu grein fyrir því hve staðan var orðin slæm og með geysilegri baráttu — vel studdir af áhorfendum — náðu þeir að minnka muninn í eitt mark, 24:25, er rúmar sjö mín. vom eft- ir. En lengra komust þeir ekki og sagan af þátttöku íslands í fyrstu Evrópukeppninni er því miður nán- ast öll — þó enn séu tveir kaflar eftir. Soknarnýting leikmanna Geir Sveinsson náði mjög góðri sóknarnýtingu gegn Hvít-Rússum — hann skoraði 8 mörk úr tíu sóknarlotum, sem er 80% nýting. Tvö skot vora varin frá honum. Héðinn Gilsson var með 70% nýtingu — skoraði sjö mörk úr níu skottil- raunum. Valdimar Grímsson var með 56% nýtingu — skoraði 5 mörk úr níu skotum, en hann lét fjóram sinnum veija frá sér — þar af tvisvar vítakast. Sigurður Sveinsson var með 50% nýtingu — skoraði fjögur mörk úr átta skottilraunum. Sigurður átti fimm iínusendingar sem gáfu mark. Júlíus Jónasson var með 33% sóknarnýtingu — skoraði tvö mörk úr fimm skottilraunum, en missti knöttinn einu sinni. Konráð Olavson átti eitt skot að marki, sem var varið. Dagur Sigurðsson átti eitt skot að marki, sem var varið, en hann missti knöttinn tvisvar. Guðmundur Hrafnkelsson átti eina feilsendingu. Markvarslan var ekki góð, því að Guðmundur Hrafnkelsson og Sigmar Þröstur Óskarsson vörðu ekki nema sjö skot í leiknum — þar af fór knött- urinn þrisvar til mótheija, þannig að þeir vörðu ekki nema fjögur skot þannig að knötturinn vannst. Sigmar Þröstur einu sinni, en Guðmundur þrisvar. Hvíta-Rússland - ísland 29:26 Laugardalshöll, fyrri leikur í Evrópukeppni landsliða, heimaleikur Hvíta-Rússlands, föstudaginn 7. janúar. Gangur leiksins: 0:1, 2:1, 2:4, 3:5, 4:6, 6:7, 7:7, 7:9, 8:9, 8:11, 9:12, 10:13, 11:14, 12:14, 12:16, 13:17, 14:18, 15:20, 16:22, 19:22, 21:23, 22:24, 24:25, 24:26, 25:26, 25:27, 26:27, 26:29. ísland: Geir Sveinsson 8, Héðinn Gilsson 7, Valdimar Grímsson 5/3, Sigurður Sveinsson 4, Júlíus Jónasson 2, Dagur Sigurðsson, Patrekur Jóhannesson, Jón Kristjánsson, Konráð Olavson, Gunnar Beinteinsson. Varin skot: Guðmundur Hrafnkejsson 5/1 (Þar af 2/1 til mót- herja), Sigmar Þröstur Óskarsson 2/1 (Þar af eitt til mótheija). Utan vallar: Enginn. Hvíta-Rússland: Khalepo 7, Parashenko 6, Jakimovich 5/1, Sharo- varov 4, Karpuk 3/3, Barbashinski 2, Minevski 2. Varin skot: Minevski 15 (þar af 3 til mótheija), Garbar 1. Utan vallar: 6 mínútur. Dómarar: Gremmel-tviburarnir frá Þýskalandi. Áhorfendur: Um 2.500. Þungu fargi af mér létt - sagði Spartak Mironovich, þjálfari Hvíta-Rússlands „ÞAÐ er óhætt að segja að það sé þungu fargi af mér létt með þessum sigri," sagði Spartak Mironovich, þjálfari Hvít-Rússa. „Ég er mjög ánægður því ég var verulega hræddur við þennan leik. Ég var ekki öruggur með sigurinn fyrr en f lautað var til leiksloka." Jakimovitch Mironovich sagði að stemmn- ingin hafi verið frábær í Höllinni og vildi óska að lið hans fengi svona góðan stuðning á heima- velli. „Þetta var mjög erfiður leikur fyrir okkur eins og ég bjóst við og áhorfendur voru vel með á nótunum. Það er erfitt að spila fyrir framan svona áhorfendahóp og leikmenn mínir urðu að einbeita sér sérstak- lega til að láta ekki slá sig út af laginu. íslenska liðið er mjög gott og Sigurður Sveinsson var bestur. Ég bjóst ekki við honum svona frísk- um. Við urðum að hafa sérstakar gætur á honum í síðari hálfleik. Nú erum við komnir með annan fótinn til Portúgal og það er mikill léttir," sagði þjálfarinn. Hann sagði að leik- urinn annað kvöld yrði jafn erfiður. „Þetta var mjög erfiður leikur. íslenska liðið er skipað góðum ein- staklingum og mér fannst Sigurður Sveinsson bestur,“ sagði einn besii^ leikmaður Hvít-Rússa, Mikhail Jakimovitch. „Núna er annað sætið tryggt og við stefnum á að komast í efsta sætið og tryggja okkur þann- ig öraggt sæti í Portúgal. En til þess þurfum við að vinna síðari leik- inn á sunnudag og Króata i Zagreb. Það er þó ekkert öraggt í þessu fyrr en eftir síðasta leikinn í riðlinunv" sagði Jakimovitch.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.