Morgunblaðið - 08.01.1994, Síða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JANUAR 1994
Kammertónleikar
Tónlist
Jón Ásgeirsson
Ungir tónlistarmenn við fram-
haldsnám erlendis hafa oftlega
haldið tónleika í jólafríum og sl.
miðvikudag voru slíkir tónleikar
haldnir í Seltjarnarneskirkju.
Tónlistarfólkið sem kom fram á
þessum tónleikum hefur stundað
og stundar nám víða. í Noregi,
Bandaríkjunum, Frakklandi og
Englandi og mun bera heim með
sér, margt er til gagns og auðnu
getur orðið menningu okkar Is-
lendinga.
Tónleikarnir hófust á einsöng
Guðrúnar Eddu Gunnarsdóttur
og naut hún aðstoðar Elínar
Önnu ísaksdóttur. Lögin sem
Guðrún söng voru tvö eftir
Brahms op. 91, nr. 1 og 2. Þijú
lög eftir Wolf, eitt úr spænsku
ljóðabókirrni og tvö af Mörike-
lögunum. Guðrún hefur fallega
og nokkuð þroskaða mezzosópr-
anrödd og söng nefnd lög af
þokka. Bestur var söngur hennar
í þremur söngvum frá Madag-
askar, eftir Ravel, sem var síð-
ast á efnisskránni. Guðrún er
efnileg söngkona og verður fróð-
legt að fylgjast með þroska
hennar sem tónlistarmanns.
Kristín Guðmundsdóttir lék
mjög vel flautusónötu eftir Pi-
erre Sancan og lék svo með Örn-
ólfi Kristjánssyni tvo dúetta fyrir
flautu og selló eftir Danzi. Dúett-
amir eru ansi „þunnur þrett-
ándi“ og hefðu því þurft að vera
leiknir með „virtúósískum" til-
þrifum, til að „gera sig“ en voru
samt þokkalega vel leiknir. Örn-
ólfur lék Trauermusik, eftir Hin-
demith af öryggi. Þetta sérkenni-
lega verk var samið daginn eftir
að Georg V. Bretakonungur lést
og flutt degi síðar. Sagan fylgir
þessu verki, því mönnum þótti
með ólíkindum hversu Hindemith
var létt um að semja.
Eins og fyrr segir lauk tónleik-
unum með flutningi Madagask-
ar-söngvanna eftir Ravel en
samleikur á píanóið í öllum verk-
unum, nema dúettunum eftir
Danzi, var framinn af Eiínu
Önnu ísaksdóttur, sem sýndi sig
að vera efnilegur píanóleikari.
Ekki verður neinu spáð um gengi
þessa hóps, því listamenn þurfa
á löngum tíma að þroska tækni
sína og hæfileika í átökum við
erfið verkefni og þá fyrst getur
leiknin örðið tæki tii að undir-
byggja það, sem borið er uppi
af listrænum þroska.
-
ARSALIR hf.
Fasteiqnasala
Sigtúni 9-105 Reykjavík.
C 62 43 33
Björgvin Björgvinsson,
lögg. fasteigna- og skipasali
Félag Fasteignasala
Opið í dag kl. 11-16.
Safamýri. Falleg 4ra herb. íb. á
2. hæð m. bílsk. Laus strax. Verð
8,4 millj.
Bauganes. Ca 100 fm ágæt íb.
á efri hæð i tvíb. ásamt 50 fm
bílsk. Verð 8,5 millj. Laus strax.
Vitastígur. Mikið endum. 3ja
herb. íb. á 2. hæð. Verð 5,8 millj.
Fossvogur. 4ra herb. 107 fm
nýleg íbúð á 1. hæð m. bílskúr.
Rekagrandi. Mjög falleg 4ra
herb. íb. með bílskýli. Parket og
flísar á gólfum. Frábært útsýni.
Verð 10,2 millj.
Vesturbær - Kóp. 190 fm par-
hús ásamt innb. bílsk. Skipti á
minni eign koma til greina.
Fiskakvísl. Vandað 214 fm enda-
raðh. með 38 fm bílsk.
Brattatunga. 214 fm keðjuhús
með bílskúr. - Vandaðar innr.
Mögul. á séríb. á jarðhæð.
Tjarnarmýri. Nýtt mjög vandað
267 fm raðhús m. bílskúr.
Grænamýri. Glæsil. nýtt 256 fm
einbhús m. bílskúr. Til afh. strax.
MíðhÚS. Mjög vandað nýtt ein-
býli/tvíbýli, alls 254 fm ásamt
innb. bílskúr.
Vantar allar stærðir
fasteigna á skrá.
Skoðum og verðmetum
samdægurs.
Höfum til sölu eða leigu
atvinnuhúsnæði af
ýmsum stærðum og gerðum.
Verslunarhúsnæði við
Grensásveg
Til sölu eða leigu ca 450 fm
glæsilegt verslunarhúsn.
ásamt 127 fm lager á jarð-
hæð. Góð greiðslukjör og
hagst. verð.
Rauðarárstígur. 290 fm mjög
gott verslunarhúsnæði, til sölu
eða ieigu. Laust strax.
624333
Hin helgri
vé í Berlín
Kvikmynd Hrafns Gunn-
laugssonar, Hin helgu vé,
hefur verið valin til sýninga
á Alþjóðlegu kvikmyndahá-
tíðinni í Berlín.
Hrafni Gunnlaugssyni barst
þetta boð nýlega og er jafn-
framt óskað eftir að hann verði
viðstaddur frumsýningu mynd-
arinnar á hátíðinni.
Alþjóðlega kvikmyndahátíð-
in í Berlín er meðal virtari kvik-
myndahátíða. Hún stendur að
þessu sinni frá 10.-21. febrúar
næstkomandi og er sú 44. í
röðinni.
DAGBÓK
SKIPIN
REYKJAVIKURHOFN: I
fyrradag fór Dettifoss. Þá
var búist var við að Europe
Feder og Arnarfellið færu
úr höfn í gær.
H AFN ARF J ARÐ ARHÖFN:
í gær fóru út Birte Boye og
rússnesku togararnir
Srednyaya og Burevestinik.
Þá er rækjutogarinn Anso
Molgaard væntanlegur í höfn
annað kvöld.
Þú svalar lestrarþörf dagsins
ajJeLSLE DUL
Umsjónarmaður Gísli Jónsson
Baldur Ingólfsson í Reykja-
vík, bekkjarbróðir minn og sam-
kennari á árum áður, skrifar
mér svo:
„Það er jafnan til prýði ef
menn nota myndrænt mál, en
það krefst kunnáttu og smekk-
vísi, annars er hætta á ruglingi
og smekkleysi.
Nú um skeið hefur orðasam-
bandið að eitthvað sé í burðar-
liðnum verið mjög í tísku í stað
orðasambanda eins og vera í
undirbúningi, vera á döfinni,
vera vel á veg kominn og svo
framvegis. Ótrúlega oft er auð-
séð að menn skilja ekki lengur
orðið burðarliður svo að frá-
sögnin verður klaufaleg eða
jafnvel fáránleg, til dæmis frétt
Ríkisútvarpsins um kvikmynda-
gerðarmann sem var sagður
vera með nýjá kvikmynd í burð-
arliðnum. Illskárra hefði verið
ef hér hefði átt í hlut kvikmynda-
gerðarkona! í Islenskri orðabók
Menningarsjóðs stendur: burð-
arliður, ytri hluti á sköpum
konu eða kvendýrs. Sú skýring
ætti að nægja flestum.
Það er orðið býsna algengt
að þeir sem vinna skrifborðs-
vinnu hafi orðabækur við hend-
ina, en það stoðar lítið ef þær
eru ekki notaðar. Það er oft fljót-
legra að fletta upp í orðabók en
að glíma við að finna nákvæma
merkingu orðs eða að leysa rétt-
ritunarvanda í huganum."
Þessu til frekari áréttingar lét
hann fylgja klippu héðan úr
blaðinu, þar sem sagði í fyrir-
sögn: „Viðræðurnar um GATT
í Brussel. Segja samninga í
burðarliðnum.“
Umsjónarmaður þakkar
Baldri þessar skýru og gagnlegu
athugasemdir.
Hrós um dáið héraðslið
hamast sá að skrifa
sem er ávallt illa við
alla þá sem lifa.
(Indriði á Fjalli, 1869-1943,
ferskeytla hringhend.)
★
Ur ýmsum áttum.
1) „Er ekki eitthvað bogið við
það tal útvarpsþulu sem sagði
að ... hefði „kveðið dyra“? Jú,
umsjónarmanni þykir þetta
meingallað mál. Þarna hefði
fréttaþulan átt að segja kvatt
dyra. Sagnirnar að kveða og
kveðja eru að vísu áþekkar, en
beygjast á mjög mismunandi
hátt: kveða er sterk eftir 5. röð
(kvað, kváðum, kveðið) en
kveðja er veik eftir 2. röð
(kvaddi, kvatt).
Fólk, sem ætlað er að tala,
svo að til fyrirmyndar sé, verður
að kunna þetta. Sjá Tungutak,
frá því í nóvember sl., nr. 65,
ágæta grein eftir Ara Pál Krist-
insson málfarsráðunaut.
2) Ofbýður þér ekki að heyra
fréttastjóra Stöðvar 2 segja:
„Eins og kunnugt er opnar
Kristján óperuvertíðina...“?
Jú. Mér ofbýður. Þetta er langt
handan við mörkin.
3) Hvernig er lýsingarháttur
þátíðar af sögninni að hlú(a) að?
Svar: Hann er hlúð. Við höfum
Iengi hlúð að þessu. Asgeir Blön-
dal segir að sagnmyndin að hlúa
sé frá 18. öld, líklega tvímynd
af hlýja = verma, mynduð eftir
þátíðinni hlúði.
Beyging sagnarinnar að hlýja
var ekki einbrotin að fornu, og
halda jafnvel sumir glöggir
menn að til hafi verið tvær sagn-
ir.er svo hljóðuðu, en beygðust
hvor með sínu móti (ekki með
„sitthvoru11 móti). Úr þessum
726. þáttur
frændgarði orða eru svo auðvit-
að lýsingarorðið hlýr og hvorug-
kynsnafnorðið hlý = ylur, skjól,
sbr. dönsku ly.
4) Viðmælanda umsjónar-
manns þótti að vonum kyndugt
að heyra í útvarpinu að „súpa
úr nálinni“. Það myndi líka verða
smár sopi er þaðan fengist.
Fram var tekið að ekki hefði það
verið starfsmaður útvarpsins er
svo tók til orða.
Ljóst er hvað hér hefur gerst.
Manninum hefur orðið á að rugla
saman tveimur myndhverfum
orðtökum. Annars vegar er „að
bíta úr nálinni“ = kenna á afleið-
ingunum. Oftast er sagt eitthvað
á þá leið að sá eða sú sé ekki
búin(n) að bíta úr nálinni með
eitthvað. Líkingin í þessu orðtaki
er dregin af saumaskap, og eru
kunnar þjóðsögur sem þetta
orðalag geyma.
Hins vegar er svo annað orð-
tak í svipaðri merkingu, það er
„að súpa seyðið af einhveiju“,
og ætti að vera ljóst hvað þar
liggur til grundvallar.
Blessaður maðurinn sem
„saup úr nálinni“ sagði fleira
merkilegt. Eitt var það að þetta
„ætti eftir að draga langan dilk
á eftir sér“. Lamb (og annað
ungviði) sem sýgur móður sína
heitir dilkur, en ekki er sagt að
dilkar séu langir. Þeir geta hins
vegar orðið vænir. Frummerking
orðsins dilkur er „sá sem sýg-
ur“.
Vilfríður vestan kvað:
Hann Gamaliel í Garði
Gunnhildi sína barði,
en atlotum fríðum
hann útdeildi tíðum
í annarra Svignaskarði.
26600
Opið í dag kl. 11-14
Falleg 2ja herb. íbúð ásamt stæði í bílgeymslu í nýlegu
lyftuhúsi miðsvæðis í borginni. Útsýni. Húsvörður. Laus
strax. Eign fyrir þann, sem ekki vill vera þræll húss og lóðar.
Fasteignaþjónustan,
Skúlagötu 30, 3. hæð.
Stretsbuxur
kr. 2.900
Mikið úrval af
allskonar buxum
Opið á laugardögum
kl. 11-16
12, sími 44433.
26600
Opið f dag kl. 11-14
Óvenjuleg og glæsileg fullfrágengin 6-7 herb. íbúð, 196
fm, ásamt stæði í bílgeymslu við Sjávargrunn í Garðabæ.
Kjörin eign fyrir útsýnis- og sólarsælkerann.
Verð 13,5 miilj. Ekkert áhvílandi.
Fasteignaþjónustan,
Skúlagötu 30,3. hæð.
911 Cft01 07ft LARUS Þ. VALDIMARSSON framkvæmdastjori .
L\ I JU'tlO/U KRISTINNSIGURJONSSON,HRL.loggilturfasteignasau
Til sýnis og sölu meöal annarra athyglisverðra eigna:
Nýtt timburhús - hagkvæm skipti
Glæsilegt einbýlishús á útsýnishaeð við Fannafold á tveimur hæðum
164,3 fm. 4 svefnherb., snyrting á báðum hæðum. Bílskúr - verk-
stæði tæpir 40 fm. Húsnæðislán til 40 ára kr. 3,0 millj. Margskonar
eignaskipti möguleg. Tilboð óskast.
Neðarlega við Hraunbæ
Ný endurbyggð 4ra herb. íbúð á 1. hæð. Nýtt parket, gler o.fl. Stórt
og gott eldhús. Vélaþvottahús í kj. Ágæt sameign.
Nýlegt steinhús - eignaskipti
Einbýlishús á útsýnisstað í Jöldugróf, 132 fm, með 5-6 herb. íb. Kjall-
ari 132 fm íbúðar- og/eða vinnuhúsnæöi. Sérbyggður bílskúr 49 fm.
Margskonar eignaskipti möguleg. Tilboð óskast.
Skammt frá Landspítalanum
3ja herb. íb. á 1. hæð - jarðh. 71,8 fm ósamþ. Sérinng. Sérhiti. Laus
strax. Steinhús. Þríbýli. Þarfn. nokkurra endurbóta. Lítil útborgun.
Verð kr. 2,3-2,5 millj.
Á 3. hæð í steinh. - ódýr íbúð
2ja herb. lítil íb. vestarlega við Njálsgötu. Nýl. gler. Laus fljótl. Vin-
sæll staður. Verð aðeins kr. 2,8 millj.
Á söluskrá óskast m.a.:
2ja-3ja herb. íb. við Háaleiti, Safamýri, nágr.
Ennfremur óskast einbhús i Smáíbhverfi fyrir traustan kaupanda sem
flytur til borgarinnar.
Opið ídag kl. 10-14. AIMENNA
Teikningar á skrifstofunni.
Almenna fasteignasalan sf.
var stofnuð 12. júlí 1944.
FASTEIGWASALAN
LAUGAVEG118 SÍMAR 21150 - 21370