Morgunblaðið - 08.01.1994, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 08.01.1994, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 1994 35 Minning Marinó Magnússon, Jaðri á Bíldudal Fæddur 13. júní 1904 Dáinn 25. desember 1993 Við í „litlu fjölskyldunni“ kveðj- um í dag góðan frænda. Hann var Marri frændi á Jaðri á Bíldudal, þar sem hann bjó ára- tugum saman, einn með sjálfum sér og ýmsum hugðarefnum sínum gegnum tíðina. Hann var löngum sá hlekkur sem tengdi okkur svo skemmtilega við fortíðina, bjó yfir hafsjó af fróð- leik og þekkingu og hafði mikinn áhuga á ætt og uppruna manna. Hann var líka svo hress og skemmtilegur, kvikur í hreyfing- um, með glettin augu og náði að verða áttatíu og níu ára. Það var alltaf tilhlökkun í bijóst- um okkar, úr nánasta frændgarði hans, þegar tækifæri gafst til heimsókna vestur til Marra. Ekki einungis af því að hann var ræðinn og skemmtilegur, fróður og léttur í lund, heldur einnig vegna þess að það var alltaf hægt að dást að myndarskap og gestrisni hans í litla húsinu undir hlíðinni, yst í þorpinu. Hann var ótrúlega laginn við bakstur og brauðgerð og var fljót- ur að töfra fram ýmislegt góð- gæti. Honum datt ekki í hug að bjóða gestum franskbrauð úr kaupfélaginu, „það er nú bara ein- tómt hveiti og loft!“. Nei, almenni- legt hveitibrauð, sem matur var í, skyldi það vera og hann sagði eitt sinn: „Notaðu ekki smjörlíki, held- ur smjör, svo það verði matur!“ Og alltaf var framúrskarandi snyrtilegt hjá okkar manni á Bíldu- dal. Við eigum ljúfar minningar úr litla eldhúsinu á Jaðri, þar sem Marri sat gjarnan uppi á eldhús- borði og síðan var spjallað og spjallað um allt milli himins og jarðar — og það var aldeilis ekki komið að tómum kofunum hjá frænda. Minni hans var mikið og gott alla tíð. Hann átti það til að undrast minnisleysi okkar sem yngri erum, í samræðum. Þá gat hann átt það til að segja: „Hvað, manstu þetta ekki? Við sem rædd- um þetta í fyrra þegar þú komst!“ Stundum gátu komið upp ágreiningsefni um eitthvað, t.d. ártal, faðerni, eða heiti á einhveij- um bát. Þá gat hann átt það til að hverfa ofan í kjallara og fletta upp í ýmsum heimildum sem hann geymdi samviskusamlega (t.d. Lesbók Morgunblaðsins frá ómun- atíð) og oftar en ekki hafði hann rétt fyrir sér, nema hvað! Svo var bara hellt upp á meira kaffi og sumarnóttin hélt áfram að líða fyrir utan gluggann. Hann var líka oft skemmtilega þijóskur, sérstaklega ef það við- kom einhveiju af hinum ýmsu við- fangsefnum sem hann tók sér fyr- ir hendur, því metnaðurinn til að gera vel og hafa hlutina snyrtilega var honum mikið keppikefli. Hann sá um kindurnar sínar í mörg ár af mikilli natni. Hann hafði einnig gaman af að sýsla í garðinum sín- um, enda hafði hann lagt stund á garðyrkjufræði á sínum yngri árum. Þessi hugðarefni fengu hon- um mörg verkefnin. En, það var þetta með þijóskuna... Edda, systurdóttir hans, tók eitt sinn af honum loforð, þegar hann var kominn á efri ár, að hann færi nú ekki að príla neitt í stiga við að mála þakið á húsinu. í símtali við hann nokkru síðar missti hann út úr sér við hana að hann hefði hras- að úr ólukkans stiganum og meitt sig eitthvað þegar hann var að mála þakið á hlöðunni! Þegar hún minnti hann á loforðið, var hann fljótur að svara: „Já, en ég lofaði þér bara að mála ekki þakið á íbúð- arhúsinu!“ Okkur þótti oft gaman að ýms- um tilsvörum hans, sem komu skemmtilega á óvart og sýndu að hann var bæði prakkari og gaman- samur. Þegar hann síðastliðið haust var að búa sig undir flutning frá Jaðri á sjúkrahúsið á Patreks- firði, þar sem hann ætlaði sér að dveljast í vetur, benti Edda frænka hans honum á, að hann gæti ekki farið í þessari peysu, hún væri orðin svo slitin og ljót. „Það er von að þér finnist það. Þú gafst mér hana!“ Þótt hann væri næstum orðinn níræður, fannst okkur hann eigin- lega aldrei gamall þó að hann hefði tapað talsvert heyrn fyrir mörgum árum síðan. Það var ósköp gott að eiga þennan frænda, sem var eins og fastur punktur í tilverunni fyrir vestan, heyra hressileikann í röddinni og áhugann fyrir lífinu og tilverunni. Honum þótti eigin- lega aldrei eftirsóknarvert að koma til Reykjavíkur og fann sér alltaf eitthvað því til foráttu suðurferð bar á góma. í Reykjavík var ekki sá lífsstíll sem hentaði honum, það er ekki lokkandi hafði hann samt gaman af því að ferðast og var áhugasamur að kynnast landi og staðháttum. Og nú er hann farinn, blessað- ur, og við, sem gjarnan höfum kallað okkur „litlu fjölskylduna" söknum hans öll. Okkur finnst gott að hafa átt hann fyrir frænda. Okkur þykir einnig vænt um hve vel var hugsað um hann á sjúkra- húsinu á Patreksfírði, þar sem starfsfólk lagði sig fram við að láta honum líða sem best síðasta spölinn. Hafi það þökk fyrir. Við eigum oft eftir að ylja okkur við minningamar um góðan Marra frænda á Bíldudal. Gleði í hjarta er gumnum líf og glöð lund lengir ævina. (Sírak) Theodór, Edda, Jóna og fjölskyldur. Marri frændi dó á jóladag á sjúkrahúsinu á Patreksfirði á sínu 89. aldursári. Svo lengi sem ég man eftir bjó hann einn á Jaðri á Bíldudal. Þegar hann gat ekki séð um sig sjálfur óskaði hann eftir því að komast inn á sjúkrahúsið á Patreksfirði. Þangað fluttist hann síðastliðið sumar. Veikindi gerðu hann rúmlægan fyrir tveimur mán- uðum, og þá óskaði hann sér þess að hann þyrfti ekki að liggja lengi með nefið upp í loft, eins og hann orðaði það, heldur fengi að fara sem fyrst. Þessi orð frænda lýsa honum ákaflega vel. Hann var ávallt hreinskilinn og sagði sína skoðun tæpitungulaust á málefn- um sem honum lágu á hjarta, hvort sem það voru þjóðmál eða málefni sem tengdust Bíldudal. Er að mönnum kom þá var hann ávallt varkárari í orðavali, og ekki minn- ist ég þess að hann hafi hallað orði á náungann, eða aðra sam- ferðamenn sína. Marri frændi var ömmubróðir okkar systkinanna. Afar okkar voru dánir þegar við fæddumst og það kom í hlutverk Marra frænda að fylla það skarð. Hann gerði það af mikilli alúð. í æsku okkar var Bíldudalsferðin ávallt hápunktur sumarfrísins og hlökkuðum við meira til þessara ferða en nokkurs annars. Aldrei hallaði hann orði á okkur krakkana, þrátt fyrir öll okkar læti. Jaðar var okkar leik- svæði. Þegar mamma var að skamma okkur bað hann hana gjarnan að vera ekki að amast í okkur krökkunum. Þær vikur sem við vorum hjá Marra liðu ávallt alltof hratt, og þegar að kveðju- stund kom þá leysti hann okkur krakkana alltaf út með gjöfum: Síríus-súkkulaði, ópal og pening- um. Marri frændi var ákaflega gest- risinn maður og það gat stundum verið erfitt að finna út hversu mik- ið maður þurfti að borða til að gera honum til hæfís. Hann tók aldrei nei sem svar þegar að veit- ingum kom. Borðaði maður of lítið að hans mati, þá var hann sann- færður um að maturinn væri ekki nægilega góður, og tók hann af borðum og setti nýjan á borð. Borð- aði maður of mikið þá var hann viss um að maturinn væri ekki nægur og bar meira á borð. Marri frændi var lítið gefinn fyrir ferðalög. Hversu hart sem að honum var lagt að koma suður um jól þá aftók hann það með öllu, og vildi sig hvergi hræra frá sínum ástkæra Bíldudal. Einu skiptin sem hann kom suður voru í tengslum við veikindi, og hann fór vestur um leið og hann hafði lokið sínum erindum. Það var ómögulegt að fá hann til að dveljast degi lengur en nauðsynlegt var. Þegar við systkinin uxum úr grasi fækkaði Bíldudalsferðum okkar, og þær urðu enn stopulli þegar við fórum utan til náms og starfa eitt af öðru. Marri frændi var eftir sem áður fastur punktur í tilveru okkar systkinanna, og það er erfitt að hugsa sér tilveruna án hans á sínum fasta stað. Jón Viðar, Steinunn Erla og Magnús Viðar Sigurðarböm. Hilmar Þór Hálf- dánarson — Minning Dimmur skuggi hvíldi yfir jólahátíðinni í ár eftir að okkur bárust þær hörmulegu fréttir að góður vinur okkar Hilmar Þór Hálfdánarson væri látinn eftir stutt veikindi. Við vissum að Hilm- ar lá mjög veikur á sjúkrahúsi í Borás, en við höfðum beðið og vonað að hann mundi ná sér. Hilmar Þór var fæddur 29. des- ember 1947, sonur hjónanna Hálf- dánar Einarssonar og Ingibjargar Erlendsdóttur. Hann var þriðji í röð fimm systkina og ólst upp í Nökkvavogi í Reykjavík. Ég kynntist Hilmari fyrst fyrir nærri 30 árum, er hann fór að vera með æskuvinkonu minni El- ínu Sverrisdóttur. Hann stundaði þá nám við Menntaskólann í Reykjavík, en síðan lá leiðin í Háskólann þar sem hann lagði stund á læknisfræði. Hilmar og Elín gengu í hjónaband 11. nóvem- ber 1967 og eignuðust fimm syni. Þeir eru Sverrir Þór, fæddur 1965, tvíburarnir Hálfdán Þór og Hilmar Þór, fæddir 1972, Halldór Þór, fæddur 1979, og Erlendur Þór, fæddur 1980. Eitt barnabarn eiga þau, Elínu Jennifer, dóttur Hálf- dánar og konu hans Ann Gustav- son. Árið 1977 hélt fjölskyldan til Borás í Svíþjóð þar sem Hilmar lagði stund á sérfræðinám í bæklunarlækningum. Þarna sett- ust þau að og undu hag sínum svo vel að þau hafa búið þar síðan. Þau eignuðust þarna yndislegt heimili og góða vini sem reynst hafa Ellu vel á þessum sorgartím- um. Hilmar starfaði nokkur ár á sjúkrahúsinu í Borás en síðustu ár hafði hann verið yfirlæknir á sjúkrahúsinu í Uddevalla í Svíþjóð, auk þess að reka eigin læknastofu í Borás. Samverustundum fækkaði eftir að fjölskyldan fluttist til Svíþjóð- ar, en þau komu oft til íslands. Þau voru hér síðast fyrir rúmu ári og höfðu ráðgert ferð hingað með alla fjölskylduna í júní nk. og ætl- uðu þá að láta ferma tvo yngstu strákana hér. Það var alltaf mikið tilhlökkunarefni að fá þau í heim- sókn og oft var glatt á hjalla þeg- ar gamli kunningjahópurinn hitt- ist. Einnig átti ég því láni að fagna að njóta gestrisni þeirra úti í Borás. Hilmar var mjög vel liðinn og góður læknir, en umfram allt var hann góður eiginmaður og faðir og var fjölskyldan mjög samrýnd. Elsku Ella, Sverrir, Hálfdán, Hilmar, Halldór og Erlendur, megi góður Guð gefa ykkur öllum styrk á þessum sorgartímum. Einnig sendum við innilegar samúðar- kveðjur til aldraðra foreldra Hilm- ars og systkina og Öddu tengda- móður hans sem enn einu sinni hefur misst svo mikið. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tið. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem.) Við Daddi kveðjum kæran vin með söknuði. María Ásmundsdóttir. Hilmar Þór Hálfdánarson varð 45 ára gamall. Vel látinn og menntaður læknir, starfsbróðir og vinnufélagi hefur skilið við okkur. Starfsferill hans varð því miður alltof stuttur. Að loknu læknaprófi á Islandi og tveggja ára starfi við Borgarspítalann kom hann til Sví- þjóðar eins og svo margir aðrir íslenskir læknar til framhalds- náms. Hann settist að ásamt fjölskyldu sinni í Borás og hóf sérnám í bækl- unarskurðlækningum og almenn- um skurðlækningum við Sjúkra- húsið í Borás. Við vorum svo lánsöm að fá Hilmar hingað á bæklunarskurð- deildina við Sjúkrahúsið í Udde- valla 1983 þar sem hann varð yfir- læknir innan fárra ára. Það hefur verið mikils virði fýrir deildina að hafa Hilmar hjá okkur undanfarin 10 ár. Hann var mjög fær og ná- kvæmur í starfi sínu og nýtti sér ævinlega nýjustu vísindalegu þekkingu og reynslu. Nákvæmni hans í starfi, samfara mikilli hand- lagni og afköstum, ávann honum mikla virðingu samstarfsmanna hans. Þá var hann mjög víðlesinn en einnig umhyggjusamur. Þær þúsundir sjúklinga sem komuSt f kynni við hann í Bohusléni þekktu hann sem duglegan og traustan lækni. Hæfileikar hans fólust ekki síst í að hlusta á og hughreysta fólk sem þjáðist og var mikið bækl- að. Innsæi hans og dómgreind var óvenju mikil og hann velktist aldr- ei í vafa um ákvarðanir sínar. Hilmar skilur eftir sig tómarúm á Sjúkrahúsinu í Uddevalla, einnig meðal sjúklinga sinna. Minning- arnar um Hilmar dvelja í hugum okkar. í mikilli sorg og söknuði þökkum við þér, Hilmar, fyrir vináttu þína og vinnu. I hugum okkar lifir þú áfram sem fyrirmynd um skipu- lagningu, þaulhugsaðar ákvarðan- ir og dómgreind. Þú varst íslenskur klettur sem við öll virtum og dáðum. Starfsfólk bæklunardeildarinnar við Sjúkrahúsið í Uddevalla biður fyrir samúðarkveðjur til Ellu, sona hennar, tengdadóttur og barna- barns. Bergfinn Tveit, yfirlæknir. Það var lífsglaður hópur, sem kvaddi Menntaskólann í Reykjavík að loknu stúdentsprófi vorið 1967. Við bekkjarbræðurnir í D-bekknum höfðum þá verið saman í bekk í þijá vetur. Mikil eindrægni og vin- átta var einkennandi fyrir þennan hóp, þrátt fyrir það, að skoðanir væru skiptar og áhugamál og ein- staklingar mjög mismundandi svo ekki sé meira sagt. Við vorum alls 20, en nú rúmum 25 árum síðar eru tveir fallnir frá. Hinn 22. desember sl. lést bekkj- arbróðir okkar Hilmar Þór Hálfdán- arson læknir á sjúkrahúsi í Borás í Svíbióð. Fréttin kom eins oe- reið- arslag. Enn sem komið er finnst okkur langt frá því, að okkar tími sé kominn. En kallið kemur iðulega óvænt óháð því á hvaða aldri menn eru. Við, bekkjarbræður Hilmars, vorum fjarri því að vera viðbúnir því, að enn einn yrði kallaður úr þessum litla hópi. D-bekkurinn okkar í menntaskól- anum var þekktur fyrir flest annað en að þar væru fyrirtaks náms- menn. Nokkrar undantekningar voru þó á því. Heiðarlegasta undan- tekningin hvað það varðar var Hilmar Þór Hálfdánarson sem jafn- an tók hin ágætustu próf þrátt fyr- ir það, að hann léti sinn hlut ekki eftir liggja í skemmtunum og uppá- komum, sem voru okkur bekkjar- bræðrunum hugleiknari á þessum tíma en lærdómurinn. Hilmar var afbragðs námsmaður og okkur kom það alltaf jafnmikið á óvart þann tíma, sem við vorum samskipa Hilmari hvað honum veittist létt að læra. Okkur fannst það skrítið að maður sem var hrókur alls fagnað- ar og eyddi jafnmiklum tíma og jafnvel meiri en margir okkar í annað en námið skyldi taka mun betri próf en við hinir. í maí 1992 héldum við upp á 25 ára stúdentsafmæli. Hilmar gat ekki verið þar, vegna þess að hann átti ekki heimangengt frá Svíþjóð. Við söknuðum Hilmars, en þá höfð- um við ekki hist sem hópur í tíu ár. Við höfðum hins vegar á þeim tíma ekki áhyggjur af því, að við myndum ekki sjá hann næst þegar bekkurinn hittist, en sú von verður ekki að veruleika. Við höfum með Hilmari misst góðan og glaðlyndan félaga. Við minnumst hans sem slíks. Um leið og við kveðjum Hilm- ar vin okkar og bekkjarbróður vott- um við eiginkonu Hilmars, sonum og öðrum ástvinum innilega samúð okkar vegna hins ótímabæra frá- falls hans. Bekkjarbræður í menntaskóla.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.