Morgunblaðið - 08.01.1994, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 1994
11
Sala á hlutabréfum rikisins í SR-mjöli
Ekki útboð
Hreinn Loftsson, formaður einka-
væðingarnefnar ríkisstjórnarinnar,
sagði við Morgunblaðið, að verð-
bréfafyrirtækið sem sá um sölu bréf-
anna, hefði fengið það verkefni að
Göngustíg-
ur lengdur
við Ægisíðu
og 24.801 kr. mánaðargreiðslur
Honda CMc frá aðeins kr. 1.190.000,
GÖNGUSTÍGURINN sem lagður
hefur verið samsíða Ægisíðu
verður lengdur austur fyrir flug-
vallarsvæðið að Nauthólsvík á
árinu. Þá verður gerður stígur
meðfram Sæbraut frá Ingólfs-
garði og austur að listaverkinu
Sólfari til móts við Frakkastíg.
Við fyrri umræðu um fjárhags-
áætlun borgarinnar kom fram í
máli borgarstjóra að áfram verður
haldið lagningu göngustígsins sem
er samsíða Ægisíðu en framkvæmd-
ir við hann hófust árið 1992. Á þessu
ári er fyrirhugað að ljúka áfangan-
um frá dælustöð við Skeljanes og
austur fyrir flugvallarsvæðið og að
Nauthólsvík.
( ;æð AELÍSAR ÁGÓÐU VEF DI
... M i
h^iiC 11
V 1^4
T T 1
Stórhöfða 17, við Gullinbrú, sími 67 48 44
O HONDA
Vatnagörðum - Sími 689900
-kjaraboð!
’!'Meðalmánaðargreiðsla án vaxta til 3ja ára fyrir Honda Civic 3ja dyra DX árg. 1994
HARALDUR Haraldsson undirbýr málshöfðun á hendur sjávarútvegs-
ráðherra til að fá rift sölu á hlutabréfum ríkisins í SR mjöli hf., í ljósi
þess að tilboð Haraldar í bréfin hafi verið eina löglega tilboðið sem í
þau barst. Formaður einkavæðingarnefndar ríkisstjórnarinnar segir
hins vegar, að tilboð Haraldar hafi ekki verið gilt, þar sem það upp-
fyllti ekki sett skilyrði. Bréfin voru seld hópi loðnuútgerða og fjár-
festa sem einnig buðu i bréfin
Sigurður G. Guðjónsson lögmaður
Haraldar segir málsóknina háða því
að samþykki fáist fyrir flýtimeðferð
málsins fyrir héraðsdómi Reykjavík-
ur og það komi í ljós eftir helgi.
Fáist það samþykki verði látið reyna
á það hvort við söluna hafi ekki
verið brotnar allar reglur stjórnar-
farsréttar, sem stjórnvöld eigi að
gæta í samskiptum við þegna sína,
og hvort ekki sé á þeim grundvelli
hægt að fá þeirri stjórnarathöfn, sem
sala bréfanna sannanlega sé, hnekkt
með dómi. Jafnframt sé verið að
kanna hvort hægt sé að gera þá
kröfu að lagt verði fyrir stjórnvaldið
að ganga til samninga við Harald.
Aðeins eitt tilboð
Haraldur Haraldsson sendi frá sér
fréttatilkynningu í gær, þar sem
segir, að sjávarútvegsráðherra hafi
með greinargerð sem birtist í Morg-
unblaðinu í gær, staðfest að aðeins
hafi eitt tilboð hafi borist í hlutabréf
ríkisins í SR-mjöli hf. í greinargerð-
inni eru bæði tilboðin í hlutabréf
SR-mjöls birt. Var annað frá hæsta-
réttarlögmönnunum Benedikt
Sveinssyni og Jónasi Aðalsteinssyni
fyrir hönd hópsins sem síðan fékk
bréfin til kaups. Hitt var frá Sigurði
G. Guðjónssyni hrl. fyrir hönd Har-
aldar og fleiri fjárfesta.
Haraldur segir í fréttatilkynning-
unni, að fráleitt sé að líta á bréf
Benedikts og Jónasar sem tilboð; í
mesta lagi megi líta svo á að lög-
mennirnir bjóðist til að smala saman
einhveijum ótilgreindum aðilum til
að ræða hugsanleg kaup á hlutabréf-
unum. Bréfið hafi ekki falið í sér
loforð í lögfræðilegum skilningi, en
loforð sem viðtakandi geti samþykkt
sé nefnt tilboð.
leita að traustum kaupanda og fá
sem best verð fyrir bréfin. Ekki
hafi verið um útboð að ræða í skiln-
ingi laga um útboð þar sem þau lög
gildi eingöngu um útboð á vöru eða
þjónustu.
í þessu tilfelli hefði ákveðinni
aðferð verið beitt og seljanda bréf-
anna, ríkinu, hefði í kjölfarið verið
fijálst að taka hvaða boði um við-
ræður sem var. Seljandinn tekið til-
boð umbjóðenda Jónasar og Bene-
dikts sem fullgilt tilboð sem fæli í
sér greiðslu að lágmarki 650 milljón-
ir króna fyrir bréfin. í viðræðum
hefði síðan komið í ljós, að tilboðs-
gjafar voru reiðubúnir til að greiða
725 milljónir fyrir bréfin.
Hreinn sagði, að tilboð Haraldar
og félaga hans hefði hins vegar ekki
verið gilt, því það hefði ekki upp-
fyllt skilyrði um fjárhagslega getu,
og ekki hefðu fengist skýringar á
forsendum þess þrátt fyrir skýr
ákvæði um það í reglum sem áður
voru kynntar þátttakendum.
Lögfræðistörf fyrir Sjóvá
í fréttatilkynningu Haraldar er
Hreinn Loftsson krafinn svara um
hvort rétt sé að lögfræðiskrifstofa
sem hann rekur ásamt fleiri lög-
mönnum hafi á grundvelli sérstaks
samnings tekið að sér lögfræðistörf
fyrir Sjóvá Almennar hf. en það fé-
lag er meðal kaupenda að SR-mjöli.
Sé svo, sé Hreinn Loftsson algerlega
vanhæfur til að fjalla um mál þetta.
Hreinn sagði um þetta, að hann
hefði ekki tekið að sér nein lögfræði-
störf fyrir Sjóvá-Almennar. Hins
vegar hefði einn meðeiganda hans
að lögfræðistofunni, Ólafur Axels-
son, tekið slík verkefni að sér. Því
væri fullyrðing Haraldar röng, og í
samræmi við málflutning hans í kjöl-
far sölunnar á SR-mjöli hf.
Morgunblaðið/Þorkell
Efnilegir skákmenn
SKÁKSKÓLI íslands hélt námskeið fyrir úrvalsnemendur af
landsbyggðinni í húsnæði skólans dagana 3.-6. janúar sl. 24
nemendur á aldrinum 10-16 ára, víðsvegar að af landinu, mættu
á námskeiðið. Kennslu, sem stóð frá morgni til kvölds, önnuðust
stórmeistararnir Hannes Hlífar Stefánsson, Jóhann Hjartarson
og Jón L. Árnason. í lok kennsludaganna tefldu þátttakendur
skákmót, sem lauk með sigri Halldórs Inga Kárasonar frá Akur-
eyri.
O
Málshöfðun undirbú-
in til að rifta sölunni