Morgunblaðið - 08.01.1994, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 1994
29
Anna Gísladótt-
ir - Minning
Þegar kynslóð foreldra okkar
kveður verður okkur gjarnt að líta
til baka og minnast eigin bemsku.
Anna Gísladóttir sem kvödd er í dag
verður mér ávallt mjög kær. Hún var
móðir vinkonu minnar Jóhönnu en
við kynntumst í 7 ára bekk.
Anna var þá búin að vera ekkja í
7 ár og bjó með tveimur dætrum
sínum, þeim Aðalheiði og Jóhönnu
Jóhannesdætrum, foreldrum sínum
Katrínu Grímsdóttur og Gísla Jóns-
syni frá Saurbæ í Vatnsdal og systur
sinni Kristínu sem var lömuð. Fjöl-
skyldan bjó að Njálsgötu 86. Ekki
var íbúðin stór en nóg var hjartarým-
ið. Tvö herbergi og lítið eldhús var
húsnæðið fyrir þessa sex manna
fjöldskyldu. Gísli faðir Önnu hafði
verið bóndi en vann nú hjá Dagblað-
inu Tímanum. Anna vann í Lauga-
vegsapóteki og þangað heimsóttum
við stelpumar hana stundum og
horfðum stómm augum á mixtúm-
og pilluglös upp um alla veggi og
fengum eitthvað gott í munninn.
Oftar var þó komið í heimsókn á
Njálsgötuna og þar var ávallt gott
að koma. Öllu var haganlega fyrir
komið, allt hreint og snyrtilegt og
ekki fann maður fyrir þrengslum
enda gestum mætt með hlýju við-
móti. Eg minnist þess að hafa feng-
ið að gista þar hjá vinkonu minni.
Það munaði ekki svo mikið um að
bæta einum við! Katrín móðir Önnu
sá um eldamennsku og gaukaði að
okkur brauðsneiðum og kökum.
Krístín var eins og áður sagði óvinnu-
fær frá því um tvítugt og bundin við
íbúðina sem var á 4. hæð. Þótt ung
væri runnu mér örlög hennar til rifja.
Ég minnist þess hve mér fannst þær
systur Anna og Kristín fallegar kon-
ur, nettar og fágaðar í framkomu.
Það gefur augaleið að þegar búið
er við þröng efni og húsnæði þarf
að sýna aðgát og tillitssemi við aðra,
nægjusemi og fómfýsi. Anna þurfti
að vinna langan vinnudag til að sjá
sér og sínum farboða en aldrei minn-
ist ég þess að hún hafí verið önug
eða skapstygg enda var öll fjölskyld-
an svo samtaka um að vera hvert
öðru góð. Bægslagangur í orðum eða
athöfnum var óþekktur á þeim bæ.
Báðar dætumar hlutu ágæta mennt-
un enda Anna áhugasöm um mennt-
un þeirra. Hún fylgdist vel með á
menningarsviðinu og gerðist
snemma meðlimur Tónlistarfélagsins
og sótti þá tónleika sem völ var á.
Arin liðu og fækkun varð í íbúð-
inni á Njálsgötu. Eldri dóttirin Aðal-
heiður giftist Hauki Pálmasyni raf-
magnsverkfræðingi, Kristín fór á
sjúkrahús og lést þar eftir alllanga
dvöl. Foreldrar Önnu létust í hárri
elli og síðust fór að heiman yngri
dóttirin Jóhanna, sem giftist Þór
Jakobssyni veðurfræðingi.
Anna bjó áfram í íbúð sinni og
gott var hana heim að sækja þó að
heimsóknir mínar yrðu stijálli. Sama
snyrtimennskan og hlýlegt viðmót
ríkti einsog áður og Anna naut þess
nú að hafa rúmt um sig. Ættingjar
og vinir voru tíðir gestir.
Nú þegar hún var orðin ein gáfust
fleiri frístundir til að sinna hugðar-
efnum svo sem bóklestri og að sækja
tónleika. Anna hafði skipt um vinnu-
stað og vann við mötuneyti stjómar-
ráðsins þar til hún hætti störfum
sakir aldurs. Fjölskylda hennar var
áfram mjög samrýnd og dætur,
tengdasynir og barnabörnin 5 töldu
ekki eftir sér að heimsækja Önnu
og hlú að henni á efri árum. Einnig
komu til hennar systir hennar og
aðrir ættingar. Síðustu 2-3 árin var
hún á Hrafnistu í Reykjavík og fékk
þar bestu hjúkrun.
Að lokum vil ég samhryggjast
dætmnum og öðrum aðstandendum,
því sárt er að sjá á eftir sínum. En
minningin lifir um góða konu sem
ávallt sýndi gott fordæmi um ljúf-
mennsku, hógværð og þrautseigju.
Guðrún Sveinbjarnardóttir.
Jólanótt - og ég kveikti
á kerti rétt eins og forðum,
litlu kerti.
Það logar á borði mínu
unir þar sínu lífi
slær ljóma á þögnina.
Og bið þess að ég finni
sem forðum að glaðir hljómar
séu lagðir af stað
út úr lágum tumunum
að ég heyri þá svifa
yfir hvítt landið og stefna
hærra, hærra!
eins og hyggist þeir setjast
á sjálfar stjömumar
svo ljós og hljómar
geti hafið í einingu saman
af himnum gegnum loftin
sína heilögu ferð.
(Hannes Pétursson)
Að liðnum jólum kveðjum við
ömmu okkar, Önnu Gísladóttur, sem
lést í Reykjavík þriðja í jólum, 27.
deember 1993. Atti amma langa og
góða ævi en er nú lögst til hinstu
hvíldar.
Þótt við systkinin höfum aðeins
búið á íslandi í átta ár alls, kynnt-
umst við ömmu vel. Sem böm var
það aðaltilhlökkunarefni okkar í fyr-
irhuguðum íslandsferðum að hitta
ömmur okkar og afa. Minningar okk-
ar um ferðir eru einna helst tengdar
þeim. ísland var í okkar augum
„ömmu og afa land“.
Við minnumst þess sérstaklega
hversu blíð og rausnarleg amma
okkar var. Á seinni árum kynntumst
við henni betur sem persónu, og varð
okkur ljóst að góðmennskan var
henni eðlislæg'.
Við viljum þakka henni ánægju-
stundir og munum geyma góðar
minningar um hlýhug hennar og ást-
úð. Blessuð sé minning hennar.
Þóra Þórsdóttir,
Vésteinn Atli Þórsson.
Móðursystir okkar Anna Gísla-
dóttir verður jarðsungin í dag. Anna
frænka, eða Anna á „Njáls“ eins og
við systkinin kölluðum hana gjaman,
bjó á Njálsgötu 86 sem var í næsta
nágrenni við okkur á Skólavörðu-
stígnum.
I hugum okkar var heimilið henn-
ar Önnu frænku tákn um menningu
og jafnvægi.
Það kom því af sjálfu sér, þrátt
fyrir ungan aldur og stóran systkina-
hóp, að í þau fjölmörgu skipti sem
við heimsóttum mæðgumar á Njáls-
götu og um leið afa og ömmu, sem
Anna frænka hélt heimili fyrir, fyllt-
umst við eftirvæntingarfullri forvitni
sem sjálfkrafa útilokaði ærslagang.
Snillingamir Haydn, Bach og
Beethoven í formi brjóstmynda önn-
uðust bamapössunina af festu ofan
af píanóinu í stofunni á meðan hún
sjálf eins og endranær lagaði heitt
súkkulaði með ijóma og tók til ýmis-
legt góðgæti handa okkur.
Anna frænka var og er okkur
mjög kær. Hrífandi hlátur og kímnþ
gáfa gerði það svo auðvelt að leita
til hennar ef eitthvað bjátaði á. Anna
frænka var ávallt staðföst og vak-
andi og það ríkti friður og öryggis-
kennd í návist hennar. Hún var trú-
föst kona og virkur safnaðarmeðlim-
ur í Hallgrímssókn alla tíð.
Anna frænka var „Lady“. Hún var
fulltrúi hins sanna styrks. Styrks
trúarlegrar auðmýktar og hógværðar
sem birtist okkur í staðfastri mýkt.
Megi góður Guð geyma þig og
minninguna um þig í hjörtum okkar
alla tíð, elsku Anna frænka.
Systkinin frá
Skólavörðustíg 17a.
ÞESSIR krakkar héldu lilutaveltu tii styrktar Rauða krossi íslands
og varð ágóðinn 1.397 krónur. Þau heita Harpa Lárusdóttir, Ragnar
Lárusson, Hildigunnur Gunnarsson, Ása Bryndís Gunnarsdóttir,
Kári Geir Gunnarsson, Magnea Ágústsdóttir og Anna Ágústsdóttir.
RAÐAUGÍ YSINGAR
(UÖLBRMITASKðUNN
BREIÐHOITI
Lokadagur innritunar
íkvöldskóla FB
Við getum enn bætt við okkur nemendum á
eftirtöldum sviðum/brautum:
Viðskiptasviði, matvælasviði, rafiðnabraut-
um, tréiðnabrautum, málmiðnabrautum.
Innritað er í dag frá kl. 10.00-13.00.
Skólameistari.
SJÁLPSTAEDISFLOKKURINN
F í I. A (i S S 'I' ARF
ísafjörður - prófkjör
Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna á (safirði hefur ákveðið að frambjóð-
endur Sjálfstæðisflokksins við bæjarstjórnarkosningar næsta vor
verði valdir f opnu prófkjöri. Prófkjörið fer fram 29. og 30. janúar 1994.
Prófkjörið er opið öllum fullgildum félögum sjálfstæðisfélaganna á
(safirði og þeim stuðningsmönnum flokksins, sem eiga munu kosn-
ingarétt í sveitarstjórnarkosningunum á (safirði og undirrita stuðn-
ingsyfirlýsingu samhliða þátttöku f prófkjöri.
Hér með auglýsir kjörnefnd Sjálfstæöisflokksins á ísafirði eftir tillög-
um til framboðs í prófkjöri.
Framboðum skal skila til formanns kjörnefndar Sjálfstæöisflokksins,
Jens Kristmannssonar, Engjavegi 31, (safirði, eigi síðar en 15. janú-
ar 1994, en þann dag rennur framboðsfrestur út.
Nánari upplýsingar veitir formaður kjörnefndar, hs. 3098 og vs. 3941.
Kjörnefnd Sjálfstæöisflokksins á Isafiröi.
X
SAMHANH UNCKA
FUS S/ALFS T/tUISMANNA
Hvert er hlutverk
Ríkisútvarpsins?
Samband ungra sjálfstæðismanna og Heimdallur, fus f Reykjavík,
standa fyrir hádegisverðarfundi um málefni Rikisútvarpsins f dag, laug-
ardaginn 8. janúar. Fundurinn verður haldinn á Hótel Sögu f Átthaga-
sal og hefst kl. 12.00. Hádegismatur og kaffi verða á boðstólnum.
- Er eðlilegt að Ríkisútvarpið sé dýrara en Háskóli (slands?
- Er eðlilegt að Ríkisútvarpið hafi einkarétt á að innheimta notenda-
gjöld?
Eftirfarandi aðilar munu hafa framsögu og sitja fyrir svörum:
Páll Magnússon, sjónvarpsstjóri Stöðvar 2.
Elfa Björk Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Útvarpsins, sækir fund-
inn í stað útvarpsstjóra.
Ólafur Hauksson, blaðamaöur.
Sigurður G. Tómasson, dagskrárstjóri Rásar 2.
Fundarstjóri verður Guðlaugur Þór Þórðarson, formaður SUS.
Allir eru velkomnir og á fundinum verður boðið upp á hádegismat
fyrir kr. 1.000,-
Samband ungra sjálfstæöismanna
og Heimdallur.
Smá auglýsingar
St. St. 5994010816 I Rh.
kl. 16.00
Auðbreltlta 2 • Kópm'ogur
Laugardagur: Samkoma f kvöld
kl. 20.30 með Paul Hansen frá
U.S.A.
Hvítasunnukirkjan
Fíiadelfía
Bænasamkoma kl. 20.30.
Allir hjartanlega velkomnir.
Dagskrá vikunnar framundan:
Sunnudagur:
Almenn samkoma kl." 16.30.
Ræðumaður Sheila Fitzgerald.
10. til 15. janúar verður bæna-
vika safnaðarins.
Bænastund á hverju kvöldi
kl. 20.30.
Laugardaginn 15. janúar verður
Dagur fyrir þig. Hann hefst kl.
13.30 og verður yfirskrift hans
Reiki og heilun!
Samræmast kenningar nýaldar
kristinni tru og lífsskoðun? Gréta
Sigurðardóttir mun segja okkur
frá reynslu sinni þegar hún var
blinduð af blekkingum nýaldar.
Kaffiveitingar.
FERÐAFELAG
® ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 • SÍMI 682533
Sunnudagsferð 9. janúar
kl. 13.00
Bessastaðir - Álftanes
Það er við hæfi að hefja fyrstu
sunnudagsgöngu þessa lýðveld-
isafmælisárs í nágrenni Bessa-
staða. Þetta er einnig ágæt fjöl-
skylduganga í upphafi árs fjöl-
skyldunnar.
Strönd Álftaness er eitt af
skemmtilegustu útivistarsvæð-
um í nágrenni höfuðborgar-
svæðisins. Verð aðeins 600 kr.
frítt f. börn m. fullorðnum. Brott-
för frá Umferðarmiðstöðinni,
austanmegin (stansað við Mörk-
ina 6).
Ferðafélag Íslands þakkar frá-
bæra þátttöku í fjölskyldu-
göngu og blysför um Öskjuhlið
á þrettándanum þar sem
mættu 6 annað þúsund manns.
Fyrsta myndakvöld árslns er
miðvikudagskvöldið 12. janúar
í Sóknarsalnum.
Gleðilegt ferðaár!
Ferðafélag íslands.
UTIVIST
Hallveigarstig 1 • simi 614330
Nýárs- og kirkjuferð í
Hallgrímskirkju sunnu-
daginn 8. janúar
Endurtekin ferð sem féll niöur
sl. sunnudag. Kl. 9.30 frá BSl:
Farið veröur að Hvalsneskirkju
suður með sjó og síðan kl. 14.00
frá BSf að Hallgrímskirkju í
Saurbæ. Ferðinni lýkur með
helgistund í Hallgrimskirkju í
Reykjavík um kl. 19.00. í ferðinni
mun Sigurbjörn Einarsson, bisk-
up, fjalla um sögu Hallgrims
Péturssonar. Brottförkl. 9.30 frá
BS(, verð kr. 2.000 og kl. 14.00
frá BS(, verð kr. 1.500.
Ferðaáætlun Útivistar fyrir árið
1994 er komin út.
Útivist.
Miðilsfundur
-áruteikning
Miðillinn Colin Kingschott starfar
á vegum félagsins frá 6. jan. Hann
verður með einkafundi, áruteikn-
ingar, kristalheilun og rafsegulheil-
un. Ath.: Einnig framhald kristal-
heilunamámskeiðs 2 og 3.
Upplýsingar í síma 811073.
Silfurkrossinn.
Skyggnilýsingafundur
Þórhallur Guðmundsson, miðill,
heldur skyggnilýsingafund mið-
vikudaginn 12. jan. kl. 20.30 í
Tjarnarbiói við Tjarnargötu.
Miðar seldir við innganginn.
Húsið opnað kl. 19.30.
skíðadeild
Fundur um vetrarstarfið verð-
ur í Gerðubergi mánudaginn
10. janúar kl. 20.30.
Fundarefni: Skíðaæfingar, ferðir ,
og sala árskorta.
Uppl. í si'mum 72206 - 666794.
Nýir félagar velkomnir.
Stjórnin.